Dagur - 20.08.1966, Page 1
Herbergis-
pantanir.
FerSa-
skriistoian
Túngötu 1.
Akureyri,
Síœi 11475
Ferðaskrifstofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggium
ierðir skauta
á millí.
Farseðlar með
Flugíél. ísL og
Loitleiðum.
(Ljósmynd: E. D.)
Börn og fullorðnir taka á móti timbrinu og stafla því.
AÐ LAUGUM 2. OG 3. SEPTEMBER
KJÖRDÆMISÞING Framsókn
arfélaganna í Norðurlandskjör-
dæmi eystra verður háð á Laug
«m í Reykjadal föstudag og
Meira heiff
vafn á
EINS OG fyrr var frá
sagt, .voru gerðar þrjár
djúpar borholur á Húsa-
víkurhöfða, án árangurs
þó, til að byrja með. En
þegar sterk dæla var feng
in, fengust 5.3 lítrar á sek.
af 100 stiga heitu vatni úr
einni borholunni. Nú hafa
hinar borholurnar verið
rannsakaðar á sama hátt.
Ur annarri renna nú 7 1.
á sek. af 80 stiga heitu
vatni en 1 lítri úr þeirri
þriðju. Svo sem sjá má af
þessum fregnum, hafa
Húsvíkingar til nokkurs
unnið með borunum sín-
um við bæinn. Mun þess
vart langt að bíða að hita
veita komi í Húsavík.
laugardag 2. og 3. sept. n. k.
Hefst þingið kl. 10 f. h. á föstu-
dag. Auk venjulegra þingstarfa
mun Bjarni Einarsson viðskipta
fræðingur, starfsmaður Efna-
hagsstofnunarinnar, flytja er-
indi fyrri fundardaginn, og nefn
ist það: Landssvæðaáætlanir
með sérstöku tilliti til Norður-
lánds.
Stjórnir félaga eru minntar á
að láta kjósa fulltrúa til þings-
ins hið fyrsta og tilkynna stjórn
FFNE, en formaður þess er
Hjörtur E. Þórarinsson.
Skemmtisamkoma verður að
Laugum á laugardagskvöldið
(3. sept.) að loknu þinghaldi.
(Frá stjórn FFNE)
Hæli fyrir vangefna rís senn
Á annað þúsund manns bíða
hælisvistar hér á landi
HÉRAÐSMÓTIN
í kvöld og arniað kvöld
HÉRAÐSMÓT Framsóknar-
manna í Eyjafirði og á Akur-
eyri verða haldin í Freyvangi
20. ágúst og á Dalvík 21. ágúst.
Ræðumenn í Freyvangi verða
alþingismennirnir Einar Ágústs
son og Ingvar Gíslason, en á
Dalvík Einar Ágústsson og
Hjörtur E. Þórarinsson bóndi á
Tjörn.
Ómar Ragnarsson skemmtir
á báðum stöðum og Laxar leika
fyrir dansi. Sjá auglýsingu. □
í SLENDIN G AR hafa stofnað
fjögur hæli fyrir vangefið fólk.
Þau eru að Sólheimum, Tjalda-
nesi, Skálatúni og í Kópavogi.
Á hinu síðastnefnda dvelja nú
150 vistmenn en hælið getur
tekið 400 manns til dvalar þeg-
ar það er fullbyggt og við það
hafa verið byggðar þrjár nýjar
deildir, svo sem áætlað er. En
alls dvelja nú 275 vangefnir
menn og konur á hælum hér-
Iendis og eru þau öll á Suðvest-
urlandi.
Nú er ákveðið að byggja
næsta hæli hér á Akureyri og á
það að taka 32 vistmenn en auk
þess allmarga til dagdvalar. Á
fundi með blaðamönnum á dög
unum, voru þessi mál lítillega
rædd, en bæjarstjóri sagði þá
frá því, að bærinn hefði ákveð-
ið hinu nýja hæli fjögurra hekt
ara lóð, skammt sunnan og vest
an við gömlu Glerárbrúna, í
landi Skarðs. Þar eru tún milli
klettaborga, fallegt land.
Að þessum málum hefur
Styrktarfélag vangefinna á Ak
ureyri unnið að undanförnu og
hvarvetna mætt góðum skiln-
ingi ráðamanna, bæði hér á Ak
ureyri og syðra. Má þar nefna
bæjarstjórn, landlækni og ráð-
herra, en auk þess hefur allur
almenningur skilið þörf slíks
hælis á Norðurlandi og brugð-
izt vel við bæði með því að láta
fjármuni af hendi rakna og á
annan hátt. Þá má í þessu sam-
bandi minna bifreiðaeigendur á
bílnúmerahappdrættið, sem for
maður félagsins, Jóhannes Óli
Sæmundsson annast. Stjórnar-
menn Styrktarfélags vangef-
inna auk hans, eru þeir Albert
Sölvason, Jón Ingimarsson, Jó-
hann Þorkelsson og Níels Hans
son.
