Dagur - 28.11.1962, Síða 4
4
■ ................................................................................................ ................. .i , . ; n
Daguk
Má ekki segja bændum satt
RITSTJÓRI Alþýðumannsins á Akureyri
segir, að „einn fjölfróðasti núlifandi
manna um íslenzkan landbúnað“ hafi
komizt svo að orði við sig, að „að við
blasti nú augljós úrkynjun bændastéttar-
innnar, enda væru bændur nú þegar
teknir mjög að breytast úr vel menntaðri
stétt í lítt menntaða styrkbeiðenda stétt,
þröngsýna og fáfróða.“
Þetta og fleira hefur ritstjórinn eftir
hinum „fjölfróða“, segist að vísu ekki
vera því öllu sammála, en hefur þó sýni-
lega talið rétt að koma skoðun fjölfræð-
ingsins á framfæri.
AÐALEFNI þessarar greinar í Alþýðu-
manninum er þó það, að Framsóknar-
flokkurinn sé að „drepa landbúnaðinn“
með því að ala á „trúleysi og vonleysi“
í sveitunum. Þetta hefur hann gert með
því að segja bændum að það sé „erfitt
að búa“, að það sé „lítið upp úr því að
hafa“ og „dýrt að stofnsetja bú.“
Kenning ritstjórans er m. ö o. sú, að
ekkert af þessu megi segja bændum. En
það hafi Framsóknarflokkurinn gert, og
því sé voðinn vís. Muni því rætast „vá-
spá hins fjölfróða manns um íslenzkan
landbúnað, að hann líði brátt undir lok.“
RÉTT ER ÞAÐ, að af hálfu Framsóknar-
manna hefur oft verið lýst hinu mikla
og löngum erfiða starfi, sem bændastétt-
in innir af hendi á þjóðarbúinu. Verðlags-
mál þeirra hafa einnig verið skýrð og sú
hætta, sem á því er, að hlutur bænda
verði fyrir borð borinn. Gerð hefur ver-
ið grein fyrir hinnin miklu hækkun, sem
orðið hefur á stofnkostnaði búanna, vél-
um, byggingarkostnaði o. fl. Vegna
þeirra, sem ekki eru bændur og ekki eiga
heima í sveitum, eru umræður nauðsyn-
legar og einnig vegna þröngsýnnna
stjórnmálamanna.
BÆNDUR vita þetta mætavel sjálfir, án
þess að þeim sé sagt það. Þeir vita hvað
þeir og þeirra fólk þarf á sig að leggja
og gera sér áreiðanlega grein fyrir því,
a. m k. á meðan „úrkynjun" sú, sem fjöl-
fræðingurinn hans Braga talar um, er
ekki lengra á veg komin. Bændur taka
sjálfir lán og vita, að vextimir í Búnað-
arbankanum hafa hækkað um rúmlega
þriðjung eftir „viðreisn.“ Þeir vita hvað
byggingarefnið og vélamar kosta nú og
hvað þetta kostaði fyrir „viðreisn.“
Það er mikill misskilningur hjá ritstj.
Alþýðumannsins, Braga Sgurjónssyni, ef
hann gerir sér í hugarlund, að Framsókn
arflokkurinn hafi af bölvun sinni sagt
bændum fré leyndarmáli, sein þeir hefðu
aldrei fengið að vita að öðrum kosti, því
að þetta leyndarmál er ekki til.
