Dagur - 12.02.1966, Page 1
Dagur
SÍAÍAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgieiðsla)
Dagur
kemur út tvisvar í viku
og kostar kr. 30.00 á
mán. í lausasölu kr. 5.00
Tíu metra snjógöng út úr
bænum á Etra-Lóni
MIKILL snjór er víða á Norð-
austurlandi, svo sem á Sléttu,
Þistilfirði og Langanesi. Áður
hafa verið sögð dæmi um þetta,
svo sem, að símastaurar eru í
kafi og einnar hæðar hús á Þórs
höfn. í fyrradag átti blaðið tal
við Sigurð oddvita Jónsson á
Efra-Lóni í Sauðaneshreppi.
Sagði hann, að út úr húsdyrum
hjá sér væru nú 10 metra löng
snjógöng en snjórinn þar er 3
—4 m. djúpur. „Nú er hurð kom
in fyrir snjógöngin að framan",
sagði Sigurður, „og svo skrið-
um við út og inn eins og refir
í greni. Hálft húsið má heita á
kafi í snjó. Sex metra hátt fjár-
hús og hlaða frá í sumar stend-
ur naumast upp úr snjónum“.
Þá sagði oddvitinn, að þrátt fyr
ir stórfennið næðu hestar til
jarðar, því víða væri vel rifið
(Framhald á blaðsiðu 5).
Hross hröpuðu fram
af liáum klettum
Skagaströnd 11. febr. Norðantil
á Skaga, einkum þó að austan-
verðu rak töluvert af timbri á
sumum bæjum og voru þar í
stór tré, allt að 2 metrar í um-
mál. En ekki hefur rekið svo
teljandi sé mörg undanfarin ár.
Enskur gamanleikur
sýndur í Laugarborg
ÁGÚST KVARAN hefur síðan
um áramót stjórnað leikæfing-
um í Hrafnagilshreppi. En þar
verður innan skamms sýndur
sjónleikurinn „Allt er þá
þrennt er“, sem er enskur, gam-
anleikur.
Leikendur eru 10 talsins, en
með aðalhlutverkið fer Olafur
Axelsson. Aðrir leikendur eru:
Helga Garðarsdóttir, Alda
Kristjánsdóttir, Lilja Jónsdótt-
ir, Þórey Helgadóttir, Þorsteinn
Eiríksson, Þór Aðalsteinsson,
SyyV '•*****■->
> t
l S, ¥k .
Þar þurfa bændur ekki að
kaupa sér girðingarstaura í vor.
Norðantil á Ströndum kom
hka mikill reki í stórviðrinu um
mánaðamótin, fyrir norðan
Gjögur og rostung rak við
Horn.
Froskmaður frá Akureyri
þétti Stíganda, sem hér lá í botn
inum og náðist hann upp í fyrra
kvöld, töluvert brotinn.
. Það bar við í fárviðrinu á
dögunum í Skagahreppi, að
þrjú hross, folaldsmeri og trippi
hröpuðu fram af Króksbjargi,
nálægt Gunnugjá, en þar er
bjargið 80-—100 metra hátt. Tal-
ið er, að hrossin hafi farið fram
af með snjóskriðu. Hryssan og
tryppið lifðu og virtust óslösuð
en folaldið fannst ekki. H.
BJÓRINN FLÆÐIR.
FRÉTTIR herma, að ekki minna
en 100 þús. kassar af áfengu öli
hafi sl. ár komist til Stór-
Reykjavíkur. Q
Sniór er mikill í Ólafsfirði. Þessa mynd tók Brynjólfur Svelnsson fyrir nokkrum dögum.
ÁGÆT lodnuveiði syðra
Togaraafli hefur glæðzt undanfarna daga
UNDANFARNA daga hefur
mjög mikil loðnuveiði verið við
Suð-Vesturland allt frá Vest-
mannaeyjum og vesíur fyrir
Reykjanes. Hafa nokkrir báíar
landað daglega allt upp í 2900
tunnum. Mest öll loðnan fer til
vinnslu í verksmiðjum og
greiða verksmiðjumar kr. 0.63
pr. kg. eða um kr. 85.00 pr. mál.
Þorskafli hefur hins vegar ver-
ið tregur í versíöðvum Suð-
Vestanlands enn sem komið er,
hefur þó frekar glæðst síðustu
dagana.
í verstöðvum á Vestfjörðum
hefur hins vegar verið sæmileg-
ur afli á línu að undanförnu og
nú hafa bátar eitthvað byrjað
með þorskanet og hafa fengið
upp í 26 lestir í róðri samkvæmt
símtali við Vestfirði í gær.
í verstöðvum norðanlands hef
ur verið lítið róið, það sem af
er árinu og aflabrögð mjög lé-
Mjög mikil þátttaka verður í
hrognke’saveiðum i vor. Hafa
borizt fréttir um að dekkbátar
allt að 20 lestum verði gerðir
út á þessar veiðar. Útlit er tal-
ið gott með sölu á grásleppu-
hrognum, hins vegar hefur lítið
verið selt fyrirfram og vilja
(Framhald á blaðsíðu 7).
