Dagur - 07.10.1959, Síða 7
MiÖvikudaginn 7. október 1959
D A G U R
7
- Jakob Frímannsson. sextugur
Framhald af 5. síðu.
með þessa lífshamingju vil eg
færa honum og hinni ágætu
konu hans mínar heitustu árnað-
aróskir. Þakka vináttuna og
samstarfið og þeim hjónum báð-
um unaðsstundir á þeirra indæla
heimili, þær yndisstundir eru
margar og ógleymigjarnar. Eg
árna heiituli þeirra hjóna og
fjölskyldu allrar blessunar um
ókomin ár.
í sambandi við þetta vildi eg
mega bera fram þá hollbæn
Kaupfél. Eyfirðinga til handa, að
það fengi sem lengst að njóta
i'crystu Jakobs Frímannssonar.
Þór. Kr. Eldjárn.
í tilefni þess, að Jakob Frí-
mannsson, forstjóri KEA, er 60
ára í dag, vil eg bera fram ein-
læga árnaðarósk til hans á hin-
um merku tímamótum ævinnar.
Hér f blaðinu er þess minnst,
sem Jakob hefur afrekað á sviði
félags- og viðskiptamála og mun
eg ekki endurtaka það.
En eg vil í þessari vinarkveðju
þakka honum það, sem hann hef-
ur unnið að kirkjunnar málum á
Akureyri og veit að eg má einn-
ig flytja þær þakkir fyrir hönd
annarra samstarfsmanna hans á
því sviði.
Haustið' 1939 várS m. a. sú
breyting á sóknarnefndinni, að
Vilhjálihuf Pói’, þ’á^érandi for-
stjóri KEA, sein, verið hafði í
nefndinni, flutti úr bænum. Var
Jakob Frímannsson þá kjörinn í
nefndina og varð ritari hennar.
Þetta var um það leyti, sem
hæst stóð um byggingu nýju
kirkjunnae ^en^þfeð je^ stærsta
ffamkvæmdin, sem Akureyrar-
sofnuður hafði ráðist i. frá því að
hann var myndaður fyrir nærri
einni öld.
F undargerðarbækur nefndar-
innar bera þess ljósan vott, að
leysa þurfti mörg vandamál og
ráða fram úr margvíslegum erf-
iðleikum til þess að hinn lang-
þráði draumur mætti rætast. Þar
naut kirkjan forystu áhugasamra
og mikilhæfra manna eins og
Jakobs Frímannssonar.
Kirkjunni bárust margar fagr-
ar gjafir, og í þessu sambandi
vil eg nefna það, að Jakob og frú
Borghildur, kona hans, gáfu
kirkjunni myndarúðuna yfir alt-
arinu, sem um leið er altaristafla
kirkjunnar.
Jakob hefur frá 1939 jafnan átt
sæti í sóknarnefnd og lengur en
nokkur þeirra, sem nú eru sókn-
arnefndarmenn.
Óþarft er að lýsa því, hve hann
er fljótur að átta sig á vandamál-
unum eins og þau liggja fyrir á
hvei-jum tíma. Liðsinni hans og
framsýni er gott að eiga. Það vita
þeir, sem reynt hafa.
Hann hefur ekki aðeins stutt
kirkjuna með ráðum og dáð,
heldur einnig margvísleg menn-
ingar- og líknarstörf. Fyrir það
er söfnuðurinn honum þakklátur
og metur starf hans á liðnum ár-
um til heilla fyrir land og lýð.
Persónulega vil eg þakka hon-
um hin góðu kynni allt frá því að
eg kom hingað til starfa. Honum
og Borghildi viljum við hjónin
tjá alúðarþakkir fyrir vináttu og
hlýhug í garð fjölskyldunnar.
Við sendum þeim hugheilar
hamingjuóskir, þangað sem þau
nú dvelja á ferðalagi erlendis, —
og biðjum, að blessun Guðs vaki
yfir þeim alla komandi daga.
• P. S.
Víiiikar til gagns
o o
Á sfðasta ári seldu Danir
minkaskinn fyrir meira en 71
millj. króna (danskra). Það er
engin smáupphæð. Stór minkabú
eru víða um landið, og dýrin eru
að mestu alin á fiski.
Það er ekki úr vegi, úr því að
rætt er um minka, að gera sér
grein fyrir þeirri þýðingu, sem
skepnur þessar hafa á fjárhags-
afkomu okkar íslendinga.
Minkarnir di-epa hér villta
fugla-og vatnafiska, auk þess sem
þeir skjótast inn í hænsnahús og
30-4» ær
á ýmsum aldri til sýnis og
sölu 14. þ. m.
