Dagur


Dagur - 09.04.1960, Qupperneq 8

Dagur - 09.04.1960, Qupperneq 8
8 Baguk Laugardagmn 9. apríl 1960 Á Glerá eru 3 brýr í bæjarlandinu. Hér er mynd af þeirri efstu. Eins og sjá má, er hún hættuleg yfirferðar, þar sem handriðin eru mjög ófullnægjandi, svo að ekki sé meira sagt. — Bláðið hefur áður bent á brýna þörf lagfæringar, en engar undirtektir fengið ennþá. Vonandi fer viðgerð fram áður en slys verður. — (Ljósmynd: E. D.). Fjárfrekasla verkefni Barnahjálpar S. Þ. Það verkefni Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem mun kosta mest fjárútlát í náinni framtíð, er baráttan gegn mýrar- köldu. — Framkvæmdastjóri Barnahjálparinnar, Maurice Pate, hefur farið þess á leit við stjórnina, að hún veiti 3,1 millj. dollara til þessarar baráttu, og nemur það nálega 40 af hundr- aði af þeim 8,3 millj. dollara sem alls verður varið til starfsemi Barnahjálparinnar á þessu ári. Baráttan við mýrarkölduna er einkum háð í löndum Suður- og Mið-Ameríku og í löndlunum við austanvert Miðjarðarhaf og í Suður-Asíu. Á árinu 1959 voru 70 milljónir manna verndaðað gegn mírarköldu með skordýra- eitri sem Barnahjálp S. Þ. útveg- aði. Um helmingur þessara 70 milljóna voru mæður og börn. Af einstökum löndum fær Ind- land mesta fjárhagsaðstoð, enda er það fjölmennast landanna þar sem Barnahjálpin starfar (sum- arið 1959 voru íbúar Indlands 402.750.000 talsins). Maurice Pate hefur farið þess á leit við stjórn Barnahjálparinnar að hún veiti 1.576.000 dollara til átta mismunandi verkefna á Ind- landi. Á sama tíma mun Ind- verska stjórnin leggja fram um 9,5 milljónir dollara. Ef stjórn Barnahjálparinnar, sem er skip- uð fulltrúum 30 landa, samþykk- ir tillögur framkvæmdastjórans, Geysisslysið á Vatna- jökli kvikmyndað Samkvæmt fréttum frá Kaup- mannahöfn hefur Nordisk Film Kompagni mjög mikinn áhuga á því að gera kvikmynd af Geysis- slysinu á Vatnajökli. Félagið hefur tryggt sér einka- rétt á kvikmynduninni. En nú eru bæði þýzk og brezk kvik- kvikmyndafélög einnig búin að fá áhuga fyrir því að kvikmynda hinn fræga atburð á jöklinum. hefur Indland alls fengið hjálp sem nemur 28,5 millj. dollurum frá Barnahjálpinni síðan hún hóf starfsemi sína árið 1948. Meginhluti hinnar nýju fjár- FRÉTTIR AÐ AUSTAN Á Héraði hafa verið óslitið góðviði'i síðasta hálfan mánuð, og síðustu daga hlý suðlæg átt. — Snjó hefur tekið upp í byggð, þó mun enn vera nokkur snjór . yzt við Héraðsflóa. Vegir eru auðir og frost að fára úr þeim. Eru þeir því víða blautir og erfiðir yfir- ferðar. Umferð þyngri bíla er nú bönnuð um flesta vegi, nema Fagradalsbraut. Heyfengur var mikill og góð- ur. Eru menn því vel byrgir með veitingar — 1,1 millj. dollara — hey. Fóðurbætisgjöf er nú minni verður notaður til að koma á fót mjólkurduftsverksmiðjum í Kal- kútta og sambandsfylkinu Andh- ra Pradesh. en verið hefur um langt árabil. Kemur þar bæði til meiri töðu- fengur en áður og hátt verð á fóðurbæti. Engjaheyskapur er Stefán Benediktsson við vefstólinn sinn. — (Ljósmynd: E. D.). að vefa meifð en 18 kílómefrð Ullarjafi ór íslenzku kambgarni frá Gefjun, er mjög eftirsóttur til hannyrða Einn er sá maður á Akureyri, sem slær vefinn á vetrum í mjög fornlegum vefstól og framleiðir hinn eftirsótta ullarjafa úr ís- j lensdcu efni. Hann heitir Stefán Benediktsson, Hafnarstræti 71. Stefán lærði að vefa þegar hann var vinnumaður í Reykja- hlíð hjá þeim Einari og Guðrúnu og síðan eru liðnir margir ára- tugir. Því að þegar þetta var, var Stefán aðeins á 18. ári, en