Dagur - 11.03.1967, Side 1
H*rborgis-
pantanir.
Ferða-
skrifstoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
L. árgangur — Akureyri, laugardaginn 11. marz 1967 — 19. tbl.
Ferðaskrifstofani
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
ÞINGEYSKUR SNJÓR
ER HVÍTASTUR
Oíeigsstöðum, Kinn, 9. marz.
í dag skein vetrarsól yfir hvíta
jörð og mikið fannfergi. Nú er
ekki sólskins skúra blæja held-
ur frost og harðindi. En snjór-
inn er hvítari hér í Þingeyjar-
sýslu en nokkur annar snjór,
Svo talað sé á þingeyska vísu.
Fyrir fáum dögum áttu gull-
brúðkaup hjónin Klara Arn-
grímsdóttir og Marteinn Sig-
urðsson Yztafelli. Þann dag
var versta veðui', nær ófært um
sveitina og auk þess stórhríðar-
spá. En hjónin gerðu sér samt
dagamun, því að þau gáfu ung--
mennafélagi sveitarinnar mynd
arlega peningagjöf í tilefni dags
ins.
Það hefur sett niður geysi-
mikinn snjó í logni. I gær var
erfitt bílfæri og svo blindað að
menn óku útaf. En nú eru komn
ar slóðir, stórum bílum sæmi-
legar. B. B.
Guðjón Einarsson tók þessa mynd af brunanum mikla í Lækjargötu í gærmorgun.
Stórbruni í Reykjavík
ÁHUG! Á RÆKJUVINNSLU
Á SAUÐÁRKRÓK!
Sauðárkróki 10. marz. Hér hef-
ur verið skíðanámskeið sem
hófst á laugardaginn fyrir börn
á aldrinum 7—12 ára og er á
vegum æskulýðsnefndar ung-
Lisfi Alþýðu-
bandalagsins
LISTI Alþýðubandalagsins í
Norðurlandskjördæmi eystra
var birtur í gær. Listann skipa
þessir menn:
Björn Jónsson, Hjalti Haralds
son, Benoný Arnórsson, Sveinn
Júlíusson, Gunnar Eydal, Freyr
Bjarnason, Angantýr Einars-
son, Páll Árnason, Hörður
Adólfsson, Sveinn Jóhannesson,
Þór Jóhannsson og Tryggvi
Helgason. <□
mennasambandsins og Tinda-
stóls. Mikil þátttaka er í nám-
skeiðinu og munu 80—100 börn
sækja það. Næsta laugardag
hefst einnig skíðanámskeið á
Hofsósi á vegum æskulýðs-
nefndar og Höfðstrendings.
Bátar eru að byrja að leggja
netin núna og er fyrsta um-
vitjun í dag. Forsvarsmenn
Fiskiðju Sauðárkróks og verka
kvennafélagsins Öldunnar
flugu í gær til Hólmavíkur til
þess að kynnast af eigin raun
rækjuvinnslu. En hér er mikill
áhugi fyrir þessari grein og hef
ur Fiskiðjan hér verið með til-
raunir í því sambandi og rækj-
an þá flutt af Húnaflóamiðum á
bílum frá Hvammstanga. —
Vænta Sauðárkróksbúar þess
að hér takist vel til, og að þetta
kunni að bæta eitthvað úr því
tímabundna atvinnuleysi sem
hér er. St. G.
Þrjú íbúðarhús brunnu í gærmorgun til kaldra kola
og tugmilljóna t jón varð á húsi Iðnaðarbankans
í GÆRMORGUN kom
upp eldur í Lækjargötu
12 í Reykjavík og var
slökkviliðið kallað út kl.
5.28, og síðan slökkviliðið
á Reykjavíkurflugvelli. —
Dagur leitaði upplýsinga
um brunann hjá Rúnari
Bjarnasyni slökkviliðs-
stjóra og sagðist honum
efnilega svo frá:
Kvaðningin kom frá lög-
reglunni og varð strax ljóst
að um mikinn eldsvoða væri
að ræða og var allt varaliðið
þegar kallað á vettvang.