Hælið á Akureyri verður í
tengslum við Kópavogshælið á
þann veg, að hælin skiptast á
sjúklingum eftir því sem við
þykir eiga og hagkvæmast reyn
ist með hliðsjón af sérfræði-
legri læknisþjónustu.
Vonir standa til að þegar geng
ið hefur verið frá formsatrið-
um, sem enn eru ógreidd, verði
verkið hafið nú í sumar eða
haust. Mun vinnuafl þegar
(Framhald á blaðsíðu 7)
VEGNA liinna fyrirhuguðu
stóriðjuframkvæmda við Mý-
vatn, hafa ýmsir náttúruunn-
endur vaknað við vondan
draum, og spurt sjálfan sig sem
svo: Er hið einstæða náítúrufar
Mývatnssveitar í hættu og ef
svo er, hvað er þá hægt að gera
til að forða því frá alvarlegum
skemmdum?
Annar mesti afladagur síld-
veiðinnar frá upphafi
r
I f j rradag fengu 64 skip 13.276 tonn
í GÆR var saltað á flestunveða
öllum síldarsöltunarstöðvum,
frá Eyjafjarðarhöfnum til
Stöðvafjarðar. Síldin var frá
deginum áður, sem er mesti síld
veiðidagur sumarsins, og annar
mesti afladagur á síldveiðum
frá upphafi, 13276 tonn á 64
skip. Síldin veiddist á tveim
svæðum um 200 mílur norður
af Raufarhöfn og 120 mílur suð
austur af Seley, en þar fengu 17
skip mikinn afla.
Blaðið hringdi í gær til nokk
urra fréftaritara sinna í tilefni
hins mikla síldveiðidags. Fer
umsögn þeirra hér á eftir.
Vopnafirði: Aðeins 600 tunn-
ur hafa verið saltaðar hér og
um 108 þús. mál í bræðslu. En
nú eru a. m. k. fjögur skip á
leiðinni hingað með síld til sölt
unar og verður saltað á öllum
fjórum síldarplönunum. Stúlk-
um verður smalað um allan
Vopnafjörð.
Neskaupstaður: í dag er salt-
að á öllum sex plönunum því
við fáum í dag góða síld að
norðan og sunnan með níu skip
úm á. m. k. En í því ér'u 1300
tonn. Búið er að salta 3 þúsund
tunnur hjá Sæsilfri h.f., sem er
hæst og á þrem stöðvum fer að
nálgasf‘2 þús. hjá hvérri. í
bræðslu eru komin 30 þús. tónn.
Bræðslan bræðir um 7 þús. mál
á sólarhring, eftir viðgerðina.
Onnur bræðsla er í byggingu.
Fólk vantar. Saltað verður á
meðan fólkið stendúr uppi.
Raufarhöfn: Mikið er að gera,
saltað á öllum plönum, allir
vinna sem vettlingi geta vald-
(Framhald á blaðsíðu 7.)
Leitað hefur verið til hinna
færustu sérfræðinga okkar, um
svör við þessum spurningum,
en þeir liafa því miður ekki
haft svör á taktéinum, fram yfir
það sem allir vita, að aukinni
byggð fylgir alltaf hætta fyrir
náttúru viðkomandi landssvæð
is.
Náttúrufræðingar telja, að
síðari spurningunni verði ekki
svarað nema til komi einhverj-
ar rannsóknir á náttúru Mý-
vatnssveitar og Mývatns, sér-
staklega á smáverum, fiskum
og fuglum vatnsins,- og því
órofa samspili, sem þar fer
fram. niilli lífveranna.
Því hefur nú verið hafizt
handa um að koma á fót rann-
sóknastöð við Mývatn, senr
hefði það hlutverk fyrst og
fremst, að kanna lifríki vatns-
ins og svo jarðmyndanir í um-
hverfi þess.
Dr. Finnur Guðmundsson hef
ur haft forgöngu í þessu máli.
Telur hann að íá megi erlenda
styrki til að koma upp stöðinni,
en vonandi fást einhverjir aðil-
ar til að standa undir rekstri
liennar. (Framhald á bls. 2)