Dagur - 12.08.1959, Qupperneq 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagu
DAGUR
kemur naest út miðviku-
daginn 19. ágúst.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 12. ágúst 1959
42. tbl.
Heildarsölfun á Sigluf. 111768 tn.
Siglufirði 11. ágúst. Síldarverk-
smiðjur ríkisins á Siglufirði hafa
tekið á móti 258.390 málum síld-
ar, fram að 10. þ .m. SR á Rauf-
arhöfn 99.665 málum og Síldar-
verksmiðjan Rauðka á Siglufirði
77 þúsund málum.
Heildarsöltun frá Djúpuvík til
Reyðarfjarðar, að báðum stöðun-
um meðtöldum er 193.734 tunnur.
Þær söltunarstöðvar á Siglu-
firði, sem saltað hafa meira en 7
þúsund tunnur eru: Sunna 9118
tunnur, Síldarsöltunarstöð Óla
Hinriksen 7932, Söltunarstöðin
Nöf 7925 og Pólstjarnan 7008
tunnur. Heildarsöltun á Siglu-
firði er 111.768 tunnur.
Fjálsíþróftamót Norðurlands á
Akureyri dagana 15. og 16. þ.m
Dagana 15. og 16. ágúst verður
Norðurlandsmót í frjálsum íþrótt
um háð hér á Akureyri. Það
hefst kl. 2 e. h. með setningar-
ræðu Ármanns Dalmannssonar,
form. í. B. A., síðan fer fram
keppni í 100 metra og 1500 metra
hlaupi, hástökki, langstökki,
kúluvarpi, 110 m. grindahlaupi
og 4x100 m. boðhlaupi.
Konur keppa í 100 m. hlaupi,
kúluvarpi og langstökki.
Kl. 8 verður svo keppt í stang-
arstökki, 400 m. hlaupi og spjót-
kasti.
Síðari mótsdagur.
Síðari daginn hefst keppni kl.
4 og keppt í 200 m., 800 m. og
3000 m. hlaupum, kringlukasti,
þrístökki, 400 m. grindahlaupi og
1000 m. boðhlaupi.
Konur keppa í hástökki, kringlu
kasti og 4x100 m. boðhlaupi.
Á bamaleikvelli á Akureyri. (Ljósmynd E. D.)
Bíll flaug á húsgafl og braut hann
Merkur áfangi í flugmálunum
®Fyrsti flugturnmn sem íslendingar byggja var
tekinn í notkun á Ákureyrarflugvelli í gærdag
Ný fiskimið við ísland
Siglufirði 11. ágúst. Sá atburður
gerðist hér um kl. 9 í gærkveldi,
að fólksbifreið ók fram af 6—8
metra háum bakka við Suður-
götu, mjög bröttum. Bifreiðin
mun hafa verið á mikilli ferð því
að hún bókstaflega flaug þar
fram af og hafnaði á gafli húss
eins er þar stendur fyrir neðan.
„Stuðari“ bílsins braut húsgafl-
inn, sem er úr timbri og það sem
ótrúlegt er, vegsummerkin á hús
inu voru alllangt frá jörð — var
þetta því ósvikið bílflug.
Sá, sem bifreiðinni ók, er Reyk
víkingur, en stúlkur tvær, sem
voru með honum er þessi atburð
ur varð, eru báðar frá Akureyri.
Skúlagarður í Keldu-
hverfi vígður
Síðastliðinn sunnudag var fé-
lags- og skólaheimilið Skúlagarð
ur í Kelduhverfi, sem risið hefur
að Krossdal þar í sveit, vígt við
hátíðlega athöfn. — Vígsluhátíð-
in hófst kl. 2 síðdegis. Ræður
fluttu m. a. formaður bygginga-
nefndar, Björn Þórarinsson í
Kílakoti, Helgi Elíasson, fræðslu-
málastjóri, og Stefán Jónsson,
námsstjóri.
Við þetta tækifæri afhjúpaði
Árni Óla, ritstjóri, fulltrúi Þing-
eyingafélagsins í Reykjavík,
minnismerki um Skúla Magnús-
son, landfógeta, sem stendur úti
fyrir hinu nýja félagsheimili. —
Guðmundur Einarsson frá Mið-
dal hefur gert minnismerkið, en
það er í líki arnar á háum stuðli.
Héraðsbúar fjölmenntu til
Skúlagarðs þennan dag, og þang-
að komu einnig margir burt-
fluttir Keldhverfingar og aðrir
gestir.
Skarst önnur á handlegg en hin
handleggsbrqtnaði. Bílstjórinn
-slapp ómeiddur.
Um sama leyti datt tveggja ára
telpa út um glugga á þriðju hæð
í húsi einu hér í bæ. Fallið var
um 6 metrar en gras undir glugg
anum. Barnið hlaut ekki meiðsli,
að því er séð verður.
Fiskiskipið „Nylon” frá Ála-
sundi hefur fundið ný og auðug
fiskimið hér við land og fékk þar
fullfermi á tæpum tveimur vik-
um af löngu, keilu og lúðu, um
45000 kg alls: Eru mið þessi hér
fyrir sunnan land á allmiklu
svæði frá 12 mílna línunni og
40—50 sjómílur til hafs. Kveðst
skipstjóri hafa vitað um veiði-
svæði þetta í nokkur ár, en það
hafi ekki verið fyrr en í sumar,
að 5—6 Sunnmærabátar hafi
komið þangað og aflað vel.
