Dagur - 06.06.1967, Síða 1
F»rða-
skriistoian
Túngötu 1.
Alcur#yrl.
Simi 11475
HOTEL
Herbergis-
pantanir.
Ferðaskrifsfofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
ódýrustu
íerðirnar
til
annarra
landa.
Glerá skipti hátíðasvœðinu í tvennt, en skátar settu göngubrú á ána og umferð var þar mikil.
(Ljósmynd: E. D.).
SlLDVEIÐAR HAFNAR
FYRIR AUSTAN LAND
OG BRÆÐSLURNAR BÚA SIG UNDIR
AÐ TAKA Á MÓTI AFLANUM
SUMARSÍLDVEIÐARNAR
eru nú hafnar, og fyrsta síld-
in hefur borizt á land. Harpa
RE kom með fyrstu síldina,
og landaði henni á Seyðis-
firði, 265 tonnum. Hún veidd
ist sl. föstudag. AHs hafa átta
bátar komið með síld að
landi, samtals uin 1690 tonn,
til Seyðisfjarðar, Eskifjarðar
og Norðfjarðar. Afköst síldar
verksmiðjanna á Austfjörð-
um eru um 6000 tonn á sól-
arhring, en þróarrými er fyr-
ir um 50.000 tonn. Flestar
verksmiðjurnar eru nú til-
búnar til þess að taka á móti
síld, en sums staðar er hætta
á að olíuskortur kunni að
gera vart við sig, ef ekki ræt-
ist úr verkfalli yfirmanna á
farskipunum mjög fljótlega.
Dagur hafði samband við
síldarradíóið á Neskaupstað
síðdegis í dag, mánudag, og
fékk þær upplýsingar, að um
20 skip væru komin á veiðar.
Skipin veiða aðallega um 360
mílur undan landi, austur og
suður af Jan Mayen. Veður
hefur verið gott, en síldin er
nokkuð stygg. Þykir sjómönn
unum langt og erfitt að þurfa
að sækja þetta langt frá
landi, enda eru bátarnir
rúma 30 tíma á leið í land af
miðunum. í dag var vitað um |>
fimm báta, sem voru á leið
í land með síldina, og voru
(Framhald á blaðsíðu 7)
Vegleg liátíð skáta í Glerárgili
MÖRG ÞÚSUND MANNS úr bæ og nágrenni söfnuðust saman á
hátíðarsvæði Akureyrarskátanna við Glerá á sunnudaginn. En þar
var minnst hálfrar aldar afmælis skátastarfs á Akureyri. Og svo
virtist, sem flestir bílar bæjarbúa væru í nágrenni þessa staðar.
Veður var hlýtt og kyrrt og fólk undi sér vel meðal skáta, sem
gerðu daginn ógleymanlegan.
Sennilega hefur fáum bæjar-
búum dottið það í hug áður, að
Glerárgil væri eins ákjósanlegt
hátíðarsvæði og raun ber vitni.
En skátarnir opnuðu augu al-
mennings að þessu leyti. Og nú
geta menn hugleitt hvernig bezt
má auka yndi staðarins með
trjárækt, vegalagningu o. fl.
Glerá skipti hátíðarsvæðinu í
tvennt, en skátar settu á hana
myndarlega göngubrú og var
umferð um hana mjög mikil.
Allt var hátíðarsvæðið fánum
og flöggum prýtt, mörg hlið sett
upp svo og tjaldbúðir. Sjálfir
voru skátar hvarvetna að störf-
um, stjórnuðu umferðinni, sem
öll gekk greiðlega og höfðu auk
þess ótalmargt að sýna sam-
komugestunum, bæði ungum og
gömlum.
Hér skal nú drepið á það
helzta sem fram fór á hátíð skát
anna: Flokkakeppni í skáta-
íþróttum, sýning á skátastörfum
fyrri tíma og nú, sýndar voru
bækur um málefni skáta frá
ýmsum löndum, ennfremur
munir frá skátastarfinu í bæn-
um, útbýtt var bæklingi um al-
menn skátastörf, minjagripasala
fór fram, einnig veitingasala,
sumt bakað í opnum hlóðum og
allt selt við vægu verði. Mikill
auglýsingaturn hafði verið reist
ur og dýrasýningu komið upp.
Krakkar fengu að koma á hest-
bak og sitja í gamalli ökukerru.
Settur var upp bamaleikvöllur
með gæzlu, sandkössum og leik
tækjum, ennfremur íþróttavöll-
ur fyrir knattleiki. Enn má
nefna skotbakka og cirkustjald,
myndastofu og draugahús.
