Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 11

Dagur - 29.08.1962, Qupperneq 11
Friðbjarrnarhúsið á Akureyri. Fyrsta stúka Iandsins stofnué / a Akureyri rYRSTA stúkan, sem stofnuð var hér á landi, var ísafold nr. 1. Uún var stofnuð á Akureyri hinn 10. janúar 1884 í svonefndu Friðbjarnarhúsi, Aðal- stræti 46. ‘Þessi stúka starfar enn og Friðbjarnarhús stendur enn. Húsið hafa bindindismenn keypt og eru að safna þangað munum Friðbjarnar Steinssonar, sem húsið er við kennt. Hús og munir eiga að varðveit- ast sem sögulegir minjagripir elzta bindindisfélags á Islandi. Stúkur á Akureyri eru nti 5: Isafold-Fjallkonan nr. 1, Brynja nr. 99, báðar fyrir fullorðna og 3 barnastúkur: Sakleysið nr. 3, Samúð nr. 102 og Von nr. 75 í Glerárhverfi. Ta'la félaga í stúkunum öllum er á áttunda hundr- að. Stúkurnar á Akureyri reka æskulýðsheimili, bind- indishótel og kvikmyndahús í Varðborg. Ennfremur barnaheimili að Litlu-Tjörnum í Ljósavatnsskarði og eru þar um 30 börn. Svo er sagt, að bindindishótelið sé eitt sinnar teg- undar á íslandi. Fyrir liggur að auka mjög starfsem- ina, en það er því aðeins unnt að húsakynni Varð- borgar verði stækkuð og mun það standa fyrir dyr- um. Akureyrarstúkurnar kjósa sér 6 fulltrúa hver í framkvæmdaráð. Framkvæmdaráðið kýs sér svo framkvæmdastjórn. Formaður framkvæmdaráðs er Jón Kristinsson og er hann líka í framkvæmdastjórn ásamt Stefáni Ág. Kristjánssyni, Eiríki Sigurðssyni, Bjarna Halldórs- syni og Guðmundi Magnússyni. Æðstitemplar ísa- fold-Fjallkonunnar er Magnús Kristinsson, en Brynju Friðrik Aðólfsson. Störf bindindissamtakanna á Akureyri munu mega teljast óvenjttlega mikil, þótt árangurinn verði hér ekki metinn. En bæjarbúar þekkja þá sögulegu staðreynd, að á Akureyri stóð vagga bindindishreyfingarinnar hér á landi. Þrir forvígismenn bindindismanna. Frá vinstri: Stefán Ag. Kristjánsson, Eirikur Sigurðsson og Jón Kristinsson. DAGUR 9

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.