Dagur - 21.09.1960, Blaðsíða 1

Dagur - 21.09.1960, Blaðsíða 1
I M A! .<;a<;n Fra msórnar m a x x a R rsrjÓRj: Erijnctr DavÍðsso.v SkRiíVroirA i Hakxakstr.i:! i 90 SÍM! í 1(56 . Sl'.TNlNt’.O 0(1 \ j: A.XXAST FrkNTVERK OnÍS Björnssonar H.) . Akitua ri Dagur XLIII. árg. — Akureyri, miðvikudaginn 21. sept. 1960 — 43. tbl. Ai t.lmm.as! l'.uu: I(ix Sari- ÚEI.SSÖN . . iKOAXC.ORSXN K.OVIAR KR. 100.00 . GjaujdaG) er 1, júlí Bi.aðib ke.múr i i' A Mip'y-ikunöc- VM Oti Á I.AL'GARUÖl.T’M I’KCAU ÁST.EBA ÍM KIR TH. RÁÐ UNDIR RIFI HVERJU! Eitt af því, sem öllum stjórnmálaflokkum hefur komið saman um, er nauðsyn þess að þjóðin eigi gjaldeyrisvara- sjóð til að grípa til ef í nauðir rekur, svo sem í harðindum og aflaleysi, markaðsörðugleikum o. þ. h. En á hverjum tíma kölluðu þarfirnar úr öllum áttum og varasjóðurinn varð aldrei til. Eitt af fyrstu verkum núverandi ríkisstjórnar var að fá nær 800 milljóna lánsheimild í Bandaríkjunum, eins konar úttektarheimild. Þetta kallaði ríkisstjórnin og málskrafslið hennar gjaldeyrisvarasjóð og raupaði af. Þetta er auðvitað ekki gjaldcyrisvarasjóður fremur en það væri innstæðu- aukning bónda hjá kaupmanna eða kaupfélagi, þó að hann fengi leyfi til að taka út vörur og borga síðar. Ríkisstjórnin hefur nú notað sér úttektarheimildina meir en að hálfu. Ríkisstjórnin, sem þóttist hafa ráð undir rifi hverju, liefur þannig stóraukið skuldabagga þjóðarinnar. — Og þetta kallar hún gjaldeyrissjóð/ Tvö innbrot framin um helgina Maður einn sektaður um 500 krónur fy rir æðarfugladr Um helgina voru framin tvö innbrot á Akureyri. Brotizt var inn á vélaverkstæðið Atla á Oddeyri og farið inn á skrif- stofu fyrirtækisins og stolið nokkrum hundruðum króna. ap á Krossanesvík ásamt skjölum og sparisjóðs- bókum. Einnig var brotizt inn í ben- zínsölu Þórshamars. Brotinn var lítill gluggi á bakhlið húss- ins. Um 200 krónum í skipti- mynt var stolið þar. Mál þessi eru nú í rannsókn hjá lögregl- unni. Á mánudagsmorguninn var bæjarbúi einn að skjóta fugla á Krossnesvík og þótti lögregl- unni ástæða til að athuga málið nánar. Kom þá í ljós, að hann hafði drepið æðarfugl og raun- ar fleiri fugla. Maður þessi hlaut 500 króna sekt. Knattspyrnuflokkur íþróttabandalags Akurey^rar lagði af stað til vinabæjanna Álasunds og Randers á laugardaginn var, og er það í fyrsta sinn að slíkur flokkur fer frá Akureyri til keppni á erlendri grund. — Lengst til vinstri er Hörður Svanbergsson, fararstjóri IÍRA, næstur honum Halldór B. Jónsson, gjaldkeri KRA, en lengst til hægri er Rafn Hjaltalín, formaður KRA. — Knattspyrnumennirnir eru: Fremsta röð frá v.: Guðni Jónsson, Skúli Ágústsson, Páll Jónsson, Sigurður Víglundsson og Björn Olsen. Næsta röð: Birgir Her- mannson, Siguróli Sigurðsson, Magnús Jónatansson, Jón Friðriksson, Einar Helgason og Haukur Jakobsson. Aftasta röð: Jón Stefánsson, Hihnar Gíslason, Bjarni Bjarnason og Krist- ján Grant. Á myndina vantar Steingrím Björnsson og Jakob Jakobsson. — Á sunnudaginn léku pilíarnir í Álasundi og unnu þann leik með 5:1. Á sunnudaginn keppa þeir í Randers. (Ljósmynd: Gunnlaugur Kristinsson.) ( Fullkomnasta sláturhúsii er á Kópaskeri Færiband á skurðarborði, n\tízl\U fláningsborð, þar sem hver maður vinnur ákveðin handtök VIGFUS OLAFSSON með bleiklaxinn, sem liann veiddi í Fnjóská. | GPIÐ BEINBROT | í gær varð árekstur á Strand- götu. Fimmtán ára piltur kom norðan Glerárgötu á skelli- n,öðru og jeppi ók í sama mund austur Strandgötu og varð árekstur með þeim afleiðingum, að pilturinn fótbrotnaði og var brotið opið. Hann var strax fluttur í sjúkrahús. Á fimmtudaginn hófst slátrun . á Kópaskeri. í fyrra hófust gagngerðar endurbætur á s]át- ur- og frystihúsinu þar, og