Dagur - 09.08.1967, Side 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERXINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssenar h.f.
Til betri
vegar
UM NÝAFSTAÐNA verzlunar-
mannahelgi var efnt til 8 skipulegra
útiskemmtana í öllum landsfjórðung
um. Þúsundir manna streymdu til
þessara staða og nutu útiveru og
skemmtiatriða. Samkvæmt útvarps-
fregnum urðu engin meiriháttar slys
eða óhöpp og er slíkt fært hér í letur
sem gleðilegur viðburður í almennu
samkomuhaldi og er hann einstakur
á síðustu árum hér á landi. Margir
aðilar tóku höndum saman um
(>etta, svo sem mörg menningarfélög
og lögregla, auk þorra sæmilegra
þjóðfélagsþegna, sem sjá nauðsyn
þess að vemda ungmenni, í stað þess
að horfa á skrílmennsku á hæsta stigi
og vitfirringslegt ölæði þúsundanna
um verzlunannannalielgar fyrirfar-
andi ára.
Sú nýjung var upp tekin, að hafa
Ieiðbeiningarmiðstöð í Reykjavík,
sem reyndist ágæta vel, og þyrla
Landhelgisgæzlunnar var tekin í
þjónustu eftirlits og lögregluaðstoð-
ar sunnanlands, eftir því sem þurfa
þótti á hverjum stað.
Sem dæmi um umferðina fóru allt
að 15 þús. bifreiðir frá Reykjavík í
byrjun þessarar mestu umferðar-
helgar ársins og mannflutningar
Flugfélags íslands náðu algem há-
marki og komust einn daginn upp í
2.130 farþega. U tanlandsflug er þar
meðtalið. Tölur úr umferð á Norð-
urlandi hefur blaðið ekki, en um-
ferðin var sýnilega meiri en áður
hefur þekkzt.
Margir róma kurteisi ökumanna
yfirleitt og telja umferðarmenning-
una hafa aukizt með ári hverju.
Þetta mun rétt vera og er það vel.
Mönnum verður líka tíðrætt um
hinar miklu samkomur, sumar með
algeru vínbanni og kallaðar bind-
indismót. Þökk sé þeim, er að slíku
vinna. Þó má á sumum stöðum betur
gera. Allir gleðjast að vonum yfir
þeim mikla mun á slíkum samkom-
um og öðrum, en gera sér þó tæpast
næga grein fyrir því, að auglýst
bindindismót þurfa að vera alger-
lega vínlaus mót, og fólk þarf að geta
treyst því að svo sé. I þessu efni mega
/ menn ekki láta sér nægja „áferða-
góðar“ samkomur með „hóflegri“
drykkju. En stór spor í rétta átt ber
að meta og virða. Kjami málsins er
sá, að vera í þessu efni á réttri leið
og þroska almenningsálitið svo, að
siðlaust háttemi á samkomum og
öðrum opinberum stöðum heyri að-
eins fortíðinni til. □
,Bréf til bænda og neytenda’
og viðbót frá Bretlandi
— Þótt eigi ég ekki stingandi strá
né steingráa mosató,
þá gleðst ég sem barn við grænkandi jörð
með vorblótn um mela og mó! —
I. Bréfið:
Ég er hvorki bóndi nú búfróð
ur að ráði, en alla ævi hefi ég
samt haft lifandi áhuga á jarð-
rækt og fróðleik öllum á þeim
vettvangi. Og mér varð snemma
ljóst af athugunum mínum
heima og erlendis, að óvíða
væri meiri þörf og brýnni á fjöl
breyttri þekkingu og kunnáttu
en á vettvangi góðs bónda og
ungra bændaefna. En hvort-
tveggja þetta virtist mér skorta
yfirleitt hér heima.
Það mun samt talin talsverð
furða, að ég skuli hafa lesið
vandlega og með vaxandi at-
hygli, — ýmsa kafla tví- og
þrívegis — í „Bréfi til bænda og
neytenda“ frá Árna G. Eylands,
Sérprentun úr Andvara 1967.
