Dagur - 29.08.1962, Síða 35
ar sunnan og vestanlands með góðum árangri og má
búast við vaxandi þátttöku héðan í þeinr veiðum á
komandi hausti.
Smærri bátar:
Eins og fyrr segir eru hér nokkrir srnærri dekkbát-
ar, er stunda veiðar í firðinum og úti fyrir Norður-
landinu. Gera þeir ýmist að salta afla sinn um borð
eða leggja hann á land nýjan annað Iivort til fisk-
vinnslustöðva eða til bæjarsölu á Akureyri. Þá
stunda trillubátarnir veiðar innfjarðar, en fæst-
ir af eigendum þeirra hafa róðra að aðalatvinnu
heldur stunda þá aðeins í tómstundum og um helg-
ar. — Jafnvel embættismenn, eins og bankastjórar
og læknar eiga trilluhorn, sem þeir róa til fiskjar,
sér til hvíldar og ánægju í tómstundum.
Síldveiði innfjarðar:
Sérstakur þáttur í útvegi Akureyringa er milli-
síldar- og smásíldarveiði innarlega í Eyjafirði og á
Políinum. Hefur hún um fjölda ára verið stunduð
af svokölluðum „nótabrúkum" og síldin verið seld
ný til beitu eða fryst. Á seinni árum hafa stærri bát-
ar veitt nokkuð af smásíld til bræðslu í herpinætur
og hefur nokkuð verið deilt á þær veiðar og því
haldið fram, að með þeinr væri norðlenzka síldar-
stofninum stefnt í hættu vegna rányrkju. Fyrir þeirri
kenningu hafa þó ekki verið færð frambærileg rök.
Nokkuð af smásíldinni hefur farið til niðursuðu á
síðustu árum og væri vissulega æskilegt, að stefnt
yrði að því, að geia úr þessunr ágæta fiski verðmeiri
vöru en mjöl.
Fiskvinnsla:
Þótt ekki gæti enn mikillar fjölbreytni í vinnslu
Likan af togaranum „Kaldbak“
Snœfell, eign K.E.A.
sjávarafurða hér eru þó nokkur fyrirtæki, sem starfa
að slíkri framleiðslu. Frystihús Ú. A. er þeirra
stærst og vinnur að miklu leyti úr afla togaranna.
Sl. ár var það þriðja hæsta frystihús á landinu í
framleiðslu fiskflaka. — Skreiðar- og saltfiskverkun
er og allmikil hjá Ú. A., Leó Sigurðssyni o. fl. —
Niðursuðuverksmiðja Kristjáns Jónssonar er mynd-
arlegt og vaxandi fyrirtæki og nýtt fyrirtæki, eign
Knúts Karlssonar, er einnig að hefja niðursuðu og
niðurlagningu síldar, í smáum stíl þó. — Þá er síld-
arverksmiðjan í Krossanesi, senr er eign bæjarins,
stórt fyrirtæki. Auk síldarvinnslu hagnýtir hún all-
an fiskúrgang frá frystihúsinu og annarri fiskvinnslu
í bænum. — Er þess að vænta, að með stöðugri síld-
veiði, þó sunnan- eða vestanlands sé, verði unnt að
flytja lrenni hráefni, svo sanrfelld vinnsla geti farið
Jrar franr allt árið. — Heildarverðmæti útfluttra
sjávarafurða frá Akureyri nrun sl. ár liafa verið
nokkuð yfir 100 nrilljónir króna.
Það, sem hér lrefur sagt verið sýnir, að sjávarút-
vegur er allveruleg stoð undir bæjarfélagi okkar og
skal vonað að hún verði því styrkari senr fleiri ár
líða. — Fleiri vinnslugreinar munu verða teknar upp
og verðmæti afla þar nreð aukið. Eins og atvinnu-
málum hefur verið háttað sl. ár get ég mér til, þótt
ekki verði það sannað í skjótri svipan, að þriðj i lrver
bæjarbúi hafi framfæri beint af útgerð eða fram-
leiðslu sjávarafurða. Og ltvað sem aðrir segja um
þessa atvinnugrein og þá, sem að henni starfa, þá
er það trú mín, að lrún sé það haldreipi, sem sízl
nregi sleppa tökum af, nreðan ekki er fundið á Súlu-
mýrum eða í Hlíðarfjalli úraníum eða gull til að
grafa eftir.
13. ágúst 1962.
Gísli Konráðsson.
(
DAGUR 33