Að kvöldi enduðu hátíðahöld
in með flutningi bundins máls
um stofnun skátafélaga í bæn-
um og störf skáta og auk þess
var sagan rakin í óbundnu máli.
Á milli voru sungnir skátasöngv
(Framhald á blaðsíðu 7)
Hver vill gefa Sjélf-
sfæðisflokknum um-
boð til að endurprenta
skömmtunarseðil sinn
frá 1950?
.... ................
Styrjöld milli Iraba og Israelsmanna
I FRÉTTUM frá Tel Aviv segir
að egypzkir skriðdrekar og flug
vélar hafi ráðizt inn í suður-
hiuta ísraels. Útvarpið í ísrael
segir, að í birtingu hafi skrið-
drekasveitir frá Egyptalandi
sótt fram til Negev, samtímis
hafi sézt í ratsjá, að egypzkar
flugvélar væru að nálgast
strönd ísraels og Negev. Útvarp
ið í Kairó hefur ekki staðfest að
barizt sé í Negev-eyðimörkinni,
hins vegar segir útvarpið, að í
morgun hafi ísraelskar flugvél-
ar ráðizt á Kairó og aðrar
egypzkar borgir og liafi 70
ísraelskar flugvélar verið skotn
ar niður yfir landinu.
Fréttaritari frönsku frétta-
stofunnar AFP í Kairó segir, að
sprengingar hafi heyrzt í borg-
inni í morgun, skömmu síðar
hafi verið gefið loftvarnar-
merki.
í morgun birti útvarpið í
ísrael á arabísku tilkynningu
um, að 150 egyzkar flugvélar
'hafi verið eyðilagðar í herstöð-
inni hjá A1 Aris á Sínaískaga.
ísraelsmenn segja að bardagar
hafi ha-fizt á Sínaí, þegar ísraels
menn hafi séð egyzkar flugvél-
ar í ratsjá og þær hefðu verið
að nálgast ísraelst yfirráða-
svæði. ísraelskar flugvélar hafi
ráðizt gegn þeim.
Barizt er á landamærum
ísraels og Jórdaníu í Jerúsalem.
Þar er teflt fram stórskotaliði
og hávaðinn frá sprengjuvörp-
um og vélbyssum heyrðist í
borginni. Víða mun hafa kvikn-
að í.
Útvarpið í Kairó tilkynnti í
morgun, að ísraelskar flugvélar
hefðu ráðizt á flugstöðina í
mynni Akabaflóa. Frá þessari
stöð er hægt að ráða siglingum
um Akabaflóa. Árið 1956 tóku
fsraelsmenn Sharem el shake
en þeir fóru þaðan með því skil
yrði, að S. Þ. tryggðu frjálsar
siglingar um flóann. Oryggisráð
S. Þ. hefur verið kallað saman
til sérstaks fundar kl. 13.30 að
íslenzkum tíma í dag, vegna
ófriðarins í löndunum við botn
Miðjarðarhafs. Talið er víst, að
skorað verði á báða aðila, að
'hætta vopnaviðskiptum.
Snemma í morgun hófu U
Thant og formaður Oryggisráðs
ins viðræður við fulltrúa í ráð-
inu. Gert er ráð fyrir, að Orygg
isráðið geri strax ráðstafanir til
þess að stöðva bardagana milli
Egypta og ísraelsmanna. Sam-
kvæmt sáttmála S. Þ. hefur ráð
ið rétt til þess að gefa fyrirskip-
un um að bardagar verði stöðv-
aðir.
Fulltrúar Egyptalands og
ísraels hjá S. Þ. 'hafa báðir talað
við U Thant. Fulltrúi ísraels
sagði, að Egyptar hefðu ráðizt
inn í ísrael, og ísraelskir her-
menn i-eyndu að halda þeim í
skefjum. Hann sagði að ekkert
væri satt í fréttum Kairó-út-
varpsins um að flugvélar frá
fsrael hefðu gert loftárásir á
Kairó.
Levi Eskol forsætisráðherra
ísrael flutti ávarp til þjóðarinn-
ar í morgun, og sagði, að ísra-
elskir hermenn hefðu fengið
fyrirmæli um, að forðast að
gera óbreyttum borgurum mein,
þeir mundu aðeins ráðast gegn
þeim, sem ráðust á þá. Land-
varnarráðherra landsins flutti
(Framhald á blaðsíðu 6).