Dagur - 16.12.1959, Blaðsíða 1

Dagur - 16.12.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því scm gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. DAGUR kemur næst út fimmtu- daginn 17. desember. XLII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 16. desember 1959 70. tbl. Tveir menn svipfir ökuleyfi ævi- langf - Strákar frernja óknyffi Fyrr í þessum mánuði voru 2 menn hér í bænum sviptir öku- ieyfi ævilangt og sama dag var ökuleyfi tekið af þeim þriðja um óákveðinn tíma. Seint í fyrra mánuði voru þrír menn hér einnig sviptir ökuleyfi með dómi í eitt ár og skemur. Margir hafa verið sviptir ökuleyfi á þessu ári. Ekki verður um það sagt, hvort öHuhæfni mánna er þverrandi að einhverju leyti, eða að strangara er tekið á misfellum. Víst er, að með vaxandi fjölda farartækja er meiri þörf varúðar og hæfni.og þá fer mjög illa sam- an áfengi og akstur. En hinir ógæfusömu, sem sviptir hafa verið ökuleyfi, geta mjög oft kennt áfenginu eða notkun þess um. Rétt er bæði og nauðsynlegt að tak.a föstum tökum á hvers konar afglöpum og ógætni í sam- handi við akstur bifreiða, ekki sízt í sambandi við ölvun. Mun enn langt í land, að menn geri sér það nægilega ljóst, hvað þeir eru að gera og hve illu það getur valdið, að skeyta ekki um hóf- semi í meðferð áfengis samtímis því að aka bíl. Þá hafa nokkrir unglingar ver- ið teknir til yfirheyrslu hjá lög- reglunni fyrir óknytti. Sumir höfðu brotið rúður, aðrir perur í ljósastaurum og gert önnur ax- arsköft. Sumir þessara unglinga hlutu sektir en aðrir sluppu með áminningar. Yfirleitt er rólegt hér í bænum og ekki liggur það ljóst fyrir, hvort óregla vaxi meðal yngri kynslóðarinnar, þótt grunur leiki á, að svo sé. Nokkur ölvun er öðru hvoru, en slíkt er ekki nýtt Nokkrir bifreiðaárekstrar hafa orðið, en færri þó en búazt hefði mátt við. Skemmdir hafa orðið á bifreiðunum í þessum árekstrum, en ekki hefur fólk slasazt. Nýja togskipiS Bjarnarey hreppti rok og sfórsjó á uppsiglim Ralibað við Hólmstein Helgason framkvæmdastj útgerðarinnar um heimferðina og skipið Sfofnað íslenzkf-þýzkt félag? Hingað til Akureyrar kom á mánudaginn austur-þýzka tog- skipið Bjarnarey, sem hreppti ofviðri mikið á hafi, en komst heilu og höldnu í heimhöfn á Vopnafirði á fimmtudagskvöldið. Hólmsteinn Helgason, oddviti Raufarhafnarhrepps og fram- kvæmdastjóri tveggja togskip- anna austur þar, fór utan með áhöfn skipsins, er það var sótt, og kom með því hingað upp. Blaðið hitti hann að máli þegar skipið var lagzt að bryggju hér á Akur- eyri og spurði hann frétta. Þig lentuð í ofviðri á heimleið- þetta leyti náðum við sambandi inni? Já, við lögðum af stað frá Kaupmannahöfn föstudaginn 4. desember. Én á sunnudaginnmun kl. 1.30 bilaði stýrisvélin. Skipið var þá statt vestur af Noregi, Dráttarvélanámskeið Haganesvík, 12. des. — Ein trilla rær og fiskar ágætlega. — Fyrst var róið með handfæri, en síðan með línu. , Dráttarvélanámskeið á vegurn búnaðarfélaganna í Holts- og Haganeshreppi stendur yfir í húsakynnum Samvinnufélags Fljótamanna. Nemendur eru 14, en kennari er Sigurþór Krist- feifsson vélaráðunautur Skag- firðinga. Kennd er meðferð dráttarvéla og viðgerðir. Veðurfarið er með ágætum, jörð auð og allir vegir færir, til dæmis er gott færi yfir Lágheiði og Siglufjarðarskarð, og mun það einsdæmi á þessum tíma árs. Við Fljótamenn hyggjum gott til að fá veginn um Stráka. Sá vegur verður okkur mikil og nauðsynleg samgöngubót við að- al markaðssvæði okkar. Nýlega kom hingað til bæjar- ins þýzki sendiráðsfulltrúinn frá Reykjavík með fréttamyndir o. fl. Myndir þessar voru sýndar í húsakynnum íslenzk-ameríska félagsins hér að