Dagur - 02.02.1966, Qupperneq 7
7
FLUGSLYS
18. JANÚAR 1966
Þjóðin grætur, þungu höggi slegin,
í þrotlausri leit að tveimur hraustum mönnum,
sem brutust móti dimmum hríðum hrönnum,
hræddust ekkert, sóttu áfram veginn.
Sjúkum vilja sumir reyna að bjarga
og setja eigin heilsu og líf að veði,
þó frá heljarstormsins sterka beði
stálhönd dauðans slegið hafi marga.
Skarðið er stórt, þá strengurinn er brostinn,
því stærra, sem meiri hetjur falla í valinn.
Þeir flugu áður yfir fjalla salinn
sem frelsandi englar. Við sitjum harmi Iostin
og biðjum um vægð þann æðsta mátt af öllum,
svo endurheimt við fáum okkar bræður.
Við biðjum hann, sem aleinn öllu ræður,
auðmjúk í heitri bæn á kné við föllum.
Bænir okkar berast hratt um geiminn,
en brostnar vonir hjúpa naktar sálir.
Því víða eru vegir nokkuð hálir,
og vegleysur á leið okkar um heiminn.
Við vitum ekki hverjum á að kemia
né liver það er, sem sporin okkur marka,
cn finnst það vera furðu mikil harka
að finna lífið út í sandinn renna.
Máttlaus hönd á móti æðri völdum,
megnar ekki að hrinda skapadómi.
Þessir menn, sem voru þjóðar sómi
og þeystu himins vegi á lofísins öldum,
voru burtu dæmdir til að deyja,
þá dagurinn reis hæst í þeirra lífi.
Þó hinn sterki ekki okkur hlífi,
við áfram skulum saman stríðið heyja.
Einhvem tíma kemur þýður þerrir
og þurrkar burtu tárin, sem við grétum.
Við hetju starfið alltaf mikils metum
og minnumst ykkar, Höskuldur og Sverrir.
Karlmennsku og kjark fær ckkert bundið,
kannske fer að rofa af nýjum degi.
Nú fljúgið þið um fagra ljóssins vegi.
Við flytjum ykkur kveðju yfir sundið.
GUÐM. ÁRNI VALGEIRSSON
frá Auðbrekku.
Jarðarför mannsins míns,
ÓLAFS THORARENSEN,
fyrrv. bankastjóra,
verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík laugardag-
inn 5. febrúar n.k. kl. 10.30 f. h.
Athöfninni verður útvarpað.
María Thorarensen, Bollagötu 14, Reykjavík.
Eiginkona mín og móðir okkar,
GUÐNÝ LOFTSDÓTTIR,
lézt á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 29.
fyrra mánaðar.
Bragi Svanlaugsson.
Stefán Bragason, Steinuim Bragadóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓNATAN MAGNÚSSON,
andaðist 26. janúar sl. — Jarðarförin fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju miðvikudaginn 2. febrúar kl. 13.30.
Bergþóra Lárusdóttir, börn, tengdabörn
og barnabörn.
GJALDEYRISTEKJUR
(Framhald af blaðsíðu 1).
garði og mun svo verða, ef verð
bólgunni verður ekki haldið í
skefjum.
Ferðamálaráð fór í sumar
kynnisferð um landið. Var kom
ið í 30 veitinga- og gististaði, og
húsakynni skoðuð, svo og að-
staða öll og þjónusta. Heildar-
niðurstaða varð sú, að hrein-
læti snyrtimennsku væri mjög
áfátt. Oft er vankunnáttu um
að kenna, segir ráðið, en einnig
sóðaskap og hirðuleysi. Ferða-
málaráð telur rétt að ráða far-
andkennara til að leiðbeina um
gestamóttöku og þjónustustörf
á gisti- og greiðastöðum. □
- SMÁTT OG STÓRT
(Framhald af blaðsíðu 8).
látið að því liggja, að með cr.:i
aukinni kjólastyttingu niuni
margur maðninn losna við viss
ar tegundir af sálarflækjum. —
Það virðist því margt mæla með
því, að taka beri upp stutta
kjóla. □
Frá Búnaðarbankanum
I.O.O.F. — 147248V2.
