Dagur - 30.08.1967, Side 8

Dagur - 30.08.1967, Side 8
s SMÁTT OG STÓRT S • V'*';- _• ' 'i SEXTÁN ARNARUNGAR Fróðir inenn telja, að í sumar hafi 16 arnarungar koinizt á legg og orðið fleygir, afkom- endur 12 arnarhjóna. Fullorðn- ir ernir eru taldir vera 38 á landinu og 6 ungir ernir, auk amarunganna 16 frá þessu sumri. Svo sem tölur þessar bera með sér, má ekkert út af bera ef þessi litli stofn á að halda velli. Fallegt seglskip liér á Polliimm Á MÁNUDAGINN virtu marg- ir fyrir sér seglskútu í Akur- eyrarhöfn og síðan á Poll- inum. Þar var komin hin 40 feta langa Delight undir stjórn hjón anna Patriea og Wright Britton. Hann er prófessor í enskri tungu og eiga þau heima í New York og komu á þessum far- kosti vestan um haf og var Ný- fundnaland síðasti áfangastað- urinn áður en þau komu til ís- lands. Hér ætla þau hjón að dvelja um skeið, taka myndir og safna efni fyrir tímaritið National Geographieal Maga- zine, sem út er gefið í sex millj ón eintökum. Héðan er ætlunin að sigla til Englands. Vonandi gengur ferðalag og efnissöfnun greiðlega. Falleg er litla skútan, en naumast sýnist hún hæf til ferðalaga um Atlantshaf í stór- viðrum. □ VAR KIRKJAN VAN- HELGUÐ? Brúðkaup „Bahai“-fólks var fyrir skönnnu gert í Árbæjar- kirkju í Reykjavík og var á eftir uppi fótur og fit. Bisku-p landsms lýsti því yfir að hér væri um mistök að ræöa. Hins vegar árnaði hann bruðhjónun- um heilla og taldi ekki þörf á að endurvíga kirkjuna vegna þessa atburðar. En Bahai-trú- flokkurinn játar ekki kristna trú. RÚSSNESK ÞOTA Það bar við 23. ágúst að rúss- nesk farþegaþota nauðlenti á Keflavíkurflugvelli. Hafði hún hreppt mótvind á leið sinni frá Havana til Moskvu og varð að Afhjúpun minnisvarða á Langanesi Gunnarsstöðum 28. ágúst. Hinn norska sjómenn er týndust þar 19. þessa mánaðar var afhjúp- aður í Sauðaneskirkjugarði á Langanesi minnisvarði um 17 Félagsheimili víg) á Raufarhöfn Raufarhöfn 28. ágúst. Á föstu- daginn í síðustu viku var vígt nýtt félagsheimili á Raufarhöfn. Það hlaut nafnið Hhitbjörg. Raufailhafnarhreppur, Kvenfé- lag Raufanhafnar og Slysavarna deild kvenna á Raufarhöfn eiga félagsheimilið. Ákvörðun um byggingu var tekin 1958 en 3. september 1962 var fyrsta skóflustungan tekin. Sá hluti byggingarinnar sem nú var vígður er 585 fermetrar að flat- armáli, Teikningar gerði Jósep Reynis arkitekt og Geir Ágústs son var byggingarmeistari. Séra Marinó Kristinsson Sauðanesi vígði stofnunina og gaf henni nafn, Kirkjukór Rauf arhafnar söng, ljóð voru lesin og ræður fluttar. í félagsheimilinu er stór sam- komusalur, leiksvið, búnings- herbergi, kaffistofa og snyrti- heibergi. í þeim hluta bygg- ingarinnar sem ekki er enn ris inn verður veitingasalur og fundarherbergi þeirra félaga, sem að byggingunni standa. Síldarverksmiðjan hefur nú tekið 'á rhóti 26 þús. tonnum síldar. Á sama tíma í fyrra hafði veiksmiðjan . fengið 42 (Framhald á blaðsíðu 5). með skipi sínu fyrir 60 órum. Nokkrir Norðmenn komu til að vera við afhjúpun minnisvarð- ans og voru þeir frá Tromsö, en þaðan var skipið og áhöfn þess. Norskum fánum og blómsveig- um hafði verið komið fyrir við altari kirkjunnar, séra Marinó Kristinsson prófastur flutti bæn og kirkjukórinn söng. Úti við minnisvarðann flutti Jchan Hager formaður í heimskauta- félagi í Tromsö ræðu, rakti að- draganda slysins og minntist sjómannanna. Skipið hét Frid- tjof. Norsk stúlka, Inger Stener sen gekk nú fram klædd þjóð- búningi og afhjúpaði minnis- varðann, er sveipaður hafði ver ið norska fánanum. En afar hennar báðir fórust með skip- inu. Þá flutti Árni G. Eylands