Hreindýrin að koma fil byggða
Þorvaldsstöðum, Skriðdal 10.
febrúar. Kuldi og umhleyping-
ar hafa verið hér eystra síðan
fyrir áramót. Nú er mikill snjór
og mikil stórfenni. Við komum
ekki frá okkur mjólkinni í hálf-
an mánuð, en í gær fór jarð-
ýta fyrir flutningabílum og
Kröftug mótmæli 600 ísl. háskólastúdenta
gegn erlendu sjónvarpi afhent forseta Alþingis
Á ÞRIÐJUDAGINN var for-
seta sameinaðs Alþingis afhent
áskorun, undirrituð af 600 ís-
lenzkum háskólastúdentum.
Áskorunin er svohljóðandi:
„Vér undirritaðir háskólastúd
entar leyfum oss hér með að
vekja athygli háttvirts Alþingis
GULLNA HLIÐIÐ
SEINT í þessum mánuði verð-
ur Gullna hliðið, eftir Davíð
Stefánsson frá Fagraskógi,
frumsýnt í Þjóðleikhúsinu. En
þessi sjónleikur hefur hlotið
mikið lof og aðsókn bæði hér á
landi og erlendis.
Leikstjóri er Lárus Pálsson.
á þeirri lífsnauðsyn íslenzku
þjóðarinnar, að íslenzkt þjóð-
erni verði verndað um aldur og
ævi. Að voru áliti stefnir sjón-
varp Bandaríkjahers á Kefla-
víkurflugvelli íslenzku þjóðerni
í hættu.
Vér leyfum oss því að skora
á háttvirt Alþingi, að það sjái
svo um, að sjónvarp frá her-
stöðinni verði takmarkað við
hana eina nú þegar eða í síðasta
lagj um leið og íslenzkt sjón-
varp tekur til starfa“.
„Fullveldishátíð háskólastúd-
enía 1. desember sl. var helguð
varðveizlu þjóðernis. Hátíðar-
ræðu dagsins flutti Slgurður
Líndal hæstaréttarritari, og
lagði hann m. a. áherzlu á þá
hættu, sem ísienzku þjóðerni
stafaði af erlendu hermannasjón
varpi í landinu. Ræðu Sigurðar
var frábærlega vel tekið af
stúdentum, og komu þegar sam
dægurs upp meðal þeirra há-
værar raddir um, að fylgja bæri
þessu málj eftir með einhvers
konar fjöldaaðgerðum. Nokkr-
um dögum síðar kom saman all
stórhópuráhugasamra stúdenta
til að ræða þetta, og var þá
ákveðið að hefja meðal háskóla
stúdenta söfnun undirskrifta
undir fyrrgreinda áskorun.
Þessi sami hópur valdi síðan
einn fulltrúa úr hverri háskóla-
deild til að annast framkvæmd
málsins. Voru það Aðalsteinn
Eiríksson stud. theol., Guðbrand
ur Steinþórsson stud. polyt.,
Ólafur Steingrimsson stud.
med., Vésteinn Ólason stud.
mag., Þorbjörn Guðjónsson
stud. oecon. og Þorvaldur Grét-
ar Einarsson stud. jur.
Undirskriftasöfnun var hafin
í annarri viku desembermánað-
ar, en þar sem erfitt er að ná
til margra stúdenta í þeim mán
uði, var ákveðið að afhenda
ekki áskorunina, fyrr en alþingi
kæmi saman aftur að loknu
jólaleyfi þingmanna.
Undirskriftir miðast við þá
stúdenta, sem töldust innritaðir
i byrjun desember samkvæmt
þeim gögnum, sem fáanleg voru
í skrifstofu háskólans. Hafa list
arnir verið kannaðir vandlega
og strikað yfir nokkur nöfn,
sem ekki fundust í bókum skól-
(Framhald á blaðsíðu 7.)
komst mjólk loks til Egilsstaða.
Hreindýrin eru sem óðast að
renna til byggða. Þau virðast
áberandi færri en verið hefur
og sjást daglega.
Hinn 24. janúar kom útigeng-
in kind saman við heimaféð og
önnur daginn eftir. Kindur þess
ar voru úr Fljótsdal og Beru-
firði. Enn vantar okkur 3—400
hesta heys í okkar sveit af því
heymagni, sem við áttum von á
úr öðrum landshlutum.
Heilsufar er gott hjá mönnum
og skepnum. K. R.
Frumsýning b já L.A.
LEIKFÉLAG Akureyrar frum-
sýnir fimmtudaginn 17. þ. m.
gamanleikinn „Svedenhielms-
fjölskyldan“, eftir sænska rit-
höfundinn Hjalmar Bergman, í
þýðingu séra Gunnars Árna-
sonar. Leikstjóri er Ragnhiídur
Steingrímsdóttir.
Þetta er vel þekkt og vinsælt
leikrit á lrinum Norðurlöndun-
um, en fyrsta sýning þess hér á
landi.
Frumsýningargestir eru beðn
ir að vitja aðgöngumiða sinna
í Samkomuhúsið n. k. mánudag
og þriðjudag kl. 2—5 sd„ sími
11073. Hægt er að bæta við
nokkrum nýjum frumsýningar-
gestum.