63 mál íyrir Allsherjarþing S. Þ.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna keniur saman í 14. sinn hinn
15. sept. í Aðalstöðvum samtakanna
í New York. Meðal þeirra stórmála,
sem tekin verða til meðferðar, eru
málamiðlun S. I>. í Alsfr-striðinu,
aðild Kína að samtökunum, og kytt-
jtáttavandamálið í Suður-Afríku.
A dagskrá þingsins, eins og hún
liggur fyrir nú, eru 63 mál. Auk
hinna venjulegu mála, sem fjallað
er um á hverju þingi, verður rætt
um möguleikann á því að attka
meðlimatölu Öryggjsráðsins og
Efnahags- og félagsmálaráðsins. I>á
verður rætt um fjö'Igun í Alþjóða-
dómstólnum. Öll Jtessi ntál voru
cinnig rxdd á síðasta þingi.
I>á eru á dagskrá Jringsins umræð-
ur um bann við tilraunum með
kjarnavopn.
Af skýrslum sem lagðar verða
frarn má nefna skýrslu um nýtingu
kjarnorkunnar og geimsins, skýrsl-
ttr um efnahagsþróunitta í vanþró-
uðum löndum, þróunina á gæzlu-
verndarsvæðum samtakanna, gæzlu-
lið S. I>. (m. á. kostnaðinn við ]<að)
og starf S. I>. meðal flóttamanna.
Allsherjar Jnngið verður sett af
formanni sendinefndarinnar frá
Ltbanon.
Kristinn Jónsson, forstjóri Flugfélags íslands á Akureyri, bauð
fréttamönnum til kaffidrykkju í gær í tilefni rnerks áfanga í
flugþjónustunni. Hitm nýi flugturn á Akureyrarflugvelli var þann
dag tekinn í notkun. Er það merkur viðburður, þar sem þetta er
fyrsti flugturninn, sem íslendingar byggja og taka til notkunar.
Öll flugumferðastjórn hér er
nú flutt í hin nýju húsakynni,
þótt byggingu sé enn ekki lokið.
Nýr radar, fullkomnari en sá,
er áður var, hefur verið settur
upp. Frá hinum nýja flugturni
var í gærmorgun fyrsta lending-
arheimild veitt. Vinnuskilyrði
hafa batnað ótrúlega mikið og
flugöryggið að sama skapi.
Þúsund lendingar á ári.
Á Akureyrarflugvelli eru
sennilega um 1000 lendingar á
ári og tala farþega, sem fara um,
flugvöllinn, um eða yfir 20 þús-
und. Auðséð er því, hve mikils
virði hin nýja framkvæmd er
fyrir flugið hér um slóðir.
Merkur áfangi.
En þótt merkum áfanga sé
fagnað eru mörg verkefni óleyst
á Akureyrarflugvelli. Sjáifur er
Síldaraflmn orðinn 843 mál og funnur um s. I. helgi
Afli í síðustu viku 78 þús. mál og tn. - Mikil
reknetaveiði í Húnaflóa. - Fanney lóðaði mikla
síld út af Skallarifi í Húnaflóa.
í hinni vikulegu skýrslu Fiski- inn þá, á sama tíma, var 443.861
félags fslands segir svo: Á mið-
nætti sl. laugardag var síldarafl-
inn kominn upp í 834.669 mál og
tunnur eða nær tvöfalt magn mið
að við síðastliðið ár. Heiidar afl-
mál og tunnur.
í bræðslu eru komin 625 þús.
mál, í salt 194 þús. tunnur upp-
saltaðar og í frystingu 15 þús.
uppmældar tunnur (hundruðum
sleppt).
AFLAHÆSTU SKIPIN: Víð-
ir II., Garði, 13.752 mál og tunn-
ur, Faxaborg, Hafnarfirði, 12.415
Snæfell, Akureyri, 11.272, Jón
Kjartansson, Eskifirði, 11.133 og
Guðmundur Þórðarson, Reykja-
vík, 10.744 mál og tunnur. Önn-
ur skip hafa innan við 10 þús.
Skrá yfír síldveiðarnar er birt
annars staðar í blaðinu í dag.
flugturninn ófullgerður og gler-
turninn sjálfur eftir með meiru,
flugbrautina þarf að malbika og
lengja og byggngar fyrir hina al-
mennu farþegaafgreiðslu þarf að
reisa. Ekki skyggir þetta þó á
neinn hátt á þá áfanga, sem náðst
hafa á því 10 ára bili, sem liðið
er síðan framkvæmdir hófust við
flugvöllinn.
Nokkrir forráðamenn flug-
málanna voru viðstaddir, meðal
annarra settur flugmálastjóri,
Gunnar Sigurðsson, og gáfu þeir
ágætar upplýsingar um einstök
atriði varðandi flugþjónustuna
almennt og framkvæmd þá, sem
hér um ræðir.
Fimmtíu þúsund eigin-
menn lilaupa að heiman
Brezk stjórnarvöld hafa nú
hleypt af stað heilum hóp lög-
reglumanna til smalamennsku
um land allt með það fyrir aug-
um að heimta af fjalli a. m. k.
einhvern hluta þoirra 50 þús-
unda eiginmanna, sem hlaupið
hafa frá konum sínum og börn-
um og snúið baki við öllum
skyldum við heimili sin.
Verst er að lögreglumenn fá
litla aðstoð kvenna þeirra, sem
heima sitja, jafnvel þótt mörgum
þeirra sé kunnugt, hvar bændur
þeirra ali manninn og haldi til.
Þær fá sem sé ríkisstyrk, meðan
ekki er kunnugt, hvar eiginmað-
urinn er niður kominn. Telja
konurnar því styrk þennan viss-
ari og notadrýgri pening heldur
en óvissa greiðslu frá stroknum
eiginmanni.