MESSAÐ verður - í Akureyrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 5
e. h. — Sálmar: 579 — 153 —
141 — 304 — 241. B. Si
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju verður næsta sunnu-
dag kl. 10.30 f. h.' Öll börn vel
komin. Sóknarprestar.
SUNNUDAGASKÓLI Akureyr
arkirkju: Myndasýning mið-
vikudag kl. 5 fyrir börn í
bekkjum 11—20 að norðan-
verðu í kirkjunni.
I
AÐALDEILD. Fund-
/ur verður haldinn n. k.
\ / fimmtudag, 3. febrúar,
kl. 8,30 e. h. í Kapell-
unni. Fjölbreytt fundastörf.
Veitingar. Aukum félagsstarf-
ið. Fjölmennum. — Stjórnin.
MÖÐRUVALLAKLAUSTURS-
PRESTAKALL. — Messað að
Bakka 6. febrúar kl. 2 e. h. —
Settur sóknarprestur.
FRA GUÐSPEKISTÚKUNNI.
Næsti fundur verður haldinn
fimmtudaginn 3. febr. kl. 8.30
s.d. á venjulegum fundarstað.
AKUREYRINGAR! Áður aug-
lýstur fjáröflunardagur Slysa
varnadeildar kvenna verður
á sunnudaginn kemur. Styðj-
ið gott málefni! — Fjáröflun-
arnefndimar.
SLYSAVARNAKONUR Á AK-
UREYRI! Fundurinn verður í
Alþýðuhúsinu kl. 8,30 n. k.
mánudagskvöld. Einnig skal
minnt á messuna á sunnudag-
inn kl. 5 e. h. — Stjórnin.
LEIÐRÉTTING: Númerin í
happdræti Styrktarfélags Van
gefinna voru ekki rétt í síð-
asta miðvikudagsblaði. Eiga
að vera G-3459 og 20443.
I.O.G.T. stúkan Ísafold-Fjall-
konan nr. 1. Fundur fimmtu-
daginn 3. febrúar kl. 8.30 e. h.
að Bjargi. Fundarefni: Vígsla
nýliða, innsetning embættis-
manna. Eftir fund: Skugga-
myndir og kaffi. Æ. T.
Fárviðri á Norðurlandi
(Framhald af blaðsíðu 1.)
tilbúnir, að fara með þá úr höfn
inni. Til þess kom ekki og varð
(Framhald af blaðsíðu 2).
Innstæða á viðskiptareikningi
var í árslok 73.2 millj. króna og
hafði hækkað um 10 milljónir
króna.
Heildarinnstæða Búnaðar-
bankans í Seðlabankanum var
því í árslok 276.8 milljónir
króna.
Endurseldir afurðalánavíxlar
námu í árslok 76 millj. kr. og
höfðu hækkað um 16 milljónir
króna á árinu.
Yfirdráttarskuld við Seðla-
bankann varð aldrei á árinu.
Á árinu 1965 var unnið að
gagngerðum breytingum á húsi
aðalbankans í Reykjavík með
það fyrir augum að bæta af-
greiðsluþjónustu við viðskipta-
menn bankans. Skrifstofur
bankastjómar og bankaráðs
hafa verið fluttar á 4. hæð húss
■'* ins en verið er að breyta 2. hæð
' í einn stóran afgreiðslusal, þaf
,-,sem ,'víxladeild og stofnlána-
deild landbúnaðarins verða til
húsa, sitt í hvorri álmu.
(Úr fréttatilkynningu)
- ÁLYKTANIR
(Framhald af blaðsíðu 5).
syn, að skipt verði um stjórn og
stefnu. Skorar þingið á alla
þjóðholla menn, hvar í flokki
og atvinnustétt sem þeir standa,
að fylkja sér um eina aðal-
stefnuskrá fyrir næstu alþingis-
kosningar og vinna fyrst og
fremst að því, að fella núver-
andi ríkisstjórn og vinna síðan
að lausn þeirra mála, er að
framan getur, á samvinnugrund
velli.
spjj-. FRA SJÁLFSBJÖRG.
