Dagur - 26.04.1967, Blaðsíða 2
2
NORDLENDINGARNIR SIGRUDU
I DRENGiAHLAUPI ÁRMANNS
Norðurlandsmeistarar Þórs. Fremri röð írá vinstri: Jóhanna Júlíusdóttir, Kristjana Benediktsdóttir,
HIÐ ÁRLEGA Drengjahlaup
Ármanns fór fram í Reykjavík
sl. sunnudag. Tóku 18 keppend-
ur þátt í hlaupinu, sem var um
1500 metrar. Gunnar Kristins-
son Héraðssambandi Suður-
Þingeyinga fór með sigur af
'hólmi, en hann varð þriðji í
Víðavangshlaupi ÍR, sem fram
fór á sumardaginn fyrsta. í
þriggja og fimm manna sveita-
keppnum sigruðu piltar frá
Ungmennasambandi Eyjafjarð-
ar. — Röð fyrstu manna:
mín.
1. Gunnar Kristinsson HSÞ 4.32.5
2. Bergur Höskultisson UMSE 4.48.5
3. Sigurður Bjarklind Arm. 4.51.6
4. Jóhann Friðgeirss. UMSE 4.51.6
5. Þórir Jónsson Hafnarfirði 4.57.2
Jósavin Gunnarsson og Hclgi
Gunnarsson UMSE urðu í 7. og 11.
sæfi. Q
Handknattleiksmóti Norðurlands lokið:
i í 4 llokkum, en KÁ s Iveim
Bryndís Baldursdóttir, þjálfari Aðalsteinn Sigurgeirsson. — Aftari röð f. v.: Valborg Stefánsdóttir,
Margrét Einarsdóttir, Anna Gréta Halldórsdóttir, Elísabet Hjörleifsdóttir. (Ljósm.: P. A. P.)
G. Halldór Guðlaugss. UMSE 5.03.3
Gunnar Kristinsson HSÞ.
A SUMARDAGINN fyrsta lauk
Handknattleiksmóti Norður-
lands, og fóru þann dag fram 8
leikir í íþróttaskemniunni á
Akureyri. Völsungur á Ilúsavík
mætti nú til leiks með 3 lið,
4. fl. karla, 3. fl. karla og 2. fl.
kvenna og sigruðu í 2 leikjun-
um en veittu Akureyrarliðun-
um harða keppni í hinum leikj-
unum. Úrslit í mótinu urðu
annars þau, að nú sigraði Þór í
4 flokkum en KA í tveim. Leik-
ið var kl. 1.30 og 7.30 og luku
Húsvíkingar sínum leikjum og
fóru heiin samdægurs. Margir
áliorfendur voru, þó fleiri um
kvöldið. Með þessum leikjum er
lokið keppnistímabili handknatt
ieiksfólks að þessu sinni.
Urslit einstakra leikja:
Kl. 1.30 hófst keppnin og léku
fyrst Þór og Völsungur í 4. fl.
karla. Húsvikingar komu nokk
uð á óvænt og sigruðu Þór 8:7.
I leikhléi höfðu Völsungar skor
að 6 mörk en Þórsarar 2. Það
vakti athygli að Húsvíkingarn-
ir voru mun hærri en Akur-
eyrarpiltar í sama aldursflokki,
en stærð vallarins háði þeim
sýnilega.
Þá léku Völsungur og Þór í
2. fl. kvenna, og var þar um
tvísýna viðureign að ræða, en
Þórsstúlkumar sigruðu 7:6, og
urðu þar með Norðurlands-
meistarar í þessum flokki. Þær
höfðu áður sigrað KA. í leikhléi
var staðan 3:1 fyrir Þór.
Næsti leikur var í 3. fl. karla
milli KA og Vólsunga. Þeim
leik lauk með sigri KA 18:14, en
í leikhléi var staðan 10:5 fyrir
KA. í þessum flokki hafa Völs-
ungar stórum og stæðilegum
piltum á að skipa, en þeim gekk
ilia að nýta stærð vallarins, og
fengu á sig mörg mörk úr horn
unum.
Að lokum léku svo til úrslita
í 2. fl. karla KA og Þór, en bæði
liðin höfðu áður sigrað ÍMA
með nokkrum mun. Leikar fóru
svo að KA sigraði auðveldiega
20:14, en í leikhléi var staðan
þannig að KA hafði skorað 12
mörk en Þór 5. Oft hefur keppni
í þessum- flokki vérið jafnari og
skemmtilegri.
Kl. 7.30 hófst svo keppni á
ný og léku fyrst KA og Völs-
ungar í 4. fl. karla. Leikar fóru
Þeir, sem hafa fasta miða,
framvísi stofninum við
innganginn.
LAXAR leika.
Stjómin.
