Dagur - 18.08.1967, Síða 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Símar 1-1166 og 1-1167
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar hi.
SMÍÐUM SJÁLFIR
OKKAR SKIP
UM NOKKURT SKEIÐ heíur end-
urnýjun 30—50 lesta fiskibáta setið á
hakanum en þess í stað verið keypt
til landsins stór síldveiðiskip. Ýmsir
hafa varað við þessari einhliða þró-
un, en síldin hefur talað því máli,
sem meiri hljómgrunn hefur fengið
og í raun og veru hefur allt snúist
um hana. Sennilegt er, að stefnu-
breyting verði hér á, og þess sé
skammt að bíða að smíði 30—50 lesta.
báta hefjist fyrir alvöru því að út--
gerð slíkra báta hefur oft verið mjög
farsæl og verið uppistaða atvinnulífs
á mörgum stöðum. Endurnýjun
þessa hluta bátaflotans þarf að fara
fram innanlands og eru þar mikil
verkefni fyrir höndum.
Hundruð milljóna hafa á ári
hverju verið varið til kaupa á síldar-
skipum erlendis. Þeirri þróun þarf
einnig að breyta enda eru nú risnar
slálskipastöðvar í landinu, sem þeg-
ar hafa sýnt getu sína á vettvangi ný-
smíðanna. Hér á Akureyri er risin
stálskipasmíðastöð, sem getur smíð-
að 2500 lesta skip í húsi og sjósetti
nýlega Eldborgu GK 13, sem er nýtt
nálega 560 lesta fiskiskip, stærsta
skip, sem hér á landi hefur verið
byggt*
En hvað bíður íslenzku skipa-
smíðastöðvanna? Fá þær verkefni til
að halda áfram starfi og þá fyrir-
greiðslu ríkisvalds og banka, sem til
þess er nauðsynlegt? Stálskipin Sig-
urbjörg og Eldborg sýna liæfni iðn-
aðarmanna á Akureyri. En trauðla
mun Slippstöðin fær um samkeppni
hvað verð snertir, enn sem komið er.
Stofnkostnaður er mikill og hag-
kvæm aðstaða dýr en nauðsynleg til
að nýta vinnuaflið sem bezt. íslend-
ingar hafa ekki efni á því og geta
ekki unað því lengur að greiða
vinnulaun við skipasmíðina úr
landi, eins og gert hefur verið til
þessa. Takmarkið hlýtur því að vera
það, að skipasmíðamar verði eftir-
leiðis framkvæmdar innanlands. En
til þess að útgerðarmenn eigi þess
kost að kaupa jafn ódýr fiskiskip
innanlands og þau, sem erlendis fást,
þarf fyrirgreiðsla hins opinbera til
að koma.
Á skömmum tíma hafa íslenzkir
járniðnaðarmenn og tæknifræðingar
öðlazt dýrmæta reynslu í skipasmíð-
um úr málmi. Sú reynsla og aukin
fjárhagsleg aðstoð við uppbyggingu
skipasmíðastöðvanna mun gera inn-
lendum iðnaðarmönnum fært að
keppa við erlenda starfsbræður í
smíði fiskiskipa og minni flutninga-
skipa í nánustu framtíð. Að því ber
að vinna af heilindum og festu. □
Er það
BÚNAÐARÞING samþykkti í
vetur eftirfarandi ályktun me'ð
23:1 atkvæði:
„Búnaðarþing skorar á land-
búnaðarráðherra að hlutast þég
ar í stað til um, að útrýmt verði
hringormasýki þeirri (hrings-
kyrfi), sem náð hefur fótfestu í
Eyjafirði. Þar sem yfirdýra-
læknir telur öruggast til útrým
ingar veikinni að beita niður-
skurði, verði öllum nautgripum
lógað á þeim bæjum, þar sem
sýkinnar hefur orðið vart, og í
framhaldi af því gerðar hverjar
þær varúðarráðstafanir, sem
þörf er á að dómi yfirdýralækn
is. Ennfremur verði eigendum
gripanna tryggðar fullar bætur
úr ríkissjóði fyrir bústofns-
missi og afurðatjón.“
Þessari ályktun lét nefndin
fylgja stutta greinargerð, svo-
hljóðandi:
„Búfjárræktarnefnd lítur svo
á, að mál það, er ályktun þessi
fjallar um, sé svo alvarlegs
eðlis, að Búnaðarþing geti ekki
farið svo heim, að það láti það
ekki til sín taka. Höfuðrökin
fyrir efni ályktunarinnar telur
nefndin þessi:
1. Lækningar á sjúkdómnum
.eru, að því er yfirdýralæknir
telur, mjög dýrar og vinnu-
frekar.