En þetta hafi ég samt gert, og
mun lesa þetta enn, — þótt eigi
ég ekki stingandi strá né stein-
gráa mosató! —
Þetta er lítið rit, 19 bls. tví-
dálkaðar í stóru broti í XIV.
köflum. Efni samanþjappað, af-
ar fjölbreytt og þrungið af fróð
leik. Hér er komið víða Við: Frá
barnalærdómi bændaefna til
fyllsta þroskaprófs á fullorðins
aldri. Og þá götu ætti að ganga
á enda hvert ungt bóndaefni,
áður en hann leggur útá þann
vandfarna veg fullrar jarðrækt
ar, þar sem undirstaðan þarf að
vera lifandi áhugi, fjölþætt
fræðileg þekking og rækileg
verkleg þekking á véltækni,
beitingu búnaðarvéla og hirðu!
— Nú nægir ekki lengur að
kunna aðeins að ræsa jeppa og
öðrum vélum, velta yfir sig
dráttarvél slysalítið, og láta síð
an allan vélakostinn standa
hlífalausan úti á túnum og engj
um vetrarlangt í bleytu og
shjó.. . .!
Þessa 14 kafla Bændabréfs Á.
G. E. ættu öll bændaefni að lesa
undir svefninn og læra smám-
saman utanbókar, engu síður
en aldamóta-bömin alla 18
kafla Helga-kvers! — Það væri
hollur lestur í nóttlausu lang-
degi og mikilvægur undirbún-
.ingur undir morgundaga fram-
tíðarinnar....!
II. Innskot úr Bretlands-bréfi:
Er ég búlaus maðurinn hafði
lesið bændabréf Á. G. E. nokkr
um sinnum, furðað mig þar á
mörgu, datt mér í hug, að hér
hefði átt að stinga niður penna
og benda bændum á hvílíkan
fróðleiks-fjársjóð þetta Árna-
bréf hafi að geyma. En þá rakst
ég á í „Morgunblaðinú' (sunnu
dag 9. júlí) annað „bréf til
bænda“ — þ. e. a. s. afar at-
hyglisverða ritgerð eftir hinn
landskunna og fjölfróða fræði-
mann Snæbjöm Jónsson (Sm.
J. ), sem nú dvelur á Bretlandi,
þótt enn sé „hugurinn heima.“
Ber grein hans titilinn „Mundi
ekki tími að vakna,“ og fjallar
um sum atriði á sama vettvangi
og bréf Áma: um ræktun,
verndun jarðvegsins og frjóvg-
un jarðar. Á hún beint erindi
og allbrýnt til íslenzkra bænda!
Ég sting því hér inná milli
nokkrum línum úr ummælum
Sn. J., eins og hann ritar venju
lega undir blaðagreinar sínar.
.....Það sem ég annars ætl-
aði að minnast á í þessum lín-
um mínum, var um meðferð
jarðvegsins, og þá helzt í þeirri
von að einhver mér fróðari
maður veki um þetta alvarlegar
umræður. Ég gæti látið mér til
hugar koma Árna G. Eylands,
því öðrum er hann einarðari,
og öðrum er hann líka víð-
sýnni. — En þó er þess að gæta,
að nokkuð er hæpið að tekið sé
mark á orðum þess manns, sem
þorir að segja blákaldan sann-
leikann, ‘hver sem í hlut á. . ..!“
Síðar í greininni segir Sn. J.:
„. .. . Oll jarðrækt hefir mér
alla tíð verið hugstæð. Og nægi
legt skynbragð ber ég á hana
til þess að skilja það, að hjá okk
ur hefir hún komizt inná nokkr
ar villigötur, eins og Ámi G.