BLADAMENN geta, hver eftir sínu upp-
lagi, gert það upp við sig, hvort þeir
telji heppilegra að segja satt eða ósatt
um þessi mál. En á meðan bændastéttin
er ekki orðin „úrkynjaðri" en nú er raun
á, finnur hún áreiðanlega sjálf hvað að
henni snýr. Hin „úrkynjaða stétt“ hefur
nú öll sameinast til vamar hinum hrotta-
legu aðgerðum „viðreisnarinnar“ svo að
þar standa stjómarsinnar og stjómarand-
stæðingar hlið við hlið. Það er svar bænd
anna sjálfra við orðagjálfri þeirra manna,
sem taka annan kost en þann, að segja
satt og gæla við þá hugmynd, að íslenzk-
ur landbúnaður líði innan skamms und-
ir lok. □
V_______________________________________>
- Frá þingi ASÍ
(Framhalr af blaðsíðu. 1).
fulltrúanna 33 frá Landssam-
bandi íslenzkra verzlunar-
manna skyldu rædd í kjörbréfa-
nefnd. Onnur kjörbréf höfðu þá
öll verið samþykkt.
Innganga LÍV var aðalhita-
mál þingsins. Félagsdómur
hafði fellt þann úrskurð, að Al-
þýðusambandinu væri skylt að
veita LÍV upptöku. Þessu neit-
aði forseti ASÍ og fylgjendur
hans og vildu ekki hlýta dóms-
niðurstöðunni.
Niðurstaða þessa máls varð
sú, að Landssambandi ísl. verzl
unarmanna var veitt viðtaka í
ASÍ, fulltrúar þess boðnir vel-
komnir á þingið, þar sem þeir
höfðu bæði málfrelsi og tillögu-
rétt, en voru ekki atkvæðisbær-
ir á þessu þingi. Með upptöku
LÍV er langri deilu lokið. Með
henni er einnig fallizt á að
hlýta dómi, þótt vera kunni
vafasamur. Segja má, að þarna
hafi unnizt lýðræðislegur sigur.
Út af þessu varð mikil ólga í
Reykjavík, og fylgst var með
störfum þingsins um allt land
af miklum áhuga. Mikill úlfa-
þytur var af því gjörður, að
þing ASÍ tók svo seint fyrir
kjörbréf fulltrúa LÍV. En mörg
um yfirsást það í hitanum, að
þing ASÍ gat það ekki fyrr en
hið nýja samband var orðinn að
ili að heildarsamtökunum.
Framsóknarmenn á þingi ASÍ
komu í veg fyrir það, að gengið
væri á móti úrskurði Félags-
dóms. Þeir komu líka í veg fyr
ir, að ofstækismönnum í stjórn
arflokkunum tækist að kljúfa
ASÍ og gera þau samtök mátt-
laus. Yfirlýsingar stjórnarsinna
um að allt, sem þetta þing ASÍ
gerði, væri markleysa ein, svo
og alveg óvenjuleg stóryrði og
svívirðingar um Framsókn,
bera því vitni hve stjórnarflokk
ana svíður undan þeirri stað-
reynd, að þeir væru í minni
hluta á þinginu — og að þeim
heppnaðist ekki að eyðileggja
samtökin að þessu sinni.
Miðstjórn ASÍ var öll endur-
kosin.
íslenzkar Ijósmæður
KOMIN ER ÚT hjá Kvöldvöku
útgáfunni á Akureyri bókin fs-
lenzkar ljósmæður, sem séra
Sveinn Víkingur hefur búið
undir prentun, og ritað 3 af 26
þáttum bókarinnar. Þessarar
bókar verður væntanlega getið
í næsta blaði.
- RÍKISLÁNTAKAN
240 MILLJÓNIR
(Framhald af bls. 8.)
Og víðar en á Reykjanesi þarf
stórátök í vegamálum. Hér norð
an fjalla kunna menn illa því
einræði, sem „stór-reykvískir“
ráðherrar vilja taka sér í þessu
máli. Það mun ekki boða gott ef
þeir fá meirihluta sinn til að
koma í veg fyrir, að fulltrúar
landshlutanna eigi þátt í ráð-
stöfun þeirra fjármuna, sem
-hér er um að ræða. □
- Stjórnmálanámskeið
(Framhald af bls. 1).
ið gætu mönnum sýn yfir vett-
vang þjóðmálanna, geta vissu-
lega orðið þeim er þau sækja að
nokkru liði, ef vel og drengilega
er á málum haldið. En aukin
þekking á sviði stjórnmálanna
er forsenda þess, að kosninga-
rétturinn verði eftirleiðis sem
hingað til, hornsteinn lýðræðis-
ins í landinu. □
GLERAUGU
fundin. — Vitjist á
afgr. Dags.