2. Yfirdýralæknir telur von-
lítið að hægt sé að útrýma sjúk
dómnum að fullu með þvi að
beita lækningum. Ef það reyn-
ist rétt, virðist óhugsandi að
komast hjá því, að hann breið-
ist út með fólki og fénaði, og er
þá ógerlegt að gera sér grein
fyrir, hver fjárútlát og óþæg-
indi slíkt kann að kosta um
langa framtíð.
3. Erlend reynsla sýnir, að
sauðfé og hross geta tekið og
borið sýkina og segir sig sjálft,
hvaða áhrif það hefði, ef svo
tækist til hér.
4. Yfirdýralæknir telur á
hinn bóginn miklar líkur til að
unnt yrði að útrýma sýkinni
með aðgerðum þeim, er í álykt-
uninni er stungið upp á.“
Af ályktuninni er ljóst, enda
þar vitnað í álit yfirdýralæknis,
að niðurskurður er talinn örugg
asta leiðin til útrýmingar hring
ormasýkinni.
í greinargerð segir, og er aft-
ur vitnað í álit yfirdýralæknis,
að vonlítið sé að „útrýma sjúk-
dómnum að fullu með því að
beita lækningum.“ Ennfremur
segir í greinargerð: „Yfirdýra-
læknir telur miklar lýkur til að
unnt yrði að útrýma sýkinni
með aðgerðum þeim er stungið
er upp á.“ Það er niðurskurði.
Hér eru athyglisverð orð um
þann vágest, sem nýr búfjár-
sjúkdómur er bændastéttinni,
og ógnar bæði henni og þjóð-
félaginu í heild, þótt ekki sé
um að ræða sjúkdóm af versta
tagi.
Eyfirðingar hafa síðan þrem
sinnum samþykkt áskoranir til
yfirvaldanna um að gerðar
yrðu tafarlaust þær ráðstafanir,
sem líklegastar þættu til að út-
rýma hinum nýja búfjársjúk-
dómi að fullu. Og í sumar tóku
Þingeyingar afstöðu til málsins
á sama hátt.
En hver er svo þáttur þeirra
sem með völdin fara og ákvarð
anir taka í málinu? Hann er sá,
að öruggasta leiðin var ekki
farin, þ. e. niðurskurður búfjár
á hinum sýktu bæjum, heldur
sú næstbezta, þ. e. að girða af
sýkta bæi og reyna að lækna
veikina með meðölum. Reynsl-
an af lækningum er sú, að þær
hafa ekki tekizt ennþá þótt veik
inni sé haldið niðri, enda ekk-
næstbezta nógu gott?
ert afgerandi og öruggt- lyf
þekkt þótt ýmis lyf séu notuð
með þeim árangri að draga úr
veikinni. Og kostnaður er orð-
inn mjög mikill.
En ekki er vitað um að veik-
in hafi breiðzt út frá hinum 9
sýktu búum. Hringormurinn lif
ir því enn og er af honum sama
hætta og áður. Hætta á út-
breiðslu er mjög mikil vegna
þess, að í þeirri keðju nauðsyn-
legra varnarráðstafana, þarf
ekki nema einn veikan hlekk.
Á meðan enn vantar eina hlið
Grundargirðingar og notast er
við einfalda nautgripagirðingu
að hluta fyrir gripi af sýktu
svæði, mjólkurbrúsar eru dag-
lega fluttir ósótthreinsaðir með
brúsum frá ósýktum bæjum og
búfé gengur út og inn um opin
hlið á varnargirðingunum, er
ekki um einn veikan hlekk að
ræða heldur marga. Þessu mega
bændur ekki una.
Því hefur verið haldið fram
hér um slóðir, að gripir yrðu
ónæmir og fengju ekki hring-
oi*masýki nema einu sinni. Ekki
hefi ég fundið það í greinum
erlendra blaða um þessi mál.
