Dagur - 06.10.1962, Blaðsíða 4
4
T
5
iiimcaiMMMtdKiictimu.Hiiiiiiiiiiiiinmii
Skólabærinn
Akureyri
SÍÐUSTU DAGA hefur æskufólk
streymt til Akureyrar og bærinn hefur
enn á ný fengið á sig hinn hressandi
skólabæjarblæ. í umferð bæjarins, bóka-
búðum og bíóum er hið unga fólk, karlar
og konur í miklum meirihluta, og skóla-
setningardagana liafa skólar og kirkja
kallað öll þessi ungmenni til fyrstu
samverustunda skólaársins, hvatt til
dáða við námsstarfið og lýst þeim regl-
um, sem nemendur verða að hlýta með-
an skólavist stendur.
Þrátt fyrir kennaraskort víða um land,
sem á nokkrum stöðxun er slíkur, að til
vandræða horfir, hefur skólunum á Ak-
ureyri tekizt að ráða kennara að fullu.
Akureyrarkaupstaður og skólar bæjar-
ins virðast hafa búið betur að sínu kenn-
araliði, en víða annars staðar, og losnar
því að þessu sinni við þá upplausn í skóla
málum, sem ýmsir aðrir verða við að
búa. Hins vegar eru skólar bæjarins ekki
búnir nægilegu húsnæði fyrir hina fjöl-
þættu kennslu. í því efni má nefna, að
Icikfiminámsskyldu er ekki hægt að full-
nægja vegna vöntunar á aðstöðu.
Kennslustarfið er töluvert erfitt, og
þrátt fyrir meira húsnæði, fleirí og betri
áhöld og góða skólamenntun flestra
kennara, mun starfið yfirleitt leggjast
þyngra á herðar þeirra en áður. Til þess
liggja eflaust margar orsakir, en meðal
annarra breytt viðhorf foreldranna til
kennara og skóla, ásamt þeirri eðlilegu
breytingu á viðhorfi fjölda nemenda,
þeirra, sem ekki koma í skóla af neinni
eða verulegri löngun til að læra.
Hið stórvaxna og fríða fólk, sem kem-
ur í gagnfræða- og menntaskóla nú í
haust, hefur sumt á þremur mánuðum
unnið sér inn sem svarar árslaunum
kennara sinna. Þetta fólk hefur fjárráð
fullorðna fólksins, en mjög misjafnan
andlegan þroska. Hópur af drengjum á
gelgjuskeiði gekk í fyrrakvöld um göt-
umar og kastaði grjóti í götuljósin. Skól-
amir munu eflaust veita þessum ungling-
um verðugri viðfangsefni innan tíðar og
er það heppilegri lausn en afskipti lög-
reglunnar. Heillavænleg áhrif skóla á
nemndur sína byggjast m. a. á gagn-
kvæmu trausti nemenda og kennara og
einnig á nokkrum ófrávíkjanlegum regl-
um um hegðun og háttvísi nemenda. Lág-
marksárangur við nám ætti einnig að
vera meiri. I fjölmennum skólum er
stundum of stór liópur nemenda, sem
-lærir nánast ekki neitt, en er fjötur um
fót skólasystkina sinna. Unglinga- og
menntaskólar mega aldrei una við það
hlutskipti að vera dvalarheimili þeirra
harna, sem ekkert vilja læra í venjuleg-
um skóla. Þau þurfa allt aðra meðferð
en sæmilegt námsfólk.
Sennilega þyrfti að auka samvinnu
skóla og foreldra, þar sem því verður
við komið, því að í þessu efni getur já-
kvætt viðhorf foreldra haft hina mestu
þýðingu fyrir velferð bams og unglings.
I tilefni af skólasetningum á Akureyri
og hinum mörgu aðkomnu ungmennum,
munu allir sæmilega hugsandi bæjarbú
ar bera fram þær óskir, að þetta skólaár
veiti hinni tápmiklu æsku mikinn
þroska. ' □
iiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiimmiiimiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiii JONAS JONSSON FRA HRIFLU • immmmmmmmmmmmmimii
Bréf til Jónasar G. Rafnars, alþingism. á Akureyri
SJÖTUGUR:
Næst kæmi ég að þriðja
manninum, sem við verðum að
láta hverfa um stund með sín-
um verkum. Hann á heima suð-
ur í Reykjavík, það er JónÁrna-
son í Sambandinu. Árið 1930
keypti hann fyrir Sambandið
gamlar og heldur aðsópslitlar
tóvélar við Glerá og setti Arn-
þór Þorsteinsson yfir yirkið. Þar
hafa gerst undur og stórmerki á
þeim tíma, sem liðinn er síðan.
