Dagur - 18.05.1966, Blaðsíða 1
HOTEL
Herbcrgis-
pantanir.
Ferða-
skrifstoian
Akureyri,
Túngötu 1.
Sími 11475
XLIX. árg. — Akureyri, mtðvikudaginn 18. maí 1966 — 39. lbl.
I Túngötu 1.
FERÐASKRlFSTOFANsí^ 11475
Skipuleggjum
ferðir
skauta
á milli.
Farseðlar
með
Flugfél. ísl.
og
Loftleiðum.
Eiga Norðlendingar að sæfta
sig við dieselrafmagn?
EKKI er langt liðið síðan stjórn
ai-völd létu það koma til alvar-
legrar athugunar, að byggja hér
disilstöð, eina eða fleiri í stað
nýrrar Laxárvirkiunar og láta
þá framkvæmd nægja fyrst um
árabij, þangað til hinn svokall-
aði „náðarspeni" yrði lagður frá
Búrfelli norður á milli jökla,
yfir háfjöil Eyjafjarðar til Akur
eyrar.
í staðinn fyrir fyrirhugaða
línu frá Laxá austur yfir Reykja
hciði reka ríkisrafveiturnar nú
disilrafstöðvar á Raufarhöfn og
Þórshöfn og ætla að leiða raf-
magn þaðan allt vestui' í Keldu-
hverfi.
Enn lifir disilstöðvahugmynd-
in góðu lífi í höfuðstöðvum
syðra, en rannsókn höfð í gangi
í sambandi við virkjunarmögu-
leika bæði hér og á Austurlandi
samtímis og möguleikar á öræfa
línu þá jafnframt í athugun.
Hvað taka þessar rannsóknir
langan tíma? Og hver verður
niðurstaðan? Eitt er víst: Norð-
lendingar geta ekki látið bjóða
sér disilrafmagn til frambúðar,
þegar allt Suð-Vesturland býr
við ódýra orku frá stórvirkjun.
ODDEYRARSKÓLANUM SLITIÐ
ODDEYRARSKÓLANUM á
Akuréyri var slitið laugardag-
inn 14. maí sl. Um 420 börn voru
I Afkvæði greift D-lisfan- j
|um þýðir: Kjósandinn {
f sæffir sig við stjórn- |
j leysi innanlands og I
! auðsveipni við erlenf I
vald.
"■•iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
11111111111111111111
FUNDIR FLOKKANNA
ÞRfR stjórnmálaflokkar hér í
bænum hafa nú haldið almenna
kjósendafundi.
Á fundi Alþýðubandalagsins
mættu 55.
Á almennum kjósendafundi
Framsóknarmanna voru 180, en
sá fundur var haldinn í Borgar-
bíói á laugardaginn.
Sjálfstæðismenn héldu svo
kjósendafund á mánudagskvöld
ið og fengu 117 áheyrendur.
Alþýðuflokkurinn heldur kjós
endafund í kvöld og hefur aug-
lýst hljómsveit og söngvara
ásamt ræðumönnum. Q
í skólanum í vetur og skipt í
16 bekkjardeildir. Barnapróf
tóku 50 böm og hæstu aðaleink-
unn hlaut Friðný Jóhannesdótt-
ir, ágætiseinkunn 9,79 og er það
hæsta aðaleinkunn, sem gefin
hefur verið í skólanum til þessa.
Næsthæstu aðaleinkunn hlaut
Guðný Jónsdóttir, ágætiseink-
unn 9,69. Eins og undanfarandi
ár gaf Kvöldvökuútgáfan bæk-
ur til verðlauna fyrir nokkra
beztu námsárangrana.
Indriði Ulfsson, settur skóla-
stjóri í vetur, lætur nú af starfi
sem skólastjóri, en Eiríkur Sig-
urðsson, skólastjóri tekur við
starfi sínu. Hann hefur verið í
orlofi í vetur og dvalið að mestu
erlendis. Q
Þeir, sem vilja Alþýðu-
flokknum vel, kjósa
hann ekki að þessu
sinni. Aðvðrun gefur
leysf hann úr þeim
óíögum, að þjÓRa
íhaldinu.
Snjóskafl í vestanverðri Vaðlaheiði 15. maí 1966.
(Ljósm.: E. D.)
Síldarskipin eru að sigla austur
SíMin er enn mögur en full af átu
UNDANFARIN vor hefur oft
verið rætt um það manna á
milli að of seint væri hafin síld-
arleit á austurmiðum. Má segja
að alltaf hafi fundizt síld þegar
skip hafa farið út á veiðarnar.
Fyrir nokkru fór leitarskipið
Hafþór á miðin út af Austfjörð-
um til síidarleitar. Hélt hann
nú nokkru sunnar út á miðin
en farið hefur verið undanfarin
ár. Eftir 230 til 240 sjómílna
siglingu rv. ASA frá Kambanesi
fann skipið allmikla síld. Fund-
ust þarna ágætar torfur á all-
stóru svæði. Síldin var uppi á
tíu föðmum yfir nóttina en dýpk
aði á sér yfir birtutímann. Frá
þessum stað hélt Hafþór NNA
eftir, allt norður fyrir 66 gráðu
eða um 70 til 80 sjómílur. Á
þessari leið fannst síld alltaf af
og til sumt ágætar torfur.