Eylands gerði grein fyrir í gagn
merkum útvarpserindum í
fyrra — ef ég má aftur minnast
hans....“
III. Vikið aftar að „Bréfi til
bænda“:
Ég hafði ‘hugað mér að drepa
á aðalatriði hvers kafla í bréfi
Áma G. Eylands. En þar er um
auðugan garð að gresja, og varð
mér brátt ljóst, að þetta var
óvinnandi verk án þess að tæta
sundur mikinn fróðleik og mik-
ilvægan og gera hann að áhrifa
lausu rabbi. Og til þess er hér
um of mikið alvörumál að
ræða! Og sama er að segja um
sum atriði í grein Sn. J. sem ég
vík að síðar. — Þessvegna
verða bændur þeir og bænda-
efni, sem „ganga með alvöru að
sínu verki“, að lesa bæði bréf
þéssi, — sem til þeirra eru stíl-
uð, — með ábyrgri athygli. Það
er þeim brýn naúðsyn! Tek ég
hér m. a. nokkur ummæli
merkra manna og landskunnra
auk höfundar, og verður því
eigi skotið við skolleyrum né
farið í manngreinarálit:
VII. kafli, 9. s...,Hér þarf
að breyta stórlega um stefnu í
jarðræktinni, stefnu sem nú er
mótuð meira af nokkrum for-
ráðamönnum búnaðarmála en
bændunum sjálfum, og meira af
þingi og stjóm en af raunhæfri
þekkingu og yfirsýn. Hér þarf
að breyta stórlega um frá ýmsu,
sem nú þykir góð búfræði og
góð stjómfræði eða pólitík.“
IX. kafli, 11. s... .„Sem bet-
ur fer er ég ekki einn til frá-
sagna um þessa ‘hluti. Hinn
reyndi tilraunamaður, Ólafur
Jónsson, segir nýlega:
„Segja má, að mestöll nýrækt
okkar sé léleg yfirborðsræktun
og liggja til þess tvær megin-
ástæður. Mikið af nýræktar-
landi okkar er mjög tyrfið, en
mýrarnar þó sérstaklega.
Skyndivinnsla sú, sem hér er
allsráðandi, hefur sáralítil áhrif
á rotnun og ummyndun torfs-
ins...." Og enn segir Ólafur:
„Það ætti að vera auðskilið
hverjum manni, að með þeim
ræktunaraðferðum, sem ‘hér
eru allsráðandi, verður ekki
óræktarjörð breytt í það horf
að það verðskuldi nafnið rækt-
un.“
X. kafli, 12. s. „...Ég álít
eirmig, að það sé misskilningur
að vera að mismuna bændum
með framlög til ræktunar eftir
því hvort túnið á bænum er 20
ha. eða 26 ha. Eigi ríkið að
greiða framlög til ræktunar,
má líta svo á, að ræktunin sé
jafnvelkomin hvar sem er, að-
eins ef hún er þarrnig staðsett
á landinu, að hún geti verið
grundvöllur skynsamlegrar
framleiðslu. Ef takmörk skulu
sett, væri nær sanni að miða
þau við efnahag bænda og
skattaframtöl, heldur en við
túnstærð. Að því verður víst
ekki horfið. — En mér sýnist
nú stefnt í slíka ófæru með ein-
hliða nýrækt og stækkun túna,
að eitthvað verði til bragðs að
taka, þannig að söðlað sé um og
það án tafar, til þess að knýja
fram bætta ræktun gömlu tún-
anna og aukna ræktunarmenn-
ingu.“
XI. kafli, 13. s. ...,,En hér
þarf fleira og meira til en pen-
inga. Hér þarf nýjan vilja og
trú til þess að skapa nýja jörð
undir himni nýrrar þekkingar.