'M, Næsta félagsvist verð-
fvl .il ur að Bjargi laugard.
7cöi4\ 5. þ. m. og hefst kl.
ú-:—8,30 e. h. Skemmtiat-
riði. Félagar, takið með ykk-
ur gesti. — Nefndin.
NIÐUR féll nafn eins leikand-
ans í greininni „Klerkar í
klípu“ hér í blaðinu og var
það Lárus Ingólfsson, sem leik
ur prest.
FRÁ Kvenfélaginu HLÍF. Af-
mælisfundur verður að Hótel
KEA föstudaginn 4. febrúar
kl. 8.30 e. h. Félagskonur fjöl-
mennið og takið með ykkur
gesti. Stjómin.
Bjggingar á Akureyri
.v>.» »
*(Framhald af blaðsíðu 1.)
Hafin var bygging Iðnskóla,
Mjólkurstöðvar KEA, Vöru-
skemmu SÍS, Plasteinangrunar-
verksmiðju og hokkurra íbúð-
arhúsa. □
- Gera ber endurbæt-
ur á sjókortum
(Framhald af blaðsíðu 5).
þeim er ljóst að skipstjórar
þeirra eiga þess ekki kost að
framkvæma rækilegar rannsókn
ir, er kominn tími til að sér-
fræðingar á skipum, sem stunda
hafrannsóknir láti að sér
J
kveða, segir í niðurstöðum
fundarins. □
SKRIFSTOFA FRAMSÓKNARFLOKKSINS
HAFNARSTRÆTI 95
SÍMI 2-11-80
Fyrst um sinn opin alla virka daga, nema
laugardaga kl. 2-6 síðdegis.
ekkert að.
Snjór er geysimikill og hafa
sveitamenn ekki komið frá sér
mjólk síðan á fimmtudag. En
mjólk sú, er nú er á mjólkur-
bílunum, verður send í dag
með Drang til Akureyrar.
HRÍSEY.
Austanrokið var óvenjulega
mikið og setti niður slíkan snjó,
að það er lygilegt. Ekkert veru-
legt tjón varð, nema að nokkr-
ar þakplötur fuku af einu húsi,
truflanir urðu á rafmagni.
SAUÐÁRKRÓKI.
Veðurhæðin varð minni á
Sauðárkróki en víða annarsstað
ar, komst ekki nema í 10 vind-
stig. Óveðrið olli ekki tjóni þar
í kaupstaðnum, en vegir allir í
héraði urðu ófærir vegna snjóa.
í Blönduhlíð fauk þak af
hlöðu í Sólheimagerði og liey
fauk á Sólheimum. Víðar urðu
skaðar á bæjum á þessum slóð-
um, enda fárviðri, einkum á
svæðinu frá Silfrastöðum út að
Dalsá.
BLÖNDUÓSI.
Á Blönduósi var mikill snjór
kominn þegar óveðrinu um
helgina slotaði. Á sunnudaginn
tókst að flytja mjólk úr Vatns-
dal og Þingi. í Langadal er allt
á kafi í snjó og einnig á Skaga.
Á Blönduósi muna menn ekki
eftir slíku ofsaveðri síðan 1935
eða jafnvel 1925. Óveðrið náði
hámarki eftir hádegi á laugar-
dag.
SIGLUFIRÐI.
Ógurlegt rok var á Siglufirði.
Dr. Páls-verksmiðjan skemmd-
ist mjög, en sú verksmiðja er
ein af Síldarverksmiðjum ríkis-
ins. Þakhlutar fuku af húsum,
svo og þakjárn mjög víða,
meira og minna, m. a. bæði jár-n
og pappi á nýju húsi tveggja
ungra manna. Mikill snjór er á
Siglufirði.