viðstöddum all- mörgum gestum, einkum þeim, sem hafa áhuga fyrir meiri menningartengslum Þýzkalands og íslands en verið hefur. í ráði er að hingað verði send- ar fleiri fréttamyndir á næst- unni. Einnig var boðið að senda hingað sendikennara og lista- menn, sem kunna að koma til landsins. En tæplega verða Ak- ureyringar þess aðnjótandi nema stofnaður verði íslenzk-þýzkur félagsskapur af þeim, sem áhuga hafa fyrir nánari menningar- tengslum þessara landa. Á fundi þeim, sem haldinn var í sambandi við myndasýninguna, kom fram mikill áhugi fyrir stofnun slíks félagsskapar. austarlega í Norðursjó, með stefnu fyrir norðan Hebrideseyj- ar. Veðrið var hið versta, rok og stórsjór á eftir. Við vorum að hlusta á fréttir af skipssköðum hingað og þangað í hinu ægilega veðri. Náðum við þá sambandi við Bergen og báðum um aðstoð, en þar var okkur sagt, að enginn nægilega stór og traustur drátt- arbátur væri þar fyrir hendi, er komið gæti til aðstoðar í þessu veðri. Leitað var þá til Oslóar með milligöngu frá Bergen og mun björgunarfélagið þar hafa sent bát eða skip af stað. En um við Hvassafell, er var á svipuðum slóðum, og varð að ráði, að það veitti okkur aðstoð. Afturkölluð- um við því beiðni okkar um hjálp frá frændum okkar, Norðmönn- um. Ilvernig aðstoðaði Hvassafell ykkur? Það kom til okkar og dældi olíu í sjóinn öðru hvoru og feng- um við ekkert áfall eftir það. Og á meðan fór fram aðgerð á stýr- isvélinni. Hvassafell lá hjá okk- ur alla mánudagsnóttina. Þegar viðgerð var lokið hjá okkur, héldum við í átt til Færeyja og var Hvassafell á næstu grösum þangað upp. Hvernig líkaði þér nýja skipið? Mér virðist skipið gott í sjó að leggja og hafa fyrsta ílokks sjó- hæfni. Er það rétt, að þetta nýja skip sé á annan veg smíðað en hin tyrri togskip af þessari gerð? Á Bjarnarey eiga að vera leið- réttir nokkrir gallar, sem fram hafa komið á þessum togskipum, segir Hólmsteinn. Barlestin var létt og öðruvísi frá henni gengið, borðstokkar voru hækkaðir og tekið burtu ankersspil af bakk- anum. Hver var skipstjóri á heinileið? Hann heitir Magnús Bjarnason, Jónssonar frá Vogi, og er Reyk- víkingur. Stefán Stefánsson frá Dalvík var stýrimaður og tekur hann nú við skipstjórn. Skipið á að fara á togveiðar eftir ára- mótin. Hverjir eru eigendur Bjarnar- eyjar? Stærsti hluthafinn er Vopna- fjarðarhreppur og Vopnafjörður er heimahöfn Bjarnareyjar. Aðr- ir hluthafar eru: Þórshafnar- hreppur, Raufarhafnarhreppur og Borgarfjarðarhreppur, auk nokkurra einstaklinga í þessum hreppum. En þetta útgerðarfélag á líka togskipið Jón Trausta. Hvernig eru horfur til útgerðar hinna nýju skipa ykkar? Við ýmsa erfiðleika er að etja, fyrir þetta útgei-ðarfélag okkar, segir Hólmsteinn. Mikið veltur á skilningi og getu lánastofnana og svo auðvitað aðgerða rikisstjórn- arinnar gagnvart útgerðinni al- mennt. Blaðið þakkar Hólmsteini Helgasyni fyrir svörin og árnar hinu nýja og glæsilega skipi og áhöfn þess fengsælla veiðiferða HÓLMSTEINN HELGASON framkvæmdastjóri. og annars velfarnaðar í bráð og lengd. Bjarnarey og Jón Trausti munu bæði hefja togveiðar eftir áramótin. Jón Trausti var á mánudaginn að landa ofurlitlu af fiski hér á Akureyri, en er hætt- ur veiðum, þar til á nýja árinu. Við heimkomuna til Vopna- fjarðar, var fjöldi fólks viðstadd- ur til að sjá skipið. Hólmsteinn ávarpaði viðstadda af skipsfjöl, en oddviti Vopnafjarðarhrepps, Sigurður Gunnarsson, ávarpaði skipshöfn og aðra viðstadda fyrir hönd heimamanna. Bjarnarey flutti töluvert af varahlutum og tækjum til hinna mörgu 250 lesta systurskipa, sem áður voru komin til landsins.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.