Dagur - 29.10.1959, Page 1

Dagur - 29.10.1959, Page 1
XLII. árg. Akureyri, finuntudaginn 29. októbcr 1959 60. thl. ALÞÝÐUFLOKKURINN fékk I2.9Í0 atkv. og 5 menn kjoina og 4 uppbótarþingsæti. Hann Iilaut 15,2% atkvæða, eða 2,8% meira en í vor. FRAMSÓKNARFLOKJUJRINN fékk 21.884 atkv. og 17 þingmenn kjördæinakjörna. Hann hlaut 25,7% atkvæða, eða 1,6% minna en í kosningunum í vor. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fékk 33.798 atkvæði og 21 þingmann kjörinn og 3 uppbótarþingsæti. Samtals 24 al- þingsmenn. Hann hlaut 39,7% atkvæða, og er það 2,9% minna atkvæðamagn en í vorkosningunum. ÞJÓÐVARNARFLOKKURINN fékk 2882 atkvæði engan mann kjörinn. Hann jók lylgi sitt um 0,9%. oc Nýi leikskólinn á Oddeyri. — CLjósinynd: E. D.). ALÞÝÐUBANDALAGIÐ fékk 13.621 atkvæði og 6 menn kjörna og fær auk þess 4 uppbótarþingsæti. Samtals 10 al- þingismenn. Hann hlaut 16% atkvæða, og er það 0,7% meira en í vor. Nýafstaðnar kosningar eru að því leyti merkilegar, að nú var í fyrsta sinni kosið til Alþingis eftir hina mikki breytingu kjördæmaskipunárinnar, sem gerð var í vetur og endanlega var samþykkt á sumarþnginu. Kjördæmi landsins eru nú aðeins 7 utan Reykjavíkur og' þingmenn 60 talsins, þar af 49 kjördæmakosnir en 11 uppbótn arþingmenn til jöfnunar. Kosningarnar leiða það ótvírætt í Ijós, að Sjálfslæðisflokk- urinn er að tapa í höfuðvígi sínu, Reykjavík. Þar hefur flokk- urinn tapað 3500 atkvæðum frá bæjarstjórnarkosningunum 1958. — Augljó.st er það einnig, að aðalmarkmið þríflokk- anna með kjördæmabreytingunni, að „lækka gengi Fram- sóknarflokksins“, hefur ínistekist. Framsóknarflokkurinn heldur mestum hluta Iiinnar gífurlegu fylgisaukningar frá kosningunum í vor. Hlaut iiafnin Iðavöllur - Barnaverndarfélag Akureyrarkaupstaðar hratt málinu fram Theodór Daníelsson flytur ræðu við vígslu skólans. Sildarmerkingar á Fyrsta merking ungsíldar hér við land - Liður í rannsókn til undirbúnings niðursuðuverksmioju i s aær í gær var unnið að síldar- merkingum á Akureyrarpolli. jakob Jakobsson fiskifræðing- ur kom liingað norður og sá um nierkingarnar. Hann og aðstoðarmenn hans fengu til þessa, mótorbátinn Björgvin og Nótabrúk Kristjáns Jóns- sonar en voru ekki komnir að landi þegar gengið var frá blaðinu í gær. Ei.ns og kunnugt er, virðist koniinn einhver skriður á rannsókn niðursuðuverk-sm. málsins og eru þess'ar síldar- merkingar einn liður þeirra. En grundvöllur þessa iðnaðar hér, er að sjálfsögðu síldin sjálf. Iin mikið smásíldar- magn hefur verið hér á Poll- inum og Eyjafirði um fjölda ára en hefur lítið verið hag- nýtt. Nú átti að merkja milli- síld eða síld af stærðinni 20— 25 sm, nokkur þúsund. Þessi síld er á öðru og þriðja ári. En síldin, sem veiðist á sum- arvertíðinni hér nyrðra er 5— 10 ára gömul. Nú á að fást úr þvj skorið, livað verður um síldina, sem hér elst upp en hverfur síðan. Talið er, að síldarseyðin ber- ist hingað frá Suðurströnd- inni tveggja eða þriggja mán- aða gömul en klekist ekki út hér í firðinum. En hér elst liún upp þar til hún er tveggja til þriggja ára. Hér er mikil uppeldisstöð fyrir síld- ina og þarf að sjálfsögðu að athuga, hvort það hafi eyð- andi áhrif á síldarstofninn, að veiða nokkurt magn smásíld- arinnar árlega. Þyki smásíld- arveiðar ekki ranyrkja, er sjálfsagt að reyna að hagnýta hana á arðbærari hátt en þann, að vinna.