Dagur - 30.04.1960, Blaðsíða 1
MAu;a«n Phamsóknarmanna
RrrsriÓKi: Erlingur DayÍokson
Skru .stoi'.a í Hafnarstr-eti 90
SÍMt 1166 . SrrNiNGU og i>kentun
ANNAST PRENTVEHK. ÖDT>S
B 1ÓRNSSONAR H.l-. AKUUTYRt
Dagu
XLni. árg. — Akureyri, laugardaginn 30. apríl 1960 — 22. tbl.
Auí;í.ý.sin<;a$tjóri: Jón Sam-
ÚF.I.SSON . ÁRC.ANGUKfNN KOSTAK
KK. i00.00 . (iJAl.PDAí.i EK 1. JÚU
Bl.ADIÍ) KEMUR Úf Á MIOVfKUDÖG-
t'M OG Á LAUGAUDÖGUM
PEGAK ÁSl.UDA KYKÍU TIL
IIMIIIIIIIIIIIMIMMMlHIMIIIHIIIMHUlllHlllimilllllMMIIimilKIIIIIIIIIIIIM
MIIMMIIIIIIIIIIIIIMIIinB
HVAD GERA BRETAR NU?
Klukkan 1.30 í gær var enginn togari nálægt
12 mílna mörkunum sunnanlands, en brezka
herskipið Palliser lét samt til sín heyra
Þótt Genfarráðstefunni um réttarreglur á liafinu sé lokið án
nokkurrar niðurstöðu, er hafi alþjóðlegt gildi, bíða menn enn í
óvissu. Framundan er óvissan um það, hvort Bretar senda herskip
sín til að vernda veiðiþjófnað á ný á íslandsmiðum.
Samkvæmt Reutersfrétt í fyrradag, er þetta haft eftir John Hore,
sjávarútvegsmálaráðherra Breta, í neðri málstofu brezka þingsins:
Brezk herskip munu fyrst um sinn ekki fara inn fyrir 12 núlna
mörkin við ísland. Herskipin munu halda áfram að aðstoða brezku
togarana vð ísland og halda vörð utan 12 mílna. Ef gerð verður árás
á brezka fiskimenn með íslenzkum fallbyssum, munum við að sjálf-
sögðu skerast í leikinn. Við höfum ekki í hyggju að viðurkenna ein-
hliða útfærslu íslendinga, en til þess að sýna velvilja okkar og sátt-
fýsi, (sem islendingar kannast svo vel við!!) hefur ríkisstjórnin
ákveðið að herskipin skuli halda sig utan við -2 mílna mörkin.
Blaðið átti tal við Pétur Sigurðsson, forstjóra Landhelgisgæzlunn-
ar, rétt eftir hádegi í gær.
Forstjórinn sagði, að gæzluflugvélin og varðskipin hefðu enga tog-
ara orðið var nálægt 12 mílna mörkunum. Hins vegar hefði heyrzt í
gömlum kunniugja, Pailiser, og gæti hann verið skammt undan. —
Um það, hvað gerast kynni innan fiskveiðitakmarka næstu daga og
vikur, gæti hann engu spáð. Landhelgisgæzlan væri við öllu búin
eins og áður og stöðugt við gæzlustörf. En mjög væri það spennandi,
sagði forstjórinn, að fylgjast með fréttum frá Noregi. Fyrir Iandinu -
norðanverðú væri ágangur togara mun meiri en hór og háværar Flugvölluriim á Raufarhöfn á sérstakri f járveitingu. 500 púsund króna
raddir uppi um það, að auka norska fiskveiðilandhelgi upp í 12 , . ._ . , .. .. »r i 1 r I i.
f járveitmg til sjúkrafiugvailanna allra. ÍNokkrar iramkvæmdir 1 sumar
Mjólkurbílarnir tilbúnir til heimferðar, sjá grein á blaðsíðu 4. — (Ljósmynd: E. D.).
