Dagur - 15.04.1967, Qupperneq 2
2
KAPPRÆÐUFUNDUR UNGRA MANNA
EINS OG GETIÐ hefur verið í
blaðimi, skoraði Vörður félag
ungra Sjálfstæðismanna á unga
Framsóknarmenn á Akureyri
til kappræðna um utanríkis-
og varnarmál. Fór fundurinn
fram sl. þriðjudagskvöld í Sjálf
stæhishúsinu við húsfylli eða
um 300 manns.
Frummælendur voru Ingólf-
ur Sverrisson frá FUF og Hall-
dór Blöndal frá Verði. Auk
þeirra tóku til máls frá ungum
Framsóknarmönnum Svavar
Ottesen, Jón Baldvinsson og
Jón Davíðsson, og frá Verði
Herbert Guðmundson og Svan-
ur Kristjánsson.
Fundarstjórar voru þeir Karl
Steingrímsson form. FUF og
Sigurður Sigurðsson form.
Varðar.
í upphafi ræðu sinnar rakti'
Ingólfur Sverrisson í stuttu
máli sögu utanríkis- og varn-
armála íslands frá því að ís-
lendingar tóku við þeim málum
úr höndum Dana. Lagði hann
m. a. áherzlu á þann fyrirvara,
sem íslendingar gerðu við inn-
gönguna í Atlantshafsbanda-
lagið, og sem hinar bandalags-
þjóðirnar tóku fullkomlega til-
lit til, að ekki yrði her á ís-
landi á friðartímum.
Gat hann þess, að það væri
aðeins á valdi íslendinga sjálfra
að ákveða hvenær erlent her-
lið væri hér á landi. Sagði hann
að íslendingar mættu aldrei
hætta að gera það upp við sig
hvenær ástandið væri þess eðl-
is að það réttlætti dvöl erlends
hers hér á landi; öll þessi mái
væru þannig, að þau krefðust
sífellds mats og stöðugrar um-
hugsunar á þessum málum.
Vék hann síðan að tillögum
ungra Framsóknarmanna frá
því í haust, sem greina á um
brottflutning bandaríska hers-
i.ns, og að við íslendingar tækj-
um við viðhaldi þeirra mann-
virkja, sem hér eru á vegum
NATO og auk þess yrði íslend-
ingum falið að annast rekstur
þeirra ratsjárstöðva, sem eru
hér á landi. Lýsti ræðumaður
síðan með dæmum hve hrapa-
lega núverandi valdhöfum hefði
tekizt í samskiptum við aðrar
þjóðir, hvernig íslenzkir vald-
hafar hafa raunverulega gefizt
upp við að mynda sér sjálfstæð
ar skóðanir og látið undan þrýst
ingi utanfrá og þannig hafi
skoðanir núverandi valdhafa að
eins verið bergmál frá vissum
stórveldum. Um þetta sagði
hann m. a.: „Við verðum að
gera okkur grein fyrir þeirri
þjóðemislegu hættu, er skapast
við það þegar aðrir eru látnir
hugsa fyrir okkur og stefna
þannig að því að gera íslenzka
VORRIGNING OG
VATNAVEXTÍR
Blönduósi 13. apríl. Hér er vor-
rigning og hlýindi. Snjórinn
rennur niður og töluverðir
vatnavextir eru í héraðinu. Veg
ir eru allir færir ennþá og ekki
vitað um skemmdir vegna flóða.
Blanda hefur enn ekki rutt sig,
en búast má við einu og öðru af
hennar hálfu þegar hún hristir
af sér klakaböndin.
Húnavökunni lauk á sunnu-
daginn og munu hátt á þriðja
þúsund manns hafa sótt hana,
enda margt til skemmtunar.
Mislingar hafa stungið sér nið
ur hér á Blönduósi og breiðast
töluvert út og lagzt nokkuð
þungt á suma. Ó. S.