Stórt orð Hákot, en þó er þetta
svo. Það er ekki gert í einu
vetfangi að verða ræktunar-
bóndi frá því að hafa verið
’bóndi á óræktuðu landi, þar
sem ættin hefir lamið þúfumar
um aldir. íslenzkir bændur hafa
verið að klóra í bakkann við
þessa umsköpun síðustu 40 ár-
in eða vel' það. Fáir hafa náð
fullri handfestu, en þó eru þeir
til, sem betur fer. Hitt á við
flesta, að í höndum þeirra hefir
„mestöll nýrækt“ — orðið —
„léleg yfirborðsræktun", sem
ekki nær því, að það „verð-
skuldi nafnið ræktun.“
„Það er tilgangslaust um
þetta að sakast. Bændur hafa
sýnt hörkudugnað í ræktunar-
framkvæmdum, en þeim hefir
orðið þekkingar vant. Menn
hafa trúað meira á peningana
en þekkinguna, meira á vélaafl
ið en lærdóminn .... Hóf-
lega sagt má orða það svo, að
góð ræktun sé í aðalatriðum í
því fólgin að breyta óræktar-
jörð, oft tyrfinni og ófrjórri, í
gróðurmold til venjulegrar plóg
dýptar, ef vel á að vera, svo að
úr gróðurmold þessari geti
sprottið góður; og mikill tún-
gróður við hóflega notkun
áburðar. ...“
14. s. „....Árið 1941 skrifar
myndai-bóndi í Húnaþingi mér:
„Reynsla mín við túnræktina er
búin að sannfæra mig um, að
við verðum svo fljótt sem unnt
er að söðla um í ræktunarmál-
unum, t. d. koma áburðinum
ofaní jörðina.“ ....
„í höfuðborginni hafa menn
hins vegar haldið fast í „trúna
á mykjuna,“ enginn Reykvík-
ingur gerir svo að lóð sinni og
ræktar grasflöt við hús sitt, að
hann reyni ekki að afla sér bú-
fjáráburðar til þess að bera und
ir þökumar. En bændum er
jafnvel ráðlagt „að losa sig við
mykjuna" með sem minnstri
fyrix-höfn, ef þess er kostur, þar
eð það borgi sig ekki að nota
búfjáráburð til ræktunar.“
Xn. kafli, 15. s.....,Hér er
komið að veikum hlekk í bú-
skap fjölda bænda. Allt of marg
ir bændur eru famir að van-
meta búfjáráburðinn, og hirð-
ing hans og notkun er í megn-
asta ólagi allt of víða, jafnvel
allt til þess að bændur reyna að
losa sig við hann eins og óþrifn
að og plágu í búskapnum. Jón
bóndi á Laxamýri ritar um
þetta í 1. janúarblaði Freys í
ár (1966). Og Jón upplýsir ótrú
lega hluti:
„Búnaðarsamband Suður-
Þingeyinga lét athuga áburðar-
hirðingu og notkun hjá 287
bændum, sem flestir höfðu
mjólkurframleiðslu til sölu. Af
þessum höfðu 113 hvorki haug-
hús né þvagþró. Og Jón upp-
lýsir ennfremur: — „Ekki
munu fá dæmi þess, að bændur
losi sig við svo til allan búfjár-
áburð sinn, einkum þar sem
þægilegt er að koma honum í
sjóinn.“ Og enn bætir hann við:
„Tilbúinn áburður er notaður
af vanþekkingu, og búfjáráburð
ur er látinn fara forgörðum í
stórum stíl.“
Síðan ræðir bréfhöfundur all
langt mál og rækilegt um áburð
og áburðamotkun. Ætti það að
vera þarfur lestur öllum bakka
bræðrum í búskap sínum, og ef
til vill opna augu þeirra til
hálfs a. m. k. Þessi kafli bréfs-
ins er annars fleytifullur af
fróðleik, sem hverjum ungum
bónda ætti að vera nauðsynleg-
ur og bráðskemmtilegur bama-
lærdómur, t. d. ummæli höfund
ar um plóginn og plægingar-
kunnáttuna. . . .!