12
mílur eins og hér.
Það yrði óefað mjög eftirtektarvert, ef norska stjórnin stigi þetta
skref og hversu Bretar brygðust við þeirri ráðstöfun.
Ungmennafélag Svarfdæla 50 ára
Ungmennafélag Svarfdæla
minntist 50 ára afmælis síns
með kaffisamsæti 23. apríl sl.
Þar voru fluttar margar ræður
og mörg heillaskeyti bárust. Fé-
lagið var stofnað 30. desember
1909 af 48 stofnendum.
Fyrstu stjórn skipuðu Snorri
Sigfússon, fyrrv. námsstjóri,
formaður; Sigurður P. Jónsson
ritari og Þórarinn Kr. Eldjám
féhirðir. Þeir voru allir við-
staddir í hófinu.
Félagið hefur beitt sér fyrir
menningarmálum héraðsins, svo
sem íþróttum, skógrækt, leik-
starfi. Það beitti sér, ásamt fleiri
aðilum, fyrir byggingu sund-
skála Svarfdæla, fyrstu yfir-
byggðu sundldugarinnar hér-
lendis, en hann var vígður
fyrsta sumardag 1929. Skömmu
seinna reisti það samkomuhús á
Dalvík, sem enn er notað. Nú
vinnur það, ásamt fleiri félög-
um, að undirbúningi riýs félags-
heimilis á Dalvík.
Ungmennafélag Svarfdæla
starfar enn af miklum dugnaði
og í nánum tengslum við eldri
félaga.
Góðar gjafir.
Fégjafir bárust félaginu á af-
mælinu, kr. 11 þús. frá heiðurs-
félögum þess, sem verja skal til
væntanlegs félagsheimilis og 10
þús. frá Dálvíkurhreppi til
íþróttamála. Núverandi stjórn
skipa: Ingólfur Jónsson, for-
maður; Árni Oskarsson ritari og
Baldvin Magnússon féhirðir. —
Félagar eru nú 110.
Alltaf kemur það betur og bet-
ur í ljós, hvers virði sjúkraflug-
vélin hér á Akureyri er Norð-
lendingum. Sjúkraflug eru orðin
mörg á þessu ári, og enginn veit
fyrirfram, hvenær eða hvar
þörfin kallar næst. Síðast á mið-
vikudaginn flaug Tryggvi Helga-
son vélinni 2 ferðir með sjúka.
I annarri ferðinni flutti hann
sjúkling frá Raufarhöfn til Akur-
eyrar, og hinni sjúkling frá Aðal-
dalsflugvelli til Akureyrar. Báðir
sjúklingarnir voru lagðir inn á
Fjórðungssjúkrahúsið.
Flugstjórinn, Tryggvi Helga-
son, og sjúkraflugvélin, hafa þeg-
VELIUÖTSVÖR OG BÆNDUR
kemur næst út á fimmtudaginn.
Auglýsingar þurfa að berast
fyrir hádegi á miðvikudaginn.
Bændur fá sannvirði fyrir
þær framleiðsluvörur sínar,
sem kaupfélögin annast sölu
á. Nú hyggst ríkisstjórnin
heimila 2—3% álagningu
veltuútsvars hjá kaupfélög-
um. Þessi skattur dregst frá
verðinu til bænda. Bóndi,
sem leggur inn kjöt og mjólk
fyrir 120 þús., tekur svo ýt
vörur fyrir 80 þús. kr., og
hefur þar með 200 þús. kr.
viðskipti í kaupfélagi sínu,
greiðir raunverulega 4 þús.
kr. í veltuútsvar, ef lagt er
2% veltuútsvar á kaupfélag
hans. En þar með er sagan
ekki öll. Vörur bóndans eru
síðan seldar á Reykjavíkur-
markaði, og þar er SÍS og
Osta- og smjörsalan einnig
veltuútsvarsskyld. Aftur er
klipið af framleiðslu bónd-
ans og dregið frá því endan-
lega verði, sem hann að lok-
um fær.