Því er líka haldið fram hér að
Veikin sé mjög meinlaus og
valdi ekki afurðatjóni. 1 er-
lendu landbúnaðartimariti ritar
norskur læknir og segir, að bú-
fjáreigendur verði árlega fyrir
tilfinnanlegU' fjárhagslegu tjóni
af völdum hringormsins. Þess
utan veikjast margir menn al-
varlega, þar sem ‘hringorma-
sýkt húsdýr eru leidd til slátr-
unar, því að þessi búfjársjúk-
dómur leggst einnig á fólk. Hér
í blaðinu hefur það verið gert
að umtalsefni, hve hæpin ráð-
stöfun það er, að nota ekki þá
leið til útrýmingar hringorma-
veikinni, sem allir eru sammála
um, að líklegust sé til fulls
árangurs. Hér er ekki um
eyfirskt mál eða norðlenzkt að
ræða sérstaklega, þótt veikin
hafi komið upp í Eyjafirði, held
ur vandamál, sem varðar alla
bændastéttina. Og það er hún,
sem ekki má una neinni annarri
leið en þeirri öruggustu.
Það hlýtur að vera krafa
bændastéttarinnar allrar, að nú
þegar verði kákráðstöfunum
einum ekki lengur beitt. Þær
eru til vanvirðu og sýna ófyrir-
gefanlegt ábyrgðarleysi. Það er
nú svo komið, að ráðuneyti og
dýralæknar bera sök af sér,
•hver sem betur getur og vilja
ekki bera á'byrgð á því, sem er
að gerast í Eyjafirði og getur
orðið afdrifaríkt. En á meðan er
útbreiðsluhættunni boðið heim
og tekið á sýkinni með silki-
hönskum. Dýralæknar liggja nú
undir harðri gagnrýni bænda,
sem hafa: loks áttað sig á því,
hver hætta er á ferðum. Og
sjálft er fólkið á sýktu svæðun-
um eins og „óhreint fólk“ í
margra augum og er ekki við
það unandi. Bændur krefjast
þess að vita það, hvers vegna
var farin sú leið í hringorms-
málinu (lækningaleiðin), sem
sjálfur yfirdýralæknir hefur
talið bæði dýra og ólíklega til
að bera árangur. E. D.
Álykíunarfillðga Þingeyinga
HINN 18. júlí sl. héldu sýslunefndirnar í Suður- og Norður-
Þingeyjarsýslu sameiginlegan fund í Húsavík, til að ræða
um búfjársjúkdóm þann, sem upp kom í Eyjafirði á sl. ári,
og um ráðstafanir til að hindra útbreiðslu hans.
Á fundinum mætti Einar O. Bjömsson, dýralæknir, Húsa-
vík, og flutti erindi um sjúkdóminn og um það hvaða ráð-
stafanir væru helzt tiltækar til lækninga og til varnar út-
breiðslu hans.
Einnig mætti á fundinum Snæbjörn Sigurðsson, bóndi á
Grund í Eyjafirði, og skýrði frá gangi sjúkdómsins í Eyja-
firði og reynslu sinni í baráttunni við hann.
Fundurinn samþykkti svohljóðandi ályktunartillögu:
„Sameiginlegur fundur sýslunefnda í Þingeyjarsýslum,
haldinn í Húsavík 18. júlí 1967, leyfir sér hérmeð að skora
á hæstvirtan landbúnaðarráðherra að hefja nú þegar hik-
lausa baráttu fyrir útrýmingu búfjársjúkdómsins eyfirzka,
hringskyrfi.
Sýslunefndirnar líta svo á, að hverskonar dráttur á raun-
hæfum framkvæmdum í þessu efni geti valdið því, að út-
rýming verði síðar óframkvæmanleg, og að einungis með
niðurskurði á sýktum hjörðum, jafnharðan og sjúkdóms-
einkenni koma í ljós, verði því marki náð.
Þar sem talið er, að sauðfé hafi tekið veiki þessa, og upp-
lýst er, að fé frá sýktum heimilum var sleppt á afrétt s.l.
vor, telja sýslunefndimar sjálfsagt, að sauðfjárveikivamim-
ar taki það atriði til ítarlegrar meðferðar.“
Ályktunin var samþykkt í einu hljóði af öllum fundar-
mönnum.