þjóðarsál að múgsál, sem hefur
gefizt upp við að hugsa sem
sjálfstæð heild og þá um leið
misst fótanna í hinni eilífu bar-
áttu alls þess, sem telur sig sjálf
stætt, en sú barátta felst í and-
stöðunni gegn múgsefjun. Það
er hins vegar aðalsmerki sjálf-
stæðs einstaklings svo og sjálf-
stæðrar þjóðar að kappkosta að
rækta með sér sjálfstæða dóm-
greind, sem er sér þess þó með
vitandi að viðkomandi er hluti
heildar, meðlimur í fjölskyldu
þjóðanna, en tekur þó sjálf-
stæða afstöðu og réttlætir með
þvi tilverurétt sinn.“
Leiddi hann síðan rök að því,
að ástandið í heiminum og.þó
einkum í Evrópu væri nú svo
gott, að sjálfsagt væri að fylgja
nú fram þeim fyrirvara, sem
ísland setti með aðild sinni að
Atlantshafsbandalaginu. Vitn-
aði hann í orð leiðandi manna
svo og afstöðu ríkisstjórna, og
er það álit þessara aðila, að
,,'kalda íjtríðinu" væri (nú að
mestu lokið. Hefðu þeir því lagt
til, að herafli NATO í Evrópu
yrði stórminnkaður, enda
ástandið allt annað og betra en
það var, þegar þessar hersveitir
voru staðsettar þar. Það væri
því bæði rétt og skynsamlegt að
framfylgja þeim vilja Alþingis,
að ekki yrði her hér á landi á
friðartímum.
Vék Ingólfur síðan að því,
hvernig háttað yrði hlutverki ís
lendinga ef þeir tækju að sér
viðhald varnarmannvirkja
NATO og ratsjárstöðvanna.
Taldi hann, að íslendingum ætti
að vera þetta í lófa lagið, ekki
sízt þegar gert væri ráð fyrir
því, að kostnaðurinn greiddist
sameiginlega af ríkjum NATO.
Benti hann að síðustu á, að sam
tök skólamanna, sem nefndu sig
„Vörn“ hefðu Iagt til að farin
yrði mjög svipuð leið og felst í
tillögum ungra Framsóknar-
manna um brottflutning hers-
ins. Væri félagsskapur þessara
skólamanna algjörlega ópóli-
tískur og hefði engin efast um
einlægan ásetning þessara
mætu manna að gera aðeins
það, sem þeir teldu rétt og
skylt, þótt svo að sumir Sjálf-
stæðismenn beri ekki gæfu til
að vera þeim sammála í þessu
efni.
í framsöguræðu og málflutn-
ingi ungra Sjálfstæðismanna
kom ekkert á óvart. Þeir, sem
ekki gátu slegið um sig með
bröndurum og öðrum furðuleg-
um tiltækjum, tóku til að velta
fyrir sér efnahagsbandalögum
og markaðsbandalögum hér og
þar, enda þótt framtíð þeirra
sé svo óviss og óráðin, að ekki
verði með nokkru móti sagt um
hver eða hvernig framtíð þeirra
verður, og ekki einu sínni ung-
ir Sjálfstæðismenn. Með þessu
reyndu þeir að komast hjá því
að ræða tillögur ungra Fram-
sóknarmanna og brottflutning
bandaríska hersms. Það varð
því ekki lítill úlfaþytur hjá ung
um Sjálfstæðismönnum, þegar
einn ræðumanna ungra Fram-
sóknarmanna benti á þá stað-
reynd, að einn þeirra þriggja,
sem tóku til máls fyrir unga
Sjálfstæðismenn hefði lýst því
yfir a. m. k. tvisvar á fundum,
að hann teldi tillögur ungra
Framsóknarmanna raunhæfar
og skynsamlegar. Það væri því
furða að hann minntist ekki
Sauðárkróki 13. apríl. Mikill
áhugi er hér á Sauðárkróki fyr-
ir hestamennsku og munu Sauð
árkróksbúar eiga á þriðja
hundrað hi-oss. Nú er algeng
sjón að sjá ungt fólk í hópi
hestamanna á sínum eigin gæð-
ingum og er það vel. Á vegum
hestamannafélagsins Léttfeta,
er nú rekin hér tamningastöð
og eru þar 26 hestar. Tamninga
menn eru þeir Reynir Stefáns-
son og Stefán Hólm. Hesta-
mannafélagið er að leita fyrir
sér hjá bæjaryfirvöldum um
aðstöðu fyrir sameiginlegt hest
hús. Einnig þarf að byggja nýj-
II ■ l' >'• 1 [ " '
einu orði á þær nú. Þeg-
ar tillögur ungra Framsókn-
armanna höfða jafnvel til
þeirra, sem tala fyrir unga Sjálf
stæðismenn opinberlega þá er
engin furða, þó að skjálfta setji
að mönnum í þeim herbúðum
og í fátinu reyni þeir að breiða
yfir þessa „synd“ hins trausta
hlekks með óskiljanlegum
kúnstum og látalátum. Þá sjald
an að ungir Sjálfstæðismenn
minntust á brottflutning hers-
ins skein í gegnum allt þeirra
tal, að ef hann færi myndu ein-
hver eða einhverjir taka landið
herskildi, en hverjir það yrðu
vissu þeir ekki. Varla vrðu það
Rússar, ef mark má taka á ung
um Heimdellingi, sem sagt hef-
ur að „það sé vart til nokkur
maður, sem býst við rússneskri
árás í dag.“ Það væri því að von
um að einn ræðumanna ungra
Framsóknarmenn spyrði hvort
Sjálfstæðismenn óttuðust upp-
reisn innanlands, eða hvað þeir
væru hræddir við, úr því að
þeim stendur ekki stuggur af
Rússum.
