Dagur - 19.04.1961, Síða 4
4
f— ---:.......\
Vormenn - Haustmenn
íslenzka þjóðin hefir um aldir fagnað
vorinu. Hún heldur ein þjóða sumar-
daginn fyrsta hátíðlegan. Vetiu-inn á
fslandi hefir svo oft orðið landsins
börnum þungbær, að lok hans eru
þeim árlegt fagnaðarefni.
Þó að ekki sé alltaf sumarlegt á
sumardaginn fyrsta, er samt ætíð víst,
að þá er sá tími kominn að vænta má
áhrifa sumarsins á hverri stundu. Sól-
farið orðið svo mikið, að veturinn
verður að víkja áður en langt um líð-
ur.
Og undur vorsins gerast: Snjórinn
hverfur, stundum með sólbráð hægt
og hægt, stundum með asa og byltingu
mikilla leysinga.
Jörðin, sem haustið áður gerði sinu
gráa, skrýðist gróðurskarti sínu á ný.
Menn sjá brum þrútna og gróður-
nálar skjóta upp kollum, og fyrr en
varir er allt í blóma. Enginn maður
fylgist fullkomlega með breytingmini,
stig af stigi. Máttur vorsins er allt í
öllu, sístarfandi nótt og dag, leiðir
sumarið til valda og býr því sæti. Vor-
ið fer um landið ósýnilegum höndum
og sjá: Allt, sem líf er með, verður
nýtt, — og allt hið ólífræna eins og
nýtt.
Islenzk tunga á mörg orð, er reynzla
kynslóðanna af vori, sumri, vetri og
hausti hefir skapað.
Hér skulu tvö slík orð nefnd: VOR-
MENN og HAUSTMENN.
Þjóðin hefir kallað þá sonu sína og
dætur VORMENN, sem unnið hafa að
mikilsverðum málefnum hennar í
anda vorsins og verið fólk gróandans
í þjóðlífinu. VORMAÐUR er eitt af
mestu lofsyrðum tungunnar.
Gagnstæðir vormönnum eru svo
HAUSTMENNIRNIR. Umhverfis þá
berst venjulegur gróður þjóðlífsins
við visnun og sölnun, og yfir vofir
frost og fjúk.
Nafngiftir þessar eru í samræmi
við lífsreynslu þjóðarinnar fyrr og
síðar.
Tíðarfari og árstíðum er ekki hægt
að breyta, enn sem komið er. Hver
veit þó, nema mönnunum takist ein-
hvemtíma með tækni sinni að hafa
áhrif á veðráttuna. Og fari svo, —
liver biður þá ekki fyrst um vor?
En þrátt fyrir áhrifaleysi sitt á veð-
urfarið, geta menn á okkar tímum
verið vormenn allan ársins hring og
unnið fyrir „gróandi þjóðlíf.“
í þjóðlífi eiga alls ekki að skiptast
á vetur, sumar, vor og haust. Þar á að
vera síungt vor, sem stefnir að meira
sumri. Mannkynið þráir slíkt vor.
Mennimir eru fæddir með þá þrá í
brjósti, þó að útaf beri með þjónustu
við hana.
Ai íslandi hafði stefna vormannal
róðið miklu um langt skeið, þar til nú
í rúmlega tvö ár, að haustmenn hafa
náð undirtökum í stjóm landsins. Á-
hrif haustsins eru því miður strax
farin að setja mark sitt á gróður þjóð-
lífsins. Visnun leynir sér ekki.
I dag er síðasti vetrardagur. Vetur-
inn 1960—1961, sem nú er að kveðja,
var mildur að veðráttu. Ekki hefir
hann verið (Framh. á bls.7.)
PATON-GARNIÐ MIMOSA-
marg eftirspurða stækkunarpappírinn
er komið. kominn.
ANGORAGARN Fjölbreytt úrval.
LYKKJUGARN Sigtryggur og Pétur
gullsmiðir,
TWEEDGARN Brekkugötu 5.
DANSKA
SÖNDERBORG- Grannir
GARNIÐ NYLONTAUMAR
væntanlegt næstu daga. nýkomnir í
ANNA & FREYJA GRÁNU H.F.
RAFORKA AUGLÝSIR
HOOVER HEIMILISTÆKIN
hafa farið sigurför um landið.
Höfum fengið flestar gerðir
HOOVER HEIMILISTÆKJA
Hyggin húsmóðir vel sér
HOOVER HEIMILISTÆKI
Höfum fengið nokkurt magn varahluta í
HOOVER-T ÆKI.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Við munum kappkosta að hafa til algengustu
VARAHLUTI.
SÖLUUMBOÐ:
VERZLUNIN L0ND0N
NÝKOMINN
HINN MARGEFTIRSPURÐI
PL ASTS V AMPUR
sem hefur verið til margra hluta nytsamlegur, t. d.
undir gólfteppi og þó aðallega í dömuundirpils.
Breidd 1 meter. — Verð kr. 28.00 pr. m.
Litir: Gulur, bleikur og grár.
GÓLFFLlSAR
Nýkomnar norskar GÓLFFLÍSAR
30x30 cm, 2ja mm.
Verð kr. 146.80 pr. ferm.
KAUPFÉLAG SVALBARÐSEYRAR
AÐALFUNDUR
NAUTGRIPARÆKTARÉLAGS AKUREYRAR
verður haldinn mánudaginn 24. þ. m. kl. 2 e. h.
Rotarysal Hótel KEA.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Skipulagsuppdráttur
Lokið er skipulagsuppdrætti af svæðinu, sem takmari
ast af Geislagötu, Gránufélagsgötu, Glerárgötu o
Strandgötu, og hefur bæjarstjórn samþykkt uppdrát
inn á fundi 21. febrúar sl.
Samkvæmt 12. gr. skipulagslaga nr. 55 frá 1921 au<;
lýsist hér með, að skipulagsuppdrátturinn ásamt lý;
ingu og líkani af svæðinu er til sýnis almenningi
bænum í skrifstofu bæjarverkfræðings í 4 vikur fr
dagsetningu auglýsingar þessarar að telja.
Bæjarstjórinn á Akureyri, 15. apríl 1961.
MAGNÚS E. GUÐJÓNSSON.
SKYNDISALA
Vegna utanbæjarmanna höldum við skyndisölunni
ÓDÝRA FATNAÐINUM
áfram á föstudag, laugardag, mánudag og
« þriðjudag n. k.
GLEÐILEGT SUMARL-- ;
i i
saumastofa'gífíunar
Ráðhústorgi 7. — Akureyri.
NR. 5,
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámark
verð á smjörlíki:
í heildsölu pr. kg.. kr. 12.35
í smásölu pr. kg., með söluskatti — 13.80
Reykjavík, 8. apríl 1961.
VERÐL AGSST J ÓRINN.
ATVINNA!
Oss vantar nokkrar konur
fil sfarfa nú þegar.
Nánari uppl. í síma 1204
ULLARVERKSMIÐJAN
GEFJUN