Dagur - 09.08.1967, Side 2
2
ÍSLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU - I. DEILD:
AKUREYRI-YALUR 2:1
í LJÓMANDI knattspyrnu-
veSri sl. miSvikudag 2. ágúst,
skokkuðu rauðir Valsmenn og
‘bláir Akureyringar inn á
íþróttavöllinn hér á Akureyri.
Búningarnir fallegir við græn-
an völlinn. Það var mikið um
að vera, nú þurftu báðir á sigri
að halda.
Áhorfendur voru líka fleiri
en tíðkast að jafnaði og hávaði,
hróp og köll í ríkara mæli. Leik
urinn var æsispennandi frá upp
hafsspyrnu og þar til flauta
dómarans gaf merki um að hon
um væri lokið.
Bæði liðin voru ágeng við
mark andstæðingsins. Tók Val-
ur forystuna á 20. mín. er Her-
mann Gunnarsson fékk góða
sendingu fyrir miðju marki,
hann var með mikið af mönn-
um í kring um sig, en hafði þó
tíma til að skjóta í netið. 1:0
fyrir Val.
í lok hálfleiksins varð Kári
að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla en inn kom Rögnvaldur
Reynisson, nýliði.
Seinni hálfleik hófu Akureyr
ingar með stórsókn er endaði
með því að Þormóður gaf vel
fyrir og Magnús Jónatansson
skallaði í mark. Mjög vel gert
hjá báðum.
Og áfram var barist. Er 26
mín. voru af síðari hálfleik gaf
Valsteinn vel fyrir og Rögn-
Knattspyrnumenn frá Færeyjum
ieika fvo leiki á Akureyri
í KVÖLD, miðvikudag, koma
til bæjarins knattspymumenn
frá Færeyjum, en það er H. B.
frá Þórshöfn, sem er í næst
efsta eða efsta sæti í knatt-
spyrnumóti Færeyja.
Knattspyrnuráð Akureyrar
stendur að þessari heimsókn,
ÍBAbKRb
BIKARKEPPNI KSf er hafin
fyrir skömmu. B-lið ÍBA tekur
nú þátt í keppni þessari í fyrsta
sjnn og leikur h.k. sunnudag
við B-lið KR á Melavellinum í
Reykjavík. Bikarkeppnin er út
sláttarkeppni og er það lið sem
tapar úr leik. □
en formaður þess er Hreinn
Óskarsson.
Færeyingarnir leika tvo leiki
hér á íþróttavellinum við lið
ÍBA. Á fimmtudagskvöld kl. 8
og á föstudagskvöld kl. 7.30.
Á fimmtudag skoða Færeying
arnir bæinn og er boðið til
kvöldverðar í Skíðahótelinu, en
á föstudagsmorgun fara þeir í
Mývatnssveit, og á föstudags-
kvöld verða þeir kvaddir í litla
sal Sjálfstæðishússins.
Akureyringar heimsóttu Fær
eyjar fyrir skömmu og léku þar
3 leiki. Ekki er að efa að knatt-
spyrnuunnendur fjölmenna á
völlinn til að sjá Færeyinga
leika.
valdur nýliðinn skutlaði sér af
hörku og skallaði í mark. Nú
tók undir í Vaðlaheiðinni.
Spennandi augnablið á báða
> bóga. Hermann Gunnarsson
kominn innfyrir cg Samúel
hleypur á móti og slær skotið
yfir mark. Akureyringar
stundu. -
Valsteinn kcmirin alveg upp
í mark, Sigurður Dagsson hend
ir sér á síðustu stundu og horn.
Liðin eru jöfn og má vart á
milli sjá, þó tel ég úrslitin sann
gjörn, því Akureyringar sóttu
öllu meira.
í tölum má segja frá leiknum
á þessa leið: Fyrri hálfleikur:
Hornspyrnur á Val 3, á Ak. 3.
Markskot á Val 6, á Ak. 7.
Aukaspyrnur á Val 7, á Ak. 4.
Síðari hálfleikur: Homspyrn
ur á Val 1, á Ak. 2. Markskot
á Val 5, á Ak. 7. Aukaspyrnur
á Val 8, á Ak. 6.
Dómari leiksins var landsins
bezti knattspyrnudómari, Magn
ús Pétursson, og dæmdi ágæt-
lega.
Þess má að lokum geta að
þetta var 6. sigurleikur Akur-
eyringa í röð.
STADAN
Sigurður Dagsson, markvörður Vals, varði oft vel. Ljósm.: H. T.
MinjasalniS á Akureyri
þarlnasl meira húsnæðis
MINJASAFNIÐ á Akureyri er
í eigu Akureyrarkaupstaðar að
3/s hlutum, Eyjafjarðarsýsla á Vs
hluta og Kaupfélag Eyfirðinga Vs
hluta. Stjórnarformaður er Jónas
Kristjánsson. Aðalfundur safns-
ins var haldinn að Hótel KEA
síðasta mánudag, og flutti þar
Sverrir Pálsson skýrslu safn-
stjórnar. En Jónas Kristjánsson
las og skýrði reikninga fyrir árið
1966 og fjárhagsáætlun safnsins
fyrir yfirstandandi ár. Safnvörð-
urinn, Þórður Friðbjamarson,
flutti og sína starfsskýrslu. En að
skýrslunum loknum hófust um-
ræður.