Þannig mótaðist málsflutn-
ingur ungra Sjálfstæðismanna
af viðhorfum, sem giltu fyrir
an skeiðvöll og fleira fyrir þessa
starfsemi. Hér er hreyft merki-
legu máli, og er það von manna,
að það fái góðar undirtektir.
Loðna er gengin í Skagafjörð
og virðist mikið magn af henni
hér útifyrir. í dag veiddist
nokkuð af henni hér og tók
Fiskiðjan hana til beitufryst-
ingar.
Hér hefur rignt og má búast
við að vegirnir þoli það ekki,
svo viðkvæmir sem þeir eru nú.
Vatnavextir eru allmiklir en
skemmdir af vatnavöxtum hafa
ekki orðið. S. G.
1 f, *, ▼ r, ,\ * ■ .» r, V y G J
VILJA BYGGJA SAMEIGINLECT
HESTHÚS Á SAUÐÁRKRÓKI
Sveit Harðar
Steinbergssonar
Frá aðalfundi Knattspyrnufélags Akureyrar:
KA-íélagar sigursæiir síðasfi. ár
Félagið minnist 40 ára afmælis sins á næsta ári
AÐALFUNDUR KA var hald-
inn sl. mánudagskvöld í Sjálf-
stæðishúsinu og var fundurinn
fjölmennur.
NORÐURLANDSMÓT
NORÐURLANDSMÓTI í hand
knattleik lýkur um helgina, og
mæta Ilúsvíkingar til leiks, ef
bílfært verður til Akureyrar.
Um helgina fara fram þessir
leikir:
Laugard. 15. apríl kl. 4 e. h.
4. fl. karla Þór—Völsungur.
2. fl. kvenna Þór—Völsungur.
3. fl. karla KA—Völsungur.
2. fl. karla KA—Þór.
Sunnud. 16. apríl kl. 2 e. h.
4. fl. karla KA—Völsungur.
2. fl. kvenna KA—Völsungur.
3. fl. karla Þór—Völsungur.
Mífl. karla Þór—KA.
Knútur Otterstedt, formaður,
flutti skýrslu stjórnar og kom
þar margt fram, m. a. að fjár-
hagur félagsins væri all-góður,
enda veitti ekki af, því fyrir-
hugaðar væru framkvæmdir
sem fyrst við hið nýja íþrótta-
svæði er bæjarstjórn Akureyr-
ar úthlutaði félaginu, en það er
ofan aðalspennistöðvar, sunn-
an Þingvallastrætis.
Formaður ræddi einnig um
40 ára afmælis félagsins, sem er
27. janúar 196S, og verður þess
minnzt með ýmsu móti.
Þá skýrðu formenn hinna
ýmsu deilda frá starfsemi
þeirra og kom þar fram að KA-
félagar voru sigursælir í hinum
fjölmörgu íþróttamótum, sem
þeir tóku þátt í á síðasta ári.
Knútur Otterstedt var endur
kjörinn formaðui'. — Nánar
verður sagt frá aðalfundinum
síðar í þlaðinu. Q
sigraði
SÍÐASTA umferð í sveitahrað
keppni B. A. var spiluð síðastl.
