Dagur - 11.06.1966, Qupperneq 1
HOTEL
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skriistoian
Akureyri,
Túngötu 1.
Sízni 11475
XLIX. árg. — Akureyri, laugardaginn 11. júní 1966 — 45. tbl.
Ferðaskriísfofan!Tún5ö,u L
I Sími 11475
Skipuleggjum
íerðir skauta
á milli.
Farseðlar með
Flugfél. ísl. og
Lofileiðum.
ÞA ER LAXINUM OPNUÐ LEIÐ
ALLT TIL MÝVATNS
E*>
v;K‘' v’K'' fy'V' 'Vvls;
Árhvammi 10. júní. í gær kom
ílugvél frá Reykjavík norður í
Aðaldal og flutti til okkar eitt
þús. laxaseiði í göngustærð.
Seiðin voru þegar flutt upp fyr
ir virkjanir hjá Brúum og
sleppt í Laxá í norðanverðum
Laxárdal. En þangað er enginn
laxavegur. Hins vegar er fisk-
um greið leið frá virkjun-
um hjá Brúum og allt til Mý-
vatns, sem er um 25 km. vega-
lengd, einnig upp í Kráká. Laxa
seiðin eru frá Keldum og með
þau kom Jón Sveinsson, sem
annazt hefur uppeldi á laxfiski
og hjálpaði okkur.
Það eru áhugamenn, sem fyr
ir þessum flutningi standa og
gera þeir fastlega ráð fyrir að-
stoð til að hagnýta laxinn, er
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Nýr bæjarstjórnar-
meirihluti á Húsavík
Húsavík 9. júní. Fyrsti fundur
nýkjörinnar bæjarstjórnar á
Húsavík var haldinn í gær. Á
liðnu kjörtímabili mynduðu
Framsóknarmenn og Alþýðu-
bandalagsmenn meirihluta um
stjórn bæjarins. í bæjarstjórn-
arkosningunum á dögunum
misstu Alþýðubandalagsmenn 2
bæjarfulltrúa til svonefnds H-
Jista eða óháðra kjósenda.
Nú hafa H-listamenn, ásamt
Alþýðuflokks- og Sjálfstæðis-
mönnum, sem samtals hafa 5
mönnum af 9 á að skipa, mynd-
að meirihluta um ráðningu nýs
bæjarstjóra og um kosningu
Barn datt út úr bíl
Á MIÐVIKUDAGINN bar það
við í Glerárhverfi, að tveggja
ára barn datt út úr bíl, er hurð
bílsins opnaðist á nokkurri ferð.
HJaut það áverka á höfði, og
var þegar flutt í sjúkrahús. □
forseta bæjarstjórnar og um
nefndakosningar.
Á fundinum í gær var Guð-
mundur Hákonarson kosinn for
seti bæjarstjórnar fyrsti vara-
forseti Ingvar Þórarinsson (S)
og annar varaforseti Sigurður
Jónsson (H).
í bæjarráð voru kjörnir af
hálfu meirihlutans, Ásgeir
Kristjánsson og Ingvar Þórar-
insson, en af minnihlutanum
Karl Kristjánsson.
Meirihlutinn ákvað ráðningu
nýs bæjarstjóra, Björns Frið-
finnssonar, lögfræðings frá
Reykjavík, fyrir yfirstandandi
kjörtimabil.
í samþykktum stjórnar Húsa
víkurkaupstaðar segir, að ráðn
ingartími bæjarstjóra skuli að
jafnaði vera hinn sami og kjör-
tími bæjarfulltrúa, þó fram-
lengist ráðningartími bæj -
arstjóra unz bæjarstjórn ræður
bæjarstjóra og hann tekur til
starfa. Þ. J.
Tilraunakvígurnar á Rángárvöllum, sem eiga að bera fyrsta kálfi í haust, eiga að vitna um arf-
í genga liæfileika feðra sinna á Sæðingarstöð SNE. Þær eru vel hirtar og vel fóðraðar.
Jk
4k
•S3
h-4
SUMARSlLDARVERÐIÐ ÁKVEÐIÐ
Greitt verður kr. 1.71 fyrir hvert kíló
Á FUNDI yfiinefndar verðlags
láðs sjávarútvegsins 8. þ. m.
var ákveðið lágmarksverð á
sild í bræðslú, veiddri íyrir
norðan og austan land, tíma-
bilið 10. júní til 30. septemher,
kr. 1,71 hvert kg.
