Dagur - 03.10.1962, Blaðsíða 1

Dagur - 03.10.1962, Blaðsíða 1
Málgagn Framsóknarmanna Ritstjóri: Erlingur Davíðsson Skrii stoi a í Hai narstræti 90 Sími 1160. Sf.tningu og prenton ANNAST PRENTVERK OoDS Hjörnssonar h.f,, Akureyri s___________________________- Dagur XLV. árg. Akureyri, miðvikudagur 3. október 1962 — 49. tbl. /-------------------------------- Auglýsingastjóri Jón Sam- ÚF.LSSON . ÁkCANGURINN KOSTAR kr. 120.00. Gjalddagi F.R 1. JÚLÍ BlAÐIÐ KEMUR ÚT Á MIÐVIKÚDÖG- UM OG Á LAl GARDÖGL M, !>KGAk ÁSr.EDA ÞYKIR TIL ___________________ ■i Barn lendir fyrir bifreið Bifreiðaárekstrar, tilraunir til innbrota og maður hryggbrotnar við byggingavinnu Á FÖSTUDAGINN bar Jiað við á veginum framan við Sam- komuhús bæjarins, að tveggja ára drengur, Magnús Jón Ant- onsson féll á götuna og varð fyr- Eitrað síldarmjöl iá Norðmönnum i'i VÍSINDAMENN við Dýra- ! læknaháskólann í Osló liafa [ koniizt að raun um, að notkun j nitrits til varnar skemmdum á j síld, áður en úr henni er fram- í leitt síldarmjöl, geti valdið i eitrun, þegar það er notað til i fóðurs búpeningi. Hafa rann- i sóknir leitt í Ijós, að bæði = nautgripir og sauðfc drepist af f eitrun þessari og að hið í skeinmda síldarmjöl dragi úr i vexti alifugla. i Hér á landi er nitrit einnig i notað sem rotvamarefni í síld- i ina. En íslenzkir vísindamcnn i telja notkun þessa efnis svo i litla hér á landi, að um eitrun | sé ekki að ræða eða neina i hættu af notkun þess. — Hins i vegar hafi Norðmenn aðra og i verri aðstöðu til að verja síld- i ina og noti því umrætt efni i í inun ríkara mæli en hér er i gert. I ir bifreið, er þar ók. Drengur- inn lærbrotnaði og var þegar fluttur í sjúkrahús. Síðasta fimmtudag lenti bif- hjól og bíll í árekstri á Glerár- götu. Maður sá, er ók bifhjól- inu meiddist, en var þó óbrot- inn. í gærmorgun vildi.það slys til í húsi einu í Eyrarvegi, að Björn Sigurðsson, Fjólugötu 20, er þar vann við byggingu á þriðju hæð, féll niður á aðra hæð og brákaðist í baki. Hann liggur á sjúkrahúsi. Steingólf var þar, sem Björn kom niður. Fyrir rúmri viku tók lögregl- an bifreiðastjóra einn fastan vegna meintrar ölvunar við akstur. Um helgina var tilraun gerð til innbrots í geymslu Skódeild- ar KEA við Hafnarstræti. Hafði innbrotsmaður brotið glugga, en snúið frá vegna járnrimla innan við, en gert misheppnaða til- raun við að sprengja annan glugga upp. Þá var nýlega ölvaður maður tekinn fyrir að brjóta útihurð í gamla Hótel Goðafoss.Var hann staðinn að verki. Smábifreiðaárekstrar hafa orðið nokkrir í bænum, en án mikilla skemmda á farartækj- um eða slysum á fólki. □ I Flugfélag íslands bauð blaðamönnum utan Reykjavíkur fyrir helgina snögga ferð til Reykjavíkur til j að kynnast starfsemi félagsins í höfuðborginni. Hér á myndinni eru nokkrir þeirra. Bæjarstjórn ræðir húsnæðismál Blöð íhalds og krata neita húsnæðisvandræðum ALLIR þekkja. húsnæðisvand- ræðin á Akureyri, þótt íslend- ingur og Alþýðumaðurinn vilji alls ekki viðurkenna þau, og fullyrði, að Dagur fari með ýkj- ur í því efni, þegar hann hefur Kindum bjargað á síðustu stundu á Leirunum, við ósa Eyjafjarðarár Á MÁNUDAGSMORGUNINN urðu starfsmenn Flugfélagsins á Akureyrarflugvelli þess varir, að kindur stóðu í sjó utarlega á Hey lítil og féð rýrt Þórshöfn, 1. október. Heyin eru mun minni en venjulega, en sæmilega verkuð. Sláturfé er rýrt og lakara en í fyrra. Um miðjan september var hörkufrost, 6—8 stig og gjörféll þá kartöflugras. Garðeigendur verða að sætta sig við lélega uppskeru að þessu sinni. TVEIR LJÓSHÆRÐIR KNATTSPYRNUMENN Þrótt- ar, sem nú keppa í Skotlandi komust á forsíður blaðanna í gær. Þar er sagt frá tveimur ljós- hærðum, sem stálust út að kveldi og lentu í höndum lög- reglunnar. Ekki eru menn þess- ir nafngreindir. □ Leirunum. Gerðu