Dagur - 02.09.1959, Page 1

Dagur - 02.09.1959, Page 1
XLII. árg. Akureyri, niiðvikudaginn 2. september 1959 45. tbl. Biskupinn yíir Islandi, hr. Sig- urbjörn Einarsson á tröppum Hóladómkirkju. (Ljósm.: E. D.). Séra Ásmundur Guðmundsson, fyrrv. biskup og Bjarni Jónsson vigslubiskup ganga úr kirkju. — (Ljósmynd: E. D.). Virðuleg biskupsvígsla á Hóiuni Séra Sigurður Stefánsson prófastur að Möðru- völlum í Hörgárdal vígður af biskupi íslands til vígslubiskups hins forna Hólastiftis Á sunnudaginn vígði biskup- inn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, séra Sigurð Stefáns- Héraðssamkoma F ramsóknarmanna í Eyjafirði verður haldin að Freyvangi á sunnud. og hefst hún kl. 9 e. h. Gísli Guðmundsson alþingis- maður flytur ræðu, JÓhann Kon- ráðsson syngur, Hjálmar Gísla- son skemmtir og að síðustu verð- ur dansað. Sætaferðir frá Ferðaskrifstof- unni á Akureýri. Þess er vænst að héraðssam- koman verði fjölsótt. son prófast að Möðruvöllum í Hörgárdal til vígslubiskups hins forna Hólastiftis. Vígslan fór fram í Hóladóm- kirkju. Kirkjan var þéttsetin og athöfnin hin virðulegasta, hófst hún kl. 2 e. h. með skrúðgöngu kennimanna í kirkju. Vígsluathöfnin fór fram, svo sem auglýst var, og áður hefur verið frá sagt hér í blaðinu. Helgi hinnar gömlu kirkju og virðuleiki vígslunnar og guðs- þjónustunngr allrar snart alla viðstadda. Þar sem ákveðið mun vera, að þessum minnisstæða atburði verði útvarpað, sennilega um næstu helgi, verður frásögnin ekki ýtarlegri hér, en birtar nokkrar myndir í þess stað. Hinn nývígði vígslubiskup Hóla- biskupsdæmis, séra Sigurður Stefánsson prófastur á Möðru- völlum. — (Ljósmynd: E. D.). — Þór, forystuskip íslenzku landhclgisgæzlunnar. Annað fullkomið varðskip er í smíðum með útbúnað fyrir þyrilvængju. Ofbeldisaðgerðir Breta á íslandsmiðum hafa staðið í eitt ár ÖIl blöð landsins minntust þess afmælis í gær, að eitt ár er liðið síðan 12 mílna fiskveiðitakmörkin hér við land tóku gildi og Ríkisutvarpið helgaði þessu sérstæða afmæli hluta dagskrár sinnar. Nákvæmlega jafn langan tíma hafa Bretar — einir allra fiski- veiðiþjóða — óvirt þessa stækkun fiskveiðilandhelginnar í verki með ofbeldisaðgerðum á miðunum. Þeir hafa sent 37 herskip, tundutspilla og freigátur, á Is- landsmið og fyrirskipað hverjum einasta brezkum togára að brjóta íslenzk lög með því að gerast veiðiþjófar tiltekinn Iág- markstíma í hverri veiðiferð. Þessi herskipafloti BTeta, ásamt birgðaskipum, er um 66.400 toíin og á honum hafa verið 8— 9000 hermenn. Verkefni hans hefur verið það éitt að vernda brezka togara gegn löglegum störfum hinnar íslenzku land- helgisgæzlu, auk þess að sjá um að reglubundin landhelgis- brot væru framin án undantekninga. Þessi eindæma níðingsháttur hinnar voldugu bandalags- þjóðar hefur vakið þjóðarreiði og algera samstöðu allra Is lendinga. — Þrettán landhelgisbrjótar hafa verið tíl jafnaðar dag hvem innan hinna íslenzku fiskveiðilakmarka. AIls hefur landhelgisgæzlan kært yfir 260 brezka togara, suma margoft. Allir sjá hve gífurlegur og raunar heimskulegur kostnaður fýlgir þesstim veiðiþjófnaði Bretanna. Þeir hafa 8—9000 manna herlið til að gæta hinna 13 togara, sem til jafnaðar stunda veiðiþjófnaðinn með um 250 sjómenn innanborðs. — Afli hinna brezku togara hetur einnig minnkað. Hins vegar er Bretúm annt um stórveldisásjónú sína. Sú ásjóna er orðin að grárri og fjándsamlegri grettu, sem ber í sér eliimörkin og hnignuúina. — Ránsvæði Bretanna hér við land hafa verið um 2.450 ferkílómetrar, eða 3,5% af landhelgihni. Þessar töl- Uí tala skýru tnáli, 96,5% landhelginnar hafa verið laús við erlenda ágengni. í gær var búizt við Stórum tíðindum af miðunum. Én þegar bláðið fór i pressuna höfðu engir óvenjulegir atburðir gei zt. AÍIir íslendingar standa sem einn maður um fullan rétt sinn tif útfærslu fiskveiðiíandhelginnar. MORÐ FRAMK) Á AKRANESI? Aðfaranótt mánudags er talið að 22 ára drukkinn sjómaður á Akranesi hafi myrt konu eina vanheila á elliheimilinu þar. — Sat hann yfir likinu er að var komið. Krufning bendir til að konan, sem hét Ásta Þórarins- dóttir, hafi verið kyrkt.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.