XIII. kafli, 17. s. „En hér er
þrándur í götu. Trúleysið. Van
ti-úin. Vöntun á trú á íslenzka
mold. Einnig vantrú á mann-
dóm bænda. Trú á að hægt sé
og ómaksins vert að leiðbeina
þeim og fræða þá og leiða að
marki: fullum menningarbú-
skap . .. . “ Annars er allur þessi
kafli allrækileg rökræða um
uppruna og feril sáðsléttunnar
í íslenzkri túnrækt. Hér er mik
ilvægt mál og athyglisvert rætt
af alvöru og þekkingu, og á
kafli þessi brýnt erindi til
bænda yfirleitt!
XÍV. kafli, 18.—19. s. — „En
það er ekki aðeins heima á bú-
um bænda, sem nýrrar hagræð
ingar er þörf. Þar hefir skeð síð
ustu 20 árin undraverð og mikil
hagræðing, þótt hið mikla spor,
stórbætt ræktun í stað útþenslu
ræktunarinnar, sé nær óstigið
enn. ... að mjög er aðkallandi
að koma á aukinni hagræðingu
á öðru sviði, sem þó er nátengt
betri ræktun. Það er bætt
tækni og vinnubrögð við
geymslu búfjáráburðarins og
við að koma honum á ræktaða
landið — og samkvæmt endur-
ræktunarkenningu minni — nið
ur í túnin.
Það er þörf mikillar hagræð-
ihgar hjá samvinnufyrirtækjum
bænda og öðrum fyrirtækjum
slíkum, sem mjög grípa inní hag
bænda og útkomuna af fram-
leiðslu búvara. Drep aðeins á
þetta nú í lokin, og fer mjög
fljótt yfir.“ — (Hér verða að-
eins nefnd nöfn fyrirtækja
þeirra, sem rætt er um!)
Fóðurbætisverzlunin. Gras-
mjölsverksmiðjurnar. Slátur-
húsin. Mjólkurbúin. — „Og
loks skal ég ekki gleyma áburð
arverksmiðjunni. Þar er léleg-
ur áburður framleiddur í
óhentugri verksmiðju við litla
hagræðingu, og hefir svo verið
frá upphafi. Þetta kemur niður
á búskap bænda og framleiðslu
búvara í miklum og sívaxandi
mæli. ... “
XXX
Hér læt ég lokið ummælum
minum ásamt hrafli úr hinu
stórfróðlega Bænda-bréfi Árna
G. Eylands, sem hann ritaði í
febrúar 1966, en er nú sérprent
að úr ANDVARA 1967. Fæst
sérprentunin eflaust í bóka-
búðum!
IV. Niðurlag Bretlands-
bréfs Sn. J.
Sn. J. segir m. a. um brezkt
útvarp og blöð á þá leið, að und
anfama mánuði hafi á hvorum-
tveggja vettvangi mjög verið
rætt um eitrun jarðvegsins og
jarðargróðui-sins, og sé þetta
talið mikið alvörumál þar
syðra. — „Það er eitrun þessi á
I
landi og sjó, sem svo mikið er
nú rædd hér á Englandi og ef-
laust viðar um heim.“ ....
Athyglisverð er frásögn Sn.
J. um það, er Brezka útvarpið
10. febrúar kallaði á sinn fund
víðkunnan vísindamann til að
svara blákalt hinni hi-ottalegu
spurningu útvarpsins: „Are we
killing ourselves?“ (Erum við
að kála okkur sjálfum?) Og
svarið var stutt og laggott: „It
looks that way.“ (Svo virðist
vera.) Var málið rætt allítar-
lega í Utvarpinu brezka.......
— „Tilgangur Utvarpsins með
spurningu þessari var að fá
svar við fyrirspuminni um
hættu þá, sem margir óttast að
stafa muni af efnum þeim sem
notuð eru almennt til að auka
jarðargróður, og þá einnig af
þeim efnum sem notuð eru til
að eyða skordýrum.... En það
eru úðunarvökvar margvísleg-
ir. Segir Sn. J. frá reynslu sinni
á þeim vettvangi heima í
Reykjavík. Segir hann að lok-
um í grein sinni:
„Hugleiðingarefni er þetta:
„Hvað er annars um garðyrkj-
una hjá okkur — er hún ekki á
skaðlega frumstæðu stigi? Það
held ég alveg efalaust. Hún er
a. m. k. á því stigi, sem engan
samanburð þolir við garðyrkju
Englendinga og Skota.“
„Já, hvað um eitrunina? Er
ekki tími til kominn að
rumska?“
Helgi Valtýsson.
