Dagur - 15.04.1967, Blaðsíða 8
8
LISTAVERKASÝNING
í SKÍÐAHÓTELINU
í HIÍÐARFJALLI
UM HELGINA verður opnuð
listsýning í Skíðahótelinu í Hlíð
arfjalli. Frií Halia Haraldsdótt
ir frá Siglufirði sýnir þar vatns
lita- og mosaikmyndir. Frú
Halla er orðin þekkt listakoná
hér norðanlands, og hefur áður
haldið sýningu hér á Akureyri
og á Siglufirði.
Sýning þessi er jafnframt
sölusýning og verður frúin við-
stödd í Skíðahótelinu fyrstu
daga sýningarinnar.
Myndin var tekin við vígslu
nýja Sjúkrahússins á Siglufirði
15. des. sl. Frú Halla stendur
þar hjá mynd sinni, sem þar var
afhjúpuð og er í anddyri Sjúkra
hússins. □
} Atvinna er næg á Siglufirði
Siglufirði 14. apríl. í dag eru
fimm dagar eftir af vetrinum og
ef svo heldur sem horfir verður
mest allur snjór farinn af lág-
lendi í Siglufirði á sumarmál-
um og er það meira en nokkur
þorði að álykta fyrir viku síðan.
Hlákan hefur verið mjög hag-
stæð, úrkoma lítil með hlýind-
um og sunnangolu, hiti 7—14
stig allan sólarhringinn. Vorið
er komið og kolmórauðir lækir
fossa eftir götunum.
Eins og áður er getið var
Skíðamót íslands haldið í Siglu
firði um páskana. Var veður
mjög óhagstætt og samgöngur
við Siglufjörð mjög lélegar og
er það furðulegt tómlæti hins
opinbera og mikil mildi að ekki
hlutust slys af. Drangur var
eina farartækið sem hélt sam-
bandi við Siglufjörð og bjarg-
aði því sem bjargað varð. En
honum reyndist ekki kleift að
anna því hlutverki sem þurfti
með. Enda urðu keppendur og
gestir mikið færri en til stóð og
sýndu þó margir þeim mikinn
dugnað og árræði við að komast
á mótsstað. Snjór var meiri en
nógur og var allt á kafi og tor-
KRAPÁELGURILANDI OG
GRÁSLEPPUMERGÐ í SJÓ
Ólafsfirði 13. apríl. Hlýindi hafa
verið hér undanfarna daga og
snjórinn hverfur eins og dögg
fyrir sólu þessa daga. Mikill
vatnsflaumur er í bænum og
götur þær, sem ekki voru áður
hreinsaðar, eru að verða ófærar
vegna kraps. Þar sem voru smá
lækir, eru nú talsverðar ár.
Erfitt hefur verið með mjólk
urflutninga hingað en bændur
hafa notað beltadráttarvélar.
Bíll sá, sem flytja á skólabörn
úr sveitinni varð að hætta og
bömin hafa ekki getað sótt skól
ann síðan um mánaðamót febrú
ar—marz. Vonandi verður hér
Sameiginlegur fimdur
F ramsóknarf élaganna
FRAMSÓKNARFÉLÖGIN á
Akureyri efna til sameiginlegs
fundar á skrifstofu Framsóknar
flokksins n.k. mánudagskvöld
kL 20.30.
F undarefni: „Stjórnmálavið-
horfið og kosningaundirbúning
ur“ Frummælendur verða þeir
Stefán Valgeirsson bóndi og
Jónas Jónsson ráðunautur.
Allt Framsóknarfólk hvatt til
að fjölmenna stundvíslega. Q
komið upp heimavist til þess að
sveitabörnin tapi ekki eins mik
illi kennsluv ognú hefur orðið
ráunin á og eins í fyrravetur.
í dag komu börnin í fyrsta
skipti í skólann eftir samgöngu
teppuna.
Lítið aflast nema af grá-
sleppu. Af henni veiðist mjög
mikið hjá þeim, sem þá veiði
stunda. Hrognin eru söltuð en
ekki er búizt við hærra verði
en svo sem 1400—1600 kr. fyrir
tunnuna í stað 6 þús. kr., sem
áður var. Og auðvitað dregst
veiðin saman vegna verðfalls-
ins, þótt veiði sé mjög mikil hjá
þeim fáu, sem leggja hrogn-
kelsanet.
