Dagur - 20.10.1962, Page 1
Máluagn Framsóknarmanna
Ritstjóri: Eri.ingur Davíusson
Skrifstofa í MaI'NARstræti 90
SÍ.MI 1106. Sf.tnincu og prfntun
ANNAST PRENTVERK OllDS
Björnssonar h.f„ Akureyri
Dagur
XLV. árg. — Akureyri, laugardaginn 20. október 1962 — 53. tbl.
AUGI.ÝSlNGASTJÓRi JÓN SAM-
ÚKLSSON . ArGANGURINN KOSTAR
KR. 120.00. GjAl.DDAGl.ER 1. JÚI.Í
Bl.AÐIÐ KEMUR ÚT Á MHIVIKUDÖG-
UM OG Á LAUGARDÖGl'M,
ÞKGAK ÁSTÆÐA ÞVKIR TII.
Kaffiliúsið Hlöðufell
Ilúsavík, 14. okt. í gær tók til
starfa kaffihús á Húsavík. Það
heitir Hlöðufell og er eign sam-
nefnds hlutafélags. Forráða-
Brutu umferðamerki
NÝLEGA handsamaði lögregl-
an mann um tvítugt, og hafði
sá, ásamt félögum sínum, borið
uppsláttartimbur frá nýbygg-
ingu Sjálfstæðismanna út á
götu og valdið umferðartruflun.
Sömu menn brutu umferðar-
merki hér í bæ. Málið var tekið
fyrir í gær og hafa sökudólgarn-
ir greitt skaðabætur og segtir.
Flótti frá búskap
Haganesvík 18. okt. Búið er að
slátra hér rúmlega 5 þús. fjár
og er það færra en í ryrra. En
þá var fé fækkað, en meira mun
nú sett á af lömbum. Héðan úr
sveitunum flytja nú fjórir bænd
ur og yfirgefa jarðir og bú. Þeir
eru þessir: Vilhjálmur Guð-
mundsson, Hraunum, sem bjó á
hálfri jörðinni, Jón Sigmunds-
son, Illugastöðum, Gísli Sölva-
son, Dæli, og Árni Eiríksson,
Reykjarhóli. Ekki er vitað
hversu fer um þessar jarðir.
Barnaskólinn á Ketilási er
tekinn til starfa, en kennsla er
ekki byrjuð í Sólgarði.
menn þess buðu í gærdag til
kaffidrykkju og til að skoða
húsið, bæjarráði Húsavíkur,
bæjarstjóra, bæjarfógetanum á
Húsavík og sýslumanni Þingey-
inga svo og fréttamönnum
blaða og útvarps.
Húsið er mjög vistlegt hið
innra og búnaður allur hinn
smekklegasti.
Yfir kaffiborði hafði forstöðu
maður hússins, Guðmundur
Hákonarson, bæjarfulltrúi, orð
fyrir veitendum og þakkaði for
ráðamönnum Húsavíkurbæjar
og bæjarfógeta fyrir góðan
skilning á nauðsyn kaffihúss á
Húsavík. Nokkrir gestanna
tóku til máls og lögðu flestir í
ræðum sínum áherzlu á menn-
ingargildi hússins og þökkuðu
eigendunum fyrir auðsætt fram
lag til húsvískrar og þingeyskr
ar menningar.
í gærkveldi var svo haldinn
fyrsti dansleikurinn í húsinu.
Þar var gleði ágæt í góðum
drykkjum og óx menningin við
hvern drukk, eins og ræðumenn
höfðu séð fyrir.
MISJÖFN RJÚPNAVEIÐI.
Byrjað var að ganga til
rjúpna á mánudaginn, en veiði
hefur verið misjöfn, eða frá
einni eða tveimur og upp í stö
tíu yfir daginn. Mest hefur ver
ið af rjúpu á Tjörnesi. Þ. J.
Nýi stálbáturinn og hjá honum elzta bifreið Skagfirðinga, frá 1929, áður bifreið Rafveitu Akur-
eyrar. Við bifreiðina stendur eigandinn, Ingi Sveinsson, sem byggði stálbátinn. (Ljósm.: A. B.)
STÁLBÁTUR BYGGÐUR
Á SAUÐÁRKRÓKI
Er rúmar 17 rúmlestir og ætlaður til fiskiveiða
Sauðárkróki, 14. okt. Það má til tíðinda teljast að 12. þessa mán.
var sjósettur 17 rúmlesta stálbátur, sem smíðaður er hér á véla-
verkstæði Inga Sveinssonar, vélsmiðs. Stjórnaði hann því verki
að öllu leyti og er eigandi bátsins. Það mun fátítt að svo stór bát-
ur sé byggður við ekki betri sjósetningarskilyrði en hér eru.
Smíði bátsins var hafin í febr. Teikningar gerði Ágúst Sig-
sl. og þá inni í verkstæðisbygg- urðsson, skipafræðingur. Yfir-
ingunni, en í sumar var unnið
að verkinu úti.
Sféíf með stéff sagði ríkissfjérnin
En hún hefur þrisvar sinnum sprengt alla kjarasamninga
í DAG MUN haldinn á Akureyri fyrsti
samningafundur um kaup og kjör milli
atvinnurekenda og þeirra aðila, sem sagt
hafa upp samningum.
Ríkisstjórnin, sem lofaði þjóðinni vinnu-
friði og nýrri stefnu, undir kjörorðinu
STÉTT MEÐ STÉTT, hefur þrívegis
sprengt alla samninga og með því komið
af stað yfirgripsmiklum og hættulegum
vinnudeilum.