Ragnar Davíðsson,
Grund.
drepa hænsnin, þegar færi gefst.
Þýðíng minkanna fyrir okkur er
öll neikvæð, og þessi kvikindi
átti aldrei að flytja hingað. En
ekki þýðir að sakast urn orðinn
hlut, og líklega komast sögurit-
arar seinna tíma að raun um það,
að þessi minkainnflutningur hafi
verið einhverjum að kenna, þótt
nú séu allir saklausir. Hvað sem
um það má segja, þá er minkur-
inn orðinn villtur hér á landi, og
engar minnstu líkur eru til þess,
að honum verði nokkurn tíma
útrýmt fremur en skolla.
Við höfum þegar allt það
ógagn, sem hægt er að hafa af
minknum, en hvers vegna reyn-
um við ekki að hafa það gagn af
honum, sem hægt er? Hví byrj-
um við ekki aftur minkaeldi og
gerum það að arðbærri atvinnu-
grein? Við höfum hér öll skilyrði
til slíks•—r nema kunnáttuna, en
hana verður þá að sækja út fyrir
landsteinana.
Hið upphaflega minkaeldi hér
á landi var af vankunnáttu gert,
heimsku og kæruleysi. Nú þyrfti
að fá hingað erlenda kunnáttu-
menn til þess að kenna okkur að
hafa gagn af minkunum — en
ekki bara ógagn.
i BORGARBÍÓ
I SÍMI 1 500 |
: Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 i
Myndi vikunnar |
IUMBÚÐALAUS |
| SANNLEIKUíU
i (The Naked Truth.)
I Leikandi létt, ný, sakamála- i
i mynd rá J. A. Rank, sem \
i kemur öllum í gott skap. i
i Bönnuð yngri en 14 ára. i
| SÍGAUNASTÚLKAN |
I og 1
| AÐALSMAÐURINN |
| Tilkomumikil, brezk ævin- i
i týramynd í litum. =
jAðalhlutverk: i
MELINA MERCOURI, \
KEITH MICHELL. j
• ^llllllillllllliliiiiiiiiiilllllliiliiiiiiiiiimillililllliliiii;
.....................mmmiin";
| NÝJA - BÍÓ i
i Sími 1285. i
i Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 i
Mynd vikunnar.
| NEITAÐ UM |
(DVALARSTAI) |
j Hörkuspennandi, sannsöguleg i
j frönsk glæpamynd um starfs- \
| aðferðir frönskulögreglunnar. i
ÍAðalhlutverk: j
CLAÚDE LAYDY og I
JOELLE BERNARD. j
Bönnuð innan 16 ára. i
Um lielgina j
I GLATAÐI |
S0.NURINN
j Bandarísk stórmynd í litum, i
j byggð á dæmisögu biblíunnar. j
jAðalhlutverk: j
LANA TURNER, \
EDMUND PURDONN. j
Bönnuð innan 16 ára. i
^iiaiimiiiimiiiiiiimtiiiimiimiimimmiiiiiiiiiniimis
HERBERGI TIL LEIGU
í Holtagötu 12 (neðri liæð)
Lítilsháttar húshjálp æskileg.
Upplýsingar á staðnum.
N Ý K O M 1 Ð :
BAST 0G TÁGAR
til tómstundaiðju.
BLÓMABÚÐ
□ Rún 59591077 — Fjáh.:
I. O. O. F. — 1401098L2
Kirkjan. Messað í Akureyrar-
kirkju sunnudaginn 11. þ. m. kl.
2 e. h. Sálmar nr.: 370 — 372 —
137 — 207 — 649. — P. S.
Sunnudagaskóli Akureyrar-
kirkju byrjar n.k. sunnudag kl.
10.30 árdegis. — 5 og 6 ára börn
eru í kapellunni, 7—13 ára börn
í kirkjunni. — Þau 13 ára börn,
sem ætla nú að vera bekkjar-
stjórar í vetur, mæti í kirkjunni
kl. 5 á laugardaginn. — Nýja
biblíumyndamókin kostar 10 kr.
Félagar í aðaldcild
eru beðnir um að
mæta í kapellunni
kl. 1.30 á sunpudag-
inn. Unglingar á aldrinum um 15
ára og eldri eru innilega vel-
komnir.
I. O. G. T. — Stúkan ísafold-
Fjalkonan nr. 1 heldur fund
fimmtudaginn 8. þ. m. kl. 8.30 e.
h. í Landsbankasalnum. Vetrar-
starfið hefst. Fundarefni: Vígsla
nýliða. Skýrslur embættismanna.