úr henni mjöl og lýsi. Síldarmerkingar þær, sem hér eru framkvæmdar, eru enn tremur merkilegar að því leyti, að svo ung síld heí- ur ekki áður verið merkt hér •við land. En ekki er talið gjör legt að merkja liana yngri en nú er gert« Káskóiinn settnr Háskóli íslands var settur fyrsta \etrardag. Þorkell Jó- hannesson háskólarektor ílutti setningarræðuna, Þorsteinn Hannesson söng einsöng og Dómkirkjukórinn söng. Að þessu sinni innrituðust 198 stúdentar. En alls eru 763. stúdentar við nám í Háskól- anum í vetur. Haustmót Skákfélagsins hefst á sunnudaginn kl. 1.30 í Gildaskála KEA. i Á opnu svæði norðan við Gránufélagsgötú er hús það risið af grunni, sem vígt var fyrsta vetrardag með hátíðlegri athöfn, heitir Iðavöliur og er leikskóli fyrir börn. Þar var gestkvæmt við vígsl- una, fánar dregnir að hún og er.g- um duldist, að hér var merkum áfanga náð í þjónustu við æsku bæjarins. Theodór Daníelsson kennari og formaður Barnaverndarfélags Ak- ureyrar flutti fróðlega ræðu við þetta tækifæri. Hann gat þess m. a. að Barnaverndarfélag Akureyr- ar hefði verið stofnað 1950 og fyrstu sjórn þess skipað: Eiríki Sigurðssyni, form., Hannesi J. Magnússyni, Jóni J. Þorsteins- syni, Pétri Sigurgeirssyni og Elísabetu Eiríksdóttur. En for- mannaskipti urðu i fyrra, er Eirík- ur baðst undan endurkosningu, en við tók núverandi formaður, Theo- dór Danielsson. En markmið fé- lagsins frá upphafi var, að vinna að alxnennri barnavernd. Félag þetta hóf þegar fjársöfn- un, sem varð grundvöllur að hús- byggingunni rneð aðstoð bæjar og ríkis. Þessi nýi leikskóli á að geta tekið um 60 börn. Jón Ágústsson gerði teikninguna. Ágúst Jónsson bj'ggði húsið. Raflogn annaðist Raferka, en málningu Barði Brynjólfsson og Björgvin Jónsson. Húsið mun kosta nálægt hálfri milljón króna og skuldar félagið um helming þeirrar upphæðar. Hannes J. Magnússon og Sól- veig Einarsdóttir, kona hans, færðu félaginu peningagjöf til minningar um dóttur sína á stofn- fundi þess. Góðtemplarareglan, Lionsklúbbur og Sjöfn gáfu gjafir. Ennfremur barst leikskólanum gestabók frá Júdit Jónsbjörnsdóít- ur og fáni frá Björgvin Jónssyni og Laufevju Sigurðardóttur. Mánaðargjald fyrir börn, sem dvelja að Iöavöllum kl. 1—6 verður kr. 290, en 170 krónur fyr- ir þau, sem dvelja þar kl. 9—12 fyrir hádegi. Forstöðukona hins nýja skóla er Theodóra Daníelsdóttir. Að ræðu Theodórs lokinni söng Kirkjukór Akureyrar sálm undir stjórn Jakobs Tryggv'asonar, en að því loknu vigði séra Pétur Sigur- geirsson leikskólann, lýstr nafni hans og blessaði Iðavöll. Kirkjukórinn söng að lokinni vígslu, en þá tók Magnús E. Guð- jónsson bæjarstjóri til máls, og árnaði skólanum allra heilla. Að síðustu var þjóðsöngurinn sunginn og hafði þessi athöfn farið fram með virðuleik. Iðavöllur er einnar hæðar hús úr timbri með 185 m- gólffleti. Gólf eru korklögð. Tvær leikstof- ur eru í hvorum enda hússins eða fjórar samtals. Auk þess er her- bergi forstöðukonu, afgreiðsluher- bergi, fjögur snyrtiherbergi, geymsluklefar og rúmgott and- dyri. — Blaðið árnar Iðavelli allra heilla. VERÐUR BÖRAÐ? Stjórn Síldarverksmiðja rík- isins á Siglufirði hefur sant- þykkt að bjóða Siglufjarðar- kaupstað samvinnu við borun eftir heitu vatni í landi bæjar- ins. í samþykktinni segir, að vatnið yrði nýtt til hitunar íbúðarhúsa og í þágu sí-ldar- iðnaðarins, ef rannsókn leiði í Ijós, að unnt sé að ná lieitu vatni til þessara nota.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.