Allmikil rauðáta er á þessu
svæði. Mældist hún 13 og upp í
65 ml. sem má telja mikla átu
svo snemma sumars.
Eitt íslenzkt veiðiskip kom á
miðin í sl. viku og hefur þegar
fengið tvo farma. Fyrri farminn
fékk skipið um 150 sjómílur rv.
ASA frá Seley. Síld sú, sem
þarna veiddist virtist aðallega
vera tveir árgangar 28—30 cm.
og 36—37 cm. löng. Síldin er
mjög mögur en full af rauðátu
og ætti því að fitna fljótt. Seinni
farmurinn fékkst um 80 sjómíl-
ur í sömu stefnu frá Seley. Var
það allt stór síld.
í fyrra fékkst fyrsta síldin 24.
maí. Var það sama skipið m/s
Jón Kjartansson SU 111 sem
fyrstur var á miðin og fékk
strax veiði eins og nú. Veiði-
svæðið fyrst á vertíðinni í fyrra
var mikið norðar en síldin hef-
ur fundizt nú. Hins vegar er það
svæði ókannað enn og trúlegt
að þar finnist einnig síld þegar
leitað verður.
Síðastliðna nótt fpru héðan
(Framháld á blaðsíðu 7.)
NORRÆNA SUNDKEPPNIN
A
' W « 4» »
Sjómannadagurmn í Ölafsfirði
Ólafsfirði 17. maí. Sjómannadag
urinn var haldinn hátíðlegur að
venju. Hófust hátíðahöldin á
laugardaginn kl. 4.30 með kapp-
róðri Átta sveitir tóku þátt i
róðrinum, sem fór fram á firð-
inum rétt utan við hafnarmynn-
ið í mjög góðu veðri. Sveit
mótorbátsins Þorleifs vann.
Á sunnudaginn var ágætt veð
ur. Þá var allur bærinn fánum
prýddur, svo og skip í höfninni.
Kl. 10.45 gengu sjómenn í skrúð
göngu til kirkju og hlýddu þar
á messu hjá sóknarprestinum,
séra Ingþóri Indriðasyni, kl. 2
var keppt í knattspyrnu. Land-
menn sigruðu sjómenn. Aðal-
skemmtun dagsins fór fram i
félagsheimilinu Tjarnaihorg og
hófst hún kl. 5. Gísli M. Gísla-
son setti skemmtunina. Aðal-
ræðu dagsins flutti Sigurður
Jóhannsson sjómaður, Lúðra-
sveit Ólafsfjarðar lék undir
stjórn Magnúsar Magnússonar,
Kristinn Jóhannsson skólastjóri
las upp, nokkrir drengir sýndu
leikfimi undir stjórn Björns
Þórs Ólafssonar og að lokum
var sýnd íslenzk litkvikmynd.
Milli skemmtiatriða fór fram
verðlaunaafhending til sigurveg
ara í knattspyrnu og róðri. En
í knattspyrnu voru verðlaun
veitt í fyrsta sinn, likan af knatt
spyrnumanni, sem Sigurður Jó-
hannsson og Július Magnússon
gáfu. Aldraðir sjómenn, þeir
Mágnús Jónsson og Ólafur Guð
mundsson, voru sæmdir heiðurs
(Framhald á blaðsíðu 7)
NORRÆNA sundkeppnin er
hafin. Hér á Akureyri syntu
fyrstu þátttakendur keppninnar
á sunnudaginn og í gær höfðu
140 manns tekið þátt í henni.
Norræna sundkeppnin er nú
háð í sjötta sinn. Hún er talin
hafa örvað sundáhuga þjóðar-
innar 'og þjónar hún þá góðu
málefni.
Blaðinu barst í gær fréttatil-
kynning um mál þetta, og þar
sem hún er svo mjög á seinni
skipunum, verður henni gerð
skil síðar.
íslendingar hafa vakið athygli
með góðri þátttöku sinni í þess-
ari sérstæðu keppni.
Keppnisreglum hefur verið
breytt og ætti það enn að örva
metnað okkar. Sundsamband
Norðurlanda sér um keppnina.
Akuieyringar- létu ekki sitt
eftir liggja í fyrri keppnum af
þessu tagi. Vonandi gera þeir
það heldur ekki nú. Q
DAUTT BIARNDÝR
VESTUR í Þaralátursfirði á
Ströndum fannst nýlega dautt
bjarndýr, sjórekið með molaðan
haus, Finnendur hirtu úr því
vígtennumar, sem voru sagðar
þrír þumlungar á lengd. Q
„Óhreina barnið”
felur sig á bak við hvít-
klæddu konuna í vara-
sætinu. En það er samt
jafn óhreinf og áður.