Dagur - 11.01.1967, Síða 1

Dagur - 11.01.1967, Síða 1
L. árgangur — Akureyri, miðvikudaginn 11. janúar 1967 — 2. tbl. Dag ur kemur út tvisvar í viku og kostar kr. 30.00 á mán. í lausasölu kr. 5.00 Fiskaflinn 1966 FISKAFLI Islendinga • varð á síðasta ári 1.240 þús. lestir, og er það mesti ársafli landsmanna til þessa. I þessari tölu er aflinn áætlaður tvo síðustu mánuði ársins. Hlutur síldarinnar í þessum afla hefur enn vaxið, svo og loðna. Síldaraflinn nam 775 þús. lestum og er 12 þús. lestum meiri en árið áður. Loðnuaflinn jókst úr 75 þús. lestum 1965 í 125 þús. lestir. Bolfiskafli varð 335 þús. lestir eða um 12% minni en árið 1965. Upplýsingar þessar eru tekn- ar úr greinargerð Daviðs Ólafs- sonar fiskimálastjóra. □ Góður afii þegar á sjó hefur gefið Dalvík 10. jan. Minni dekkbátar og trillur hafa róið þegar á sjó MYRTI KONU LÖGFRÆÐINGUR í Reykjavík myrti fyrrverandi eiginkonu sína, 38 ára gamla, s.l. laugar- dag og hefur hann játað verkn- að sinn. Er þetta þriðja morðið á skönunum tíma í Reykjavík. Óhappamaðurinn heitir Þor- valdur Ari Arason en konan hét Hjördís U. Viilijálmsdóttir. Þau áttu 4 böm, öll innan ferm ingaraldurs. I fréttum er sagt, að Þorvaldur Ari hafi verið meira og minna drukkinn um tveggja mánaða skeið. □ hefur gefið og aflað vel. Um helmingur aflans er stór-þorsk ur og er hann ekki langt sóttur. Björgvin og Björgúlfur eru að búa sig á togveiðar og ætla að leggja afla sinn upp í hrað- frysthúsið hér á staðnum. Leikfélag og ungmennafélag hafa sýnt Ráðskonu bakka- bræðra 6 sinnum við góða að- sókn. Bjarmi II. er farinn á síld- veiðar. Mikil brenna var 13. jóladag hér austur á sandinum og var þar margt manna samankomið. Vegir eru greiðir og góðir en nokkur hálka. J. H. Á sunnudagsmorgna þurfa margir í mjólkurbúð. (Ljósm.: E. D.) LANDBUNAÐURINN ÁRIÐ 1966 HÉR fara á eftir nokkur efnis- leg atriði úr yfirlitserindi dr. Halldórs Pálssonar búnaðar- málastjóra, er hann flutti í út- varpið. um áramótin um land- búnaðinn á síðasta ári. Færri banaslys á síðasta ári BANASLYS á liðnu ári urðu alls 79 að því er kemur fram í skýrslu Slysavamafélags ís- lands. Er það talsvert minna en á árinu 1965, þá fórust 92 af slysförum, en árið 1964 83. Auk þessara 79 drukknuðu tveir ís- lenzkir sjómenn erlendis og einn íslendingur fórst í um- ferðarslysi erlendis. Flest dauðaslysin voru drukknanir eða 33, en 1965 drukknuðu 35. Dauðaslys í um- ferðinni urðu fleiri en á fyrra ári, eða 27, en 23 árið 1965. Flest banaslys í umferðinni urðu í bifreiðaárekstrum, eða 13, en 8 manns urðu fyrir farar tækjum og dráttarvélabanaslys urðu 6. í flugslysum fórust tveir Vænn þorskur í línu Gunnarsstöðum 9. jan. Bændur eru fremur svartsýnir hvað heyforðann snértir, því mikið er búið að gefa. Heita má að sauðfé hafi verið á fullri gjöf síðan í nóvemberbyrjun. Þótt ekki hafi verið snjó- þungt hefur tíð verið óstillt mjög. Samgöngum hefur verið haldið uppi með snjóbílum og hafa þeir því komið í góðar þarfir. Róðrar eru hafnir og fiskast vél á línu þegar gefur og er ■þorskurinn vænn. Ó. H. menn á liðnu ári (5 árið 1965) og fjórir menn létust vegna slysa á vinnústöðum. Fjórir menn létust vegna hraps eða byltu, einn fórst í bruna, einn týndist, þrír urðu úti og 4 lét- ust af völdum voðaskota. Af þeim 79 sem fórust í slys- um hérlendis voru 40 innan 25 ára aldurs, þar af 22 börn yngri en 15 ára. Mesti slysamánuður ársins var júlí, þá fórust 16 manns og næst í desember 13, og í júní 11. Fæst banaslys urðu í apríl, 2. 