Dagur - 11.06.1966, Page 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Hér er einn vottur hinna ömurlegu og hættulegu vega innan landamerkja bæjarins. Myndin er
tekin sunnan Gróðrarstöðvarinnar í fyrradag af þingeyskum vörubíl, sem þar situr á öxli í for-
arvilpu. Þarna hefur verið „óviðgerður íarartálmi“ í allt vor á fjölfömustu leið út frá Akur-
eyri. (Ljósm.: E. D.)
HEILDARVELTA KÞUM190 MILLJ. KR.
Frá aðalfundi Kaupfélags Þingeyinga
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Þingeyinga var haldinn dagana
3. og 4. þá m.
Mættir voru á fundinum, auk
félagsstjórnar, kaupfélagsstjóra
og endurskoðenda, 105 fulltrú-
ar frá deildum félagsins.
Heildarvelta félagsins á ár-
inu 1965 hafði orðið nálega eitt
bundrað og níutíu milljónir.
Eignaafskriftir á árinu voru
um tvær milljónir. Endur-
greíðsla vöruverðs um ein
imiiljón króna.
Mikium erfiðleikum olli
birgðaaukning mjólkursamlags
félagsins á árinu.
Fundurinn taldi almennar
fjárhagshorfur ótryggar og
gerði ráð fyrir mjög takmörk-
uðum framkvæmdum til fjár-
festingar hjá félaginu á árinu.
Uthlutað var úr Menningar-
sjóði félagsins til ýmis konar
menningarmála kr. 90.200,00.
Ymsar ályktanir voru sam-
þykktar um innanfélagsmál.
Ur félagsstjórninni gengu:
Úlfur Indriðason, Héðinshöfða,
Tjörnesi og Ulugi Jónsson,
Bjargi, Mývatnssveit. — Voru
þeir báðir endurkjörnir til
þriggja ára.
1 stað Þráins Maríussonar,
sem látizt hafði á árinu, var
kosinn í félagsstjórnina til
tveggja ára, Jóhann Hermanns
son, Garði, Húsavík.
Varamenn í félagsstjórnina
til eins árs voru endurkosnir:
Þráinn Þórisson, Skútustöðum,
Mývatnssveit og Óskar Sig-
tryggsson, Reykjarhóli, Reykja
hverfi.
Endurskoðandi til tveggja
ára var kosinn Hlöðver Hlöð-
vesson, Björgum, Ljósavatns-
hreppi.
Fulltrúar á aðalfund Sam-
bands ísl. Samvinnufélaga voru
kosnir: Karl Kristjánsson, Húsa
vík, Teitur Björnsson, Brún,
Baldur Baldvinsson, Ófeigs-
stöðum, Jón Sigurðsson, Yzta-
felli, og Pétur Jónsson Reyni-
hJíð. □
Tuttugu búfræðingar frá HóSum
FYRIR nokkrum dögum var
bændaskólanum á Hólum slitið
og útskrifuðust að þessu sinni
20 búfræðingar víðs vegar að
af landinu.
Hæstu einkunn, 9.2, hlaut Sig
urjón Tobíasson frá Geldinga-
holti í Skagafirði. Hlaut hann
einnig þrenn verðlaun, frá Bún
aðarfélagi íslands fyrir Fóður-
fræði, og frá Dráttarvélum h.f.
og SÍS fyrir meðferð búvéla og
dráttarvéla.
„OFSALEG DÝRTÍГ
Sigurður Helgason, varaformað
ur Loftleiða li.f., sagði á nýlega
höldnum aðalfundi:
„Eitt er það mál, sem háir fé-
laginu mjög, en það er hin
óhagstæða verðbólguþróun inn
anlands. Kostnaður allur hér á
landi eykst hröðum skrefum og
mikið hraðar en í nágrannalönd
unum. Ekkert lát virðist vera á
þessari óheillaþróun hér ....