Kosning og innsetning embætt-
ismanna. Dans. — Mætið vel og
stundvíslega. Æðstitemplar.
Frá starfinu í kristniboðshús-
inu Zíon. — Sunnudagaskólinn
byrjar n.k. sunnudag kl. 11 f. h.
Öll börn velkomin. — Almenn
samkoma kl. 8.30 e. h. Ræðu-
maður Bjarni Eyjólfsson, ritstj.,
Organleikur: Árni Sigurjónsson.
Allir velkomnir.
Fíladelfía, Lundargötu' 12. —
Sunnudagaskóli hvern sunnudag
kl. 1.30 e. h. Öll börn velkomin.
— Almenn samkoma hvern
sunnudag kl. 8.30 e. h. Söngur og
hljóðfærasláttur.Allir velkomnir.
NYLON-VELOUR
í JAKKA OG PILS
ANNA & FREYJA
NÝKOMIÐ:
; KÖFLÓTT PILSEfNI
; DÖKK KJÓLAÉPkl • J
mjög ódýr
TELPU PILS
mjög jalleg
NÁTTFÖT OG
NÁTTKJÓLAR
ANNA & FREYJA
NÝTT
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Guðrún
Sveinsdóttir frá Bandagei'ði og
Þórarinn Einarsson, Ormarsstöð-
stöðum, Fellurm
Hjúskapur. 29. sept. síðastlið-
inn voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ungfrú
Hólmfríður Jónsdóttir og Jón
Óskar Frímannsson. — Heimili
þeirra er að Lyngholti við
Holtaveg, Reykjavík. — 3. okt.
voru gefin saman í hjónaband í
Akureyrarkirkju ungfrú Guð-
munda Laufey Guðmundsdóttir,
Grundargötu 5, Akureyri, og
Arnvid Hansen, Mjólkursamlag-
inu, Akureyri. Heimili þeirra
verður að Brekkugötu 7, Akur-
eyri.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband í Goðdala-
kirkju í Skagafirði, af séraBjart-
mar Kristjnssyni, ungfrú Auð-
ur Guðvinsdóttir og Hörður Jör-
undsson málarameistari. Heimili
þeirra er að Vanabyggð 9, Akur-
eyri.
Styrktarfélag vangefinna á Ak-
ureyri þakkar raunsnarlega þátt
töku Kaupélags Eyfirðinga og
Útgerðarfélags Akureyringa h.f.
(happdrættismiðasölu) félags-
ins, svo og N. N., sem afhenti
Jóhanni Þorkelssyni, lækni,
1000.00 kr. ávísun. Ýmsum fleir-
um þökkum við góðar undirtekt-
ir og fyrirgreiðslu. — Stjórn
Styrktarfélags vangefinna, Ak-
ureyri.
Fundarboð. Hverfisfél. „Gler-
árborg“ heldur aðalfund sinn n.k.
föstudagskvöld í Glerárskólan-
um. Hefst hann kl. 20.30. Venju-
leg aðalfundarstörf. Stjórnin.
BRÉF
„Nízka cða livað? Síðastliðið
föstudagskvöld átti eg, ásamt fé-
alga mínum, leið um miðbæinn.
Þar stönzuðum við um stund til
að líta í búðargluggana. Þar var
margt fallegt að sjá, en sást þó
marg verr en skyldi. Ekki var
það útstillingunni að kenna,
heldur því, að ljós var aðeins í
öðrum hvorþm búðarglugga. Nú
vaknaði ‘tspúrningin hjá okkur:
Er þessi sparnaður ekki á of háu
stigi? Svar okkar tveggja varð
jákvætt. Við erum áreiðanlega
ekki þeir einu, sem hafa veitt
þessu eftirtekt. Einnig þætti
ckkur fróðlegt að vita, til hvers
verzlanir og fyrirtæki hafa ljósa-
skilti sem sjaldan, eða aldrei, eru
í lagi? Að endingu vil eg taka
það fram, að von okkar er sú, að
úr þessu verði bætt. — G. S.“.
K VENSK’ÓR
með hálf háum hæl.
KVENSKÓR
með lágum hæl.
Orlon-peysur
iýjerma. væntanlegar á
morgun.
Ó D Ý R A R,
7 L I T I R.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
BARNASKÓR
fyrir stúlkur og drengi,
hvítir, rauðir og svartir.
Saphir
S O K K A R
(ekki net)
KOMNIR AFTUR
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
A