Sýslunefndirnar vænta þess, að landbúnaðarráðherra taki
mál þetta föstum tökum og láti vinna ötullega að útrýmingu
veikinnar. g
Fyrirhuguð bygging nýs gagnfræðaskóla
Ólafsfjörður 30. maí.
Gagnfræðaskólanum í Ólafs-
firði var slitið laugardaginn 27.
maí. Skólastjórinn, Kristinn G.
Jóhannsson, flutti ræðu og
gerði grein fyrir skólastarfinu í
vetur, lýsti úrslitumi prófa og
Heybruni í
Hörgárdal
Á SUNNUDAGINN kom upp
eldur í heyhlöðu í Fornhaga í
Hörgárdal. Brann hey, einnig
hlöðuþakið og þak á áföstum
fjárhúsum. Slökkviliðið frá Ak-
ureyri kom til hjálpar og
slökkti eldinn.
Ingólfur bóndi í Fornhaga
kvaðst ekki vita um hey-
skemmdimar. E. t. v. hafa um
hundrað hestar eyðilagst af
eldi, en tjón af vatni er órann-
sakað og kemUr ekki að fullu
í ljós fyrr en farið verður að
gefa heyið í vetur. — Hús og
hey var vátryggt. □
afhenti verðlaun. Nemendur
voru í vetur 64, kennarar voru
tveir fastráðnir auk skólastjóra
og sex stundakennarar. Útskrif
aðir gagnfræðingar voru 17.
Hæstu einkunn á gagnfræða-
prófi hlaut Rögnvaldur Skíði
Friðbjörnsson 8.21. í þriðja
bekk varð efst Hugrún Jóns-
dóttir með 8.02. Á unglingaprófi
hlutu hæstu einkunnir Róslaug
Gunnlaugsdóttir 8.88 og Benoný
Ægisson 8.35. Hæstu einkunn í
1. bekk hlaut Helga P. Brynjólfs
dóttir 9.22, sem jafnframt var
hæsta einkunn skólans. Verð-
laun veittu auk skólans Rotary-
klúbbur Ólafsfjarðar, Brynjólf-
ur Sveinsson, Verzlunin Val-
berg og Verzlunin Lín. Þá gerði
Bjöm Þór Ólafsson íþróttakenn
ari grein fyrir íþróttamótum inn
an skólans í vetur og hlutu all-
margir nemendur verðlaun fyr-
ir góðan árangur.
I vetur var stofnað leikfélag
í skólanum og settu nemendur
á svið leikinn Elrasmus Mont-
anus eftir Holberg undir stjóm
Kristins G. Jóhannssonar skóla
stjóra. Var leikurinn sýndur
alls fimm sinnum, þar af tvisvar
á Dalvík. Skólastjórinn skýrði
frá því, að leikfélag G. Ó. hefði
með ágóðanum af leiksýning-
irnni stofnað sjóð til kaupa á
listaverkum í væntanlegt Gagn
fræðaskólahús. Þakkaði hann
nemendum fyrir þann þegn-
skap, sem þeir sýndu skólan-
um í stað þess.að nota ágóðann
til þess að styrkja ferðasjóð
bekkjarins. Leikfélagið stóð og
fyrir bókmenntakynningu í
skólanum, og var Halldór Lax-
nes kynntur og verk hans. Var
Rotaryfélögum boðið á kynn-
inguna, en klúbburinn býður
árlega nemendum annars bekkj
ar að sitja Rotaryfund. Kvöld-
vökur voru nokkrar í skólanum
í vetur. Foreldradagur var einn
á vetrinum. Lárus Jónsson for-
maður fræðsluráðs þakkaði
nemendum tillag þeirra til að
prýða hinn nýja gagnfræðaskóla
og skýrði svo frá, að vonir
stæðu til að hægt yrði að hefja
framkvæmdir við bygginguna á
þessu sumri. Þ. J,
Færeyingarnir fengu á sig 17
mörk í tveim leikjum!