Hollenzku
BARNASKÓRNIR
með innlegginu komnir
aftur í úrvali.
Einnig hollenzkir
KULDASKÓR
barna og JÓLASKÓR á
telpur og drengi.
LEÐURVÖRUR H.F.
Strandgötu 5, sími 2794
KERTI:
SNJÓKERTI
HRAUNKERTI
ÆVINTÝRAKERTI
AÐVENTUKERTI
ásamt fjölmörgum fleiri
tegundum.
—o—
Ilmvötn
í úrvali.
Gjafasett
fyrir herra.
—o—
Japönsku
tesettin
komin aftur — nýir litir.
—o—
Tökum upp næstu daga
mikið af
jólavörum.
BLÓMABÚÐ
lipjiii
Nylonkjólar
á 1—2 ára.
HVÍTAR
drengjaskyrtur
m. slaufu og hnöppum
á 3—4 ára.
TÆKIFÆRISVERÐ.
ANNA & FREYJA
HEIMILISTÆKI:
HRÆRIVÉLAR:
IDEAL MIXER
MASTER ÍVIIXER
PHILIPS
Væntanlegar:
KITCHENAID
HAMILTON BEACH
RYKSUGUR:
HOLLAND ELECTRO
3 teg.
PHILIPS
2 teg.
STROKJÁRN:
A. E. G.
ELEKTRA
PFIILIPS
RAKVÉLAR:
PHILIPS, 2 teg.
HÁRÞURRKUR:
A. E. G., 3 teg.
Hitapúðar, 2 teg.
Háfjallasólir,
PHILIPS
Gigtarlampar
PIIILIPS
Brauðristar, 4 teg.
Hraðsuðukatlar
„Swan Brand“
Rafmagnsofnar
Rafhellur
Rafkönnur
Eldavélar, þvotta-
vélar og kæliskpar
væntanlegt.
VÉLA- 0G
BÚSÁHALDADEILD
Til sölu nýleg
FERÐARITVÉL
(Optíma)
Uppl. í Þingvallastr.
Til sölu:
STÓRT SKRIFBOR
nieð geymsluskápum, £
SINGER-SAUMAVÉ
með mótor. — Til sý
eftir kl. 6 í Hafnarstr;
20 (Hulda Guðmunds
SÓLGARÐUR
Dansleikur laugardagi
1. des. n. k. kl. 21.
Hljómsveit Pálina Stt
ánssonar.
Kvenfélagið Hjálpii
SPILAKVÖLD
Síðara spilakvöldið í F
vansíi verður íimmtuc
inn 29. nóv. og hi
stundvíslega kl. 9 e
Aðeins fyrir sveitafól
Dans á eftir.
Ársól og Árroðinn.
SPILAKLÚBBUR
LÉTTIS
Síðasta spilakvöldið f’
jól verður í Alþýðul
inu föstudaginn 30. þ.
kl. 8.30 e. h.
Veitt verða kvöldverðl:
og heildarverðlaun.
Mætið stundvíslega
Skemmtinefndin.
SÍLD
er sólskin vetrari
REYKT SÍLD
KRYDDSÍLD
SALTSÍLD
SÍLD, MARINERt
SÍLD í VÍNSÓSU
SÍLD f TÓMATSÓ!
SÍLD í LAUKSÓS
SÍLD í ÁVAXTASÓ
Sími 2900
HÚSMÆÐRASK<
heldur aðalfund sur
Húsmæðraskólanum
kvörðun tekin u:n fi
BIFVÉL1
Bifvélavirkja og
vantar okk
MÖL 0'