ræðu, en hann var hvatamaður að uppsetningu minnismerkis- ins og sá um það verk. Aðal- björn Arngrímsson flutti frum- samið kvæði og prófasturinn flutti að siðustu blessunarorð. Minnisvarðinn er úr granit frá Tromsö. Á hann eru skráð nöfn þeirra 17 sjómanna er fórust með skipi sínu við Langanes fyrir 60 árum. Veðrátta hefur nú verið sér- staklega hagstæð um skeið og heyskap á túnum er að ljúka. Margir reyna að bæta sér upp lélegan töðufeng með því að heyja á óræktuðu landi. En óáborið land er mjög lítið sprott (Framhald á blaðsíðu 5). AÐALFUNDUR Stéttarsam- bands bænda verður haldinn á Hótel Sögu í Reykjavík um næstu helgi. Þar mæta fulltrú- ar bænda frá öllum byggðum landsins. Verður þar að sjálfsögðu fjall að um verðlagsmálin og önnur hagsmunamál bændastéttarinn ar. Veiðlagsnefnd hefur aðeins haldið einn fund um búvöru- verðið en frestað frekari störf- um fram yfir aðalfundinn. For- maður Stéttarsambands bænda er Gunnar Guðbjartsson. □ Nýju Iðju-húsin risu við Ileykjahlíð í sumar, byggð fyrir Kísiliðjuna. Er síðar var grafið með hjólp loftpressu fyrir skólpleiðslu, kom í ljós hellir inikill þar undir og standa fleiri en eitl á liellisþakinu. Til vinstri eru eldri hús. (Ljósm.: E. D.) Stéttarsambandsfundur fá hér eldsneyti. Þessi vél er 180 tonn fullhlaðin og því hið mesta ferlíki. Rússneskar flug- vélar hafa ekki lendingarleyfi á fslandi, og enginn gagnkvæmur loftferðasamingur er til milli landanna. Þarf því ráðuneytis- leyfi til slíkra lendinga hverju sinni. „SAUÐAÞJÓFNAÐUR VORRA TÍMA“ Framkvæmdarstjóri laxaeldis- ins í Lárósi á Snæfellsnesi ságði, áð um eina helgi hefðu 140 laxar gengið, upp í gildrur stöðvarinnar í ósnum og þar af 19 með netaförum. Hér er um að ræða stofnfisk, sem öflun hrogna til klaksins byggist á. Netaförin vitna um óleyfilega laxveiði í sjó, og líkir fram- kvæmdastjórinn þessari ólög- legu netaveiði við sauðaþjófnað fyrri tima. DANIR SIGRUÐU MEÐ 14:2 Það er víst óhætt að telja för íslenzkra knattspyrnumanna til Danmerkur í síðustu viku eina hina liraklegustu, sem um get- ur. Þeir háðu landsleik við Dani. Danir sigruðu með 14:2. Hnefaliögg, svartamyrkur, smán o. fl. lýsingarorð hafa ver ið notuð um þennan kappleik. „Liðið var eins og stjórnlaust rekald“ á Idretsparken og var leikið sundur og saman af Dön- um en 20 þúsundir áhorfenda æptu af fögnuði segir áhorf- andi. Það er að vísu sorglegt að íslenzkir íþróttamenn séu eins og viðundur veraldar á fjöl- mennum, erlendum Ieikvangi, en um leið er lineysan e. t. v. íþróttafólki að einliverju leyti holl. Vonandi opnar þessi dæmalausi íþróttaósigur augu margra fyrir því, að ekki má lóta happa- og glappastefnu ráða í íþróttamálum. ÞAÐ REYNDIST RÉTT Fyrir mörgum árum var það haft eftir Ilalldóri Laxness, að hann greiddi Dag einan hlaða. Hann var nýlega að þessu spurður og kvað hann þetta rétt vera. En sig vantaði þó ekki beinlínis lesefni því að liann fengi að staðaldri yfir 70 blöð og tímarit innlend og út- lend. VONDA BJALLAN Margar hjöllutegundir eru til hér á landi og eru meinlausar. En Coloradobjallan, sem flutt var hingað til lands með pólsk- um kartöflum ó dögunuin er ekki meinlaus. Talið er, að síð- an 1940 hafi hún í Bandaríkjun um valdið 40 millj. dollara tjóni á ári hverju á kartöflum. En vonandi liefur þessi vonda bjöllutegund endað ævitia í liaf inu með þeim 200 tonnuin af kartöflum, sem liún fannst í. Þörf er á því, að vera vel á verði gagnvart innflutningi snýkjudýra, ekki síður en sjúk dóma, ekki sízt vegna aukinna ferða og flutninga.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.