Svo kemur íhaldið með
bros á vör til bændanna og
segist bara vera að koma
samvinnufélögunum undir
réttlát lög, en alltaf beri þeir
hag blessaðra bændanna fyr-
ir brjósti.
Þeir hændur, sem létu
ginna sig til að kjósa íhaldið
í haust, hafa þá afsökun
eina, að þeir trúðu því sem
að þeim var logið og treystu
loforðum, sem eru herfilega
svikin.
I
ar sýnt hæfni sína við núverandi
aðstæður. Vélin þarf styttri flug-
braaut, en margir hugðu í upp-
hafi, og hún hefur reynzt hin
bezta í hvívetna. Um flugmann-
inn voru ekki skiptar skoðanir
hjá þeim, sem til hans þekktu.
Hinir ýmsu sjúkraflugvellir,
sem taldir eru nothæfir, þurfa þó
endurbóta við, svo að viðunandi
megi teljast. Og víða má gera
sæmilegar flugbrautir, þar sem
nýræktir eru gerðar. En girðing-
ar ,skurðir, síma- eða rafleiðslur
koma oft í veg fyrir, að hægt sé
að nota þá staði, sem að öðrum
kosti væru hinir ákjósanlegustu.
Þyrfti að athuga þessa hluti í
sambandi við framkvæmd stórra
nýrækta.
Blaðið átti tal við Hauk
Claessen, umsjónarmann flug-
valla úti á landi, í fyrradag og
spurði hann um væntanlegar
framkvæmdir í flugvallargerð
hér norðanlands í sumar. Sam-
kvæmt upplýsingum hans verður
flugstöðvarbyggingunni á Akur-
eyrarflugvelli haldið áfram í
sumar og reynt að ljúka norður-
hluta hennar, þ. e. þeim hluta,
sem flugturninn er í, og múr-
húða suðurhlutann, sem þegar er
byggður. Ennfremur verður slit-
lag flugbrautarinnar endurbætt.
Á Siglufirði hefur flugbraut
verið rudd, en eftir að setja slit-
lagið á hana. Hún var staðsett
austanvert fyrir f jarðarbotninum,
fyrir ofan Ráeyri. Brautin er 380
metra löng, og þarf að lengja
hana, og þarf þá að taka læk við
enda hennar í stokk eða búa hon-
um aðra framrás. En ákveðið er,
að þetta verk verði unnið í sum-
ar. — Flugvöllurinn á Raufar-
höfn fékk sérstaka fjárveitingu
og verður austur-vestur flug-
brautin lengd, en eftir er þó að
gera nákvæma áætlun um þetta
verk.
Aðaldalsvöllurinn verður girt-
ur og lýsing undirbúin.
í Ólafsfirði á að lengja sjúkra-
flugvöllinn upp í 400 metra.
Alþingi veitti, samkvæmt til-
lögum flugráðs, fé til hinna
ýmsu flugvalla á landinu, en t
einu lagi 500 þús. krónur til
sjúkraflugvallanna.
Meðal þeirra staða, sem ekki
má dragast að gera athugun á, í
sambandi við væntanlegan
sjúkraflugvöll, er Hrísey. Þar
verða möguleikar athugaðir nú í
sumar.
Körfuknattleikslið
kemur frá Reykjavík
í dag kemur hingað lið frá
Körfuknattleiksfélagi Reykja-
víkur og keppir í íþróttahúsi
Menntaskólans kl. 5 við Knatt-
spyrnufélag Akureyrar.
Á morgun fara KFR-ingar og
lið frá ÍBA til Húsavíkur og
keppa í nýja íþróttahúsinu þar.
Akureyringar léku við KFR á
íslandsmótinu í v.etur og töp-
uðu, en gaman verður að sjá,
hvernig þeim gengur er þeir
leika við þá í sal, sem þeir eru
vanir við.