Dagur - 23.09.1959, Síða 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst vit miðviku-
tlaginn 30. september.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. septembcr 1959
50. tbl.
Gengor á gef in lof orð og staðf estir svik
sín með lögimi um kauplækkun bænda
Flugíélag Islands heíur í sumar flutt marga Islendinga snögga ferð til Grænlands. Hér er grænlenzk
mynd, sem skýrir sig sjálf, tekin af Snorra Snorrasyni.
Mannaskipti við Útibú Búnaðarbankans á Ákureyri
Bernharð Stefánsson alþingis-
maður hefur nú látið af banka-
stjórastarfi við Útibú Búnaðar-
bankans á Akureyri fyrir aldurs
sakir. Elías Tómasson hefur
einnig fengið lausn frá gjaldkera-
störfum (hann er 65 ára). Stein-
grímur Bernharðsson hefur verið
skipaður bankastjóri og Jóhann
Helgason frá Þórustöðum gjald-
keri.
Steingrímur Bernharðsson er
frrtugur að aldri. Hann tók gagn-
fræðapróf árið 1937 og kennara-
próf 1940, var um tíma sjúkling-
úr á Kristneshæli, en náði fullri
heilsu og hefur verið skólastjóri
barna- og unglingaskólans á
Dalvík síðastliðin 13 ár. Hann
hefur á sumrin oft starfað í Bún-
aðarbankanum og tvívegis verið
þar settur bankastjóri i veikinda-
Við getum sent 7 menn á þing
Nýlega var sú ábending hér í blaðinu, að kjósendur í Norð-
urlandskjördæmi eystra gætu sent 7 menn á þing, með því að
kjósa 4 Framsóknarmenn. Skal þetta nú rökstutt nánar og
þá að sjálfsögðu miðað við úrslit síðustu alþingiskosninga. En
þá lítur dæmið þannig út:
Framsóknarflokkurinn þarf að vinna 71 atkvæðj frá AI-
þýðubandalaginu til að ná þingsæti þaðan (aðrar tölur
óbreyttar).
Alþýðubandalagið fengi þá 1191 atkv., eða 12,42%, og
rayndi efsti maður þess hljóta uppbótarþingsæti, fjórða sæti
þess flokks á næst hæstu hlutfallstÖIu í stað efsta manns á
Norðurlandi vestra.
Framsóknarflokkurinn þarf að vinna 185 atkvæði frá Sjálf-
stæðisflokknum til að ná öðru sæti Sjálfstæðismanna (miðað'
er við að aðrar tölur séu óbreyttar). Sjálfstæðisflokkurinn
fengi þá 2436 atkv. Annar maður listans fcngi þá 1218 atkv.,
eða 12,71% gildra atkvæða. í kjördæminu, og myndi fá upp-
bótarþingsæti, annað sæti flokksins á hæstu hiutfallstölu hans
I stað 3ja manns Sjálfstæðisílokksins í Norðurlandskjördæmi
vcstra.
Efsti maður á lista Alþýðuílokksins myndi halda sínu upp-
bótarsæti, sem 3ja sæíi fiokksins á aðra hæstu tölu, að
Reykjavík frátekinni, þar sem annar maður í Reykjaneskjör-
dæmi vinnur á hæstri hlutfallstölu. Alþýðuflokkurinn héldi
sínum manni fyrir öðrum Alþýðuflokksmönnum í öðrum kjör-
dæmum, þó að hann tapaði 160 atkvæðum.
Af þcssu er Ijóst, að með kosningu fjórða manns á lista
Framsóknarmanna, lngvars Gíslasonar, geta kjósendur í
Norðurlandskjördæmi eystra bætt við sig því þingsæti, sem
þríflokkamir sviptu þennan landshíuta með ákvörðun sinni
um 6 þingmenn í stað 7, svo sem réttlátt var.
forföllum og í sumarfríum fastra
starfsmanna.
Steingrúnur Bcrnharðsson.
Jóhann Helgason var áður
skrifstofumaður hjá Kaupfélagi
Eyfirðinga, en var þó gjaldkeri
bankans í fyrra og nú í sumar
settur gjaldkeri. Hins bezta er að
vænta af hinum nýju starfs-
mönnum.
Fimmtiii krónu veltan
beir sem hafa fengið vcltu-
áskoranir, og taka þeim, cru
vinsamlegast beðnir um að
Ieggja sitt fram til þess að
veltan renni áfrain enn um
sinn. — Skrifstofa Framsókn-
arfloltksins, Goðafossi, tekur á
móti 50 kr. seðlinum og kcmur
frekari áskorunum á framfæri.