Kveðja
vestan af
Tinda hátt við himin ber,
hafsins raddir kalla.
Létt er flugið huga hér
heim til blárra fjalla.
Richard Beck.
Kyrrahafsströnd
ÞESSI MYND er af nýlega byggðu hesthúsi og álíta margir, að
það sé sumarbústaður. — Margir búfjáreigendur munu bráðlega
þurfa að rífa húskofa þá, sem hér og hvar þykja til óþurftar í
bænum og byggja hús í nýju hverfi. Kemur þá til athugunar,
hvort ekki er unnt, að byggja snyrtilega, án þess það sé mjög
dýrt. Mattlúas Gestsson byggði liesthús þetta. (Ljósmynd: E. D.)
AUir eru óánægðir
með síldarverðið
Og enn verra er þóvað síldin veiðist ekki
VERÐLAGSRÁÐ sjávarútvegs sl. gilda því óbreytt til septem-
ins hefur ákveðið að lágmarks- berloka 1967.
verð á bræðslusíld norðan- og Með samkomulaginu fylgdu
austanlands skuli vera hið sama svofelldar bókanir frá aðilum í
í ágúst og september og það ráðinu.
var, þ. e. 1.21 króna hvert kíló. Fulltrúar kaupenda taka
Tilkynningin fer hér á eftir: fram, að þeir hafi fallizt á
„Á fundi Verðlagsráðs sjávar óbreytt bræðslusíldarverð í
útvegsins í gær varð samkomu- ágúst og september þrátt fyrir
lag um, að lágmarksverð á síld lækkcindi verð bræðslusíldar-
í bræðslu veiddri við Norður- afurða, vegna örðugleika sjó-
og Austurland frá og með 1. manna og útgerðarmanna, sem
ógúst til og með 30. september stafa af alvarlegum aflabresti
1967, skuli vera óbreytt frá því og af því að orðið hefur að
sem nú er til 31. júlí þ. e. hvert sækja síldina á fjarlægari mið,
kg. kr. 1.21. Önnur ákvæði til- en nokkum tíma áður. Þetta
kynningar Verðlagsráðs sjávar hafi þeir gert, þótt horfur séu á
útvegsins nr. 8. 1967 frá 31. maí miklum hallarekstri síldarverk
frá Framnesi
FÆDD 24. ÁGÚST 1891 — DÁIN 15. APRflL 1967
Kveðja frá nágrönnum
Nú bráðum birtir yfir
og blessuð sólin skin,
því lausnari vor lifir,
hann leiðir þig til sín.
Nú mátt þú höfði halla
í herrans náðarskaut,
hann blessar ávallt alla
og eyðir hverri þraut.
Þér fyllstu þakkir færum,
þín fagra minning skin,
að ljóssins landamærum
er leiðin síðast þín.
Og litla leiðið hljóða
skal laugað kærleiks sól,
cn sumargjöfin góða
er guðs við náðarstól.
Ó hvað þú guð varst góður
— þú græddir sérhvern harm,
að rétta mæddri móður
þinn milda kærleiks arm.
Til hæða huga bendiun
nú hallar degi skjótt.
Við sumarkveðju sendiun
og segjum, góða nótt!
smiðjanna, ef sölhoi-fur bræðslu
síldarafurðanna, síldarmjöls og
síldarlýsis, breytast ekki fljót-
lega til hins betra.
