Dagur - 04.02.1967, Síða 1
Dagur
SÍMAR:
11166 (ritstjóri)
11167 (afgreiðsla)
L. árgangur — Akureyri, laugardaginn 4. febrúar 1967 — 9. tbl.
Síldarleitarskipið lilbúið 1. júlí
IJNNIÐ er kappsamlega að
. smíði hins nýja síldarleitarskips
íslendinga í Brook Marine í Eng
landi. Tveir íslendingar, Sigurð
. ur Lýðsson tæknifræðingur og
Jón Grímsson vélstjóri fylgjast
með smíði skipsins.
Afhendingai-tími er 1. júlí nk.
En skipið verður sjósett í þess-
um mánuði, ef allt gengur sam
kvæmt áætlun.
Skipið, sem er skuttogari, er
sérstaklega útbúið með það fyr
ir augum, að auðvelt sé að
vinna um borð í því, þrátt fyrir
það að slæmt sé í sjó og er það
fyrsta íslenzka skipið, sem þann
ig er útbúið. Vinnuaðstaða verð
ur ágæt miðað við stærð skips-
ins. Allflestir klefanna eru eins
manns klefar, en þó er gert ráð
fyrir að í fjórum klefum geti
verið tveir, ef þörf krefur. —-
Áhöfn verður 18 manns að með
töldum vísindamönnum, sem
stjórna eiga síldarleitinni.
Skipið er 500 rúmlestir brúttó
135 fet að lengd. Það á að kosta
40 millj. kr. Ríkissjóður fékk
80% af andvirði skipsins að
láni með 5(4% ársvöxtum. □
GEIMFARIÞISTILFIRDI
Þistilfirði 3. febr. Maður einn
í Sauðaneshreppi, Guðbjörn
Jóhannsson, keypti sér nýlega
vélsleða, sem gárungar nefna
geimfar. Þetta virðist vera mjög
hentugt tæki til ferðalaga í
snjó. Guðbjöm og Stefán Egg-
ertsson i Laxárdal fóru á þessu
farartæki upp um allar heiðar
í gær í leit að útigöngufé. Síð-
an um áramót hafa fundizt 12
kindur á heiðum uppi og höfðu
sumar þeirra ekki komið í rétt-
ir í haust. — Kindurnar, sem
fundust, voru í Tunguselsheiði,
Búrfellsheiði og Strandaheiði.
Áður en vélsleðinn kom til
sögunnar fóru menn leitarferð-
FUF-BINGÓ
NÆSTKOMANDI sunnudag
verður bingó á vegum FUF á
Akureyri. Þar verður margt
glæsilegra vinninga, svo sem
FLUGFERÐ TIL KAUP-
MANNAHAFNAR OG VIKU-
DVÖL Á IIÓTELI á vegum
Ferðaskrifstofunnar Sögu, —
HJÓNARÚM, RONSON-
RJÓMAÞEYTARI, STEIKARA
PANNA MEÐ HITASTILL-
INGU og margt fleira.
Hljómsveit Páls Helgasonar
og Helena Eyjólfsdótitir
skemmta.
Aðgöngumiðar verða seldir
n.k. laugardag að Hótel KEA
frá kl. 16—18 og við innganginn.
irnar ýmist gangandi, á drátt-
arvélum eða snjóbíl. Útigöngu-
féð var misjafnlega á sig kom-
ið, en sumt í góðum holdum.
Afli hefur verið sæmilegur á
Þórshöfn, þegar á sjó hefur
gefið.
Allt frá Tjörnesi og austur að
Smjörvatnsheiði eru nú meiri
svellalög en komið hafa síðan
1949 og eru tún víða þakin
svellurn. Eru menn uggandi um
gróðurinn eftir þessi miklu
svellalög.
Nýlega var stofnaður á Þórs-
höfn og nágrenni visir að karla
kór, sem Þórarinn Kristjánsson
í Holti stjórnar. Æfingar eru
tvisvar í viku og fara þeir, sem
lengst eiga, á æfingar 30 km
leið.
I sveitinni er verið að æfa
Ráðskonu Bakkabræðra og ann
an sjónleik á Þórshöfn. Ó. H.
I klakaböndum
(Ljosm.: E. D.)
Ibúlðlan fer ylir 200 þúsund nú í ár
HINN 1. des. 1965 var íbúatalan
hér á landi 193.758 og hafði þá
fjölgað um 3.528 á einu ári.
íbúatalan 1. des. 1966 liggur
enn ekki fyrir. En ef fólksfjölg-
unin 1966 og 1967 reynist svip-
uð og 1965, og jafnvel þótt hún
yrði heldur minni, er auðséð,
að íbúatalan muni einhvern
tíma á árinu, sem nú er að líða,
fara yfir 200 þúsundir. Slíkt
má telja til merkisatburða í
sögu þjóðarinnar og gefur til-
efni til ýmissa hugleiðinga um
þróun fólksfjölda < og lands-
byggðar hér á landi fyrr og
síðar.