149 manns var bjargað frá slysum á árinu og auk þess 45 útlendingum. □ Veðurfar var landbúnaðinum óhagstætt. Heyskapur varð með minnsta móti í flestum sýslum, einkum þar sem snjóléttast var veturinn 1965—66, en heyskap- artíðin var fremur hagstæð og nýting heyja góð. Veturinn 1965 —66 voru fluttar 3.200 lestir heys til Austur- og Norðaustur lands þar sem heyskapur brást verulega sumarið 1965. Áburðarnotkun var þessi: Köfnunarefni hreint N 10.537 lestir, fosfatáburður P2Os 5.695 lestir, og kalí 3.497 lestir og er það aðeins meira en árið áður. Áburðarverð hækkaði um 10.3 —18%. Áburðarverksmiðjan í Gufunési framleiddi á árinu 22.720 lestir af Kjarna. Kornakrar voru 160 hektarar og uppskera yfirleitt fremur rýr. Heildaruppskera af kartöfl- um var 25 þús. tunnur, þar af til ,sölu um 20 þús. tunnur. Er það um fjórði hluti þess magns sem ræktað var árið áður. Tala búfjár, sem sett var á (Framhald á blaðsíðu 4.) Margir sjónleikir æfðir af kappi Vöruskiptajöfnuðurinn óhag- sfæður um 1000 millj. króna SAMKVÆMT útreikningi Hagstofunnar var vöruskipta- jöfnuðurinn við útlönd óhagstæður um rúmlega 1000 millj. kr. fyrstu 11 mánuði síðasta árs. Á sama tíma í fyrra var hann óhagstæður um 445 millj. kr. Það er ömurlegt, að slík óheillaþróun skuli verða á sama tíma og útflutningurinn er meiri en nokkru sinni fyrr. Slík- ur viðskiptahalli kemur þungt niður á næstu mánuði eða árum, í vaxtagreiðslum og afborgunum. Hinn óhagstæði verzlunarjöfnuður er háskalegur, og um leið er hann enn eitt dæmi um efnahagslegt stjómleysi. □ LEIKFÉLAG AKUREYRAR æfir um þessar mundir bama- leikritið Karamellukvörnina, sem Ámi Jónsson bókavörður þýddi úr sænsku, en Kristján frá Djúpalæk þýddi og samdi kvæðin. Leikstjóri er Guðmund ur Gunnarsson. Frumsýning er ráðgerð síðar í þessum mánuði. Þá æfa menntaskólanemend- ur sjónleikinn Biedermann og brennuvargamir undir stjórn Erlings E. Halldórssonar og hef t ur leikstjóri auk þess kennt leik list í M. A. nú í vetur. Frum- sýning verður n. k. föstudag. Á Árskógsströnd var Græna lyftan nýlega frumsýnd. Leik- stjóri er Júlíus Oddsson. Suðurleiðin var opnuð í gærdag SÍÐDEGIS í gær bárust blaðinu þær fréttir, að opnast myndi leiðin milli Akureyrar og Blönduóss. Einkum þurfti að ryðja snjó af vegum í Skaga- firði og Langadal. Víða var vatnselgur mikill eftir hlákurn- ar og á mörgum stöðum hættu- lega hálir svellbunkar. Til Húsavíkur er vel fært og allt til Tjörness. Auðbjargar- staðabrekkan var í gær talin illfær vegna svella, en bæta átti úr því og er þá fært austur í Kelduhverfi a. m. k. Vegir um S.-Þing, eru flestir færir og unnið að opnun leiðar yfir Mývatnsheiði til Helluvaðs. Dalvíkingar sýndu Ráðskonu Bakkabræðra tmdir leikstjóm Steingríms Þorsteinssonar, og (Framhald á blaðsíðu 7) BÆJARSTJORA- KJÖR 17. Þ. M. Á NÆSTA bæjarstjómar- fundi, 17. janúar, fer fram kjör bæjarstjóra í stað Magn- úsar E. Guðjónssonar, sem lætur af starfi samkvæmt eig- in ósk um n. k. mánaðamót. Þrjár umsóknir um hæjar- stjórastöðuna bárust og voru þær frá Ásgrími Ragnars full- trúa, Bjama Einarssyni deild- arstjóra í Efnahagsstofnuninni og Þorvarði Elíassyni starfs- manni hjá Kjararannsóknar- tiefnd. Bæjarhúum mun finnast tnikils um það vert, ef eining j skapast um val nýs bæjar- ; stjóra og að sem flesir bæjar- j fulltrúar styðji nýjan bæjar- ; stjóra strax í upphafi ráðn- I ingartímabilsins.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.