Dagur - 11.10.1967, Blaðsíða 1

Dagur - 11.10.1967, Blaðsíða 1
Ferða* skrifstofan Túngötu 1. Akureyri. Síxni 11475 DAGUR L. árg. — Akureyri, ruiðvikudaginn 11. október 1967 — 65. tölublað 'INNBROT OG SKEMMDARVERK r | ■ # * f Túngötu 1. Feroaskrifsfofan sími n4?5 Skipuleggjum ódýrustu ferðirnar til annarra landa. HOTEL Herbergi*- pantanir. vist á föstudag FRAMSÓKN ARFÉLÖGIN á Akureyri gangast nú fyrir spilakvöldi’n, sem fyrrum voru mjög vinsæl og margir bíða eftir. Sex verðlaun verða vcitt. Fyrsta spila- kvöldið verður 13. október. Sjá nánar auglýsingu í blað- inu í dag. □ innbrots í Matarkjör og rúða brotin í Bifröst. Barn varð fyrir bifreið sunn- an við húsið nr. 47 í Hafnar- stræti. Fékk það skrámu af höfuðhöggi. Á laugardagskvödið voru skemmdarv.erk unnin á salern- um basjarins, leiðsla brotin svo að vatn flóði um allt. (Framhald á blaðsíðu 5). og síldargangan færist nær landi með hverjum degi sem líður SÍÐAN fyrir helgi hefur verið mjög mikil síldarsöltun á Norð- ur- og Austi'rlandi. Á laugar- dag var búið að salta fast að 50 þús. tunnur. Síðan hefur tölu- vert veiðzt af síld og saltað á flestum söltunarstöðvum meira og minna. Víða vantar stúlkur til síldarsöltunar og liefur þó verið bætt úr því að verulegu leyti með fólksflutningum að sunnan og hvarvetna vir sveit- um í nágrenni söltunarstöðv- anna hefur fólk farið í síldar- vinnu, eftir því sem framast var umit. Flestir síldarsaltendur hafa komið upp skýli svo að söltun- in fer fram í 'húsi eða undir tjaldi og er það nauðsyn þegar þessi árstími er kominn. Gott veður var á síldarmið- unum í gær, er blaðið hafði sam band við fréttaritara blaðsins þar og síldarleitina. En straum- ar voru þungir á miðunum, erfitt að veiða og höfðu nokkur skip rifið nætur sínar. Sólar- hringsaflinn var 3035 lestir. Þegar þess er gætt, að nú er stutt á miðin samanborið við það sem áður var, eða 160—-170 mílur norðaustur frá Rauíar- höfn og síldin kemur nú fersk- ari til lands, er hægt að salta meiri hluta úr hverju skipi en fyrr var unnt. Síldin er góð til söltunar. Hún er farin að haga sér líkt og þegar hún heldur kyrru fyrir á „Rauðatorginu“ austan við land í einskonar vetrardvala og kemur upp í sjó kvölds og morgna. í Hrísey var í gær búið að salta í 530 tunnur og verið að salta. Á Dalvík er búið að salta 4600 tunnur. Síldarsöltun er undirbúin í Krossanesi. í Ólafsfirði er búið að salta (Framhald á blaðsíðu 2). REIKNAÐ MEÐ HÁLFGERDUM NIÐURSKURDl GUÐMUNDUR KNUTSEN héraðsdýralæknir á Akur- eyri lét hafa það eftir sér í Mbl. í fyrradag, að fjórir hestar hefðu nú tekið hring- ormaveikina. Má því segja, að hinn nýi búfjársjúkdóm- ur hafi fært sig töluvert upp á skaftið. Staðreyndin er því sú, að nautgripir, sauðfé, hross og fólk hefur sýkzt af veiki þessari, svo ekki verð- ur um villist. Héraðsdýra- læknirinn kvaðst reikna með því, að öllu sauðfé og hross- um á hinu sýkta svæði yrði lógað áður en vetur gengur í garð. En nautgripimir eiga að fá að lifa þótt þeir séu mun næmari fyrir þess- ari veiki en önnur húsdýr og að veikin valdi þar mestxun skaða. Er hér um enn eina kákráðstöfun að ræða — hálfgerður niðurskurður og byrjað á öfugum enda —. »55$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$! 5$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$; Ms. Árni Friðriksson kom til Akureyrar Eva Kristjánsdóttir gefur sér tíma til að líta upp. (Ljósm.: E. D.) M.S. ÁRNI FRIÐRIKSSON, nýja hafrannsóknar- og leitar- skipið, kom til Akureyrar fyrir helgina úr fyrsta síldarleitar- leiðangri sínum. Þetta er fallegt skip, góðum tækjum búið og reyndist gott sjóskip. Eyfirðingar áttu hugmyndina að því, hversu leysa mætti fjár- hagsvanda við smíði nýs haf- rannsóknar- og síldarleitar- skips, komu henni á framfæri og hlaut hún það fylgi er dugði. Útvegsmannafélag Eyjafjarðar og nágrennis, samþykkti tillögu um, að síldarútvegurinn legði fram Vz % af verði brúttóafla, síldarseljendur Vi% og síldar- kaupendur 14%, þar til skipið væri greitt. Á aðalfundi LÍÚ 1965 var tillagan flutt og var hún samþykkt mótatkvæða- laust. Þetta var merkilegt spor og öllum til sórna, er að því stóðu, það fól í sér lausn fjár- hagsvanda og flýtti þessum nauðsynlegu skipakaupum. Rík isvaldið gerði skyldu sína í mál inu og m.s. Árni Friðriksson kom fullbúinn til landsins nú í sumar og fór eftir nokkra daga sína fyrstu leitarferð með Jakob Jakobsson fiskifræðing sem leitarstjóra, innanborðs. Útvegsmannafélag Eyjafjarð- ar afhenti skipstjóranum, Jóni Einarssyni, gestabók til að hafa í skipinu, með áletruðum silfur skildi. En á fyrstu síðu bókar- (-Framhald ó blaðsíðu 4). DAGUff kemur næst út á laugardaginn. Auglýsingar þurfa að berast tímanlega, svo og annað, sem birta á í blaðinu. AÐFARANÓTT sl. laugardags var brotist inn í Ferðanesti og stolið skiptimynt, ca. 200 kr. Sömu nótt vai' gerð tilraun til (Ljósni.: E. D.) Síldarsöltun á Dalvík.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.