JÓNSMESSUDRAUMURINN
SAMKVÆMT upplýsingum formanns Leikfélags Akureyr-
ar, Jóns Ingimarssonar, hefur leikfélagið ákveðið, að sýna
Jónsmessudraum Shakespeares á 50 ára afmæli félagsins,
17. ’apríl. Leikstjóri verður Ragnhildur Steingrímsdóttir. —
Æfingar hefjast innan skamms.
Leikfélag Akureyrar æfir tvo aðra sjónleiki um þessar
mundir, Á útleið, undir stjórn Ágústs Kvarans og vefður
frumsýningin væntanlega fljótt upp úr næstu mánaðamót-
um, og barnaleikritið Karamellukvörnina, sem Guðmundur
Gunnarsson sviðsetur. Frumsýning verður fyrir eða um
miðjan næsta mánuð. □
í árslok 1925 voru íbúar lands
ins rúmlega 100 þús. Hér er því
um að raeða tvöföldun íbúatöi-
unnar á 42 árum. Ef gert er ráð
fyrir, að íbúatalan tvöfaldist
hér eftir á 40 árum, sem er lág
áætlun miðað við fólksfjölgun
2—3 síðustu áratuga, ætti spá-
dómur um íbúatohi landsins á
komandi tímum að vera sem
næst því, er hér segir:
Árið 2007 ....... 400 þús.
Árið 2047 ....... 800 þús.
Árið 2087 ..... 1.600 þús.
Árið 2127 ..... 3.200 þús.
Samkvæmt þessu ættu íslend
ingar að verða 3.2 millj. eftir
160 ár. Bömin, sem fæðast í ár,
og svo langs lífs verður auðið
ættu að verða um nírætt um
það leyti, sem milljón manna
býr á íslandi.
Ýmsar skoðanir hafa verið
uppi meðal fræðimanna um
stærð þjóðarinnar á fyrstu öld-
(Framhald á blaðsíðu 7)
Bændaklúbbsfundur
verður að Hótel KEA mánu-
dagskvöldið 6. febrúar og hefst
eins og venjulega kl. 9.
Umræðuefni verður tilrauna-
starfsemi í jarðrækt. Málshefj-
andi verður Magnús Óskarsson
kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri. □
Friðrik Ólalsson slórmeist-
ari kemur um helgina
Fjórtánda flokksþing Framsóknarmanna í marz
Á FUNDI framkvæmdastjórn-
ar Framsóknarflokksins 3. jan.
sl. var samþykkt að boða til
flokksþings Framsóknarmanna
þriðjudaginn 14. marz n.k. —
Áætlað er, að flokksþingið
standi yfir í sex daga. Eins og
venja er hefst þingið með yfir-
litsræðu formanns flokksins um
stjómmálin og skýrslum ritara
og gjaldkera um innanflokks-
starfið.
í tilefni af 50 ára afmæli
flokksins verður efnt til sér-
staks hátíðarfundar laugardag-
inn 18 marz og flokksþinginu
lýkur sunnudaginn 19. marz
með afmælis- og lokahófi að
Hótel Sögu.
Framkvæmdastjórn flokksins
biður forráðamenn flokksfélag-
anna að hafa forgöngu um
fundi í félögum sínum og kjósa
fulltrúa á flokksþingið sam-
kvæmt lögum flokksins. Eins
og venja er þarf að senda skrif
stofu flokksins í Reykjavík skrá
yfir þá fulltrúa, sem kjömir eru
á þingið. □
FYRIR tilmæli Skákfélags Ak-
ureyrar kemur Friðrik Ólafs-
son hingað um helgina. Ráð-
gert er, að Friðrik sýni og út-
skýri skákir frá Ólympíuskák-
mótinu á Kúbu, í Landsbanka-
salnum kl. 4 e. h. á laugardag.
Öllum áhugamönnum í skák er
heimilt að koma og hlusta á
stórmeistarann.
Á sunnudag kl. 2 teflir Frið-
rik Ólafsson fjöltefli á sama
stað, og er öllum heimil þátt-
taka. Ættu menn að nota sér
þetta einstæða tækifæri — og
tefla við Friðrik. Menn hafi
með sér töfl. Þátttökugjald er
mjög lítið.
Skákþing Norðlendinga hefst
10. feiþrúar a. k. eins og aug-
lýst hefur verið og er búizt við
sæmilegri þátttöku.
(Frá Skákfélagi Akureyrar).
Friðrik Ólafsson, stórmeistari.