Dagur - 18.08.1967, Síða 1
Herbergis-
pantanir.
Ferða-
skrifstofan
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
Ferðaskrifstofan
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Nýja þofan kemur á miðvikudag
GERT er ráð fyrir að hin nýja
þota F. í. komi liingað til Akur
eyrar á miðvikudaginn. En beð
ið hefur verið eftir því, að lokið
væri malbikun flugvallarins. Er
ekki að efa, að Akureyringa
fýsi að sjá þessa umtöluðu og
rómuðu flugvél, sem reynzt
hefur framúrskarandi vel og
liefur þegar valdið þáttaskipt-
um í flugmálum F. f.
Væntanlega verður hægt að
segja nánar frá þessu í næsta
tölblaði á þriðjudagskvöldið. □
SVIFSKIP,
NÝJASTA FARARTÆKIÐ
KOMIÐ er til landsins á veg
um ríkisins, Vestmannaeyja
og Akraness, nýtt farartæki,
. svifskip eða flugnökkvi, til
re.vnslu. Helzt verður að
telja farartækið til skipa,
enda lýtur það lögum og regl
um samkvæmt því á sjó og
vötnum, en fer auk þess á
landi, sem ekki er mjög mis
hæðótt.
Svifskipið er 14.76 m. á
lengd og 7 m. á breidd. Há-
markshraði í logni og á
sléttu vatni er 110 km. á klst.
Þyngd skipsins fullhlaðins
er 10 tonn.
Fært þykir að sigla þess-
i-----------------------------
um farkosti á sjó með far-
þega þar sem aldan er 1.5
metrar á hatð, og í meiri
öldu með fragt. Það er um
10 nu'nútna sigling frá Vest-
mannaeyjum til lands á svif
skipi og farin hefur einnig
verið reynsluför um sand-
ana við Suðurströndina og
gengið vel. Kaupverð þess
skips, sem hér um ræðir, er
imi 16 millj. ísl. kr. Erlend
reynsla þessara farartækja
er enn stutt, en síðan 1965
hafa þó mörg svifskip verið
notuð til áætlunarferða á
stórám og vötnum í nokkr-
um löndum. □
Norskir skógræklarmenn
HÉR á landi hafa um skeið dval
ið norskir skógræktarmenn, 70
talsins og jafn stór hópur íslend
inga hefur kynnt sér skógrækt-
armál í Noregi.
Sextán hinna norsku skóg-
ræktarmanna hafa verið í Eyja
firði og S.-Þingeyjarsýslu, 8 á
hvorum stað hjá skógræktar-
félögunumm, 12 karlar og 4 kon
ur. Norska skógræktarfólkið
vinnur bæði að plöntun og grisj
un. Það kom um verzlunar-
mannahelgina og hélt heim á
leið í gær. Plantað var í Kóngs
staðahálsi og í Arnarneshreppi
Haraldur ríkisarfi Noregs og Miklebost ambassador.
Á vígsludegi félagsheimilisins í Varmahlíð.
Félagslicimilið vígt í Varmalilíð
í Skagafirði 12. ágúst
LAUGARDAGINN 12. þ. m.
var nýtt félagsheimili vígt í
Varmahlíð í Skagafirði og heit-
ir Miðgarður. Mikil hátíðahöld
voru og um 350 manns var boð-
ið til vígslunar, sem hófst með
því að formaður byggingar-
nefndar hússins, Sigurpáll Árna
son, bauð gesti velkomna. Síð-
an var helgistund, sem séra
Gunnar Gíslason annaðist. Þar
næst flutti Sigurpáll Árnason
í heimsókn
og víðar og grisjaði í Leynings-
hólum. Sameiginleg skemmti-
ferð var farin. Aukin kynni
fólks og aukin þekking í skóg-
rækt er mikils virði. Og þótt
við séum eflaust fremur þiggj-
endur í þeim efnum, er skóg-
rækt varðar hafa Norðmenn
ekki séð ástæðu til að slíta hin-
um árlegu „nemendaskiptum“
og megum við vera þakklátir
fyrh- það, auk hinnar beinu að-
stoðar þeirra við ræktun skóga
á íslandi. □
byggingarsögu félagsheimilis-
ins, en framkvæmdir hófust í
júní 1963. Teikningar gerðu
Gísli Halldórsson og Jósep
Reynis, byggingarmeistari hef-
ur verið Guðmundur Márus-
son, Þormóðsholti.