f SL. VIKU kom hingað eitt
bezta knattspyrnulið Færeyja,
H. B. frá Þórshöfn, og lék tvo
leiki við A- og B-lið ÍBA. Ekki
sóttu Færeyingar gull í greipar
Akureyringa, því þeir fengu á
sig 17 mörk í tveim leikjum, en
skoruðu 1. A-lið ÍBA sigraði þá
7:1 og B-lið ÍBÁ 10:0. Mark-
vörður Færeyinga sýndi oft góð
KN ATTSP YRNUMÓT Akur-
eyrar í öllum flokkum stendur
nú yfir. Sl. miðvikudag léku
KA og Þór í 5. fl. og 3. fl. Leik-
ar fóru þannig, að jafntefli varð
Y estmannaeyingar
koma ekki
FRÁ því var sagt í AM að Vest
mannaeyingar léku hér tvo
leiki um helgina, en samkvæmt
upplýsingum frá KRA verður
ekki af lieimsókn þeirra nú
vegna úrslitaleiks í b. riðli II.
deildar við Víking.
SUNDMEISTARAMÓT Akur-
eyrar fer fram n. k. laugardag
19. ágúst kl. 5 e. h. í sundlaug
bæjarins. Keppt verður í 13
greinum. Að undanfömu hefur
dvalizt hér í bænum sundþjálf-
ari úr Reykjavík, Torfi Tómas-
son, og hefir hann leiðbeint
sundfólki bæjarins fyrir þetta
mót. Búast má við að sundfólk-
ið sýni góð tilþrif og gömul met
verði bætt. Fólk er hvatt til að
mæta við sundlau'gina á laugar
dag og sjá spennandi keppni.
Keppt verður í mörgum ald-
ursflokkum og eni keppendur
milli 20 og 30 úr KA, Þór og
Óðni. Akureyrarmót í sundi hef
ur fallið niður um árabil, og
(Framhald af blaðsíðu 8).
arvelta K. S. á árinu 1966 kr.
221.5 millj. og hafði aukizt um
22 millj. frá 1965 eða um 11%.
Heildarfjárfesting kaupfélags
ins á sl. ári var um 9 millj. kr.
1 byggingu er stórt verzlunar-
húsnæði í Varmahlíð og verður
það væntanlega tekið í notkun
á þessu ári eða í ársbyrjun 1968.
Lokið var við myndarlegt úti-
bú — suðurbæjarútibú — hér á
Sauðárkróki, og var það tekið
í notkun seinnihluta árs 1966.
Fyrningar eigna voru um 4.2
millj., fyrir utan vörubirgðh'.
Greiðslur K. S. fyrir vinnu, akst
ur og þjónustu var kr. 27.3
millj., og Fiskiðju Sauðárkróks
3.7 millj. eða samtals kr. 31
millj.
Opinber gjöld á sl. ári voru
um 2.4 millj., og að auki inn-
hehnti kaupfélagið söluskatt fyr
tilþrif, þótt hann yrði að sækja
knöttinn svo oft í markið.
Greinilegt var að Færeyingar
eru ekki vanir grasinu og hefur
það e. t. v. dregið eitthvað úr
getu þeirra. Frá Akureyri fór
H. B. til Hafnarfjarðar og lék
þar við Hauka á malarvelli og
sigruðu Færeyingar í þeim leik
4:3. Sv. O.
í 5. fl. 1 mark gegn 1, bæði mörk
in skoruð á fyrstu mínútum
leiksins. Þarf því að leika auka
leik í þessum flokki. Úrslit í 3.
fl. urðu þau, að KA sigraði með
4:3. Á fimmtudag léku svo KA
og Þór í 4. fl. og 2. fl. í 4. fl. fóru
leikar svo að KA sigraði 1:0.
Leikur 2. fl. var skemmtilegur
og vel leikinn og sigraði KA
7:4. Eftir er að leika í meistara-
fl. og leika þarf aftur í 5. fl.
KA hefur orðið Akureyrar-
meistari í 4., 3. og 2 fl., og virð-
ist nú sem yngri flokkar KA
séu betri en flokkar Þórs, en að
því eru nokkur áraskipti.
Sv. O.
mikil og óskiljanleg deyfð á
sundíþróttinni ríkt hér í bæ.
Vonandi verða nú þáttaskil og
sundmót verði á ný fastur liður
í íþróttah'fi bæjarins.
Sv. O.
Þrír Akureyringar
ÞRÍR knattspyrnumenn frá Ak
ureyri voru valdir í 16 manna
hóp, sem fer til Kaupmanna-
hafnar og þreytir landsleik við
Dani n. k. miðvikudag. Akur-
eyringarnir eru Guðni Jónsson,
Kári Árnason og Jón Stefáns-
son. Ekki er enn búið að ákveða
hvaða 11 menn leika.
ir ríkið, tæpar 5 millj. á því ári.