Jón keypti mikið af grýttu og
gróðurlausu landi í kringum tó-
vélarnar. Þar hafa risið stærstu
og bezt á^rðu verksmiðjuhús á
íslandi fyrir fjölþætta iðju úr
íslenzkri vöru, ull og skinnum.
Mjög hafa verið færðar út kví-
arnar í þessari iðju. Fyrsta árið
sem Sambandið starfrækti þess-
ar vélar, voru þar 30 starfsmenn
og laun til þeirra voru um 70
þúsund. Nú er starfslið verk-
smiðjunnar nokkuð á þriðja
þúsund og kaupgjald meira en
12 milljónir. Dúkaframleiðslan
í Glerárverksmiðjunni mun
vera yfir 200 þúsund metrar ár-
lega. Mikil forusta er á þessari
stórfelldu iðnaðarframleiðslu
hjá Arnþóri Þorsteinssyni. Hann
hefur auk iðnaðarframleiðslunn-
ar verulega umsjón með söl-
unni. Arnþór líkist um marga
hluti hinum góðfrægu alda-
mótabændum, sem stunduðu
vel bú sín, en iðkuðu jafnframt
skáldskap og söguvísindi. Arn-
þór gerði það sér til frægðar að
rita samtímis þér afmælisgrein
í Dag eihs og þú og var öll hans
framsögn hlutlaus og glögg. Var
þar getið afreka kaupmanna og
kaupfélaga jöfnum höndum.
Þegar sleppir Jóni í Samband-
inu, sem aldrei hefur átt heima
á Akureyri, nema þá tvo vetur,
sem hann var þar í skóla, kem-
ur röðin að fyrirferðarmiklum
Akureyrarbúa, Vilhjálmi Þór.
Hann var um árabil einhver
mesti athafnaforkólfur á land-
inu. Kaupfélag Eyfirðinga færði
út veldi sitt í allar áttir á þessu
árabili, ekki sízt vegna snjallrar
fjárgæzlu kaupfélagsstjórans,
sem hafði vakandi auka á hvers
konar framfararskilyrðum í
bænum og héraðinu. Undir for-
ustu hans reisti KEA mörg stór-
hýsi og grundvallaði þá meðal
annars hið mikla gistihús fé-
lagsins. Á þessum árum var
Vilhjálmur áhugasamur um
mörg önnur merkileg stórmál,
svo sem kirkjubyggipgunaá Ak-
ureyri og Kristneshæli. Mundi
fólki á Akureyri nú þykja mikil
sjónarsvipti, ef til lengdar yrði
numin burtu úr bænum merki
um allar þær framkvæmdir,
sem þessi mjög skapandi Eyfirð-
ingur stóð fyrir með mikilli ráð-
deild um langt árabil. Ekki hæf-
ir, hvorki mér eða þér, að
gleyma nafna okkar Jónasi
Kristjánssyni, hinum mikla
brautryðjanda í mjólkurmálum
Eyfirðinga.
Á þessum tíma fæddust uppi
í Eyjafirði merkileg foringja-
efni, þeir Jónas Kristjánsson og
Vilhjálmur Þór. Þeir skiptumeð
sér verkum. Jónas fór til Dan-
merkur og lauk þar fullnaðar-
námi í mjólkurmeðferð, eins og
þar eru mestar kröfur nú á tím-
um. Á meðan undirbjó Vilhjálm-
ur heppilegt húsnæði á vegum
Kaupfélagsins fyrir þessa iðju.