þriðjudag. Keppnin var mjög
tvísýn allan tímann. Heildarúr-
slit urðu þessi:
stig
Sveit Harðar Steinbergss. 1169
— Soffíu Guðmundsd. 1168
— Mikaels Jónssonar 1147
— Knúts Otterstedt 1116
— Baldvins Ólafssonar 1105
— Halldórs Helgasonar 1094
— Gunnl. Guðmundss. 106þ
— Guðm. Guðlaugss. 1051
— Óðins Árnasonar 1012
— Skarph. Halldórss. 1011
— Magna Friðjónss. 945
Næsta keppni félagsins verð-
ur firmakeppni.
mörgum árum, en eru í engu
samræmi við alla þá jákvæðu
þróun, sem orðið hefur í
Evrópu undanfarið. Það er því
engin furða, þó þeir vakni oft
við vondan draum, þegar stað-
reyndirnar stangast á við mál-
flutning þeirra. Q
- SAMVINNA?
(Framhald af blaðsíðu 1).
fyrirtækis. Til þess að reksbur
þess geti talizt sæmilegur þurfa
mikil verkefni að vera fyrir
hendi. Með auknu olnbogarými
Norðurflugs hf. verður þá held
ur ekki komizt hjá samkeppni
við Flugfélag íslands.
Með þetta í huga virðist um
tvær leiðir að velja: Samkeppni
við F. í. eða einhverskonar sam
vinna milli þessara flugfélaga.
Blaðinu er um það kunnugt, að
viðræðui' um samvinnu hafa
farið fram. Um árangur er blað
inu hins vegar ekki kunnugt.
Samkeppni er að sjálfsögðu góð
og oft hrein nauðsyn. En hvort
rekstursgrundvöllur er fyrir
Norðurflug hf., miðað við þotu-
kaupin, og aðra svipaða flug-
starfsemi á sama svæði skal ó-
sagt látið. Hins vegar liggur
Ijóst fyrir, og hefur nú í vebur
komið glöggt fram, að minni
flugvélar henta vel til -fram-
haldsferða Ff, samanber flug til
Norðausturlands nú í vetur. Sú
samvinna gaf góða raun.
Innan tíðar munu línurnar
skýrast í máli þessu. Svo virð-
ist, sem stjórn F. f. hafi áhuga
á samvinnu við Norðurflug hf.
Sé svo, er það Norðurflugs hf.
að velja eða hafna, setjast að
samningaborði eða hefja sam-
keppni. Séu verkefni nægileg,
munu mai'gir líta svo á, að sam
keppnin sé æskileg til góðrar
þjónustu. Ef þau eru það ekki,
mun annai' sigra en hinn falla,
samkvæmt lögmáli samkeppn-
innar. Q
5 - flÍYáú VérSiir ibyggt
(Framhald af blaðsíðu 1)
skilmálum fyrir þetta svæði.
Síðar í vor mun bærinn aug-
lýsa lóðir á þessu svæði. Gert
er ráð fyrir, að nyrzt á þessu
svæði, næst Þingvallastræti og
allt vestur að spennistöðinni,
verði blokkhús, en síðan
koma raðhús og enn sunnar,
við væntanlega götu, einbýlis-
hverfi. Álfabyggðin verður
framlengd vestur. En auk þessa
nýja byggðasvæðis, sunnan
Þmgvallastrætis og vestan Mýr
arvegar eru svo lóðir hér og
þar, bæði fyrir einbýlishús, rað
hús og fjölbýlishús, samanlegt
20 íbúðir.
Enn sem fyrr er hinn mikli
byggingakostnaður of mörgum
ofvaxinn. Hinar merkilegu upp
lýsingar úr höfuðborginni, þar
sem byggingarfélagi hefur tek-
izt að byggja í stórhýsi mis-
stórar íbúðir fyrir nálega helm
ingi lægra verð en gangverð
íbúða er talið vera þar um slóð
ir, knýr enn á alhliða endur-
skipulag íbúðabygginga og við-
unandi svör við þeirri spurn-
ingu, hvort ekki er einnig hægt
að lækka byggingarkostnaðinn
hér á Akureyri.