Dagur - 02.06.1966, Side 1
HOTEL
Herbcrgis-
pantanir.
Ferða-
skriistoian
Akureyii/
Túngötu 1.
Sími 11475
XLIX. árg. — Akureyri, íimmtudaginn 2. júní 1866 — 43. tbl.
I Túngötu 1.
FERDASKRIFSrOFAH«-..«.
Skipuleggjum
ierðir
skauta
á mil)i.
Fyrsta síldin komin til Húsavíkur
Húsavík 31. maí. Fyrsta síldin
á þessu sumri barst. til Húsa-
víkur á hvítasunnudag. Þá kom
Helgi Flóventsson með 120 iest-
ir í .braeðslu og í gær kom Akur
ey með 220 lestir. Bræðsla er
þó ekki hafin.
Bridgemót Norðurlands var
háð á Húsavik dagana 28.—30.
maí. Sex sveitir tóku þátt í mót
.inu, 2 frá Húsavik, 2 frá Akur-
eyri og 2 frá Siglufirði. Sveit
Óla Kristinssonar á Húsavik
varð sigurvegari, hlaut 25 stig.
Önnur var sveit Boga Sigur-
björnssonar Siglufirði, hlaut 18
stig og þriðja varð sveit Sigur-
bjöms Bjarnasonar Akureyri,
er hiaut 17 stig.
í sveit Óla Kristinssonar eru
auk hans, Jóhann Hermanns-
son, Guðjón Jónsson, Jónas
Geir Jónsson, Guðmundur
Hákonarson og Þórður Ásgeirs
son. Mótsstjóri var Ólafur Er-
lendsson fulltrúi. Þ. J.
BRÁÐABIRGDASAMKOMULAG
við verkalýðsfélög á Norðurlandi frá Blöndu-
ósi til Þórshafnar
SL. MÁNUDAG var undirritað
á Akureyri samkomulag milli
verkalýðsfélaganna á Norður-
landi og samtaka vinnuveitenda
um framlengingu fyrri kjara-
samninga með nokkrum breyt-
irtgum.
Samkomulag þetta gildir frá
og með 1. júní um óákveðinn
tíma. Samkomulagið kveður
svo á, að vinnuvika verði stytt
BRÚ ÁHAFNAÁ
BYGGÐ í SIJMAR
Skagaströnd 1. júní. Vegir eru
að verða sæmilegir og bráð-
lega verður fært fyrir Skaga.
Á sumum stöðum eru enn mikl
ir skaflar, sem tæpast hverfa
fyrr en komið er langt fram á
sumar.
Einhvern næstu daga verður
hyrjað á að smíða brú á Hafnaá.
Menn treysta því hér, að í
sumar verði flutt síld til Skaga-
etrandarverksmiðjunnar, telja
sig hafa fengið um það loforð
sem vonandi reynist haldgott.
um 1 klst. í 44 stundir, að grunn
kaup hækki um 0,5% og einnig
að á það verði reiknað 2,5%
álag í þeim tilvikum, þar sem
ekki er um aldursuppbót að
ræða.
Öll vinna við fiskverkum sem
áður hefur verið greidd sem al-
menn vinna hækkar auk þessa
um 1 taxtaflokk og vinna
kvenna við fiskverkun hlut-
fallslega.
Álag vegna nætur- og helgi-
dagavinnu hækkar úr 81% í
91% sömuleiðis kveður sam-
komulagið á um hækkun á
kaupi við stórvirkar vinnuvélar
og fyiir bifreiðastjóra.
Loks lýsa samningsaðilar yfir
að þeir muni undirbúa, fyrir
gerð endanlegra samninga,
breytt fyrirkomulag á greiðsl-
um fyrir veikindadaga.
Að samkomulaginu standa 18
verkalýðsfélög á svæðinu frá
Blönduósi til Þórshafnar, en af
hálfu vinnuveitenda Vinnuvert-
endasamband íslands og Vinnu
málasamband Samvinnufélag-
anna.
(Fiéttatilkynning)
I Glerárhverfi fæddist þetta folald fyrir fáum döguin og var heppið að fæðast inn í fyrstu hlý-
indi sumarsins. (Ljósm.: E. D.)
Reksturshalli U. A. á síðasta ári
varð 2.4 milljónir kr.
Afskriftir á eignum félagsins nál. 3.6 millj. kr.
AÐALFUNDUR Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. var haldinn í
fyrrakvöld, í hinum vistlega
matsal félagsins. Mættir voru
stjórnamefndarmenn ÚA, fram
kvæmdastjórar og hluthafar.