Þegar var hafizt handa eftir
heimkomu Jónasar. Undir for-
ustu hans varð Eyjafjörður
fyrsta hérað á íslandi, sem kom
upp fullkominni nýtízku mjólk-
urvinnslustöð. Hafa ráð hans
verið sótt í þetta efni frá flest-
um héruðum á íslandi, sem
fylgt hafa í þessu efni skoðun-
um eyfirzku bændanna. En í
SIÐARÍ HLUTI
þessari hátíðargöngu okkar, sem
gert er ráð fyrir í þessari grein,
meðan burt eru numin öll áhrif
samvinnunnar á Akureyri, þá
mundi líka verða allmikil breyt-
ing í þeim efnum, sem snertir
mjólkurbú Eyfirðinga. Þá
mundum við ekki sjá neinar
mjólkurverksmiðjur og heldur
ekki neina bíla til að flytja
mjólkina, heldur mundu nokkr-
ir hestvagnar koma framan úr
firði með smjörpinkla og sltyr-
kvartel til að bæta úr þörf Ak-
ureyrarbúa um þau efni, sem
fornmenn kölluðu hvítar verur.
Enn á ég ótalinn frægan merk-
ismann, Magnús Kristjánsson,
sem var í senn góður kaupmað-
ur og ágætur samvinnumaður.
Honum blæddi í augum að sjá
um síldartímann, hve herfilega
var haldið á hlut íslendinga. Er-
lendir atvinnurekendur unnu
úr hráefninu bæði í landi og í
landhelgi eftir því sem. bezt
hentaði þeim. En þegar þeir
þurftu ekki að nota vörur frá
íslenzkum skipum, lágu þau yzt
í hafnarminni Siglufjarðar,
meðan afgreidd voru skip út-
lendinganna, sem áttu tækin í
landi. Þetta ófremdarástand
þótti Magnúsi Kristjánssyni al-
gjörlega óviðeigandi. Hann beitti
sér fyrir því, að ríkið byggði
fullkomna síldarbræðslustöð á
Siglufirði og var til þess varið
fé úr framfararláni því, sem
stjói-n bænda og verkamanna
tók 1930. Hefurþessi verksmiðja
gefizt prýðilega og eignazt dótt-
urfyrirtæki við flestar hafnir
landsins, þar sem síld berst í
land. Má segja, að Magnús
Kristjánsson sé merkismaður í
sögu Akureyrar í sambandi við
heppilega lausn margra þjóð-
nýtra mála, en forganga hans í
síldariðjumálum markar djúp
giftuspor í sögu íslenzkra út-
vegsmála.
Fyrr er að því vikið, að þú
varst ekki einn að verki við hin
andlegu kynni á afmælishátíð-
inni. Gísli Jónsson, mennta-
skólakennari, rakti í útvarpinu
einstaka viðburði í sögu kaup-
staðarins. Þar sagði hann frá at-
kvæðatölu þinni við þingmanns-
kjör á Akureyri, en lét falla
niður annað ártal, þegar
hræðslubandalagið sigraði í
kjördæminu. Frá endurreisn
norðlenzka menntaskólans tók
Gísli fram, að fimm Norðlend-
ingar hefðu verið sendir suður
yfir heiðar til að þreyta stúd-
entspróf í Reykjavík og unnið
sigur. Hins vegar var honum
ekki ljóst, að endurreisn skól-
ans gerðist með löngum aðdrag-
anda og tveim sögulegum sigr-
um. Haustið 1927 var Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri,
með stjórnarbréfi, heimilað að
útskrifa stúdenta og í öðru lagi
var málinu fylgt fram með lög-
gjöf 1930. Þá var Möðruvalla-
skóli raunverulega lagður nið-
ur, en stofnaðir tveir skólar:
menntaskóli á Akureyri og
gagnfræðaskóli í Akureyrarbæ.
Við þennan þátt andlegrar
kynningar þarf að fylgja sömu
aðferð og við grein þína. Við
látum hverfa eina dagstund,
allt, sem snertir endurreisn
norðlenska skólans, nema suð--
urgöngu skólapiltanna. Eftir
verður gamli Möðruvallaskól-
inn í hálfgerðri útlegð á Akur-
eyri. Menntaskólinn með sitt 20
manna kennaralið eða meira og
yfir 400 nemendur, hyrfu þá um
stundarsakir með öllu. Enn-
fremur hinn nýi gagnfræðaskóli
með góðum húsakosti og 5—600
nemendur. Samtímis væri þá
um stund þurrkuð út barátta á-
hugamanna norðanlands í heila
öld við að endurreisa Hólaskól-
ann í nýrri mynd á Akureyri.