Ríkisstjórn Alþýðuflokksins og
Sjálfstæðisflokksins gaf síðasta
laugardag út bráðabirgðalög um
verðlag landbúnaðarafurða.
Tildrög málsins eru þessi:
Sú 6 manna ncfnd, sem skipuð
er að jöfnu frá framleiðendum og
neytendum, varð ekki á eitt sátt
um verðlagsgrundvöll landbún-
aðarvara nú í haust. Samkvæmt
lögum ber að leggja ágreinirigs-
efni, ef einhver verða, fyrir eins
konar gerðardóm, sem skipaður
er sínum fulltrúa frá hvorum að-
ila, neytendum og framleiðend-
um og hagstofustjóra, sem odda-
manni.
Þegar ágreiningur varð, var
skylt að leggja málið fyrir gerð-
ardóminn. En það var ekki gert.
Fulltrúar neytenda neituðu að
tilnefna mann í gerðardóminn,
ríkisstjórnin vék sér undan að
sjá til þess að svo yrði gert, en
gaf í þess stað út bráðabirgðalög’
um verðlag landbúnaðarafurða,
og hafa þau þegar verið birt.
Lög þessi mæla fyrir um, að
landbúnaðarvörur skuli ekki
hækka, þrátt fyrir þau loforð í
vetur, er gengið var freklega á
i’étt bænda, að það skyldi leið-
rétt nú í haust. Og þrátt fyrir þá
staðreynd einnig, og viðurkenn-
:ngu stjórnmálaflokkanna, að
landbúnaðarvörur þyrftu að
bækka í verði um 3,18% til þess
að bændur hefðu hliðstæðar
tekjur og aðrar stéttir, lögleiðir
stjórn Alþýðu- og Sjálfstæðis-
Elokksins þau gerræðisfullu svik
er fela í sér réttarskerðingu
bændastéttinni til handa.
Mcð þessu gerir hin glappasæla
ríkisstjórn sig seka um margs
konar óhæfu. Hún níðist á einni
stétt landsins með því að gera
henni lægri tekjur en öðrum
sambærilegum stéttum þjóðfé-
lagsins, og bindur þetta með lög-
um. Ríkisstjórnin lögbýður með
þessu atferli réttleysi heillar
stéttar. Hún sviftir bændastétt-
ina þeim rétti, sem verðlagskafli
framleiðsluráðslaganna veitti
bændum og gerir þá að réttlausri
stétt um tekjur sínar, á sama
tíma og nðrar stéttir þjóðfélags-
ins hafa lausa samninga og verk-
fallsrétt sinn óskertan. Hin nýju
bráðabirgðalög eru í raun réttri
lögboðin kúgun, og er hótun um
afnám á almennu réttaröryggi
allra stétta þjóðfélagsins.
Afsökun stjórnarinnar er nú,
að með þessari aðferð verði helzt
afstýrt verkföllum — að með því
að níðast á einni stétt verði öðru
haldið í skefjum.
Réttarfar af þessu tagi ætti að
tilheyra liðinni tíð. Það samrým-
ist engum réttlætishugmyndum
lengur, að hengja heiðvirða borg-
ara á torginu öðrum til viðvör-
unar. Það er ekki sæmilegt dóms
málaráðherra að gefa slíku rétt-
arfari undir fótinn.
Hlutur Sjálfstæðisflokksins,
sem bjó til núverandi rík-
isstjóin, styður hana í orði og
verki og ber á henni alla ábyrgð,
er hinn hörmulegasti.
Á meðan samningar stóðu yfir
lék hann tveim skjöldum.
Sjálfstæðismaðurinn í hópi
neytenda í verðlagsnefndinni bar
fram kröfur um að aíurðaverð
ætti að lækka. Sjálfstæðismaður-
inn í hópi framleiðenda krafðist
hækkunar afurðaverðs — allt
eftir tilskipan Sjálfstæðisflokks-
ins.
Síðan lét Sjálfstæðisfl. og Al-
þýðufl. í ríkisstjórn gefa út bráða
birgðalög, sem staðfestu svikin
við bændur.
Þar á eftir gaf svo Sjálfstæðis-
flokkurinn út tvær yfirlýsingar,
þar sem hann (af hræðslu við
Framhald á 7. siöu.
Nýjasta austur-þýzka togskipið á Ak.
fc': ..........
Steingrímur trölli, ST 2, nýjasta austur-þýzka togskipið kom hér
að bryggju í gær. — Ljósmynd: E. D.).