Dagur - 18.08.1967, Síða 8
B
Fólk frá Nonnaklúbbnum í Köln við Nonnahús á Akureyri. Séra Heronimi fjórði f. v. (Ljm.: E. D.)
Pílagrimsferð á æskustöðvar Nonna
SMÁTT OG STÓRT
ÞEGAR 20 ÁR voru liðin frá
.andláti hins mikla íslenzka rit-
höfundar Nonna, ákvað Nonna-
klúbbur í Köln í Þýzkalandi að
reisa honum minnismerki þar í
borg og einmitt við þá götu,
sem ber hans nafn. Minnis-
merkið var gert. Það er lítill
drengur með bók í hendi við
fagran gosbrunn.
Fyrir 10 árum hófu konur á
Akureyri, í Zontaklúbb, varð-
veizlu á Nonnahúsi hér í bæ,
Aðalstræti 54. Þar var hans
bernskulheimili. Hvorki er þar
hátt til lofts eða vítt til veggja,
en andi þess skáldprests, sem
þar sleit barnsskónum, en varð
frægur og einn niest lesni höf-
undur margra landa álfunnar
ekki sízt í Þýzkalandi, virðist
mæta manni þarna.
Konur hafa gert Nonnahúsið
að minningarsafni um Nonna
og þar verða margir fyrir djúp-
Á MORGUN, sunnudag, verður
þess minnst í Miðgarðakirkju
í Grímsey, að kirkjan á aldar-
afmæli.
V öruskipta jöf nuður
SAMKVÆMT upplýsingum
Hagstofunnar var vöruskipta-
jöfnuðurinn við útlönd óhag-
stæður uni 888.014 millj. króna
í júnímánuði.
Frá áramótum til júníloka er
vöruskiptajöfnuðurinn orðinn
óhagstæður um rúmlega 1508
milij. króna. Þykir nú mörgum
óvænlega liorfa í viðskiptamál-
um. □
SVONEFND Coloradobjalla
fannst í pólskum kartöflum, 200
tonna sendingu og var kartöfl-
unum varpað fyrir borð í Faxa-
flóa. Tjónið nemur um einni
OF LÍTIL ATVINNA
Á AKUREYRI er nokkurt at-
vinnuleysi, einkum meðal
kvenna. Búið er að greiða þessu
fólki um 200 þús. kr. í atvinnu-
leysisbætur í sumar og er það
einsdæmi yfir hásumarið í hin-
um norðlenzka höfuðstað, en
segir sína sögu um ástand og
horfur. □
um áhrifum. Þann stað sækja
erlendir ferða- og fræðimenn
mjög mikið.
Þýzki presturinn séra Hiro-
nimi starfrækir skóla og æsku-
lýðsheimili í Köln. Hann kynnt
ist Nonna árið 1932. Iiann er
formaður áðurnefnds Nonna-
klúbbs og kom til Akureyrar
s.l. miðvikudag, sem farar-
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Skagfirðinga var haldinn í Bif-
röst á Sauðárkróki 11. og 12.
maí sl.
Á fundinum voru mættir 49
fulltrúar auk stjórnar, fram-
■kvæmdastjóra, deildarstjóra,
endurskoðenda, nokkurra félags
manna og gesta. Formaður kaup
Kirkjuna byggði Árni Hall-
grímsson á Garðsá í Onguls-
staðahreppi, en tvisvar hefur
hún v.erið endurbyggð að veru-
legu leyti, fyrst 1932 og aftur
1956 og þá vígð af þáverandi
biskupi, herra Ásmundi Guð-
mundssyni.
Grímseyingar hafa annazt
kirkju sína vel og í því sam-
bandi má minna á starf Einars
Einarssonar djákna, sem m. a.
smíðaði fagran. skírnarfont
kirkjunnar en Einar er nú flutt
ur úr eynni.
Prófastui-inn, séra Benjamín
Kristjánsson á Laugalandi,
predikar við guðsþjónustuna í
Miðgarðakirkju á morgun. □
millj. kr. og fellur á seljanda.
Kaupandi var Grænmetisverzl-
un landbúnaðarins.