Sem betur fer stóðu tákn-
myndir ykkar Gísla ekki nema
eina dagstund. Þetta draum-
sjónaástand hvarf og nú blasa
við augum allra hinar miklu
framkvæmdir samvinnumanna
í bænum og héraðinu frá und-
angenginni öld.
Sögumeðferð ykkar Gísla
Jónssonar á sér heimsfræga
hliðstæðu hjá bolsivikaleiðtog-
um í Rússaveldi. Einn af leið-
togum þeirra, Bería, dó heldur
skyndilega. Félögum hans þótti
óhentugt að minningin um líf
hans og starf og dauða yrði
haldið á lofti í Rússaveldi. —-
Stjórnin gaf þá út tilskipun um,
að í hinni nýju alfræðibók rík-
isins skyldi klippa úr nokkrar
blaðsíður, þar sem rakin var
ævisaga og afrek hins látna
manns. í stað þess skyldi settur
nýr kafli um Beringssund, ná-
kvæmlega jafn langur þætti
þeim, sem burtu var tekinn. Þá
var máli Bería lokið eins og
Rússar litu á þennan sögulega
atburð. Sagan var þá að þeirra
dómi komin í samræmi viðþjóð-
armeðvitundina.
Sögugerð ykkar Gísla er mjög
hliðstæð þessari austrænu fyrir-
iiiiiiiiiiiui
1111111111111111111111111111111111111111
lllllllllll•ll•lllllllllll|.lt•l•
MÁL MÁLANNA
HÚSNÆÐISMÁLIN í Akureyr-
arbæ eru að komast í hreint
öngþveiti. Margar fjölskyldur í
bænum eru húsnæðislausar eða
hafastvið í ófullnægjandibráða-
birgðahúsnæði. Er svo komið,
að fólk er farið að hafa við orð
að flytjast úr bænum vegna hús-
húsnæðisvandræða, og önnur
dæmi sína, að menn hafa hætt
við að flytjast tilbæjarins vegna
húsnæðiseklunnar.
Ástæður þess, að svo er kom-
ið, sem hér er sagt, eru að sjálf-
sögðu ýmsar. Ein er sú, að nokk-
ur gömul hús hafa verið tekin
úr notkun sem íbúðarhús, enda
fyrirhugað að rífa þau. Svo
kemur og hitt til, sem mestu
veldur, að stórkostlegur sam-
dráttur hefur orðið í nýbygg-
ingum vegna dýrtíðar, versn-
andi lánskjara og minnkandi út-
lána, sem er einn meginkjarn-
inn í núverandi stjórnarstefnu.
— Hefur byggingarkostnaður
aldrei verið í jafn hróplegu ó-
samræmi við tekjur heimilis-
feðranna eins og nú tvö síðustu
árin. Lætur nærri, að árskaup
verkamanns svari til vaxta
einna saman af meðalíbúð. Hve
lengi er hægt að þola slíkt á-
stand?
Ráðamenn Akureyrarbæjar
geta ekki horft aðgerðarlausir á
ástandið eins og það er. Að vísu
er það tæplega á þeirra valdi
að breyta stefnu ríkisstjórnar-
innar í þessu eða öðru, og þó
gætu þeir haft einhver áhrif í
þá átt, að stjórnarvöldin hugsi
til stefnubreytingar, m. a. með
gagngerri rannsókn á húsnæð-
ismálunum í bænum og vektu
með því hreyfingu, sem e. t. v.
bærist víðar, því að Akureyri er
ekki einsdæmi, hvað þessu við-
víkur.
Full ástæða er til þess að ótt-
ast, að húsnæðisleysið kunni að
leiða til þess, að íbúafjöldi bæj-
arins staðni, eða dragist saman,
því að a. m. k. tvennt verður að
vera fyrir hendi, ef bær á að
vaxa og þroskast, annars vegar
heilbrigt atvinnulíf, hins vegar
viðunandi lífsþægindi og þá
fyrst og fremst nægilegt íbúðar-
húsnæði.