Fundarstjóri var kjörinn
Sverrir Ragnars og fundarritari
Pétur Hallgrímsson. Skýrslu
stjórnarinnar flutti stjórnarfor-
maðurinn, Albert Sölvason en
síðar skýrðu framkvæmdastjór-
arnir, þeir Gísli Konráðsson og
Vilhelm Þorsteinsson reikninga
félagsins. Reikningarnir voru
síðan samþykktir og ný stjórn
kjörin. Hana skipa: Albert
Sölvason, Jakob Frímannsson,
LÉLEG SKIPTI AÐ FÁ VÉLÁR FYRIR STÚLKUR
Raufarhöfn 1. júní. Um hádegi
á hvítasunnudag kom fyrsta
síld sumarsins. Síðan hafa kom-
Afengi fannst á Akur-
eyrarflugvelli
1 LOFTLEIÐA-F LU G V É L
þeirri, sem til Akureyrar kom
með nemendahóp gagnfræðinga
og fleiri úr Noregsför á hvíta-
sunnu, fundu tollverðir 96 flösk
ur (fleyga) af áfengi og tóku í
sína vörzlu. Mál þetta er í rann
sókn. □
ið 20 skip með 42C0 tonn af
bræðslusíld. Síldin er enn mög-
ur eða 10—12% feit. Landanir
hafa verið nær viðstöðulausar.
Nýju síldarvogirnar 6 að tölu
við þrjá löndunarkrana reynast
vel. Nú er komin pressa sú í
verksmiðjuna, sem eftir var beð
ið og er nú unnið að því af
kappi, að setja hana niður. En
eftir það mun bræðsla hefjast.
Sildin er langt úti og tekur
ferðin af miðunum í land um
35 klst. Síðustu daga hefur síld-
jn færzt nær landinu. Um 60
síldveiðiskip voru komin á mið
in um hvítasunnu, en daglega
bætist í flotann.
Heimamenn fá enn góðan afla
á h'nu og færi og sækja sjóinn
á tiillubátum. Grásleppuveið-
um er lokið.
Aðkomufólk er nú að koma,
einkum menn, sem koma til
starfa í síldarbræðslunni. Svo
eru verkstjórar síldarsaltenda
farnir að láta sjá sig. Tunnuskip
er béi- að losa í dag.
Við óttumst þá þróun, þegar
vélar og tæki leysa síldarstúlk-
urnai- af hólmi á plönunum. Það
ei u ill skipti. H. H.
Amþór Þorsteinsson, Steindór
Jónsson og Tryggvi Helgason.
Endurskoðendur, Kristján Ein-
arsson og Ragnar Steinbergsson.
Það merkasta, sem fram kom
í skýrslum stjórnar og fram-
kvæmdastjóra var þetta:
AHir togarar Útgerðarfélags
Akureyringa h.f. voru reknir
með halla siðasta ár, Kaldbak-
ur með 796 þús. kr., Svalbakur
812 þús. kr., Harðbakur 1.692
þús. kr., Sléttbakur 978 þús. kr.
og Hrímbakur 1.088 þús. kr.
Aftur á móti varð rekstur hag-
stæður hjá hraðfrystihúsi, 2.685
þús. kr., skreiðin með 41 þús.
kr., saltfiskverkun með 166 þús.
ík. En heildarútkoma fyrirtæk
isins varð reksturshalli, sem
nam kr. 2.472.304.88. En þá
höfðu eignir ÚA veyið afskrif-
aðar um 3.596.315.42. Heildarút-
koma fyrirtækisins sýnir veru-
lega betri afkomu þess nú held
ur en árið 1964, sem síafaði af
meiri afla togaranna og hag-
kvæmari nýtingu.
Útgerðarfélag Akui'eyringa
h.f. greiddi síðasta ár 1105 aðil-
um kaup, samtals kr
(Framhald á blaðsíðu 4.)
Kettir og fuglar
SKÓGARÞRESTIR og þeir
smáfuglar sem leita á náðir
manna sér til öryggis og
framfærslu, hljóta lof okkar
og aðdáun. Þeim mætti finn-
ast grályndi nokkurs gæta í
sambúðinni, þegar við send-
um ketti — þeim hið hættu-
legasta rándýr — út um alla
garða til að eta varnarlaus
afkvæmi þeirra. Þetta finnst
því fólki sem ann fuglasöng ■ 1
$ og skilur aðstöðu hinna
vopnlausu í baráttu við
„versta drápsæði“, algerlega
ómannsæmandi og skorar
því á þá sem kcttina ala, að
Icka þá inni lijá sér fram
efíir sumrinu, eða þar til
ungar eru fleygir og færir.
Nokkrir bæjarbúar.
, ný
F.í.
Á LAUGARDAGINN kom hin
nýja Fokker Friendship-flugvél
F. í. til Reykjavíkur og á
sunnudagskvöldið til Akureyr-
ar. Þessi flugvél er af nákvæm-
lega sömu gerð og Blikfaxi,
eins útbúin en með sterkari rat-
sjá. En Blikfaxi hefur verið
hinn þarfasti farkostur, svo
sem landsmenn hafa reynt og
ný vél af sömu gerð eykur af-
kastagetu F.í. til innanlands-
flugs um nálega þriðjung. Snar-
faxa vai tekið með viðhöfn er
hann kom til landsins. □