er nú orðinn roskinn maðui'. Hann var síðar bóndi í Bárðardal, en flutt- ist til Akureyrar árið 1945 og hefur búið þar síðan. En þegar hann flutti í bæinn var skömmt- unin í algleymingi og ýmsar vörui- vandfengnar, þeirra á meðal ullarjafi til hannyrða. Stefán tók þá til við vefnaðinn, enda hafði hann ofið í ígripum allt frá Reykjahlíðarvist sinni. Fyrstu 6 árin hér stundaði hann vefnaðinn eingöngu og hafði ekki undan. Skólar og einstaklingar notuðu jafan hans jafnóðum í refla og veggteppi og hannyrða- verzlanir sóttust um að hafa hann á boðstólum. Um áramótin í vet- ur vai' Stefán búinn að vefa 18 km. En nú er vefnaðurinn ekki lengur atvinna hans, heldur ígripavinna eins og fyrrum. Stefán hefur alltaf notað ís- lenzkt efni, kambgarn frá Gefj uni á Akureyri, og mun vera eini karlmaðurinn hér um slóðir, sem stundar vefnað nokkuð að ráði í heimahúsum. hoi'finn í flestum sveitum með vaxandi ræktun og aukinni véla- notkun. Iðnskóli. Á Egilsstöðum hefur í vetur verið starfræktur iðnskóli, nem- endur eru um 20, skólastjóri Þórður Benediktssön, en kénnslu, aulc hans, hafa annazt ýmsir fag- og sérmenntaðir menn búsettir í Egilsstaðaþorpi. Skólinn er til húsa í barnaskóla þorpsins. Verzlunarfélag. Undirbúningur er hofinn að stofnun verzlunarfélags á Héraði. Bráðabirgðastjórn hefur verið sett á laggirnar og mun formað- ur hennar vera Helgi Gíslason oddviti á Helgafelli. Ráðgert er, að félagið hafi heimili norðan Lagarfljóts og mun áformað að reisa sláturhús við Lagarfljóts- brú á komandi sumri. Fram- kvæmdastjóri í höfuðstöðvum samtakanna mun verða Sigbjörn Brynjólfsson kaupmaður á Hlöð- um. Ennfremur hyggst félagið setja upp útibú í Egilsstaðaþorpi og verði Ari Björnsson kaup- maður til forsjár þar. Ekki hefur enn verið kunngert hvort hér sé um að ræða lokað verzlunarfélag eða opið almenn- ingi til þátttöku. Tamningastöð. Hestamannafélagið Freyfaxi hefur í vetur rekið tamningastöð í Egilsstaðaþorpi. Hafa þar verið til tamninga nálægt 20 hross víða að af Héraði. K. H. B. hefur lán- að félaginu húsnæði og auk þess mun það njóta einhvers stuðnings frá Búnaðarfélagi Austurlands. Starfsemi þessi er ný af nálinni hér í fjórðungnum og er mjög athyglisverð tilraun til að bæta úr því ófremdarástandi sem nú hefur ríkt um skeið, eða síðan jeppinn og dráttarvélin tóku við hlutverki hestsins. — Formaður hestamannafélagsins er Pétur Jónsson á Egilsstöðum, en Ár- mann Guðmundsson temur hross- in. — (Austri.) Nýir þingmenn Fyrr í vetur tók Jón Kjartans- son sæti á Alþingi í stað Bjöms Pálssonar, er ekki gat sinnt þing- störfum um skeið. Nú í vikunni tók Ingvar Gísla- son sæti á þingi í stað Garðars Halldórssonar, vegna veikinda- forfalla þingmannsins. Spónplöfuverksmiðja á Akureyri? Undanfarin ár hefur það verið í athugun, hvort hagkvæmt væri að setja upp litla verksmiðju til að vinna spónplötur úr skógviði, frá tunnuverksmiðju og öðrum trésmíðaverkstæðum. Á fundi fulltrúa skógræktarfélaga var samþykkt nýlega eftirfar- andi: „Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir þeim upplýsingum, sem fram komu hjá skógræktarstjóra varð- andi verksmiðju til spónplötu- gerðar. Telur fundurinn þetta svo þýð- ingarmikið mál, að leita beri allra ráða til þess að fram- kvæmdir geti hafizt þegar er rannsókn hefur leitt í ljós, að öruggur grundvöllur sé fyrir rekstri slíkrar verksmiðju." f þessu sambandi hefur Akur- eyri verið talin heppilegastur staður til þessa reksturs.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.