er þeim að mestu lokið. Þar verð- ur í haust slátrað 26.400 kid- um og um 900 á dag. Sláturhús- stjóri er Þorgrímur Ármanns- sson bónda á Presthólum. Sláturhúsið á Kópaskeri er talið fullkomnasta sláturhús landsins. Breytingar á því eru þær helztar, að aðalbyggingin var lengd að mun og auk þess Stærsfi bleiklaxinn Þessi laxategund komin Fyrsti bleiklaxinn, sem hing- að kom til bæjarins og hafður í mánudagsmatinn að Hvanna- völlum 8, veiddist í Fnjóská 15. þessa mánaðar. Hann var 5 pund og þyngstur þeirra bleiklaxa, sem frétzt hef- ur um í sumar og 60 -sentimetra langur. Þetta var fuliþroskaður haengur. Hann veiddist á maðk . skammt ofan við brúna í Dals- mynni. Hann er, eins og mynd- irnar sýna, kryppuvaxinn og fremur þunnur. Kjaftuirnn er veiddisf í flestar norðlenzkar ár mjög stór og vel tenntur. Það var Vigfús Olafsson, sem fisk þennan veiddi. Á laugardaginn veiddist bleiklax í Hofsá í Vopnafirði og annar nokkru áður í Ólafs- fjarðarvatni. Þar hefur verið laxlaust að kalla í vatninu, en í sumar hefur veiðzt þar- lax og svo bleiklaxinn, sem .var 54 sm. langur og rösk 3 pund að þyngd. Enginn .friðieiksfiskur er bleiklaxinn og þegar maður hefur vaxtarhraða hans í huga og virðir fyrir sér feikna víðan (og svartan) kjaft hans, sem búinn er hálfgerðum rándýrs- tönnum, er vissulega hægt að láta sér detta í hug, hvort hér sé minkur númer tvö. Er þá sú huggun fyrir hendi, að ekki fluttu íslendingar hann inn í landið. Fleiri munu álíta, að um nytjafisk sé- að ræða og er vonandi að svo reynist. Þess skal að síðustu getið, að bleiklaxinn, sem hér var á borð borinn, reyndist ljúffengur, feit- ur og beinasmár. byggt ofan á, önnur hæð, og hæð ofan á viðbyggingu, sem húsinu tilheyrir og hún lengd um 4 metra. Á neðri hæð þeirrar byggingar er saltgeymsla og gærusöltun, en á efri hæð gæru þurrkun, snyrtiklefar, eldhús og stór kaffistofa, sem enn er ekki fullgerð. Gagngerðastar hafa þó breyt- ingarnar verið á sláturhúsinu. Af nýjum tækjum má nefna ragfknúið færiband á skurðar- borði, sem er vinnusparandi. — Við fláningu er notaður flán- ingshringur ,en hann er í því fólgin, að fláingsmenn skipa sér í hring við þar til gerðan sleða, láta skrokkinn ganga á milli sín og vinnur hver maður ákveðin handtök við fláning- una. Þetta eykur mjög hrein- læti og á einnig að spara vinnu, þegar menn hafa æfst saman. — Þá hefur verið komið fyrir mjög fullkominni innýflafryst- ingu. Teiknistofa SÍS gerði teikn- ingar, og unnu þeir Gunnar Þorsteinsson og Björgvin Óiafs- son að þeim. Björn Einarsson gerði raflagnateikn., Björn Lúð- víksson sá um kælilögn, Fjól- mundur Karlsson um uppsetn- Framhald, á 7. siðu. | ÞETTA MISTOKST j | Hverju átti „viðreisn“ rík-1 i isstjórnarinnar sérstaklega I I að bjarga? i i Jú, hún átti að bjarga at- i i vinnuvegunum og koma i i þeim á heilbrigðan rekstrar- i i grundvöll. i i Hvernig hefur þetta tek- i í izt? Á þann veg, að harð- i i svíraðir Sjálfstæðisbændur i i víta stjórnina einarðlega fyr- i i ir aðgerðir hennar og telja i 1 þær „harðindi af manna- = i völdum“. Útgerðin er á i i heljarþröm. „Viðreisn at- i i vinnuveganna“, „lciðin til = i bættra Iífskjara“ og „þjóð- i = holl og örugg stjórnarfor- = i ysta“, sem voru slagorð | i íhalds og krata í fyrrahaust, i i eru orðin að naprasta háði i i og nánast bannorð í herbúð- i i um stjórnarflokkanna. | Fjórði umsækjandinn Nú hefur fjórði umsækjand- inn um Akureyrarprestakall sótt, og er það séra Bjartmar Kristjánsson sóknarprestur á Mælifelli í Skagafirði. Hins vegar er það upplýst að Jón HnefiU Aðalsteinsson hefur dregið sína umsókn til baka og mun sækja um prestakall á Austurlandi. i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.