Eldurinn var í Lækjargötu
12, tveimur samstæðum
timburhúsum A og B. Lækj
argata 12 var alelda þegar
slökkviliðið kom á staðinn
og leið ekki nema örstutt
stund þangað til að rúður á
suðurgafli Iðnaðarbankans,
nýlega byggðu fimm hæða
steinhúsi, brotnuðu' af hitan-
mn. Endurinn læsti sig þá í
gegnum þessa glugga jafn-
óðum og þeir brotnuðu og
komst inn á fjórar efri hæð-
ir hússins. Afgreiðslusalinn
á fyrstu hæð tókst að verja
enda ekki gluggar þar á suð
urgaflinum. Verðmæt skjöl
bankans brunnu ekki. Lang-
mest fjárhagslegt tjón varð
í þessu húsi. En samstæðu
húsin, Lækjargata 12,
brunnu til kaldra kola svo
og Vonarstræti 2, áfast timb
urhús. Mörg önnur hús voru
í hættu svo sem gamla Iðn-
skólahúsið og Iðnó og auk
þess húsnæði Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur.
Vatni var náð úr Tjörninni
og úr nálægum brunahönum
í Kirkjustræti. Við fengum
til aðstoðar slökkviliðið á
Reykjavíkurflugvelli sem
með sínum nýja dælubíl var
til ómetanlegs gagns. Eiimig
fengum við aðstoð nokkurra
lyftubíla, sem auðvelduðu
slökkvistarfið. Ekki er vitað
til að fólk liafi slasazt í elds-
voða þessum nema kona ein
brenndist lítilsháttar. Auk
þriggja húsanna, sem
brunnu til kaldra kola skipt-
ir brunatjónið í húsi Iðnaðar
bankans eflaust milljóna-
tugum. □
BJARMIII LOSNAÐI AF SKERJAGARÐINUM
BJARMI II frá Dalvík, sem
strandaði á mánudagskvöldið
austan við Stokkseyri, náðist í
gærmorgun á flóðinu af skeri
því sem hann stóð á og var dreg
inn upp í mjúka sandfjöruna.
Þar liggur hann nú. Var gengið
þurrum fótum fram að skipinu
á fjörunni í dag.
Ræðustóll frjálsrar hugsunar brotinn
MEÐ RÉTTU hefur það sagt
verið, að Ríkisútvarpið ætti
að vera ræðustóll frjálsrar
hugsunar og vettvangur um
ræðna um hin margþættu
mál einstaklinga og þjóðar,
bæði andleg og veraldleg,
innan ramma siðmannlegrar
framsetningar og undir
stjórn útvarpsráðs og á
ábyrgð þess eins.
Hér á landi hefur stofnun
in verið talin frjáls, eins og
í öðrurn menningarlöndum.
Nú hefur verið brotið blað
í þessu efni. Meirihluti út-
varpsráðs hefur hlýðnast
ríkisvaldinu og bannað vin-
sælan útvarpsþátt, Þjóðlíf.
Þetta er hneyksli, sem fjöldi
manns úr öllum stjórnmála-
flokkum hefur fordæmt og
jafnframt hafa þeir skorað á
útvarpsráð að endurskoða af
stöðu sína og flytja þátt
þann um heilbrigðismál, sem
ríkisstjórnin lét banna flutn
ing á. Með því að banna þátt
inn Þjóðlíf, hefur ríkisstjóm
in tekið í sínar hendur stjórn
á dagskrá útvarpsins. Frelsi
og lýðræði er í hættu statt.
Ræðustóll frjálsrar hugsun-
ar í Ríkisútvarpinu brotinn
niður af einræðistilhneig-
ingu ráðherra. Q
Margskonar hjálpartækjum
hafði verið komið fyrir í landi
til þess að draga skipið inn fyrir
skerjagarðinn, en lítið reyndi á
þau. Gert hafði verið til bráða-
birgða við botngöt skipsins og
háflæðið í gærmorgun lyfti skip
inu að mestu upp af skerinu.
Örskammt frá er renna gegn-
um skerjagarðinn og standa
vonir til að þar verði hægt að
draga skipið út á háflæði og í
brimlausum sjó.
(Samkv. viðtali við Stefán
Jasonarson í Gaulverjabæ).