Hér er félagið alveg varnar-
laust . . . í harðri samkcppni
við um þrjátíu önnur flugfélög
á Atlantshafinu .... island er
að verða aldýrasta landið, sem
félagið starfar í, bæði að því er
launakostnað og annan kostnað
áhrærir. Útlendir ferðamenn
kvarta einnig í sífellt vaxandi
mæli um þá ofsalegu dýrtíð,
sem hér ríkir og fer að verða
erfiðleikum bundið að fá fólk
til að lieimsækja landið, ef þessi
óheillaþróun verður ekki stöðv
uð.“
HARÐUR DÓMUR
Gunnar Guðjónsson, fomiaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystiliús-
anna, sagði m. a. í setningar-
ræðu á aðalfundi samtakanna,
um stefnu ríkisstjórnarinnar:
„Þessi þróun er orðin svo al-
varleg fyrir alla fiskframleið-
endur, að ekki verður lengur
fram hjá henni gengið án þess
að nauðsynleg lausn sé fundin
á hráefnisskorti frystihúsanna.
Það er ekkert einkamál örfárra
manna, hvernig fer fyrir hrá-
efnisöflun fiskiðnaðarins gegn-
um togara, línubáta eða niinni
Sjúkrasamlag í meira en hálfa öld
SJÚKRASAMLAG Akureyrar
bauð blaðamönnum og læknum
til kaffidrykkju að Café Scan-
dia síðastliðinn fimmtudag í til
efni af því að á þessu ári eru
liðin 30 ár frá því að Sjúkra-
samlag Akureyrar tók til starfa
samkvæmt lögum í núverandi
formi. Hinn 22. febrúar 1936
hélt nýkjörin stjórn sinn fyrsta
fund, en hana skipuðu: Sig-
tryggur Þorsteinsson, Stefán
Ag. Kristjánsson, Þorsteinn Þor
steinsson, Valdimar Steffensen
og Jón Sveinsson. Sigtryggur
Þorsteinsson var kjörinn for-
maður og var það til dauðadags
1961. Stefán Ág. Kristjánsson
hefur verið samlagsstjóri frá
upphafi. Samið var við lækna
og sjúkrahús sama ár.
Iðgjald var í byrjun kr. 3.00
á mánuði, en er nú kr. 115.00.
Daggjöld á Sjúkrahúsinu voru
í fyrstu kr. 6.50, en eru nú kr.
400.00. Jóhann Þorkelsson hef-
úr' verið trúnaðarlæknir sam-
lagsins frá 1936, og formaður
siðan 1961.
Þessir hafa setið í stjórninni
um lengri eða skemmri tíma:
Jóhann Frímann, Jóhannes Jón
asson, Steingrímur Jónsson,
Jón Hinriksson, Jakob Árna-
son, Rósberg Snædal og Bragi
Sigurjónsson.
Núveraridi stjórn skipa: Jó-
hann Þorkelsson formaður, Jó-
hann Frímann, Árni Jónsson,
Arngrímur Bjarnason og Sig-
urður Halldórsson.
Þorsteinn Þorsteinsson var
ráðinn gjaldkeri 1937 og var
(Framhald á blaðsíðu 2.)
Silfurverðlaun Morgunblaðs-
ins (í stað silfurskeifunnar)
voru veitt fyrir góðan árangur
í tamningu hesta og hlaut þau
Jónas Hallgrimsson úr Fljót-
um, en Jónas er búsettur í
Reykjavík.
Verðlaun úr sjóði Tómasar
Jóhannssonar hlaut Jón Stef-
ánsson.
Fjórir piltar hlutu verðlaun
fyrir góða umgengni, en þau
verðlaun veitti Kaupfélag Skag
firðinga nú í fyrsta skipti.
Næsthæstu einkunn hlaut Vé
steinn Vésteinsson frá Akra-
nesi, en Vésteinn er að hefja
búskap á Hofstaðaseli í Viðvík- júní en ennþá vantar ýmsan
ursveit. innri búnað hússins, svo e. t. v.