Vonir standa til, að Múlaveg
ur verði opnáður eftir helgina.
Sérleyfi á ferðum hefur Gunn-
ar Jónsson fengið og verða þær
sameinaðar Dalvíkurferðunum.
Skemmtanálíf hefur verið
töluvert undanfarið. Um pásk-
ana var sjónleikurinn „Maður
og kona“ sýndur undir leik-
stjórn Kristjáns Jónsonar. Síð-
ar sýndi Leikfélagið leik þenn-
an á Sigluíirði. Um síðustu
helgi hélt karlakórinn sam-
söng, annan á yetrinum, og var
(Framhald á blaðsíðu 7.)
veldaði það alla framkvæmd
mótsins. En þó fór mótið hið
bezta fram og varð mótsstjóm
og Siglfirðingum til hins mesta
sóma. Mörg hundruð Siglfii'ð-
ingar lögðu hönd að verki, að
svo mætti verða. Mótsstjóri var
Sverrir Sveinsson rafveitu-
stjóri. Sunnlendingum þótti
snjórinn mikill og nýstárlegt
þótti þeim að geta stigið upp á
þak tveggja hæða húsa er þeir
gengu efth' sköflum á veginum,
og skrýtið þótti þeim er þeir sáu
íbúa Siglufjarðar ganga niður
fjórar til sex snjótröppur og
hverfa inn í híbýli sín. En þeir
sögðu síðar að bjart og hlýtt
hefði verið þar inni og gott að
koma til Siglufjarðar. En þetta
var í lok marz, en nú er 14.
apríl og allur snjór að hverfa.
Þannig er íslenzka veðráttan,
óútreiknanleg í blíðu og stríðu.
Atvinna er nú hér næg í bili.
Tunnuverksmiðjan starfar, nið
urlagning síldar á Rússlands-
markað er í fullum gangi og
meiri vinna , frystihúsi en ver-
ið hefur. Siglfirðmgur hefur
(Framhald á blaðsíðu 7)
Síðustu
sýningar
SJÓNLEIKURINN „Á útleið“
hefur verið sýndur í Samkomu
húsi bæjarins fjórum sinnum
við góða aðsókn og hefur hann
hlotið góða dóma. Leikstjóri er
Ágúst Kvaran. Þrjár sýningar
eru eftir og verða þær nú um
helgina, ein í dag, laugardag, og
tvær á morgun.
Sýningum á þessum sjónleik
lýkur fyrr en ætlað var vegna
æfinga á næsta verkefni Leik-
félags Akureyrár, sem verður
afmælissýning félagsins.
Meðfylgjandi mynd er úr sjón
leiknum „Á útleið" og sýnir
Kristjönu Jónsdóttur í eftir-
tektarverðu frúarhlutverki
sínu. (Ljósm.: E. Sigurgeirss.).
SMATT OG STÓRT
SPJALL BÆJARBLAÐA dæmi eystra. Björn Teitsson
íslendingur og Alþýðumaður- kemur að líkindum hingað til
inn skeggræða nú sín á milli bæjarins um næstu mánaðar-
um yfirvofandi fall Magnúsar mót, og mun starfa hjá Degi
Jónssonar í kosningunum, og
að Bragi kunni að ná kosningu
í hans stað. Virðist það þó
skipta litlu máli, hvort Magnús
er kjörinn þingmaður, Bragi
uppbótarmaður eða Bragi kjör
inn og Magnús uppbótarmaður.
Miðað við síðustu kosningar til
Alþingis sýnast það raunar hug
arórar einir, að Bragi nái kosn-
ingu, og of snemmt að spá því
að Magnús falli, því að miðað
við fyrri tölur, verður það ekki
talið líklegt að svo stöddu. En
færi svo, er það ekki Bragi held
ur fjórði maður á lista Fram-
sóknarflokksins, sem næst
stendur kjöri, miðað við tölurn
ar frá 1963. Er þar og um að
ræða ungan og vel menntaðan
mann, áhugasaman um þjóðmál
og með góða starfsreynslu, ein-
dreginn formælanda lands-
byggðarstefnu og norðlenzkra
sjónarmiða, svo sem greinar
hans í Degi og víðar bera vott
um. Framsóknarmenn munu
vinna fyrir þann málstað, er
þeir hyggja réttan, en spara
spár fyrst um sinn.