Aðalfundur samþykkti að ráð
stafa tekjuafgangi þannig: Lagt
var í Menningarsjóð K. S. kr.
50.000.00, í varasjóð kr. 40.000.00
og til höfuðstólsreiknings kr.
200.000.00. Eftirstöðvamar að
upphæð kr. 1.6 millj. voru lagð-
ar í stofnsjóð félagsmanna, í
hlutfalli við viðskipti þeirra við
félagið, en það mun vera um 4%
af ágóðaskyldum viðskiptum.
Á undanfömum árum hefur
Kaupfélag Skagfirðinga getað
endurgreitt félagsmönnum í við
skiptareikning um 3% af ágóða
skyldri úttekt og að auki lagt
um 4% í stofnsjóð.
Þeir Jóhann Salberg Guð-
mundsson og Bjöm Sigtryggs-
son voru endurkjörnir í stjóm,
en fyrir í stjóminni voru þeir
Tobías Sigui-jónsson, Gísli
Magnússon og Bessi Gíslason.
Markvörður Færeyinga, sem
sýndi oft góð tilþrif, varð að
horfa á eftir knettinum 17 sinn-
um í markið. Ljósm.: H.T.
FRAM-ÍBA, 2. FL.
Á LAUGARDAGINN kl. 2 e. h.
leika hér á íþróttavellinum
knattspymumenn úr 2. fl. frá
Fram, Reykjavík, og ÍBA.
Gaman getur orðið að sjá yngri
mennina spreyta sig. Annar
leikur verður á sunnudag.
Knattspyrnukeppni
að Laugalandi
Á MORGUN, sunnudag, kl. 7
e. h. verður knattspyrnuleikur
á Laugalandsvelli milli Skag-
firðinga og Eyfirðinga. Er sá
leikur liður í undankeppni
Landsmóts UMFÍ að Eiðum á
næsta ári. Búast má við jöfnum
og spennandi leik, eins og oft
áður milli þessara aðila.
HÉRAÐSMÓT UMSE
HÉRAÐSMÓT Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar í frjálsum
íþróttum verður haldið á Lauga
landsvelli í dag og á morgun
(laugardag og sunnudag) og
hefst fyrri daginn kl. 2.30 e. h.
Keppt verður í 20 íþróttagrein-
um karla og kvenna, og eru
margir þátttakendur skráðir í
flestar greinar.
Á sunnudagskvöld verður
dansleikur í Frej'vangi fyrir
íþróttafólk UMSE og gesti.. Póló
og Bjarki leika. Á dansleiknum
verða aðalverðlaun mótsins af-
hent.
Á sl. ári vann umf. Þorsteinn
Svörfuður héraðsmótið.
B-LIÐ ÍBA TAPAÐI
FYRIR B-LIÐI KR 3:2
SEGJA MÁ að fyrsta tilraun
Akureyringa að senda B-lið í
Bikarkeppni KSÍ hafi heppnazt
vel. Þeir töpuðu að vísu fyrir
B-liði KR 3:2 sl. sunnudag á
Melavellinum í Reykjavík, en
búast má við af reynslu undan-
farinna ára, að B-lið KR sé
eitthvert sterkasta liðið, sem
þátt tekur í undankeppninni.
Það var slæmt fyrir Akur-
eyringa að fá ekki þennan leik
á íþróttavellinum hér, því aldrei
er gott að æfa á grasi en leika
á möl.
Sjálfsagt er að halda áfram á
þessari braut og gefa B-liði
ÍBA færi á eins mörgum leikj-
um og framast er unnt.
Sv. O.
Knattspyrnumót Akureyrar:
KA hefur sigrað í þrem flokkum
AKUREYRARMÓT í SUNDI
í DAG, LAUGARDAG
AÐALFUNDUR KAUPFÉLAGS SKAGFIRÐINGA
- Haraldur ríkisarfi
(Framhald af blaðsíðu 1).