Fulltrúar seljenda í Verðlags
ráði taka fram, að vegna þess,
að markaðshorfur á bræðslu-
síldarafurðum virðist hafa
versnað og söluverð á heims-
markaði er nú lægra en þegar
siðasta verðlagsákvörðun var
gerð 31. mai sl. telji þeir rétt að
samþykkja óbreytt verð á síld
til bræðslu, mánuðina ágúst og
september 1967, þótt þeir telji,
að með þessu síldarverði skorti
mikið á, að afkoma síldveiði-
skipanna og þeirra sjómanna,
sem á þeim starfa, sé tryggð.
Reykjavík, 25. júlí 1967,
VerSlagsráð sjávarútvegsins.“
- BINDINDISMÓTIÐ
f VAGLASKÓGI
(Framhald af blaðsíðu 1).
skógi um verzlunarmannahelg-
ina sé á engan hátt í tengslum
við mótið sem haldið var í
Vaglaskógi 15. júlí.
Að Bindindismótinu stóðu:
Æskulýðsráð Ak., UMSE, HSÞ,
ÍBA, IOGT, Skátafélag Ak.,
Æskulýðsfélag Akureyrar-
kirkju og Félag áfengisvarnar-
■ nefnda við Eyjafjörð. □
Hólahátíð helguð minningu i
Jóns biskups Ögmundssonar
HIN árlega Hólahátíð verður
eins og venjulega haldin sunhu-
daginn í 17. viku sumars, sem að
j>essu sinni er 13. ágús nk.
Aðallundur Hólafélagsins verð-
ur fyrir hádegi jjennan dag og
hefskl. 11.
Sjálf hátíðin hefst kl. 2 e. h.
með messu í Hóladómkirkju.
Messan verður samkvæmt hinu
klassiska formi með hátíðatónlagi
séra Bjarna Þorsteinssonar. Séra
Benjamin Kristjánsson á Lauga-
landi, prófastur Eyfirðinga, pré-
dikar, en séra Þórir Stephensen á
Sauðárkróki og séra Björn Björns-
son, prófastur á Hólum, j)jóna
fyrir allari, Organisti og söngstj.
verður Eyþór Stefánsson tónskáld
á Sauðárkróki og honunj lil að-
stoðar lrú Guðrún Eyþórsdóttir.
Kirkjukór Sauðárkróks Syngur,
Hólahátiðin er að þessu sinni
helguð minningu fyrsta biskupS-
ins á Hólum, Jóns ÖgniundsSon-
ar hins lielga. Sem kunnugt er-
var hinn helgi Jón biskup mikill
söngmaður og gerðist frumkvöð-
ull íslenzkrar tónmennta, er hann
réð sérstakan mann til að kenna
sönglist og versagerð við Hólá-
skóla. Eyþór Stefánsson tónskáld,
skólastjóri Tónlistarskóla Skag-
firðinga hefur nú samið tónverk,
er hann nefnir Da nobis pacem,
og tileinkar minningu Jóns helga.
Þetta er tónverk fyrir orgel og
kór og verður frumflutt á hátíð-
inni sem stólvers í messunni.
Að messu lokinni verður nokk-
urt hlé og geíst mönnum }>á tæki-
færi til að njóta veitinga, sem
seldar verða í hótelinu í skóla-
húsinu á staðnum. Lúðrasveit
Akureyrar mun leika á liátíðinni,
bæði úti og áður en meSsa hefst
og í sambandi við samkomur }>ær,
sem verða séinni hluta dagsins.
Stjórnandi liennar er Sigurður
Jóhannesson.
í dómkirkjunni verður sam-
koma fyrir fullorðna. Þar flytur
Steindór Steindórsson settur
skólameistari frá Akureyri erindi
um Jón Ögmundsson hinn helga-
Séra Þórir Stephensen á Sauðár-
króki form. Hólafélagsins flytur
erindi um starf og stefnu félags-
ins. Þá verður kórsöngur og al-
mennur söngur. Samkomunni
lýkur svo með ritningarlestri og
bæn, er séra Pétur Sigurgeirsson
á Akureyri flytur.
