Dagur - 07.10.1959, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 7. október 1959
D AGUR
Jarðarför föður okkar og bróður míns,
SIGURSTEINS GUNNLAUGSSONAR,
Norðurgötu 6 B, sem lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri 2. okt. fer fram frá Akureyrarkirkju laugardaginn 10.
okt. kl. 2 e. h.
Sigurður Sigursteinsson, Vernharð Sigusteinsson,
Auðbjörg Sigursteinsdóttir, Rannveig Gunnlaugsdóttir.
Hjartanlega þakka eg þeim mörgu fjær og nær, sem veittu
mér aðstoð og sýndu samúð við andlát og jarðarför manns-
ins míns,
FRIÐJÓNS GUÐMUNDSSONAR.
Guð launi ykkur öllum.
Albína Bergsdóttir.
1 . . , I
© Innilegustu þakkir fœri ég börnum, tengdabörnum, t
V barnabörnum, systkinum mínum os öðrum vinum er %
2 glöddu mig á 70 ára afmœlisdegi mínum 15: sept s. I. ±
% með heimsóknum, gjöfum. og skeytum og gerðu mér +
j. daginn ógleymanlegan. i
Guð blessi ykkur óll.
Aðalsteinn Tryggvason
] órunnarstöðum.
& - <3
é 'Öllum þeim sem glöddu mig á fimmtugsafmæli minu *
& með nœrveru sinni gjöfum og heillaskeytum sendi ég <•>
# innilegustu þakkir minar og hughlýjar góðóskir. #
© <3
± Gunnar Jónsson, Dalvik. z
^#S-©-^«*^**©-^^©-i-*^©-H^^«^^
Spilaklúbbur
Skógræktarfélags Tjarnargerðis og bílstjórafélaganna í
bænum.
Félagsvist í Alþýðuhúsinu föstudaginn 9. okt. kl. 8.30
e. h. — Veitt verða tvenn kvöldverðlaun hverju sinni og
heildarverðlaun eftir fjögur kvöld.
1. KOMMÓÐA
2. REYKINGABORÐ
3. ÚTVARPSBORÐ
Einnig hlýtur sá verðlaun, sem flesta slagi hefur eftir
allan veturinn (ca 8 kvöld) Spilafólk fjölmennið, takið
með ykkur vini og kunningja, keppið um glæsileg verð-
laun og skemmtíð ykkur þar sem f jörið er mes't'. — M'æt'-
ið stundvíslega. — Húsið opnað kl. 8.
NEFNDIN.
ÞÝZKIR LÍSTAMENN VÆNTANLEGIR
Tónlistarfélag Akureyrar
heldur þriðju tónleika sína á þessu ári næstkomandi
föstudagskvöld kl. 9 í Nýja bíói. Þar munu skemmta
þessir þýzku listamenn:
INA-MARIA jENSS, sópran
MAX JANSSEN, tenór
WERNER SCHOLZ, fiðla
DIETER BRAUER, pianó.
Allt er þetta ungt listafólk, sem nýlega hefur lokið námi
við tónlistarháskóla og nýtur mikils álits, enda ferðast
víða um Evrópu til tónleikahalds. Viðfangsefnin verða
m. a. eftir: Hiindel, Beethoven, Schubert, Spies, Wag-
ner, Brahms, Thilman, Glinka, Schumann, Liszt og
Tsaikovskí. — Verið er að bera út aðgöngumiða um bæ-
inn til styrktarfélaga þessa dagana og nýir félagar geta
innritað sig hjá gjaldkera félagsins Haraldi Sigurgeirs-
syni eða ritara þess, Jóhanni Ó. Haraldssyni og for-
manninum, Stefáni Ág. Kristjánssyni. Má búast við
mikilli eftirspurn aðgöngumiða og þess vegna ástæða
til að tryggja sér þá í tíma, með því að gerast styrktarfé-
lagar, en það er mjög takmarkað, sem hægt er að bæta
við.
Miele-skellinaðra
T I L S Ö L U.
Er i mjög góðu lagi.
Skúli Ágústsson
Ránargötu 10.
ATVINNA!
Stúlka óskast til eldhússtarfa
nú þegar.
MATUR OG KAFFI
Sími 1021.
Stór stofa
til leigu í innbænum.
Afgr. v. á.
TIL SOLU:
Stofuskápur á kr. 2.500
Bókaskápur með gleri 1.500
Gólfteppi alullar með filti
á kr. 3.000
Þetta er tækifærisverð.
Upplýsingar í síma 2088.