Svo mjög eigum við Akureyr-
ingar í vök að verjast fyrir að-
dráttarafli Suðvesturlands, að
við megum í engu missa þeirra
skilyrða, sem laðar fólk til bú-
setu hér. Okkur ber að hafa
vakandi auga á brýnustu vanda-
málum hvers tíma, og eins og
nú horfir, eru fá mál brýnni en
lausn húsnæðiseklunnar í bæn-
um. Má e. t. v. segja, að það sé
nú mál málanna, þó að mörg
önnur verkefni bíði einnig úr-
lausnar í okkar kæra bæ.
Það er gleðilegt, að bæjar-
stjórnin hefur þegar tekið mál-
ið til nokkurrar umræðu, og
þarf ekki að efa, að almenning-
ur mun fylgjast með niðurstöð-
um þess í bæjarstjórn. I. G.
mynd. Ekki skal um það deilt,
hvernig fyrirmyndin hefur bor-
izt hingað. Ekki heldur spurt
um, hvoi;t hún muni verða lang-
líf í landinu, það er mál fram-
tíðarinnar, en um hitt er full á-
stæða til að ræða, hvort þessi
sagnaritun muni henta þjóðinni.
Nokkrir gallar eru sýnilega á
Akureyrar sögu þinni. Hún gef-
ur öfuga mynd af þróun bæjar-
ins alveg eins og greinin um
Beringssund gefur villandi hug-
mynd um Bería. Enginn sæmi-
lega greindur maður, sem vissi
ekki annað um Akureyri en það,
sem stendur í afmælissögum
ykkar Gísla, gæti haft mætur á
kaupstaðnum eða trú á framtíð
hans. Æskumenn í bænum gætu
dáðst að útsýni yfir fjöllin og
fjörðinn af leikvöllum á Odd-
eyri og ýmsu, sem þið minnt-
ust á, en þær fyrirmyndir gætu
ekki hitað hjörtu margra manna
eða eggjað þá til þjóðnýtra af-
reka.
••IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHU*
| SKEÐUR MARGT |
I í SKAGAFIRÐI |
Skeður margt í Skagafirði,
skrafa menn um graðhestinn.
Sveinn mun ætla einskis virði
alla nema Skarphéðinn.
Saga mörg um sveitir flýgur
seyru blandast húmorinn.
Allir vita aú ekki lýgur
öðlingurinn Skarphéðinn.
Gerast fáir griðastaðir
Geltir margur hundurinn.
Húnvetningar hryssuglaðir
hræðast allir Skarphéðinn.
Allar sveitir arga og siga,
illu hótar fógetinn.
Ótal merar innan sviga
elta veslings Skarphéðinn.
Yfirvöldin ættu að finna
eðlishvatar-sjúkdóminn,
ríða hægar, ropa minna,
og reyna að gifta Skarphéðinn.
Þá mun harm hjá Sveini sefa
sigurvon um graðhestinn,
og allar merar yfirgefa
aumingjann hann Skarphéðinn.
H. G.
SAMTININGUR
f Svíþjóð og Bandaríkjunum er
sj álfsafgreiðslufyrirkomulagið í
verzlunum komið á það stig, að
menn geta nú keypt varahluti í
bíla á þann hátt.
—o—
Lengir lífið. Samkvæmt nýjustu
skýrslum lengir hjónabandið líf
fólks nokkuð, ef við það er mið-
að, að jafnhraust veljist til ein-
lífis og hjónabands.
—o—
Mannfjöldi í heiminum var tal-
inn vera yfir 3000 milljónir um
mitt síðasta ár. Fólkihefur fjölg-
að mjög ört síðasta áratuginn,
eða um 1.8% á ári.
Árni Jóhaimesson.
hreppstjóri á Þverá
SJÖTUGUR varð nýlega Árni
Jóhannesson, hreppstjóri að
Þverá á Staðarbyggð. Var það
ætlun sveitunga hans að halda
honum samsæti þennan dag til
r
l
að þakka honum langt og giftu-
drjúgt starf í þágu sveitarfélags
ins, en af heimilisástæðum baðst
hann undan þessu, og leið því
afmælið hjá í kyrrþei, enda þótt
margir hefðu kosið að taka í
hönd hans þennan dag. Til þess
þó að sýna aðeins lítinn vott
þakklætis síns, færðu Onguls-
staðahreppsbúar honum að gjöf
málverk af Þingvöllum eftir
Svein Þórarinsson.