Grænmetisverzlunin hefur
nýlega keypt 300 tonn af kartöfl
um frá Norðurlöndum og mun
það magn endast þar til nýjar
íslenzkar kartöflur koma á
markaðinn.
Á Norðurlandi eru litlar lík-
ur á sæmilegri kartöfluupp-
skeru, og í sumum görðum féll
kartöflugrasið algerlega fyrir
noklcru, enda komu þá þrjár
frostnætur í röð. □
stjóri 20 ungmenna, er voru í
eins konar pílagrímsferð til
æskustöðva Nonna. Zontakon-
ur tóku á móti gestum í Nonna-
húsi. Þar voru ávörp flutt og
góðar veitingar þegnar. Vara-
formaður Zontaklú'bbsins hér,
Þóra Sigfúsdóttir, Jóhanna Jóns
dóttir formaður Nonnanefndar
o. fl. önnuðust móttökurnar. □
félagsstjórnar, Tobías Sigurjóns
son, Geldingaholti, setti fund-
inn og flutti skýrslu stjórnar, en
Gísli Magnússon, Eyhildarholti
var kjörinn fundarstjóri.
Sveinn Guðmundsson kaup-
félagsstjóri las upp reikninga
félagsins fyrir árið 1966. í ræðu
kaupfélagsstjórans kom fram að
þrátt fyrir stóraukinn rekstrar-
kostnað og mikinn rekstrarfjár-
skort gekk starfsemi kaup-
félagsins vonum framar, þó
hvergi nærri eins vel og árið
næst á undan.
FélagSmenn voru í árslok
1.336, en á framfæri þeirra, að
þeim sjálfum meðtöldum eru
2.969 manns.
Heildarsala á vöru og þjón-
ustu var röskar 107 milljónir og
sala á innlendum afurðum var
um 114.5 millj., og var því heild
(Framhald á blaðsíðu 5).
DRAUMURINN
SÁ LANGÞRÁÐI draumur Ak
ureyringa, að eignast skíðalyftu
í Hlíðarfjalli virðist ætla að ræt
ast mjög fljótlega. Skíðahótelið
var umdeild framkvæmd en
markaði þáttaskil í skíðaíþrótt-
inni. í framhaldi af því var Ak-
ureyri viðurkennd sem lands-
750 BÝLI RAFMAGNSLAUS
Orkumál, sem Raforkumála-
stjórn gefur út, segir frá því að
750 býli af 5200 á landinu öllu,
séu enn rafmagnslaus. 3088 býli
liafa rafmagn frá Rafmagns-
veitum ríkisins en 235 býli hafa
rafmagn frá öðrum rafveitum
og rúmlega 1100 býli hafa einka
veitúr.
MARGT FER í BRÉFA-
KÖRFUNA
Enn er ástæða til að minna á,
að nafnlaus bréf, send blaðinu
til birtingar, fara beint í bréfa-
körfuna, ef höfundar segja ekki
til sín eða hafa ekki samband
við ritstjóra. Mörg slík bréf
bárust á meðan „blaðið var í
sumarleyfi“. Að sumum var
eftirsjá og í flestum var eitt-
hvað athyglisvert — en öll fóru
þau sömu leið —. Hins vegar er
blaðið þakklátt fyrir greinar og
fréttir frá fólki, sem ekki
skammast sín fyrir nafnið sitt,
og það þurfa fæstir að gera, enn
fremur ábendingar. Og nafn-
lausar greinar fást birtar — en
aðeins með samkomulagi milli
blaðs og höfundar. Látum svo
útrætt um þetta að sinni.
ÁSTARHOF
Um þessar mundir er verið að
taka í notkun stórhýsi eitt í
Hamborg, með vinnuaðstöðu
fyrir 230 konur, sem selja sig
karlmönnum. Með þessu móti
á að færa vændið af götunum.
Þykir þessi þáttur „skemmti-
iðnaðarins“ nú færast í betra
horf.
SKIPIN SKEMMA
Furðulegur er sá klaufaskapur
skipstjórnarmanna strandferða
skipanna að vera sí og æ að
skenuna hafnarmannvirki. Virð
ist jafnvel stundum svo, sem
mennirnir séu annað hvort
fullir eða hreinir viðvaningar,
sem eigi eftir að læra betur.
