Dagur - 08.03.1967, Side 1
HOTEL Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skriístoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
L. árgangur — Akureyri, miðvikudaginn 8. marz 1967 — 18. tbl.
Ferðaskrifsfofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Sendlar með vörurnar á bakinu
Siglufirði 7. marz. Hér er nú
kominn svo mikill snjór að að-
eins er bílfært um aðalgötuna
og á sumum stöðum eru göng
grafin að dyrum húsa. Sendlar
verzlana verða að bera vörurn-
ar á bakinu heim til húsmæðr-
anna. Skaflar eru víða á aðra
mannhæð. Allt er slétt yfir að
líta, skíðafæri ágætt
Skíðamót íslends vei’ður hér
um páskana og verður þá ef-
laust margt um manninn.
Hafliði fandaði nýlega sæmi-
lega góðum afla af heimamið-
um og er væntanlegur í kvöld
eða á morgun með afla á ný.
J. Þ.
HÁKÁRL VEIDDURI VOPNAFiRDl
Ytri-Nípum 6. marz. Hákarla-
veiðar hófust hér á Vopnafirði
fyrr en undanfarin ár, eða í
febrúar. Þrjár trillur lögðu þá
línur sínar en alls munu sex
trillur stunda þessar veiðar héð
an í vetur. Þetta eru bátar af
stærðinni 2.5—8 tonna. Hver
bátur hefur 3—4 línur, en á
hverri línu eru 9—11 krókar.
Bezta beitan er selur, úldinn
eða nýr. Hákarlamiðin eru hér
úti í fjarðarmynninu, um
tveggja klukkustunda stím og
lengra þó þegar á líður, því þá
BATUR FRA
SÚÐAVÍK FÓRST
VÉLBATURINN Freyja frá
Súðavík fórst í fiskiróðri,
með' fjögurra manna áhöfn,
1. marz. Þeir sem fórust
voru: Birgir Benjamínsson,
form., Jón Lúðvík Guð-
mundsson, Páll Halldórsson
og Jón Hafþór Þórðarson. □
færir hákarlinn sig utar. Nú
þegar hafa veiðzt 10 hákarlar
og eru menn bjartsýnir um
góða veiði, ef sæmilega gefur á
sjóinn. Og ekki hefur markað-
inn vantað. Sjómenn verka há-
karlinn sjálfir. Áður var hákarl
inn veiddur vegna lifrarinnar,
en nú er minna um hana hugs-
að.
Ekki er róið til fiskjar og fá
menn helzt rauðsprettu í soðið,
sem veidd er í Núpslóninu í
net undir ísnum. Hrognkelsi er
í þessum lónum þegar lengra
líður á veturinn. En lón þessi
eru annars þekktári af laxi, er
þar gengur , og upp í Vestur-
dalsá og svo silungi, sem þar er
oft mikið af. Þ. Þ.
Tveir slökkviliðsbílar á hafnarbakkanum er eldurinn kom upp í Jóni Kjartanssyni. (Ljósm.: E. D.)
Eldur í fiskiskipinu Jóni Kjart-
anssyni frá Eskifirði
UM kl. 15 á mánudaginn kom
upp eldur í hinu góðkunna fiski
skipi, Jóni Kjartanssyni fi’á
Eskifirði, þar sem það lá við
Torfunefsbryggju. — Nokkrar
skemmdir urðu í vistarverum
áhafnar áður en slökkviliðið
réði niðurlögum eldsins.
f fyrrinótt brann bærinn
Bakki í Glerárhverfi til kaldra
kola. Fólk var þaðan flutt fá-
um dögum áður, en húsið var
þó hitað upp. Slökkviliðið og
lögregla kom á staðinn. Vegur
þangað var þungfær. Vatn náð-
ist ekki. Hús það, er hér rnn
ræðir, var lítið og nokkuð við
aldur og stóð norðan Glerár
litlu ofar en gamla rafstöðin.
(Frá lögreglunni.)
FJÖGURRA HREPPA SKÖLIA FLJÖTSDALSHÉRAÐI
NÝJA BENSINIÐ
í FYRRADAG hófst sala á hinu
nýja 93 oktana benzíni. Gamla
benzínið var með oktantöluna
87. Samtímis hækkaði benzín-
Verðið um 35 aura lítrinn, en sú
verðhækkun á að vinnast upp
með betri nýtingu. Q
SVEITARFÉLÖG hafa á síðari
árum og á ýmsum stöðum haft
samvinnu um úrlausn í fræðslu
málum, stundum tvö eða jafn-
vel nokkur. Laugalandsskóli á
Þelamörk er dæmi um eyfirzka
samvinnu í þessu efni og komu
fjórir hreppar þar upp myndar
legum heimavistarbai-naskóla.
Austur á Héraði, í hinum víð
fræga og fagra Hallormsstaða-
skógi, var í sumar risin ný og
mikil bygging, heimavistar-
barnaskóli fyrir fjóra hreppa,
Valla-, Skriðdals-, Fljótsdals-
og' Fellahreppa. Þar hófst
kennsla 12. janúar nú í vetur.
Skólastjóri er Guðjón Jónsson
frá Hólmum í Reyðarfirði.