FIMMTA SÆTIÐ
Það er og líklegt til að efla
fylgi Framsóknarflokksins með
al unga fólksins hér í kjördæm-
inu, að í 5. sæti listans, og því
líklegur til að taka einhverrn
þátt í þingstörfum á næsta kjör
tímabili, er Bjöm Teitsson
stúdent á Brún í Reykjadal,
sem undanfarin ár hefur lagt
stund á íslenzk fræði við Há-
skóla íslands, en kunnur orðinn
sem einn af helztu forystumönn
um í félagslífi stúdenta (um
skeið formaður Stúdentaráðs
Háskólans) og í landssamtök-
um ungra Framsóknarmanna.
Á nú sæti í stjórn S.U.F. og í
miðstjóm Framsóknarilokks-
ins, og er þar einn af sjö full-
trúum sambands' Framsóknar-
manna hér í Norðurlandskjör-
fram að kosningum og taka á
þann hátt og annan þátt í kosn
ingarbaráttunni, sem í hönd fer.
— En fulltrúar ungu kynslóðar
innar eru fleiri á listanum eins
og síðar verður að vikið.
„H“IÐ í VERKAMANNINUM
í grein með undirskriftinni „H“
í Verkamanninum er gerð held
ur ómyndarleg tilraun til að
verja frumvarpið, sem flutt er
af formanni Alþýðubandalags-
ins um verðlagsmál bænda o. fl.
Sumir gizka á, að höfundur
greinar sé frambjóðandi nr. 2 á
lista Alþýðubandalagsins hér,
og ætti Hjalti að neita því opin
berlega, ef hann er saklaus af,
því að „rökræður“ af því tagi,
sem þar er um að ræða, eru
engum til sæmdar. Til þess þarf
flokksblindu eða þverúð á háu
stigi, einkum ef bóndi ætti hlut
að máli, að halda því fram að
hagstætt væri fyrir landbún-
aðinn að gera frumvarp Hanni
bals í heild að lögum. Má í því
sambandi minna á „rannsóknar
réttinn“ yfir bændum og sam-
tökum þeirra og innflutninginn
á útlendum landbúnaðarvörum,
sem gæti eyðilagt „sölustöðv-
un“, ef til kæmi. Fleira skal
ekki nefnt hér, þó af nógu sé að
taka. En ætla má, að stéttar-
félög bænda gæti betur hags-
muna þeirra í þessu máli en
Ilannibal.
MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR REYK
Mbl. liefir undanfarið verið
með slúðurkenndar bollalegg-
ingar um það, að nafngreindir
menn hafi „fallið“ við miðstjóm
arkosningu á 14. flokksþingi
Framsóknarmanna. Sýnilega er
blaðið heldur illa að sér um
þetta mál. Flokksþingið kýs 15
menn í miðstjómina, og gildir
sú kosning milli flokksþinga.
Til liagræðis við kosninguna
setur uppstillinarnefnd upp
ábendingarlista, sem jafnframt
er kjörseðill með 75 nöfnum eða
fimni sinnum fleiri en kjósa
skal, en auk þess getur hver
fulltrúi skrifað til viðbótar nafn
eða nöfn á listann. Það gefur
auga leið, að af 75 ldjóta 60 að
„falla“, ef 15 eru kjörnir, sé not
að orðalag Mbl. En auðvitað er
hér ekki neitt „fall“ að ræða,
þar sem enginn hefir boðið sig
fram. Hitt virðist Mbl. svo ekki
vita, að þessir 15 eru aðeins
lítill hluti miðstjófnarinnar. Ná
(Framhald á bíaðsíðu 7)
NÝTT SKIP TIL
HÚSAVÍKUR
KOMINN er til Húsavíkur nýr
og vandaður erlendur stálbátur,
Náttfari ÞH 60, 268 smálestir að
stærð. Eigandi Náttfara er Barð
inn h.f. Skipstjóri er Pétur
Stefánsson. Báturinn er á leið
suður og ætlar að stunda þorsk
Veiðar í nót. Q