Nýjasta dæmið af þessu tægi er
frá Akureyri nú fyrir skönnnu,
er skíðalyftan komin, ekki að-
eins til bæjarins heldur upp í
Hlíðarfjall og þar er unnið dag
hvern að steypa undirstöðurn-
ar undir hana.
Búið er að steypa neðstu og
stærstu undirstöðuna, sem í
fóru 80—100 tonn af steypu.
Vegur var áður lagður frá
þar sem skip stórskemmdi ný-
viðgerða bryggju í rjómalogni
og sólskini, er það lagði að.
ENGIN LEIÐINDI
t einu sunnanblaði segir 8.
ágúst sl.: „Ömurlegt var þó að
sjá 15 ára unglinga liggja úti á
víðavangi án vits og rænu
vegna ofneyzlu áfengis.“ Blaðið
bætir síðan við að ölvun hafi
verið almenn og „jafnt meðal
ungra sem eldri.“ Og enn segir
þar: „Engar óspektir jurðu þó,
né nein önnur leiðindi“(!!) Frá-
sögnin var frá Þjóðhátíðinni í
Vestmannaeyjum.
SKÓL ABÚNIN G AR
Öðru hverju er rætt um nauð-
syn á skólabúningum. Sagt er,
að með því myndu sparast mikl
ir fjármunir, sem kæmu stórum
fjölskyldum vel, ennfremur, að
með þeim hyrfi sá mismunur,
sem verða vill í klæðnaði ríkra
og fátækra. Er síðara atriðið
e. t. v. veigameira hinu fyrra
og víst er málið vert íhugunar
í barna- og unglingaskólum.
LÁ VIÐ SLYSI
Kvartað hefur verið um það, að
milli Varðborgar og Sjálfstæðis
liússins vanti merkta rein fyrir
gangandi vegfarendur. Umferð
er þarna mikil þvert yfir göt-
una og slysahætta, svo sem
dæmin sanna. Er þessari um-
kvörtun hér með komið á fram
færi.
Batursökk
ÞILFARSBÁTURINN Gunn-
laugur Friðfinnsson, Ólafsfirði,
sökk sl. mánudag eftir að hafa
rekizt á skipsflak skammt frá
kaupstaðnum í þoku á heimleið
úr róðri. Eigandi er Sigmar
Ágústsson, og var hann einn
um borð og bjargaðist í land á
gúmbáti. Búið er að ná bátn-
um, sem er 5 tonn, upp og færa
hann til hafnar. □
Skíðahótelinu til þessa staðar.
Síðan tekur við hver undirstað
an af annarri upp eftir fjalls-
hlíðinni, og er nú unnið við
smíði þeirra. En alls eru undir-
stöður 12. Að verkinu vinna að
staðaldri 2 smiðir og handlang-
ari og nokkrir verkamenn und-
ir stjórn Magnúsar Guðmunds-
sonar skíðakennara. En Her-
mann Sigtryggsson vinnur einn
ig að venkinu á margan hátt
f. h. íþróttaráðs. Þá hafa verk-
fræðingar bæjarins og margir
fleiri lagt málinu raunhæft lið.
Veðrið hefur verið hagstætt
undanfarið og þurrt, svo komið
varð við traustum bílum til
flutninga, jafnvel alveg upp að
Strompi. Síðar koma svo erlend
ir verkfræðingar til að setja
skíðalyftuna sjálfa niður.
Áætlað er, að lyftan kosti um
4.5 millj. kr. og vonandi tekst
það. En skíðalyftan í Hlíðar-
fjalli skapar nú og raunar að
mestu • áður óþekkta aðstöðu
við iðkun skíðaiþróttarinnar á
mið-Norðurlandi, svo að ekki
sé minnst á keppnisaðstöðuna.
miðstöð þeirrar íþróttar. Og nú
Unnið við undirstöður skíðalyftunnar í Iiiíðarfjalli.
MiDGARDAKIRKJA 100 ÁRA
Kartöflunum varpað í sjóinn
Heildarsala Kaupféiags Skagíirð-
inga var 107 milljónir króna
r
f