Staðurinn er undrafagur. Þar
nærri er húsmæðraskóli, reist-
ur 1930, og þar er líka gamall
bóndabær, Hallormsstaður, og
auk þessa þrjú íbúðarhús og á
Mörkinni er aðsetur starfs-
manna skógræktar ríkisins. —
Hallormsstaðaskógur veitir
skjól, sem aðrir skólastaðir
njóta ekki hér á landi. Og hann
eflir trú allra, er þangað koma,
á gróðurmoldina og lífsmátt
trjánna. Trén tala til manna á
því máli, sem ekki verður mis-
skilið.
Ég kom í sumar í Hallorms-
staðaskóg, en hafði komið þar
áður svo mér kom skógurinn
ekki ókunnuglega fyrir sjónir.
Mér gafst tími til að virða fyrir
mér vöxt barrtrjánna frá síð-
ustu heimsókn. Vera má, að það
sé tilgangslítið að skrifa um
Vðxandi kosningahrollur í Sjálfstæðismönnum syðra
Hafa fengið ofnæmi fyrir útvarpsþáttum
NÚ í VETUR hefur Ólafur
Grímsson frá ísafirði, ungur
maður, háskólamenntaður,
haft á hendi stjórn á nýjum
útvarpsþætti sem nefndur er
Þjóðlíf. Eru þetta viðtöl við
fólk á ýmsum aldri og úr ýms
um stéttum og hafa þau yfir-
leitt mælzt vel fyrír.
Einn þessara þátta var tek-
inn á segulband í Vestmanna-
eyjum og þar rætt við útvegs-
menn og sjómenn. Eftir flutn
ing þess þáttar bar það til tíð-
inda að ritstjórar Morgun-
blaðsins stukku upp á nef sér
og réðust með ofstopa á Ólcif
Grímsson. ‘Sögðu hann vera
Fl-amsóknarmann og hafa
sýnt pólitíska hlutdrægni við
upptöku Vestmannaeyjarþátt
arins. Héldu því þó fram í
öðru orðinu að þáttur þessi
hefði verið ríkisstjórninni til
framdráttar. Síðan hefur
Morgunblaðið lagt Ólaf Gríms
son í einelti svo furðu hefur
vakið.
Nú nýlega átti svo stjórn-
andi þáttarins tal við fimm
lækna og einn stjórnarráðs-
fulltrúa um heilbrigðismál.
Var þar meðal annars rætt
um Slysavarðstofuna í Reykja
vík, en þegar til kom bannaði
meirihluti útvarpsráðs að
flytja heilbrigðismálaþáttinn í
útvarpinu á tilsettum tíma.
Út af þessu hafa orðið miklar
umræður í Reykjavíkurblöð-
unum. Læknamir fimm og
stjórnarráðsfulltrúinn hafa
birt mótmælagreinargerð í
blöðunum og andmælt ásök-
unum Morgunblaðsins á Ólaf
Grímsson, að því er þennan
þátt varðar.
En ritstjórar Morgunblaðs-
ins sitja við sinn keip, segja a'ð
Ólafur Grímsson sé „launaður
erindreki Framsóknarflokks-
ins“ til þess settur að „brjóta
hlutleysi útvarpsins". Er
Morgunblaðinu þetta naumast
sjálfrátt, og gizka menn á að
kosningahræðsla valdi þeirri
taugaveiklun sem hér er sýni-
lega á ferðum.
Manni verður á að spyrja:
Eru ekki útvarpsráðsmennim-
ir þrír, sem bönnuðu lækna-
þáttinn, launaðir erindrekar
stjórnarflokkanna? Og er for-
maður útvarpsráðs, Benedikt
Gx’öndal, ekki launaður i’it-
stjóri hjá Alþýðuflokknum?
Er útvarpsráðsmaðurinn Sig-
urður Bjarnason ekki launað-
ur ritstjóri hjá Sjálfstæðis-
flokknum? Er útvarpsráðs-
maðurinn Þorvaldur Garðar
Kristjánsson ekki launaður
framkvæmdarstjóri Sjálfstæð
isflokksins?
Hvað geta svo þessir menn
(Framhald á blaðsíðu 2).
þann skóg, nema sem hvatningu
til fólks um að koma þar og sjá.
Á hæð einni ofan við húsmæðra
skólann sézt vel yfir mikinn
hluta skógarins, og skólastað-
irnir blasa við. Niður við Lagar
fljót er Atlavík með sína sér-
stæðu fegurð. Nær miðju skóg
arins er gróðrarstöðin. En á
meðan björk og barrviðir sofa
vetrarsvefni í Hallormsstaða-
skógi, nema húsmæðraefni nyt-
söm fræði í sínum skóla og börn
in undirstöðu almennrar mennt
unar í nýja skólanum. Nemend-
ur beggja skólanna njóta að
hluta tilsagnar sömu kennara
og getur farið vel á því þar sem
skólar eru í nábýli. Börnin eru
um 70 talsins í þessum fjórum
(Framhald á blaðsíðu 2.)
IÍVÖLDVERÐAR-
FUNDUR FUF
FUF Á AKUREYRI heldur
kvöldverðarfund n.k. föstudag
að Hótel KEA og hefst hann
með borðhaldi kl. 7.30 e. h. Um
ræðuefni fundarins verður
„Málefni Norðurlands". Frum-
mælandi verður Áskell Einars-
son frá Húsavík. Að lokinni
framsöguræðu verða frjálsar
umræður. Félagar eru hvattir
til að fjölmenna og taka með
sér gesti. □