Dagur - 15.05.1965, Page 1

Dagur - 15.05.1965, Page 1
Dagur SIMAR: 11166 (ritstjóri) 11167 (afgreiðsla) Dagur kemur út tvisvar í viku og kostar kr. 25,00 á mán. í lausasölu kr. 4,00 ENN er Eyjafjörður fisklaus að kalla, þótt margir stundi sjóinn. Hér er sjómaður kominn að landi við smábótahöfnina. Aflinn er settur í plastskúffur. (Ljósmynd E. D.) Þór elii landhelgisbrjóf, sem sigldi á haf út með f jóra varðskipsmenn ARDEGIS á þriðjudaginn kom varðskipið Þór að Grimsby-tog- aranum Aldershot innan við fiskveiðimörkin út af Vopna- BARA ANNRÍKI - EKKERT ANDRÍKI Ofeigsstöðum 14. maí. — And- xíki er ekkert en annríki nóg við sauðburðinn, sem nú er í algleymingi. Við tökum á móti mammoni í gráum gærulit og hvítum, 2—3 lömbum úr hverri á, svo eitthvað verði fyrir ríkis sjóð að leggja á, og kannski lán ar hann okkur svo aftur 25 aura til framkvæmda. Inflúenza er á stöku stað en flæðir ekki yfir. Skuggalegar eru fréttirnar í lánamálum til íramkvæmda. B.B. METSALA AKRANESTOGARINN Víking ur seldi 12. þ.m. 277 tonn fiskj ar í Grimsby fyrir 2.572 pund eða um 2,7 millj. ísl. króna, sem er metsala íslenzks togara er- lendis. Skipstjóri er Hans Sig- urjónsson. firði. Hjuggu togaramenn á vír- ana og héldu brott. Hófst þá eftirför og sögulegur eltinga- leikur, því stöðvunarmerkjum Þórs var ekki sinnt. Loks stöðv- aði togaraskipstjórinn skip sitt, eftir fyrirmælum útgerðarinnar og voru þá fjórir varðskips- menn settir um borð. Var nú haldið til lands. Ekki hafði lengi verið siglt er togarinn breytti um stefnu og hélt til hafs á ný fyrir fullu vélarafli. Skall þá á sótsvört þoka og tilkynnti tog- araskipstjórinn, að hann héldi til heimahafnar, hvað sem hver segði, og leikur grunur á, að „hressingarlyf“ muni ótæpt hafa verið um hönd haft í togaran- um. Á miðvikudagsmorgun var móðurinn runninn af hinum brezka skipstjóra og gaf hann sig Landhelgisgæzlunni á vald 50—60 sjómílur úti. Síðar var haldið til Norðfjarðar. Eltingaleikurinn stóð j 17 klst. Skipstjórinn hefur áður verið sektaður fyrir landhelgisbrot, en nafn hans er Leslie Cumby. Heyrzt hefur, að togaramenn hafi verið vopnaðir kutum, bar- eflum og öðru að frum- kvæði skipstjóra. □ Höfnin er lokuð af hafss ■Vopnafirði 14. maí. Þótt greið- fært sé nú orðið kring um land ið og skipaleið opin eru einstak ar hafnir lokaðar af ís. Hér er þéttur ís frá Vindfelli, alveg inn í fjarðarbotn. Hekla varð að snúa frá, en hún kom með 70 tonn af vörum og fór með þær aftur. Farþegum var skipað í land út með firði, blautum og hrökktum. Árvakur var hér fyr ir nokkrum dögum og var 5—6 klst að ryðja sér leið inn að bryggju. Uti fyrir er auður sjór. Héðan kemst enginn bátur á sjó. Bændur kvarta yfir kulda og gróðurleysi og sumir eru knappir með hey. Hér er byi-jað að vinna við höfnina og einnig hjá síldarverksmiðjunni. Hér er alltaf þoka og kuldi. Bakkafoss er innilokaður á Raufarhöfn. K.V. Dælustöð kísilgúrverksmiðj- unnai* byffgð í sumar Reynihlíð 14. maí. Undanfarna daga hefur verið einmunatið, 11—12 stiga hiti á daginn og glaðasólskin, en fremur svalt er um nætur. Þokurnar ná ekki hingað. Vegir eru þurrir og góð ir, tún grænka og sauðburður er byrjaður. Enn er ofurlítill ís á vatninu, en þunnur og getur farið hve- nær