Umræðurnar beindust einkum
að því að finna lausn á vanda
STAÐAN í I. deild íslandsmóts
ins er nú þessi:
Akureyri 9 6 0 3 21:11 12
Valur 9 5 2 2 17:15 12
F„m mmm \
Keflavík 9 3 2 4 7:9 8
K. R. 8 3 0 5 13:15 6
Akranes 9 2 0 7 9:19 4
KJÖTBOLLURNAR FRÁ BÍLDUDAL
ÞESSA DAGANA kemur á
markaðinn frá Matvælaiðjunni
h.f. á Bíldudal nýjung í niður-
suðu, sem án efa verður vinsæl
meðal ferðafólks og þeirra, sem
í flýti þurfa að grípa til matar-
gerðar.
Er hér um að ræða tvær sam
ansettar dósir, sem í eru hand-
steiktar kjötbollur í kjötsoði í
annarri, en mismunandi sósur í
hinni, sem er heldur minni. Nú
til að byrja með koma í búðim-
ar hrísgrjón í karrysósu og
kartöflur í brúnsósu, en fleiri
sósutegundum verður væntan-
lega bætt við síðar.
Þessi samsetning á tveimur
dósum er gerð eftir amerískri
fyrirmynd og miðast við að gefa
fólki kost á fullkominni máltíð
í þægilegum samsettum umbúð
ium. í dósunum er ágæt máltíð
fyrir 2—4 og hugsað er að fólk
geti notað soðið af kjötbollun-
um til að þynna út sósuna eftir
smekk. Sérstaklega er þessi
matur hentugur fyrir ferðafólk.
Mörgum hefur þótt kynlegt, að
við skulum kalla bollurnar okk
ar handsteiktar og sumir telja
það jafnvel málvillu. Við álít-
um þetta mjög heppilegt orð,
ekki fyrir það, að stúlkurnar
okkar séu svona handheitar,
heldur til að aðgreina steikn-
ingaraðferðina frá t. d. steik-
ingu í vél eða með ljósum, sbr.
t. d. handprjónað og vélprjónað
s. s. frv. Það er von okkar að
með þessarri nýjung höfum við
stigið skref fram á við í tilbú-
inni matargerð, en ýmsar fleiri
nýjungar eru í bígerð, viðskipta
vinum okkar til hagræðingar
og þæginda.
Bíldudals niðursuðuvörunum
er dreift á Akurevri og í ná-
grenni af Heildverzlun Valdi-
mars Baldvinssonar, Akureyri.
(F réttatilkynning)
umræðu . var samþykkt að fela
safnstjóminni að fara þess á leit
við eigendur safnsins að útvega
fé til allstórrar viðbótarbyggingar
við safnhúsið, Kirkjuhvol.
Ákveðið hefur verið að endur-
skipuleggja hinn mikla trjágarð
framan við safnhúsið, meðal
annars með grisjun, meðal ann-
ars til að auðvelda hirðingu þessa
gamla og fagra garðs.
I minjasafni Akureyrar eru nú
3200 skráðir munir og hundruð
óskráðir. Meginhluta þessara
muna hefur verið komið fyrir
sem sýningarmunum, en affirir
munir, einkum stórir og rúm-
frekir, eru geymdir í þremur
öðrum húsum í bænum.
Meðal ýmsra ágætra muna,
sem safnið hefur eignast í sum-
ar, er hið gamla orgel Akureyrar-
kirkju, sem vígð var 6. júní 1863.
Safngestir ó árinu voru 2757,
auk nemenda og kennara frá skól
um bæjarins, er heimsóttu safnið
í vetur.
Ákveðið hefur verið, að list-
munasafn bræðranna frá Litla-
Árskógi, Kristjáns og Hannesar
Vigfússona, verði sett upp í
minjasafninu og er því ætluð
ákveðin deild þar. Einnig er í
ráði, að þar verði listmunasafn
muna frk. Halldóru Bjarnadótt-
ur, þótt ekki sé það að fullu ráð-
ið.
Enn hefur ekki fengizt viðhlýt-
andi lausn á skipulagsmálum fyr-
ir Minjasafnið, en er þó brýn
nauðsyn.
Hið unga en myndarlega Minja
safn á Akureyri hlýtur árlegt
framlag eigenda sinna og ríkis-
sjóðs, samtals 420 þús. kr. (s.l.
ár), og safnið hefur að fullu
staðið í skilum, jafnframt því
sem það hefur árlega safnað
munum og komið þeim fyrir á
eins hagkvæman hátt og auðið
er í þessu húsnæði. Hrein eign
aafnsins er rúm hálf milljón,
safnmunirnir ekki með taldir.
Fundarstjóri var Björn Jó-
hannsson, en fundarritari Stein-
dór Steindórsson. Gestum fund-
arins var boðið að skoða Minja-
safnið að fundi loknum.
Átfa ára gamalt
súrhey kom
að gagni
FYRIR nokkrum árúm byrjaði
Einar Petersen á Kleif á Ár-
skógsströnd á því — fyrstur
manria á íslandi — að verka
hey í skurðgryfju. En slík
aðferð er einfaldasta votheys-
verkun sem völ er á, nokkuð
frumstæð en notuð í ýmsum
löndum með góðum árangri.
Aðferðin er í stuttu máli sú,
að nýslegið hey er sett í skurð,
t. d. gerðan með jarðýtu eða
moksturstæki í þurru landi.
Þar er heyið pressað saman
með dráttarvél um leið og það
er flutt og síðan tyrft með all-
þykku jarðvegslagi. Á þennan
hátt getur heyið orðið gott fóð-
ur, þótt betra eé að steypa eða
hlaða veggi skurðgryfjunnar.
í vor gengu hey víðast til
þurrðar og urðu menn hverju
heystrái fengir. Þá var grafið
upp 7 eða 8 ára gamalt vothey,
sem eftir hafði orðið í skurð-
gryfju á Kleif. Leit það vel út,
þrátt fyrir aldurinn, og reynd-
ist allgott fóður. Q