Veturinn 1960—1961 hafnaði ríkisstjórnin
algerlega þeirri ósk alþýðusamtakanna að
létta á einhvern hátt lífsbaráttu almenn-
ings. Eftir neitunina skullu verkföll yfir.
Samvinnumenn leystu þau, en ríkisstjórnin
svaraði með annarri gcngisfellingu og
nýrri dýrtíðaröldu. Þetta leiddi til vinnu-
deilna sl. vor, sem aftur voru leystar á
Norðurlandi.
í bæði skiptin er samið var, áttu samning-
amir að halda fullu gildi og tryggja áfram-
haldandi vinnufrið — nema ef dýrtíðin yxi
meira en ákveðinn hundraðshluta. Stjórnin
hefti ekki þá dýrtíðaraukningu, og enn er
það hennar sök að samningamir frá í vor
eru úr gildi fallnir og átök hafin í kjara-
málunum.
Verkföll og vinnudeilur er höfuðeinkenni
núverandi stjómar. Flestum mun finnast
mál til komið að þeim linni.
TJÓNIÐ TUGIR MILLJÓNA.
Allur togarafloti landsmanna lá aðgerð-
arlaus í sumar vegna vinnudeilna. Síldveiði
flotinn tafðist um hálfs mánaðar skeið í
byrjun veiðitímans við Norðurland. Og nú
er síldveiðiflotinn, sem hefja átti veiðar við
Suðurland í haust, bundinn við hafnarbakk
ana. Mun sú stöðvun þegar hafa komið í
veg fyrir milljónatuga aflaverðmæti og
óvíst um lausn þeirrar deilu. 1 Reykjavík,
Halnarfirði, Akranesi og Akureyri hefur
samningum verið sagt upp. Má því segja,
að allt logi í vinnudeilum og hafi gert í
tíð núverandi ríkisstjórnar.
STÉTT GEGN STÉTT er staðreynd í
stað skrautmælgi íhaldsins um stéttarfrið
og einingu.
Vonandi verður gæfa þjóðarinnar svo
mikil, að þessar vinnudeilur allar verði
leystar á skynsamlegan hátt. Mun það þá
enn verða á valdi ríkisstjórnarinnar að
Iryggja varanlegan vinnufrið eða sprengja
gerða samninga í fjórða sinn. □
bygging er úr aluminium. Vist-
arverur eru fyrir 6 rnanns. í
þeim er miðstöðvarhitun frá að-
alvél. Eldað er við Kosangas.
Báturinn er búinn 87—115 hest-
afla Volvo Penta vél. í honum
er háþrýsti vökvadrifið kerfi,
sem hægt er að skipta yfir á
þrjú spil, línuspil, dekkspil og
kraftblökk.
í bátnum 'eru öll venjuleg ör-
yggis- og siglingatæki, einnig er
í honum fiskileitartæki af Bas-
dic gerð, en það er sérlega hent-
ugt til þess að leita að torfu-
fiski. Allur virðist báturinn
vera vandaður og vel unninn og
hið myndarlegasta skip.
Það mun ætlan eigandans að
gera bátinn út til fiskveiða.
Þá hefur Ingi Sveinsson ann-
an bát í smíðum, er það 10 lesta
eikarbátur og er smíði hans
langt komið.
Þetta eru fyrstu bátarnir sem
hér eru smíðaðir svo stórir og
frumsmíð Inga Sveinssonar að
þessu leyti. Hann mun-hins veg
ar hugsa sér að láta hér ekki
staðar numið í smíði skipa,
heldur færa út kvíarnar, ef
mögulegt er.
Nýi báturinn mun fara á veið
ar um næstu mánaðamót, sagði
Ingi Sveinsson í gær. Hann á-
lítur að við saamilegar aðstæður
muni stálbátar verða ódýrari en
bátar úr tré. Til samanburðar
á kostnaði segist Ingi einnig
hafa trébát í smíðum, sem lokið
verður smíði á eftir ca. mánuð.
Að lokum sagði Ingi Sveins-
son að Norðlendinga vantaði að
eins herzlu muninn til að hefja
smíði stálskipa, og mundi það
einkum vera sjálfstraustið sem
skorti. Norðmenn teldu ekki
verulega framtíð í trébátasmíði
nema helzt handa sérvitrum ís-
lendingum. Við komumst ekki
fram hjá hinni nýju þróun og
ættum að taka þessi mál í okk-
ar hendur í stað þess að ausa
gjaldeyri þjóðarinnar í vinnu-
laun til annarra landa, fyrir
störf, sem við getum vel innt
af höndum sjálfir. □
AFMÆLÍSGREIN
ALDARAFMÆLIS Akureyrar
var minnzt í tveimur norskum
blöðum þann 28. ágúst s. 1. Voru
það blöðin „Bergens tidende“
og „Norges Handels- og Sjöfars-
tidende". Birtu þau afmælis-
grein eftir Eirík Sigurðsson
skólastjóra um bæinn og fylgdu
myndir greininni. □
SLATRUN LOKIÐ
Dalvík, 19. okt. Sláturtíð lýkur
í dag. Lógað var 7939 dilkum,
og höfðu þeir 13,78 kg. kropp-
þunga að meðaltali, sem er að-
eins meira en í fyrra. Fullorðið
fé var 1432. Þyngstan dilk-
skrokk átti Gunnlaugur Gísla-
son bóndi á Sökku, 25,5 kg. 118
nautgripum og 25 hrossum var
lógað.
AFLI LÍTILL.
Togskipið Björgvin og 5 þil-
farsbátar með línu stunda veið-
ar en afli er lítill. Veður eru
mild en stormasamt.
□