Norðurlandsmeistarar Þórs. Fremri röð frá vinsíri: Kristján Pétursson, Samúel Jóliannsson, Sigurð-
ur Síyrmisson, Númi Friðriksson, Aðalsteinn Sigurgeirsson. — Aftari röð f. v.: Arni Sverrisson þjálf
ari, Magnús Jónatansson, Ragnar Tryggvason, Kristinn Jóhannsson, Jón Friðriksson. (Ljm.: P.A.P.)
svo að KA sigraði með 11:6. í
leikhléi var staðan 4:2 fyrir KA.
Með þessum sigri urðu KA-
piltarnir Norðurlandsmeistarar,
höfðu áður gert jafntefli við
Þór, og unnu til eignar skjöld
ei HRA gaf til keppni í þessum
flokki fyrir 3 árum.
Þá léku-VÖlsungur og KA í
2. fl. kvenna og lauk þeim leik
með sigri Völsunga 5:3. í leik-
hléi var staðan þannig, að Húsa
víkurstúlkurnar höfðu skorað
4 mörk en KA 1.
Næst síðasti leikur var milli
Þórs og Völsungs í 3. fl. karla.
Þór sigraði með yfirburðum
25:11. Staðan í leikhléi var 13:6
fyrir Þór. Völsungum gekk illa,
sem í leiknum við KA, að nýta
breidd vallarins og fengu flest
mörkin á sig úr hornunum. Þór
hafði áður unnið KA í þessum
flokki og tryggði sér með þess-
um sigri Norðurlandsmeistara-
titil.
Að lokum léku svo „erki
óvinirnir" Þór og KA í m.fl.
katda, og er skemmst frá því að
segja að leikur þessi var einn
hinn skemmtilegasti sem fram
hefur farið í íþróttaskemm-
unni. Yfh' áhorfendum var hin
rcvta stemming, sem 'vera á
þegar um úrslitaleiki er að
ræða og hvöttu þeir lið sín ailan
leiktímann, og heyrðist varla í
AÐALFUNDUR
Hestaniannaíélagsins
Funa
verður haldinn að Sól-
garði. Saurbæjarhreppi,
miðvikudaginn 3. maí
n.k. og liefst kl. 9 síðdegis.
Venjuleg aðalfiundarstörf.
Stjórnin.
flautu dómarans stundum, þó
hressilega væri blásið. Frí-
mann Gunnlaugsson dæmdi
leikinn og gerði það mjög vel,
eins og við mátti búast. Var
hann ófeiminn við að senda liðs
menn beggja liða út af til „kæl-
ingar“ og fengu a. m. k. 7 frí
frá 2 upp í 5 mín. Með þessu
tókst Frímanni að ná þeim
bezta handknattleik út úr lið-
um þessum sem hægt er.
Leikurinn var afburða spenn
andi allan tímann, og var 8
sinnum jafntefli í leiknum.
Fyrst var 8:8, þá 12:12 og 13:13,
en rétt fyrir leikhlé tókst Þór
að komast 3 mörk yfir 16:13.
í síðari hálfleik hélt sama
spennan áfram 18:18, 21:21,
22:22, 23:23. Rétt fyrir leikslok
var KA 1 marki yfir 25:24, en
á síðustu mínútu tókst Þór að
jafna 25:25, og nægði það þeim
til sigurs í ;i?.fj.. karla.
Halldór Rafnsson KA skoraði
flest mörk í leiknum, eða 11.
Norðurlandsmeistarar urðu:
Meistaraflokkur karla Þór.
Meistaraflokkur kvenna Þór.
2. flokkur kvenna Þór.
2. flokkur karla KA.
3. flokkur karla Þór.
4. flokkur karla KA.
Að lokum fór svo fram verð-
launaafhending og mótsslit.
Sigurvegarar UMSE í sveilakeppnum Drengjahlaups Armanns. —•
Frá vinstri: Helgi, Jósavin, Bergur, Halldór og Jóhann.
Skipi um hlufverk í fjallinu
KLUKKAN fjögur á laugardag
inn hefst skíðamót í Hlíðarfjalli
og fer það fram með óvenju-
legum hætti. Nú verða það kepp
endur skíðaíþróttarinnár' 'frá
vetrinum sem stjórna keppni,
en starfsfólk skíðamótanna
keppir. Þannig er hlutverkum
snúið við að þessu sinni.
Keppt verður í ýmsum grein
um og að keppni lokinni fara
fram verðlaunaafhendingar á
kvöldvöku í Skíðahótelinu.
Einhver leynd hvílir ennþá
yfir verðlaunagripunum, en
þeir munu vera í smíðum og
verður þeim væntanlega stillt
út síðar í vikunni. □
ELDRI-DANSA
KLÚBBURINN
Dansað verður í Alþýðu-
húsinu laugard. 29. apríl.
Hefst kl. 9 e. h.
Húsið opnað fyrir miða-
sölu kl. 8 sama kvöld.