Jafnframt varð samkomulag
um, að flutningasjóður síldveiði
skipa verði starfræktur eftir
svipuðum reglum og gilt hafa
tvö undanfarin ár. Skal greidd-
ur einn eyrir í sjóðinn af fram-
angreindu verði. Þannig að út-
borgunarverð verðui kr. 1,70 á
Þjóðleikhúsið í leikför um
Sýnir Afturgöngurnar eftir Ibsen
1 SAMTALI við Klemenz Jóns-
son hjá Þjóðleikhúsinu í fyrra-
dag, sagði hann blaðinu, að
Þjóðleikhúsið undirbyggi nú
Jeikför um Norðurland.
LONDUN LEYFÐ A
NORÐURLANDI
FYRIR skömmu var ákveðið,
að leyfa Islendingum að kaupa
síld úr erlendum skipum, mið-
að við hafnir á Norðurlandi,
þar sem örva þarf atvinnu. —
Slík leyfi hafa jafnan verið um
dcild og ekki gefin fyrr en nú
til reynslu. □
Sýndur verður sjónleikurinn
Afturgöngurnar eftir Henrik
Ibsen, en sýningar á því verki
urðu 20 í Þjóðleikhúsinu í vet-
ur.
Leikstjóri er Gerda Ring, sem
er einn af aðalleikstjórunum við
Þjóðleikhús Norðmanna. En
leikarar eru þessir: Guðbjörg
Þorbjamafdóttir, Gunnar Eyj-
ólfsson, Valur Gíslason, Lárus
Pálsson og Bryndís Schram.
Fyrsta sýningin verður á
Blönduósi 19. júní, en hér á Ak
ureyri verður leikurinn sýndur
20. og 21. júní. Frá Akureyri
verður svo haldið austur á bóg-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
kg'. Skip, sem sigla með sild til
íjarliggjandi verksmiðja, sam-
kvæmt reglum sjóðsins, fá
greidda 17 aura á kg til viðbót-
ar framangreindu verði.
Þá varð samkomulag um
heimild til að greiða 22 aurum
lægra verð á kg fyrir síld, sem
tekin er úr veiðiskipi í flutn-
ingaskip utan hafna.
Verðákvörðunin er gerð með
atkvæðum oddamanna og full—
trúa síldarseljenda í nefndinni
gegn atkvæðum fulltiúa síldar-
kaupenda.
í nefndinni áttu sæti:
Jónas H. Haralz, íorstjóri
Efnahagsstofnunarinnar, odda-
maður, Guðmundur Jörunds-
son, útgerðarmaður, fulltrúi út
gerðarmanna, Tryggvi Helga-
son, formaður Sjómannafélags
Akureyrar, fulltrúi sjómanna,
og Sigurður Jónsson fram-
kvæmdastjóri og Vésteinn Guð
mundsson fulltrúar síldarkaup-
enda. □
VÁiNDAD skip til
HÚSAVÍKUR
Húsavík 9. júní. í fyrradag kom
til Húsavíkur nýtt fiskiskip,
ms. Héðinn ÞH. Það er rúml.
330 lesta stálskip, smíðað í Nor-
egi. Eigandi þess er Hreifi h.f.
en skipstjóri Maríus Héðins-
son, Hafnarfirði. Framkvæmda
stjóri Hreifa er Jón Héðinsson.
Skip þetta er glæsilegt og vel
búið, hefur t.d. skiptiskrúfu til
að unnt sé að snúa skipinu á
litlum bletti og getur kælt síld-
ina í lestinni. Þ. J.
UNGLINGAR STÁLU TÉKKHEFTI
OG SVIKU ÚT TALSVERT FÉ
Gunnar Eyjólfsson leikari.
FALSKRA ávísana varð vart
hér á Akureyri sl. laugardag.
Mál þetta er nú að fullu upp-
lýst hjá lögreglunni. Hinir seku
hafa játað brot sín og hafa fall-
izt á að greiða skaðabætur og
málskostnað, en refsing verður
síðar ákveðin.
í stórum dráttum eru máls-
atvik á þessa leið: Ungur
sveinn, Akureyringur, vísaði
sjómönnum á leið til að ná í
tékkhefti úr ólæstri skrifstofu
hér í bæ. Þeír stálu heftinu og
fölsuðu og sviku út um 7 þús.
kr. Menn þessir voru utanbæj-
armenn að sunnan, togarasjó-
menn en ekki úr Reykjadal,
eins og sagt var í Morgunblað-
inu. Þriðji maðurinn, sem við
mál þétta var riðin, auk sveins
ins, er frá Sauðárkróki og
fjórði aðilinn héðan úr bæ.
Þetta fólk er á aldrinum 17—19
ára og áðurnefndur drengur 13
ára.
(Upplýsingar fiá fulltrúa bæj
arfcgeta.)