Dagur - 03.05.1967, Side 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
Bkrifstofan
Túngötu 1.
Akureyrl.
Síml 11475
L. árgangur — Akureyri, miðvikudaginn 3. maí 1967 — 32. tölubL
Ferðaskrifstofan«
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
e5S555555555$5$5553$$5$5$55555S$$5
LEYFI FENGIÐ TIL
NÝRRAR
LAXÁR
VIRKJUNAR
L A X Á R VIRKJUNAR-
STJÓRN mun hafa fengið
heimild stjómarvaldanna til
nýs áfanga í virkjunarfram-
kvæmdum við Laxá og er
heimild þessi án skihnála.
Má því ætla að framkvæmd-
ir hefjist þegar Laxárvirkj-
unarstjóm þykir henta og
fjármagnið er tryggt til fram
kvæmdanna. Ráðgert er að
framkvæmdin verði gerð í
áföngum og með öðrum
hætti en fyrr hafði verið ráð
gert. En möguleikarnir
eru margir og munu áætlun-
argerðir liggja fyrir. Hin
marg umtalaða stífla sem
búist var við að eyðileggði
nokkrar jarðir í Laxárdal,
yrði samkvæmt þessu einnig
byggð í áföngum.
Virkjunin, sem slík, yrði
sennilega 24 þús. kílóvött
fullgerð. Fundur verður í
Laxárvirkjunarstjóm á
morgun, þar sem þessi mál
verða rædd. Væntir blaðið
þess, að um þetta verði gef-
in út fréttatilkynning til blað
anna að þcim fundi loknum.
Séð yfir fundarsalinn í Samkomuhúsinu á laugardaginn.
(Ljósm.: E. D.)
Ágæfir kjósendafundir Framsóknarmanna á Húsavík og Akureyrí
SÍÐASTLIÐINN föstudag efndu Framsóknarmenn til almenns
kjósendafundar í Samkomuhúsinu á Húsavík. Fundurinn hófst kl.
21 um kvöldið, og voru fluttar sjö framsöguræður, en á eftir svör-
uðu framsögumenn fyrirspurnum. Fundarstjóri á Húsavíkurfund-
inum var Karl Kristjánsson sem nú lætur af þingmennsku eftir að
hafa setið á Alþingi samfleytt í 18 ár. Fundurinn var mjög vel
sóttur.
Næsta dag, laugardaginn 29. apríl, efndu Framsóknarmenn til
fundar á Akureyri. Var sá fundur haldinn í Samkomuhúsinu þar
og hófst kl. 14. Var hann einnig vel sóttur. Fundarstjóri var Valur
Arnþórsson, fulltrúi. Frummælendur voru þeir sömu og á Húsa-
vík kvöldið áður. Fyrstur talaði Eysteinn Jónsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, en síðan þeir sem skipa 2.—7. sæti á lista flokks-
ins hér í kjördæminu. Töluðu frambjóðendurnir í þessari röð:
Jónas Jónsson, Björn Teitsson, Guðríður Eiríksdóttir, Sigurður
Jóhannesson, Stefán Valgeirsson og Ingvar Gíslason.
STRAUK ÚR HÖFN, MEÐ 2
ÞJÚNAINNANBORÐS
FI.UGVÉL landhclgisgæzlunnar,
Sif, stóð brezka togarann Brand
GY 111 frá Grimsbv, sent er 750
tonn að stærð, að ólöglegum veið-
unt um 3.5 sjómílur innan fisk-
veiðimarkanna suðvestur af Eld-
e-y síðdegis mánudaginn 24. apríl.
TOCARA RENNT
UPP í FJÖRU
BREZKI togarinn Loch Doon
frá Hull, um 700 tn. að stærð,
sigldi á ísjaka út af Skaga og
laskaðist. Hann Icitaði hafnar á
Akureyri, til skyndiviðgerðar.
Strax og hann hafði lagzt að
bryggju voru fengnar 4 dæl-
ur frá Slökkvistöðinni, en síðan
froskmaður til hjálpar. Var þá
hægt að þurrdæla skipið. Síð-
degis í gær átti að renna togar-
anum upp í sandfjöru, láta fjara
undan honuni og freista þess að
gera hann sjófæran. □
Togarinn sinnti ekki fyrirmælum
landhelgisgæzlunnar um að halda
til hafnar, en síðar um kvöldið
t<)k varðskip togarann og hélt
með hann til Reykjavíkur. En elt-
irmál urðu nokkuð söguleg, ]>ví
að á laugardagsnóttina sigldi tog-
arinn úr Reykjavíkurhöfn og
urðu yfirvöldin þessa ekki viir fyrr
en um kl. 6 um morguninn. Var
þá hafin leit að togaranum úr
lofti og fannst hann á tólfta tím-
anuni daginn eltir um 40 mílur
vestur af Snæfellsnesi. Var þá í
annað sinn farið með togarann til
Reykjavíkur og skipstjórinn sett-
ur í fangageymslu, en mál skip-
stjórans mun hafa verið tekið fyr-
ir í gær. Oll skjöl skipsins voru að
sjálfsögðu hjá yfirvöldum lands-
ins þegar togarinn strauk. Tveir
liigregluþjónar stóðu vakt um
l)orð í togaranum, en fengu ekki
að gert, þvf að áhöfn togarans
LÖGREGLU-
stóð sem einn maðúr gegn þeim
og ógnaði með ofbeldi. Það verð-
ur að telja mjiig alvarleg mistök,
(Framhald á blaðsíðu 7)
Á föstudaginn var mikið um
að vera á Húsavík. Veður var
allgott og fiskilykt í lofti, því að
mikill afli berst þar nú á land.