Á sama tima verður samkoma
fyrir börn og unglinga í leikfimis-
liúsi Bændaskólans. Hana annast
jjcir séra Jón Bjarman æskulýðs-
fulltrúi og Júlíus Júlíusson leik-
ari á Siglufirði. Mun þar verða
efni við hæfi barna og unglinga
bæði til uppbyggingar og skemmt-
unar.
Hólafélagið væntir þess, að
prestar mæti hempuklæddir og að
Norðlendingar fjölmenni heim að
Hólum.
Markaðsleit fyrir !
íslenzka dilkakjötið
Frá aðalfundi Kaupfélags Héraðsbúa
AÐALEUNDUR Kaupfél. Hér-
aðsbúa var haldinn að Reyðar-
firði þann 20. júní 1967.
Á lundinum voru mættir 32
fulltrúar auk stjórnar og framky.-
stjóra.
Formaður félagsins flutti skýrslu
stjórnar. Rakti harin störf henriar
sl. ár. Þá flutti Björn Stefánsson,
framkv.stjóri skýrslu um hag og
rekstur félagsins árið 1966, las og
skýrði reikninga Jiess. Kom fram,
að sala aðkeyptra vara nam 98
millj. kr. og hafði aukizt um 10%.
Reksturskostnaður hafði hækkað
og afkoma versnað rniðað við
fyrra ár.
Björn Stefánsson, sem vériðJhef-
ur framkvæmdastjóri félágsins
fimm og liálft ár, lætur riú áf
störíum. Við framkvæmdastjóra-
starfinu tekur Þorsteinn Svei'ns-
son, áður kaupfélagsstj. á Djúpa-
vogi.
Mæltu fulltrúar kyeðjuorð til
Björns, og þökkuðu honum''góða
þjónustu í þágu félagsins og buðii
hinn nýja framkv.stjóra velkom-
inn og óskuðu honuin blessunar
í starfi.
Á fundinum voru m. a. sarii-
þykktar eftirfarandi ályktanir:
„Aðalfundur Kaupfélags Hér-
aðsbúa 1967 telur, að mikið vanti
á, að nægilegu íé og fyrirhöfn
hafi verið varið til ýtarlegrar
markaðsleitar erlendis fyrir fs-
lenzkt dilkakjöt.
Fundurinn leyfir sér j>ví, að
skora á næsta aðalfund SÍS og
Stéttarsamband bænda, að jieir,
hvor í sínu lagi, taki þessi niark-
aðsmál til umræðu og geri raun-
hæfar ráðstafanir til breytinga og
aðgerða, sem leiða mættu til að-
kallandi úrbóta.
Fundurinn leggur á jjað
áherzlu, að komið verði i sem
fyllstu samstarfi ntilli viðkomandi
aðila — SÍS, Framleiðsluráðs
landbúnaðarins og landbúnaðar-
ráðlierra — til að kosta markaðs-
leit, fastráða til þess kunnáttu-
menn og gera tilraunir með nýj-
ustu aðferðir í pökkun á kjötinu,
m. a. fyrir liótelmarkað og fleira."
ÁBURÐARMÁL.
„Aðalfundur Kaupfélags Hér-
aðsbúa 1967, lýsir ánægju sinni
yíir því, að Áburðarverksmiðjan
lif. varð við beiðni Austfirðinga
um útvegun kalksaltpéturs, að
nokkrum hluta á þessu ári, og
væntir j>ess fastlega, að geta feng-
ið hann í enn ríkara mæli á næsta
ári og framvegis.
Þá beinir fundurinn þeim til-
mælum til Áburðarverksmiðjunn-
ar lif. að hún, svo fljótt sem verða
má, breyti framleiðsltt sinni á
þann hátt, að framleiða alhliða
áburð, kalkblandaðan og kornað-
an, svo og kalkblandaðan köfn-
unarefnisáburð.
Ennfremur að allur áburður
verksntiðjunnar verði framvegis
pakkaður í plastumbúðir."