Eldri dansa klúbburinn
byrjar vetrarstarfsemi sína
laugardaginn 10. okt. næst-
komandi með dansleik í
Alþýðuhúsinu kl. 9 síðd.
Aðgöngumiðasala frá kl.
8—10 miðvikudag 7. og
fimmtudag 8. okt. — Eldri
klúbbfélagar sitja fyrir mið-
unum fyrra kvöldið.
Stjórnin.
Skellinaðra
til sölu, Marz 1959.
Uppl. gefur Adolf Ás-
gfímsson, sími 1265.
Herbergi óskast
\ Stúlka óskar eftir herbergi
með innbyggðum skáp,
helzt sem næst miðbænum.
Uppl. í síma 2206.
Dívan
til sölu, lágt verð.
2370, kl. 8-9 s. d.
Sími
Til leigu
3-ja herbergja íbúð á góð-
um stað, strax, — Uppl í
síma 1382,
VERZL. ÞORU EGGERTSD.
tilkynnir:
Sundbolir nýkomnir, mjög
lágt verð. Væntanlegt á næst-
unni brjóstahöld og mjaðma-
belli, nýjustu gerðir.
Ýmsar vörur verzlunarinnar
seldar áfram á lækkuðu verði.
6 manna bíll
til sölu. Smíðaár 1952.
Garðar Aðalsteinsson.
B. S. A.
TILKYNNING
Að marggefnu tilefni vi'll vörubílstjórafélagið „Val-
ur" vekja' athygli á því, að í kaup- og kjarasamningum
félagsins við Vinnuveitendafélag Akureyrar, Kaupfélag
Eyl'irðinga, Akureyrarbæ og Samband íslenzkra sam-
vinnúfélaga, er fyrsta málsgrein 6. greinar samningsins
svohljóðandi: — „\'innuveitendur þeir, sem að samn-
ingnum standa, skuldbinda sig til að láta fullgilda með-
limi „Vals" hafa forgangsrétt til bifreiðaleigu og allra
flutninga með vörubifreiðum handa nefndum vinnu-
veitendum á félagssvæði „Vals", og öllum akstri út af
því svæði, en það er lögsagnarumdæmi Akureyrar.
Vinnuveitendur hafa ávallt frjálst val um það, hvaða
meðlimi „Vals" þeir taka til vinnu".
V A L U R.
BOKAVIKA EDDU 1959
Við viljum minna bæjarbúa og nærsveitamenn á
B Ó K A V I K U
okkar, sem nýlega er byrjuð í Strandgötu 1,9, og stend-
ur yfir þessa viku. Opið alla daga
TIL KL. 10 Á KVÖLDIN
og á sunnudaginn kemur frá kl. 4—10. Eins og undan-
farin ár eru á boðstólum fjöldi ódýrra, gamalla bóka,
t. d. ljóðabækur, þjóðsögur og sagnaþættir, ævisögur,
þýddar og frumsamdar, fræðibækur, leikrit, skáldsögur
þýddar og frumsamdar í tugatali og verð frá kr. 5.00.
Ýms söguhefti á kr. 3.00 og úrvalshefti á kr. 5.00 o. fl. o.
fl., sem of langt yrði upp að telja. I.ítið inn til okkar og
skoðið hvað við höfum upp á að bjóða, því sjón er sögu
ríkari.
BÓKAVIKAN
Strandgötu 19, sími 1366.
íbúð til sölu
Miðhæðin í húsinu Ásgarður í Hrísey er til sölu.
Lítil útborgun, 20—30 þúsund. — Upplýsingar gefnar
í síma 21, Hrísey og 2395 Akureyri.
Stórgripaslátrun
Þelr bændur, sem óska eftir að slátra stórgripum hjá
oss í haust, eru góðfúslega beðnir að láta skrifa niður
nú þegar tölu stórgripa, sem þeir óska eftir að fá slátrað
á sláturhúsi voru.
SLÁTRUN STÓRGRIPA
hefst frá og með 26. október.
SLÁTURHÚS K.E.A.
Símar 1108 o? 1306.
Spilakvöld
Skemmtiklúbbur Léttis
byrjar vetrarstarfsemi sína með spilakvöldi sunnudag-
inn 11. október, kl. 8.30 e. h. í Alþýðuhúsinu.
Spilakvöldin verða 11. október, 23. október, 6. nóv-
ember og 27. nóvember.
Veitt verða kvöldværðlaun og fern heildarverðlaun.
Verið með frá byrjun.
Húsið opnað kl. 8.
HREIÐAR ÁSTVALDSSON, danskennari og Miss
BETTY WRIGHT sýna nýjustu dansana í ár fyrsta
kvöldið. SKEMMTINEFNDIN.