í yngri deild varð hæstur dregst húsvígslan. Þá verður
Þórður Jónsson frá Árbæ með Skugga-Sveinn sýndur. Leik-
9,45. stjóri er Jóhann Ogmundsson
(Framhald á blaðsíðu 2.) frá Akureyri.
fiskiskip. Leggist þessi útgerð-
arform niður vegna tómlætis
eða sinnuleysis þeirra aðila,
sem ber skylda til að meta þjóð
félagslega þýðingu þessara at-
vinnutækja og hafa vald til að
gera viðeigandi ráðstafanir til
tryggingar áframhaldandi rekst
urs þeirra, umfram það, sem
fiskvinnslan getur og hefur
þegar gert, þá Iýsum vér fullri
ábyrgð á hendur viðkomandi,
vegna þeirra afleiðinga, sem
slíkt aðgerðarleysi hefur í för
með sér, að þorskveiðar og fisk
vinnsla dragast stórlega sam-
an.“
OF SEINIR — EÐA OF
ÁHUGALAUSIR?
Eins og kunnugt er af fyrri
fréttum kom til umræðu á
fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir
kosningar tillaga frá Framsókn
armönnum um gerð fram-
kvæmdaáætliinar fyrir kaup-
staðinn. Þessi tillaga kom fram
með löglegum fyrirvara. Þegar
fulltrúar Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags lásu þetla í
prentaðri dagskrá yfir þau mál,
sem nefndur fundur skyldi um
fjalla, hripuðu þeir niður mjög
svipaðar tillögur og komu með
á bæjarstjórnarfundinn. Þeir
urðu of seinir — eða of áhuga-
lausir.
FRAMKVÆMDAÁÆTLUN
OG MÁLEFNASAMNINGUR
ER SITT HVAÐ
Vegna þess hve tillögur þessar
voru síðbúnar, voru þær skoð-
(Framhald á blaðsíðu 2.)
SÓLIN SKÍN OG GRASIÐ GRÆR
Egilsstöðum 10. júní. Sólin skín
á okkur dag hvern, gróðri fer
vel fram og ekki virðast tún
kalin að þessu sinni, þó fyrra
árs skemmdir séu ekki grónar.
Yfirleitt er búið að sleppa sauð
fé. Sauðburður gekk vel, enda
veðráttan hagstæð þótt seint
voraði og gjafafrekt væri.
Byggingavinna er í fullum
gangi og aðstreymi fólks hingað
í Egilsstaðakauptún mikið.
Vígja átti félagslieimilið 17.
B-LISTA SKEMMTUNIN
ER j KVÖLD,
laugardaginn 11. júní, að Hótel KEA og liefst kl. 9.
| KARL GUÐMUNDSSON, leikari, SKEMMTIR
I SIGURÐUR ÓLI BRYNJÓLFSSON flytur ávarp.
i
t Dansað til klukkan 2 e. m.
B-LISTINN.
->•
t
%
t
f
f
Væntanlega verður ný Val-
þjófsstaðakirkja vígð 3. júlí í
sumar. Gömul timburkirkja var
rifin þar en ný byggð úr steini.
Brottfluttir Fljótsdælingar
hafa skotið saman fé og látið
gera eftirlíkingu af hinni frægu
Valþjófsstaðahurð og verður
hún sett milli aðalkirkju og for
kirkju. Hurðina gerði Halldór
Sigurðsson fyrrv. kennari á
Eiðum.
Framundir þetta hafa hrein-
dýr verið í Skriðdal. V. S.
BÚNTAÐ TIMBUR
SUNNANBLÖÐIN segja þau
merku tíðindi, að Skógafoss
hafi flutt til landsins finnskt
timbur og sé það fyrsti timbur-
farmurinn, hingað fluttur í
buntum. Skipið kom með farm
inn til Reykjavíkur 1. júní.
Timburkaupmenn áttu farminn.
Það vill svo til, að viku fyrr
kom Mælifell með búntað timb
ur frá Finnlandi og flutti til
Kaupfélags Eyfirðinga á Akur-
eyri 110 standarda, þar af 60
búntaða. Með því að flytja timb
ur á þennan hátt, er allur flutn
ingur og afgreiðsla auðveldari.
Er því um verulega framför að
ræða, sem vert er um að geta.