Árni Jóhannesson er fæddur
að Kussungsstöðum í Fjörðum
2. sept. 1892. Hann er sonur Jó-
hannesar bónda þar Jónssonar
_prests Reykjalíns á Þöngla-
bakka og konu hans Guðrúnar
Hallgrímsdóttur bónaa á Hólum
í Fjörðum Ólafssonar. Ungur að
árum stundaði hann nám í Bún
aðarskólanum að Hólum í
Hjaltadal, en réðst síðan um tví-
tugsaldurinn inn að Þverá til
ekkjunnar Önnu Magnúsdóttur,
sem þá hafði fyrir skömmu
misst mann sinn, og stóð fyrir
búi hennar um langt árabil.
Án efa var það hinum unga
manni góður skóli og mikil lífs-
gæfa að setjast að á þessu á-
gæta heimili og taka þar við
búsforráðum Við hlið hinnar
bjartsýnu, stórhuga og þrek-
miklu húsfreyju, Önnu Magn-
úsdóttur. Heimili hennar var
ekki aðeins fagurt og aðlaðandi
að ytra búnaði, heldur líka fyrst
og fremst fyrir þá miklu gest-
risni og alúð, sem þ>ar jafnan
var auðsýnd hverjum, sem að
garði bar, og fyrir þá fágætu ást
úð og eindrægni, sem þar ríkti
jafnan milli hennar og barn-
anna og sannarlega var til fyrir
myndar. Hér kunni Árni brátt
vel við sig og nam yndi, enda
er Þverá ein af fegurstu jörð-
unum í Eyjafirði. Sýndi það sig
fljótt að hann lá ekki á liði sínu,
enda var hann hinn mesti skarp
leikamaður til allra verka, áhuga
samur og hafði beztu forsjá með
öllu. Gekk búskapurinn því eins
og í sögu og voru framkvæmdir
miklar, bærinn húsaður stór-
mannlega og margar umbætur
aðrar.
Árið 1919 kvæntist hann Þóru
Jónsdóttur, elztu heimasætunni
á Þverá, mikilli úrvalskonu að
allra dómi, sem hana þekkja,
og hófu þau þá búskap á hluta
jarðarinnar í félagsbúi með
Önnu Magnúsdóttur og börn-
um hennar, sem nú voru upp-
komin. Er það til marks um sam
hug og eindrægni þessa fólks,
að það hefur lengst af búið fé-
lagsbúi og starfað sem einn mað
ur að öllum framkvæmdum á
jörðunni. Fyrir allmörgum ár-
um brann hið mikla og glæsi-
lega íbúðarhús með sviplegum
atburðum, svo að heimilisfólk-
ið komst nauðulega úr eldinum
og Árni með allmiklum bruna-
sárum. En ekki brá hann sér
hið minnsta við það, heldur hóf
endurbyggingu við fyrsta tæki-
færi og byggði ennþá betra og
vandaðra hús í félagi við mág-
konu sína, Rósu, sem þá hafði
tekið við búi móður sinnar.
Þau hjónin eignuðust sjö
mannvænleg börn og eru nú
öll uppkomin og horfin úr föð-
urhúsum, nema sonurinn Jón,
sem nú hefur að mestu tekið
við búskapnum. Má allt hið
sama segja um heimili Árna og
heimili tengdamóður hans, að
þar hefur jafnan ríkt óvenjuleg
hlýja og alúð milli allra og hafa
hjónin og börn þeirra verið sam
hent í því að gera heimilið sem
vistlegast og ánægjulegast, og
hefur þar jafnan verið ríkjandi
gestrisni og höfðingsskapur.
Jafnhliða stórbúskap hefur
Árni löngum gegnt mörgum op-
inberum störfum. Mun hann
hafa gegnt flestum trúnaðar-
störfum fyrir sveit sína, meðal
annars verið sveitaroddviti og
hreppstjóri um fjölda ára. Er
það einmælt að hann hafi unn-
ið þessi störf af frábærum ötul-
leik og skyldurækni, enda er
hann góðum vitsmunum gædd-
ur og fylginn sér, hvar sem
hann leggur hönd að verki.
Opinber störf eins og þau,
sem Árni hefur unnið, eru bæði
erilsöm og illa launuð, enda er
nú svo komið, að margir reyna
að hliðra sér hjá að vinna þau.
