Dagur - 18.11.1959, Síða 1
Fylgizt mcð því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út Iaugar-
daginn 21. nóvember.
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 18. nóvember 1959
63. tbl.
Símastaurar brolimðu, raflínur slitnuðu og
skemmdir urðu á skúrum og bryggju
Bátur sökk við Litlð-Árskógssand
í síðasta norðangarði gerði
mesta haírót á Litla-Árskógs-
sandi síðan 1934. ,
Báturinn Víðir, 3ja tonna, eig-
andi Guðmundur Benediktsson,
sökk á legunni, en rak síðan upp
og er ónýtur, nema e. t. v. vélin.
Brim og fárviðri var óskaplegt.
Sjö símastaurar brotnuðu, raflín-
ur slitnuðu og sjórinn gekk hátt á
land.
Möl og sandur barst upp að
sjóskúrunum, svo að nærri
mannhæðar malarkambar, nýir,
mynduðust þar. Hurð lét undan á
einum stað og hálffylltist sá skúr
af möl.
Nú standa sjómenn í malar-
mokstri á meðan aðrir moka snjó.
Nokkrar skemmdir urðu á
skúrum og bryggju.
Flestir náðu fé sínu í hús á
sunnudaginn, fyrsta hríðardaginn.
Þó vantaði nokkrar kindur á bæ
víðast hvar. í Kálfskinni vantaði
þó 37 kinnur og voru 12 dregngr
lifandi úr fönn, en aðrar fundust
á hrakningi hér og þar nema 3.
Gömlu Ijósfærin hæftuleg í nofkun
Kviknaði í á nokkrum stöðum þegar Laxá þvarr
og gripið var til frumlegri Ijósfæra
Þegar Laxá þvarr og myrkrið
grúfði yfir þeim hluta jarðarinn-
ar, sem kallast raforkusvæði Lax
ár, þá keyptu menn kerti og
steinolíu.
En nú er því líkast, að þessi
gömlu og góðu Ijósfæri, kerti og
olíulampar, séu orðin mjög hættu
leg í notkun. Því til sönnunar eru
upplýsingar þær, sem Viggó Ól-
afsson, umboðsmaður Brunabóta-
Alþingi sett á föstud.
Forseti íslands hefur, að tillögu
forsætisráðherra, kvatt reglulegt
Alþingi 1959 til fundar föstudag-
inn 20. nóvember og fer þing-
setsing fram að lokinni guðs-
þjónustu, er hefst í Dómkirkj-
unni kl. 13.30.
ÐAGUR
kemur út á laugardaginn,
21. nóvember.
Þ.
félags Islands, gaf blaðinu, er
þetta barst í tal um helgina.
Þann 9. þ. m. kviknaði í
gluggatjaldi í íbúð á Eyrinni,
daginn eftir í húsi einu á Ytri
brekkunni og munaði litlu að
stór bruni hlytist af. íkveikjan
var lampaljós, en hin fyrrnefna
af kertaljósi.
Hinn 11. þ. kviknaði í húsi á
Eyrinni út frá arni og hlauzt
töluvert tjón af.
Og enn kviknaði í gluggatjaldi
í Innbænum hinn 12. þ. m. og
sama dag í fötum á Ytri brekk-
unni. Kerti og olíuljós voru
tengd þessu.
Allir vita hvernig hér var
ástatt um þetta leyti. Að fjölda-
mörgum húsum varð ekki komist
með öflug slökkvitæki sökum
ófærðar. Má telja heppni, að ekki
fór verr. Ofannefnd dæmi sýna,
hve nauðsynlegt er að fara var-
lega með eldinn.
• » 4 o -
1 » » « s o
Ungfrú Reykjavík og ungfrú ísland sýndu Heklupeysur á tízkukabarettinum í Lídó í Reykjavík fyrir
skömmu. Víst eru stúlkurnar fallegar. En þær eru líka vel klæddar. — (Sjá grein á blaðsíðu 5.)
Islendingar drekka út húsverð á dag í áfengi
En ríkið græðir á áfengissölunni og veitinga-
húsaeigendur í Reykjavík einnig
Hvort sem menn eru bindind-
ismenn eða ekki, verður ekki hjá
því komist að hugleiða hina
miklu áfengisneyzlu landsmanna,
sem opinberar skýrslur fjalla um,
svo að ekki verður véfengt.
Fyrstu 9 mánuði þessa árs var
sala áfengis frá Áfengisverzlun
ríkisins um það bil 124,5 millj.
kr., eða um 23 millj. meiri en á
sama.tíma í fyrra. Nokkur hækk-
un varð á vöru þessari og liggur
því ekki Ijóst fyrir um áfengis-
magnið.
En ekki er fjarri lagi að ætla,
að íslendingar cjrekki andvirði
einbýlishúss dag hvern eða jafn-
virði 365 sæmilegra einbýlishúsa
á ári. Menn geta svo sem ímynd-
að sér hve margar sólskinsstund-
ir verða af öllu þessu víni, og
víst eru þær einhverjar. Hitt er
döpur staðreynd, að vín-
fylgja margar skugga
hliðar, sem ekki er gott að rneta
til fjár fremur en ánægjuna.
Mikill hluti allra umferðaslysa
stafar af drykkjuskap, ennfremur
meginhluti allra glæpa, sem
framdir eru um víða veröld.
Hvers konar siðleysi nærist á
drykkjuskap, svo og ýmsir hinir
skæðustu sjúkdómar.
í mörgum löndum er vín-
drykkjan þjóðarböl. Með stytt-
ingu vinnutímans er enn meiri
hætta á ferðum í þessu efni,
vegna þess hve tómstundastörfin
eru sniðgengin og orka fólksins
óbundin til ills og góðs.
Hvers konar þjóðskipulag, svo
og almenn fræðsla, lætur undan
síga fyrir áfengispúkanum. En.
þar sem ríkið gengur í lið með
púkanum, eins og hér á landi, er
ekki við góðu að búast. Þar sem
emþættismenn, prestar og kenn-
Frarnhald á 8. siÖu.
Norðlenzkir ráðunautar landbúnaðarins. Fremsta röð: Sigurþór Hjörleifsson, Skafti Benediktsson,
Egill Bjarnason, Jón Rögnvaldsson. Aftar: Haraldur Árnason, Grímur Jónsson, Aðalbjörn Benedikts-
son, Sigfús Þorsteinsson, Ólafur Jónsson, Ingi Garðar Sigurðsson, Eirík Eylands. — Frá ráðunauta-
fundinum hefur áður verið sagt hér í blaðinu, en myndin varð af síðbúin. — (Ljósmynd: E. D.). —
ÞURFUM VIÐ VARARAFSTÖÐ?
Á meðan raímagnið var ekk-ert eða skammtað á orkuveitu-
svæði Laxár síðastliðna viku, voru hin irumstæðari ljósa- og
suðutæki upp tekin, þar sem þau voru til. En það er stað-
reynd, að íólkið treystir yfirleitt á ral'magnið og miðar fle.sta,
Wluti við varanleik þess. F.n það er iíka staðreynd, að það
bregst eitthvað ílesta vetur éða alla.
Margir hafa áhuga á úrbótum. Tveir menn liafa komið að
máli við blaðið og bent á, að Akureyringar þurf’i að kóma sér
upp eigin dieselrafstöð til vara. Þessari hugmynd er hér með
komið á framfjeri til athugunar. En jafnframt s.kal þess getið,
að verið er að vinna að miklum breytingum á rennsli Laxár.
1 Kunna þær að leiða til meira öryggis í rafmagnsmálunum.