Miðgarður er um 4.400 rúm-
metrar á tveimur hæðum og
‘kjallara. Hurðir og harðviðar-
þiljur framleiddi Trésmiðjan
Borg á Sauðárkróki. Vélsmiðj-
an Oddi á Akureyri sá um loft-
ræstingarkerfi, raflagnir annað
ist Þórður P. Sighvatsson og
Ólafur Pálsson, húsgögn smíð-
aði Stáliðn h.f. á .Akureyri.
Byggingarkostnaður er 9—10
millj. kr. Guðmundur Márus-
son lýsti húsinu og sýndi gest-
um. Margar ræður voru fluttar
og húsinu færðar gjafir. Kirkju
kór Víðimýrarsóknar gaf flýil,
Trésmiðjan Borg gaf ræðustól,
einnig bárust félagsheimilinu
peningagjafir, m. a. frá Birni
Guðmundssyni frá Reykjarhóli
og Bjarna Halldórssyni á Upp-
sölum. Frú Vigdís Óskarsdóttir
frá Brekku gaf heimilinu nafn-
ið Miðgarður og var það valið
úr 150 tillögunöfnum. Veizlu-
stjóri var séra Gunnar Gísla-
son. Aðaleigendur Miðgarðs
eru Seyluhreppur, Akrahrepp-
ur, Ungmennafélag Seylu-
hrepps, Kvenfélag Seyluhrepps
og Karlakórinn Heimir.
Félagsheimilið stendur á hæð
ofan Varmahlíðar og sunnan
sundlaugar og er þar hin feg-
ursta útsýn yfir Skagafjörð.
Það má segja að þaðan liggi veg
ir til allra átta og búast má við
að þarna verði vinsæll skemmti
staður.
Húsvörður hefur verið ráð-
inn Kristján Sigurpálsson og
óskum við honum góðs gengis
í starfinu, en á honum mun að
mestu hvíla mótun og rekstur
Miðgarðs. S. G.
Sumarháiíð
F ramsóknarmanna
við Eyjafjörð verður í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld og hefst
kl. 21. Ávarp flytja Ingvar
Gíslason alþingismaður -og
Jón A. Baldvinsson nem-
andi. Magnús Jónsson óperu
söngvari syngur og gaman-
þætti flytja Karl Guðmunds
son og Eyvindur ErlendsSon.
Sjá nánar í auglýsingu í
blaðinu í dag. □
HARALDUR RÍKISARFINOREGSIHEIM-
SÓKN Á AKUREYRI
HARALDUR ríkisarfi Noregs,
sonur Ólafs konungs, kom í opin
bera heimsókn 'hingað til lands
10. ágúst. Hann er þrítugur að
aldri, gjörvilegur maður, vin-
sæll í 'heimalandi sínu, góður
íþróttamaður, alúðlegur og
virðulegur í framgöngu. Ríkis-
arfinn, ásamt föruneyti, kom
með Blikfaxa ti! Reykjavíkur
og tók forsetinn, herra Ásgeir
Ásgeirsson, á móti honum við
landganginn, lúðrasveit lék þjóð
söngva landanna og lögreglu-
menn stóðu heiðursvörð. Áður
hafði forsætisráðherran, Bjarni
Benediktsson, og fleiri tekið á
móti honum á Keflavíkurflug-
velli, en þar lenti hann stundu
fyrr með hinni nýju þotu F. 1.
Haraldur ríkisanfi naut þeirr
ar gestrisni íslenzkrar stjórnar-
valda, sem unnt var að láta í té
í höfuðborginni, en ferðaðist
einnig töluvert, fór upp i Borg-
arfjörð og renndi m. a. fyrir lax
í Haffjarðará, skoðaði einnig
hvalveiðistöðina í Hvalfirði.
Kom í Skálholt, að Gullfossi og
Geysi og vígði skógræktarstöð-
ina á Mógilsá. Hann kynnti sér
eftir föngum íslenzka list og
menningu. Frá Stóra-Kroppi í
Borgarfirði var flogið til Akur-
eyrar. Flugvélin lenti á Akur-
eyrarflugvelli á sjötta tímanum
á sunnudaginn. Með Haraldi
var Jóhann Hafstein dómsmála
ráðherra, ambassador íslands í
Noregi, ambassador Norðmanna
á íslandi og margt annað góðra
gesta.
Forseti bæjarstjórnar, bæj-
arstjóri, bæjai-fógeti og norski
vararæðismaðurinn tóku á móti
ríkisarfanum á flugvellinum og
var síðan ekið að Hótel KEA,
þar sem bæjarstjórn bauð til
42 manna kvöldveizlu og gest-
irnir tóku sér síðan gistingu.
(Framhald á blaðsíðu 5).