En rétt á litið er þetta þjónusta
við almenning, sem einhver
verður að leggja á sínar herðar,
og má ekki minna vera en að
þökkuð sé að verðleikum. Til
þess þarf oft mikla lipurð og
lagni að greiða úr ýmiss konar
misklíð, sem orðið getur innan
sveitarfélaga, og veit ég ekki
betur en Árna hafi tekizt far-
sællega öll sín sveitarstjórn og
hefur hann þó hlotið í vöggu-
gjöf nokkuð af örlyndi og til-
finningahita Reykjalínanna, og
fylgir fast fram þeim málstað,
sem hann trúir á. En allir vita,
að hann er drengur góður í
raun, og fyrir það nýtur hann
. almenns trausts og virðingar í
sveit sinni.
Það er út af fyrir sig mikil
hamingja að búa á einu fegursta
býlinu í fegurstu sveit lands-
(Framhald á bls. 7)
U M D A
FRÁ ÖSKJUFERÐ
V E G ! N N
I. t
Á AUSTURLEIÐ.
Velta hjól um heiðavegi,
halla tekur faradegi,
bjart er yfir láði og legi,
langt er enn til Herðubreiðar
— takmarks okkar löngu leiðar.
Skjótur eins og eldibrandur
áfram þýtur hjólagandur,
hverfist fram hjá hraun og sandur. .
Húmar að í Bjarnarflagi.
Veðurspá í verra lagi.
Fyrr var margt á Mývatnsfjöllum
af meinvættum og grimmum tröllum,
en nú er hægt og heimilt öllum
að halda í friði þangað austur,
hvar bæði er Péturskirkja og Klaustur.
Húmið yfir auðnir sígur,
ógreiðfær er hraunsins stígur,
hugur ört á undan flýgur,
enda skammt til háttamála,
— þarna er ljós í Þorsteinsskála.
n.
VIÐ ELDSTÖÐVARNAR.
Uppi á víðum víkursléttum
vegur teygist, óralangur,
sveig hjá öldum, krók hjá klettum
kemst, þótt stundum seinki gangur.
Hraunið nýja, er hér úr jörðu
á hausti liðnu eldrautt flóði,
þekur landið, líkjast hörðu,
löngu runnu, svörtu blóði.
Gapá svartir gígakjaftar,
gufur upp úr sprungum streyma.
Ómælandi ægikraftar,
upphafssmiðir jötunheima,
hafa þar með brælu og báli
brotizt upp úr hraunaskvompum,
— allvænri rriundi eldaskáli
undir þessum heljarstrompum.
Bak yið,;opnast auðnin hljóða,
ógna geimur. jökulsvalur,
frægust allra eyðislóða,
Austurfjálla „Kaldidalur“.
Hríð ér innari Öskjufjalla,
orpið klaka brunagrýti,
fallin mjöll-á mel og hjalla,
meir að segja kalt í Víti.
f M F
E i
III. í
í DREKAGILI.
Mörg finnast undur um Ódáðahraun,
sem eldur og vatn hafa steypt og grafið,
jarðskjálftar sundrað, sökkt og lyft
og sandbyljir fægt og skafið.
En stað veit ég bera þar einn af öllum, —
eins og verk eftir geggjaðan galdramann
er gil eitt í Dyngjufjöllum.
Mörg hef ég litið gljúfragil
með gjallroðnum lögum og stuðlabergi,
jafnbyggð sem steingerð sléttubönd
svo stöðug að skeikar hvergi.
En hérna er allt með öðru lagi,
það orkar á mann eins og atómljóð
af undarlegasta tæi.
Finngálkn stendur á hamri hátt,
herklæddur steinþurs á gnípu trónar,
drangar hallast að bjargi og brík
eins og blindfullir lassarónar,
álagasvipur á öllu ríkir, j
og jafnvel fossinn, sem fellur hér,
á fáa sem eru honum líkir.
Bergþilin eru skökk og skæld,
skútar gapa undir nefi og stalli,
úr skriðunni gægist gamall skafl
eins og gráhærður jötunskalli.
Ég skil ekki hót í því sköpunarverki,
— stend aðeins hokinn og stari á það allt,
eins og steingert spurningarmerki.
Dvergur.