Aðalfundi Kaupfélags Þingey-
inga lauk þennan dag með kaffi
samsæti í Hlöðufelli, og var þar
hafður uppi söngur og gaman-
mál. Um kvöldið var svo kosn-
ingafundurinn í Samkomuhús-
inu. Var þar troðfullt hús, og
var máli ræðumanna vel tekið.
Auk frummælenda tóku til
máls Baldur Baldvinsson á
Ófeigsstöðum, Þórarinn Haralds
son í Laufási, Jón Jónsson í
Fremstafelli og Þormóður Jóns
son á Húsavík. Bæði Eysteinn
Jónsson og Ingvar Gíslason
þökkuðu Karli Kristjánssyni
sérstaklega fyrir störf hans á
liðnum árum fyrir kjördæmið
og þjóðina í heild, og tók Jón í
Fremstafelli mjög í sama
streng, svo og fundarmenn allir.
Tvær milljónir í Ólafsfjarðar-
veg um Dalvík
ÞEGAR hin endurskoðaða vegaáætlun loksins var lögð fyrir
Alþingi eftir páska, fluttu þeir Ingvar Gíslason, Karl Kristj-
ánsson, Gísli Guðmundsson og Björn Jónsson breytingartil-
lögu þess efnis, að teknar yrðu að láni 2 millj. kr. á þessu ári
til að byggja upp Ólafsfjarðarveginn, milli Árgerðis og Karls
ár. En þetta er hið mesta nauðsynjamál, þegar umferð um
Múlaveg færist í aukanna. Þessi tillaga fjórmenninganna
liafði þau áhrif, að einum til tveim dögum síðar kom fram
tillaga frá fjárveitingarnefnd um að taka þessar 2 millj. kr.
að láni á tveim árum og hafði»ríkisstjómin á það fallizt. Við
þetta gátu fjórmenningarnir einnig sætt sig, og er þessi lán-
taka nú komin inn á vegaáætlunina. Mun Dalvíkingum og
mörgum öðrum þykja þetta góð tíðindi. Vera má að lánið
þurfi að fást innan héraðs til bráðabirgðar. □
Á Akureyrarfundinum reynd
ist því miður ekki tími til að
leyfa umræður. Þeim fundi
sleit Jakob Frímannsson forseti
bæjarstjórnar og þakkaði hann
ræðumönnum og þó sérstaklega
Eysteini Jónssyni fyrir mál-
flutninginn og komuna.
Hér á eftir fer útdráttur úr
ræðum þriggja framsögumanna
á umræddum fundum, en
vegna rúmleysis verður frásögn
af ræðum hinna fjögurra að
bíða næsta blaðs.
Eysteinn Jónsson alþingis-
maður og formaður Framsókn-
arflokksins, sagði í upphafi, að
í tíð núverandi ríkisstjórnar
hefði verðbólgan hér á landi
vei’ið miklu meiri en í öllum
nágrannalöndunum. Hann kvað
stjórnina hafa reynt að stjórna
með einhliða aðgerðum í pen-
ingamálum, takmarkað hefði
verið peningamagn það, er
mætti vera í umferð og síðan
hefðu látlaust verið lagðir á ný-
ir skattar. Verðbólgan hefði svo
(Framhald á blaðsíðu 4)
Fundur um landbúnað-
armál í Svarfaðardal
FR AMSÓKN ARFÉLÖGIN í
Svarfaðardals-, Dalvíkur- og
Árskógsstrandarhreppi efna til
fundar um landbúnaðarmál í
kvöld, miðvikudag, í Þinghús-
inu að Grund í Svarfaðardal og
hefst hann kl. 9 e. h. Frummæl-
endur verða Ingvar Gíslason,
alþingismaður, Stefán Valgeirs
son, bóndi og Jónas Jónsson,
ráðunautur.
AUt áhugafólk um landbún-
aðarmál velkomið á fundinn. □