Alþýðublaðið - 08.08.1921, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 08.08.1921, Blaðsíða 1
Alþýðublaðið 1921 Spánarsatnnmgarntr. Frestinn verður að nota til að leita að nýjum markaði fyrir fisk. Framlenging er fengin á samn- ingunum við Spán. Beztu tollkjör gilda enn um það langan tíma, að hægt væri að flytja til Spánar alian þessa árs fisk, eða svo til. En allir vita að slíkt væri hið mesta óráð. Reynzlan frá fyrra ári faefir sýnt það, að sú aðferð, sem Fiskhringurinn frægi, með Copland sem foringja, tók upp, að setja fiskinn í umboðssölu, er vfs ieið til að eyðileggja markaðinn. Þeir, sem fiskinn selja til neytendanna, bfða þess að verðið lækki, því þeir vita sem er, að þegar öll geymsluhús eru full af fiski, hlýt* ur að reka að því, að eigendur verði að selja, og þá er aðferðin sú, að kaupa sem allra minst, eða faelst ekkert. Eigendur neyðast til að lækka verðið, sem kannske hefir líka verið ósanngjarnt, það gefur vonir um að verðið lækki enn meir, og ennþá er dregið að kaupa. Endirinn verður svo sá, að talsvert skemmist af fiskinum og spillir markaðinuui þannig, sé á annað borð hægt að selja það, og verðið verður miklu lægra en ef fiskurinn væri jafnóðum sendur til kaupendanna. Gamla lagið var miklu skárra, þó það væri ekki gott. Úm veru- legt lag á fisksölunni verður sennilega ekki að ræða fyr en hún er öll komin á eina hendi, sem ekki hugsar aðeins um það, að hafa stundarhagnað af sölunni, heldur miklu fremur um hitt, að halda markaðinum við og færa hann íremur út. Fresturinn, sem Spánverjar hafa gefið, er ágætur, ef hann væri nú notaður eins og hyggnir kaup- sýsiumenn mundu gera, þannig, ad leita ýyrir sér um nýjan mark að, svo ekki þyrfti, vegna of lít Mánudaginn 8. ágúst. illar eftirspurnar, að ganga að hvaða afarkostum sem væri. íslenzki fiskurinn er á Spáni talinn bezta verzlunarvaran af þeira fiski sem þangað flyzt. Hvort mundi þá ekki verða sama uppi á teningunum annarsstaðar? En hvert á að leyta nýs mark- aðar? Vitanlega þangað, sem svipað hagar til og á Spáni: til annara kaþólskra landa. Sam- kvæmt nýjustu manntölum eru kaþólskir menn 52°/o af öllum kristnum mönnum í heiminum. Allir þessir menn þurfa á fiski að halda, og vitanlega miklu fleiri. Þau lönd, sem vænta má, að selja mætti saitfisk í og sem þegar kaupa hann, eru auk Spánar og Fortúgals, ítalfa og Grikkland, Stór Serbía eða Jugoslavfa, Tjeko- Slovakfa, Suður Amerfka, Rúss- land og e. t. v. fl. Spánn, ítalfa og Grikkland nú upp á sfðkastið eru aðal markaðs- lönd okkar íslendinga. Og er sennilegt að auka mætti talsvert söluna á ísienzkum fiski í tveimur síðartöldu löndunum. Lfka væri vafalaust hægt að selja fisk f báð- um hinum nýju slavnesku ríkjum og í Suður-Ameríku. En sá hæng ur er á að senda fiskinn svo langar leiðir, að honum hættir mjög við skemdum, nem sérstak ur umbúnaður sé við hafður. Ekki hvað sfst á þetta við um Suður Amerfku, en þangað hafa Norðmenn þó sent sinn slæma fisk og salan gengið vel, en þó betur bjá Skotum sfðari árin. Landið sem í aila staði liggur bezt við saltfisk og sfldarverzlun vorri er Rússland. Þangað er skemmra en til nokkurs af hinum Iöndunum. Mannfjöldinn er geysi- legur, og landið hefir ýmsar vörur að bjóða, sem vér þurfum með. Skip þyrftu því ekki að sigla tóm aðra leiðina, eins og stundum kemur fyrir nú. Öli nágrannalönd vor eru nú hætt þeim barnaskap, að vilja ekki af pólitískum ástæðum skifta 179 tölubl. Brunatryggingar J á innbúi og vörum W hvergl ódýrarf en hjá Jr A. V, Tulinius T vátryggi ngaskr S fstof u Pi iyi q Hna f Á I aqtq H i'iQI n 11 við Rússland Þau keppast nú um það, að ná sem beztum verzlunar- samningum við Sovjet stjórnina. Norðmenn gera sér t. d. miklar vonir um, að þeir geti selt til Rússlands mikinn saltfisk og sfld, jafnskjótt og samningar hafa verið undirskrifaðir. En hvað gerir fslenzka stjórnin? Fulitrúi sovjet stjórnarinnar er um þessar mundir staddur í Stokk- hólmi og semur þar bæði við Dani og Norðmenn. Hefir íslenzka stjórnin gert nokkra tilraun til að hafa tal af þessum fulltrúa? Oss finst það ómaksins vert að reyna það, þó íslenzkir fjármála- menn og stjórn landsins sé kanske það stærri upp á sig, en starfs- bræður þeirra meðal nágranna vorra, að þeim finnist annað. En vér skulum ekki að óreyndu fullyrða neytt um það. Brauðverðið. Brauðverð Alþýðubrauðgerðarinnar 6°/o lægrn en annara brauðgerða. í grein f .Vfsi" á laugardaginn um brauðverðið, eru illviijaðar dylgjur um Alþýðubrauðgerðina. — Þ*ð hefir verið svo frá byrjun með það fyrirtæki, að ýmsir skuggavaidar fjandsamlegir ai- þýðusamtökunum, hafa verið að

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.