Á mánudaginn var förinni
fram haldið og ekið til Mý-
vatnssveitar, hin fagra sveit
skoðuð og matar neytt í hótel-
inu í Reykjahlíð. Samdægurs
var flogið til Reykjavikur, en
áður hélt dómsmálaráðherra
óformlega veizlu í Sjálfstæðis-
húsinu á Akureyri.,
Förin hér nyrðra var mjög
ánægjuleg og mótttökur mis-
fellulausar, að því er blaðinu
hefur verið tjáð.
Haraldur ríkisarfi Noregs
hélt heimleiðis í gær. — Koma
hans var íslendingum kær,
dvöl hans hin ánægjulegasta og
öll munum við óska honum
góðrar heimkomu. □
TIL SÖLU: PHILIPS REIÐHJÓL Lítið notað. Selst ódýrt,,;. Sími 1-15-43,- f'
TIL SÖLU: ÞVOTTAPOTTUR og þvotTavél. Selst ódýrt. “ ' Bjarkastíg 3, niðri.
TIL SÖLU: HONDA skellinaðra, árg. 1966, vel útlítandi og í mjög góðu lagi. Uppl. í síma 1-29-80 milli kl. 7 og 8 e. h.
JEPPAKERRA til sölu. Uppl. í síma 1-26-28 milli kl. 7 og 8 e. h.
Til sölu er Pedegree BARNAVAGN með tösku. Uppl. í síma 1-28-44. -
Til sölu eru tvær ÞVOTTAVÉLAR, önnur með þeytivindu óg sýður. Sími 1-23-81.
RIFFLAR TIL SÖLU cal. 22 og cal. 222. Uppl. í síma 1-19-47.
Til sölu mjög vandaður og vel með farinn BARNAVAGN. Uppl. í síma 2-14-47.
MYNDAVÉL til sölu. Minolta Himatic 7 með tækifærisverði. Uppl. í síma 1-12-80.
TRILLUBÁTUR, 11/2 tonns, til sölu. Uppl. í síma 1-23-57 v eftir kl. 7 e. h.
TIL SÖLU: ÞVOTTAPOTTUR og HOOVER þvottavél. Sírni 1-18-33.
WAUXHALL 1954
til sölu. Selst mjög ódýrt.
Uppl. í síma 2-11-89.
Bifreiðin A 3116, sem er
a£ gerðinni Mercury Com
et, árgerð 1964, svört að
lit, er til sölu nú þegar.
Bifreiðin er mjög vel með
farin og í fínasta lagi.
Uppl. gefur Sævar Jóna-
tansson í síma 1-10-82 á
vinnutíma.
CHEVROLET WILLYS
Til sölu er Chevrolet-
l ólksbíll, árgerð 1955, ný-
skoðaður og í góðu lagi.
Skipti á Willys-jeppa
koma til greina.
Uppl. í síma 1-18-24
á matartímum.
Til sölu er
MERCEDES BENZ,
árgerð 1955, í mjög góðu
lagi. Lágt verð. Góðir
greiðsluskilmálar.
Uppl. í síma 1-10-94
og 1-27-86.
Tilboð óskast í
VOLGA, árg. 1958,
fyrir n.k. laugard. til nið-
urrifs eða til viðgerðar.
Uppl. á Bílasölu Höskuld-
ar, sími 1-19-09, og á
kvöldin í síma 1-24-31.
FORD ZEPHYR,
árg. 1967, til sölu.
Chrysler-umboðið
Sími 2-13-44
Zephyr ’66, verð 170 þús.
Skipti á minni.
Zepliyr ’62, verð 90—100
þús. Skipti á jeppa.
Ford ’55, verð 35 þús.
20 þús. út.
Skoda 1000 mb., verð
120 þús.
Moskovitch ’66, verð 100
þús. 50 út. 5 þús. á mán.
Opel Capitan ’60, verð
100 þús. Útb. 50 þús.
Skipti.
Opel Rekord ’62, sérstak-
lega vel með farinn,
verð 115 þús.
Taunus 17 M ’66,
verð 200 þús. Góðir
greiðsluskilmálar.
VW 1500 ’64, skipti á
jeppa.
VW 1500 ’63, verð 135
þús.
Taunus 17 M ’62, station,
skipti á ódýrari.
Volvo station p 210 ’63,
verð 140 þús.
Ford Anglia ’60, fallegur
bíll, verð 75 þús.,
skilmálar.
BÍLASALA HÖ5KULDAR
Simi 1-19-09