sem er ef eitthvað hvessir. Fram að þessu hefur dorgveiði verið stunduð á ísnum og veiðst vænn silungur. Þótt hinn væni silungur sé vel þeginn, grunar mann að einhver eyða kunni að verða síðar, þar sem lítils smá- silungs verður nú vart. Ferðamenn verða líklega með mesta móti í sumar og eru þeir alltaf að panta gistingu. Nú í sumar mun verða byggð dælusíöð við Mývatn. Eru það fyrstu framkvæmdir kísilgúr- verksmiðjunnar og hefjast von- andi fyrir næstu mánaðamót. Þá á einnig að byggja leiðslu upp í hraunið nálægt gufubað- stofunni. Leirnum verður svo dælt þangað. Verið ",r að smíða bát og dælu erlendis, sem nota á úti á vatnhrj r"'5 leirtökuna. Það er Alrr.::.,.a byggingafélag- ið í Reykjavík, sem annast þess ar framkvæmdir. P. J. Féíagssfarf kvenna þarf aS auka SUNNUDAGINN 25. apríl kl. 3 e. h. var fundur haldinn að Hótel KEA. Björn Guðmunds- son framfærslufulltrúi setti fundinn og bauð sérstaklega vel STÁLSKIPASMÍÐIN HÁFEN RAÐHERRASKIPTI GUNNAR Thoroddsen hefur nú látið af embætti fjármálaráð- herra og er á förum til Kaup- mannaliafnar til að taka sæti ambassadors Islands þar í borg. Hinn nýi fjármálaráðherra er Magnús Jónsson aiþingismaður og hefur hann þegar tekið við ráðherrastarfi. JAFNHLIÐA margs konar undirbúningi að smíði fyrsta stálskipsins á Akureyri, sem í stærstu dráttum mun lokið, er sjálf skipasmíðin hafin. Má ætla að smíði bols verði lokið eftir 2—3 mánuði. Þegar blaðamaður kom síðast í Slippstöðina h.f., þar sem skipið verður byggt, var verið að beygja fyrstu bönd- in úr fyrstu efnissending- unni, sem nýlega er komin og tafðist vegna siglingatrufl ana til Norðurlands. Stálskipið verður smíðað úti og er stærð þess 335 tonn og byggingarnúmer þess hið 23. hjá Slippstöðinni á Akur- eyri. Á Slippstöðinni er nú mik- ið unnið, en fréttaþjónust- unni ekki gert hátt undir höfði. Við stálskipasmíðarnar eru miklar vonir bundnar hér á Akureyri og gætu þær, ef vel er á haldið, orðið gildur þáttur í athafnalifi bæjar- ins. □ SIGRÍÐUR THORLACIUS. komna frú Sigríði Thorlacius, sem komin var til að ræða við konur og sýna skuggamyndir. Björn nefndi ' til fundarstjóra frú Jónínu Steinþórsdóttur, er bauð frú Sigríði velkomna og gaf henni orðið. Frú Sigríður ræddi aðallega um þátttöku kvenna í opinber- um málum, sem henni fannst mætti vera meiri. Konurnar þurfa að taka sinn þátt í að marka þjóðfélagsstefnurnar. Þær eiga að leggja þar frara það, sem þeim finnst skynsam. legast í samræmi við það, senv lífsreynsla þeirra hefur kennt þeim. Konur, eigi síður en kaj-k ar, eíga aff fylgja þvi etur, að fulltrúar okkar á sviði stjórn- málanna fylgi stefnu okkar. Konur mega ekki skjótast und- an þeim skyldum sem á þeim hvíla á stjórnmálasviðinu, því (Framhald á blaðsíðu 4). ÞINGLAUSNIR ALÞINGI var slitið 12. maí, hhtu 85. í röðinni, og fóru þing lausnir fram á fundi Sameinaðs þings. Birgir Finnsson forseti Samemaðs þings flutti yfirlit um þingstörf og ámaði þing- mönnum heilla, forsetinn las bréf un þingslit, en Eysteinn Jónsson þakkaði forseta Sam- einaðs þings ámaðaróskir og gott samstarf. Þingið stóð í 175 daga, 83 lög vom samþykkt og 14 þmgsályktunartillögur. Þing- fundir voru samtals 235. □

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.