þeir einum af fjáreigendum bæjarins, Ás- geiri Halldórssyni, aðvart. Brá hann fljótt við og kom á stað- inn, ásamt unglingum, er ljann hafði með sér. Mátti það ekki seinna vera, því að ella hefðu allar kindurnar, 9 að tölu, drukknað. Þær voru þarna ó- hagvanar og höfðu komizt langt út með stórstraumsfjöru, en brast vit til að forða sér undan flóðinu. Ásgeir dró kindurnar, tvær í senn, til lands og bjargaði þeim öllum Sjórinn náði honum allt upp undir hendur. Kindurnar voru allar nokkuð þrekaðar, er í land kom og stóðu ekki hjálp- arlaust, utan dilkhrútur, er kuldinn hafði ekki unnið á. Þar sem fara þurfti nokkuð langa leið með kindur þessar, tók þetta björgunarstarf rúmlega hálfan annan klukkutíma. Kom sér vel, að Ásgeir er maður vel úr grasi vaxinn og enginn veifi- skati, því að öðrum kosti hefði þetta ekki tekizt. Og trúlegt er, að ekki hafi hann öðru sinni reynt meira á þrek sitt. Ásgeir átti ekki þessar kindur. □ með gildum rökum bent á hin vaxandi húsnæðisvandræði í bænum. Auk þess hefur Dagur birt skýrslu byggingafulltrúa bæjarins um þessi mál, svo að þau liggja ljóst fyrir, að því er tekur til allra byggingafram- kvæmda í kaupstaðnum á þessu ári. Jafnframt hefur blaðið talið ástandið svo alvarlegt, að bæj- arstjórn bæri að leita úrræða. Sem hæfilegt svar við hinum mjög ábyrgðarsnauðu og skað- legu fullyrðingum Islendings og Alþýðumannsins, hefur bæjar- Kurnl úr heiðni á Öxnadalsheiði INGÓLFUR NIKODEMUSSON á Sauðárkróki fann í sumar hauskúpu og fleiri bein á svo- nefndu Skógarnefi í Skógarhlíð á Oxnadalsheiði, rétt þar á móti, sem Krórá og Heiðará mætast. Dr. Kristján Eldjárn þjóð- minjavörður rannsakaði bein þessi og fundarstað nýlega. Þyngsti kroppurinn ÁÐUR var sagt frá vænum dilk frá Sæmundi í Fagrabæ. — En einn lcemur öðrum meiri, því að síðar kom í Sláturhús KEA vænn dilkur frá Auðnum í Hörgárdal. Vó kroppurinn 30.5 kíló. □ Skinin hauskúpa stóð þarna upp úr mölinni og kom í ljós, að þarna var kuml frá heiðnum tíma, og hafði það verið rofið fyrir löngu og þá sennilega fjar- lægðir verðmætir munir, haug- fé. Hauskúpan var af konu og enn sýndu menjar, hversu um hefur verið búið upphaflega. — Perlufesti hefur kona þessi bor- ið um hálsinn og fundust af henni tvær litlar perlur. Til fóta áleit þjóðminjavörður, að kistill hefði verið lagður með smá- munum í. Hrossbein báru þess merki, að hestur konunnar hafi verið grafinn í jöi-ð hjá eiganda sínum og af reiðtýgjum fannst stór reiðgjarðarhringja. □ ráð tekið málið á dagskrá og samþykkt eftirfarandi: „Bæjarráð leggur til, að skip-r uð verði sérstök nefnd, húsnæð- ismálanefnd, til að kanna þá möguleika, sem um er að ræða til lausnar húsnæðisvandamál- um í bænum. Verði nefndin skipuð fjórum mönnum auk byggingafulltrúa. Skal nefndin hafa skilað áliti innan 2ja mán- aða til bæjarstjórnar. Nefndinni heimilast að ráða sér starfs- mann þann tíma, sem hún starf- ar.“ Undir þetta skrifa: Magnús E. Guðjónsson, Helgi Pálsson, Árni Jónsson, Stefán Reykjah'n, Ingólfur Árnason og Arnþór Þorsteinsson. í gær lagði Alþýðumaðurinn margar spurningar fyrir Dag um byggingar stórhýsa í bæn- (Framhald á bls. 2.) Mtitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiuiiuiia | LÉLEG ÞJÓNUSTA? 1 BLAÐINU berast öðru hverju l kvartanir út af strætisvögnun- j um hér á Akureyri, og munu I sumar á rökum reistar, en aðr- j ar ekki. i í gær var kvartað um lélega ! þjónustu, þar sem strætisvagn- I ar gengju ekki nema til kl. i 8.45 á kvöldin og er þeirri um- j kvörtun hér með komið á i framfæri. j Um rekstur þennan í heild j skal ósagt látið að þessu sinni, i en líklegt er að betur þyrfti að j skipuleggja þessa þjónustu. •ttuiiiiiiuuuiimiiiniiiniiniiiiiiiinniummmiiiMia

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.