Dagur - 18.10.1967, Blaðsíða 1
Herbergl»-
pantanir.
Ferða-
Bkriístoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
Ferðaskrifstofan
Túngötu 1.
Sími 11475
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
STÓRHRÍD Á ÞÓRSHÖFN i GÆR
Þórshöfn 17. okt. Stórhríð og
hörkufrost var hér í gaer og
nokkur snjór kominn. Hálsa-
vegur er þó fær talinn en Æxar
fjarðarheiði ófær.
Slátrun stendur enn yfir og
er féð jafnara og vænna en í
fyrra svo að munar allt að einu
kílói. Þyngstu dilkar, sem hér
hefur verið tekið á móti vógu
26.3 kg., gráir að lit. Eigendur
Árni Sigfússon og Sigfús A.
Jóhannsson á Gunnarsstöðum.
Hæsta meðalvigt nú, er hjá
Kristveigu Guðbjömsdóttur,
Syðra-Álandi, 19.25 kg. Síðar
nánar um slátrun og e. t. v.
fleira. Ó. H.
Lofað var stuðningi við STÁLSKIPASMÍÐ-
AR Á AKUREYRI. Hverjar verða efndir?
HÉR á Akureyri er ný og
vönduð stálskipasmíðastöð,
Slippstöðin h.f., sem í sumar
Iauk smíði 560 lesta fiski-
skips, hins stærsta og full-
komnasta er smíðað hefur
verið hérlendis. Skip þetta
er Eldborg í Hafnarfirði.
Unnt er í þessari stöð að
smíða í liúsi 2 þús. lesta skip.
Þetta hús stendur nú autt og
á annað hundrað manns
skipasmíðastöðvarinnar bíða
næsta verkefnis.
fðnaðarmálaráðlierra og
fleiri ráðherrar liafa marg-
sinnis lýst ánægju sinni yfir
byggingu þessarar stöðvar
og heitið stuðningi sínum við
hana, m. a. með fyrirgreiðslu
stórra verkefna. Ekkert ból-
ar á efndum þessum ennþá.
Það er krafa Akureyringa,
að staðið verði við gefin lof-
orð og skipasmíðastöðinni
tryggð verkefni við hennar
hæfi. □
LÁXiNN 6EKK SEINT í SUMÁR
Haganesvík 16. okt. Sláturtíð er
að ljúka. Lógað er á 4. þús.
fjár. Féð er vænna en í fyrra
og flokkast mun betur. Hey-
skaparlok urðu góð í Fljótum
og eru bændur sæmilega stadd-
ir hvað hey snertir.
Siglufjarðarskarð hefur ver-
ið lokað um tíma og Stráka-
göng líka, því þar stendur vega
gerð yfir og á henni að ljúka
um mánaðamót. Vegurinn um
göngin er steyptur og er bíla-
umferð þar í gegn ekki leyfð á
Vatnsveitan mikla
til Vestmannaeyja
meðan, en gangandi fólk fer
þar eitthvað um.
Eftir miðjan ágúst fór að
veiðast vel í Fljótaá og veiddist
ágætlega eftir það. í Mikla-
vatni var ágæt veiði, ennfrem-
ur nokkur veiði í vatninu hér
við kauptúnið, Hópsvatni.
Skagfirzkur bíll á leið til
Siglufjarðar ók út af ræsi og
eyðilagðist. Bifreiðastjórinn
slapp að mestu ómeiddur og
má furðulegt heita.
Barnaskólarnir, Sólgarðar og
Nýrækt, hefja bráðlega starf.
Ofurlítill snjór er kominn. —
Nær engar byggingafram-
kvæmdir voru hér í sumar.
E. Á.
Húsavik. (Ljósm.: E. D.)
Lítil rjúpnaveiði fyrsta daginn
Húsavík 17. okt. Á mánudaginn
var opnaði Fiskiðjusamlag Húsa
víkur nýja fiskbúð í byggingu
sinni. Hún er á jarðhæð ofan
bakka svo að húsmæður á Húsa
vík þurfa ekki lengur að fara
niður fyrir bakka til að ná sér
í soðið, en það gat oft veriö
erfitt í snjó og hálku. Búðin er
búin góðum kæliskápum og
mjög snyrtileg. Afgreiðslumenn
eru Bjarni Þorkelsson og Þor-
grímur Jóelsson.
Rjúpnavertíðin hófst 15. októ
ber og gengu þá allmargir Hús-
víkingar til rjúpna. En eftir-
tekjan vai'ð mjög rýr enda veð-
ur slæmt til veiða, hríð og snjó-
að hafði allt niður í byggð und-
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
og Framleiðsluráð landbúnaðar
ins hafa ákveðið að efna til land
búnaðarsýningar í Reykjavík á
sumri komandi. Opnunardagur
sýningarinnar er ekki ákveðinn
ennþá, en ráðgert er að hann
verði um miðjan ágústmánuð,
og að sýningin verði haldin á
sýningarsvæði atvinnuveganna
anfarin dægur. Sumir fengu
enga rjúpu, aðrir eina eða tvær,
en mesta veiði var 6 rjúpur.
Skot- og veiðifélag Húsavíkur
hefur veiðileyfi í löndum nokk-
urra jarða í Reykjahverfi, auk
Húsavíkurlands og í sunnan-
Egilsstöðum 16. okt. Eiðaskóli
var settur í gær. Nemendur eru
114, skólastjóri er Þorkell Stein
ar Ellertsson eins og áður.
Skólinn er fullsetinn og þurfti
að vísa allmörgum frá, einkum
í öðrum bekk. Fyrsti bekkur
skólans var lagður niður í sam
inni í Laugardal.
Sýningin mun verða lík öðr-
um stórum landbúnaðarsýning-
um þar sem sýnd er þróunar-
saga landbúnaðarins, fram-
leiðsla hinna einstöku greina
hans, vísindastörf í þágu land-
búnaðarins, vélar, verkfæri og
húsbyggingar o. m. fl. Síðast en
(Framhald á blaðsíðu 5)
verðu landi Fjalla í Keldu-
hverfi, en lönd þessi koma sam
an á Reykjaheiði. Ekki hef ég
fregnað af veiði í Aðaldals-
hrauni, en Skot- og veiðifélag
Húsavíkur hefur ekki leyfi til
'að veiða þar. ý Þ. J.
ráði við yfirstjórn menntamála.
Kennslustofuálma, ný viðbygg-
ing við skólann, með 5 kennslu-
stofum er fullgerð að utan og
miðstöð komin í, en vinna þar
hefur legið niðri vegna fjár-
skorts og kemur þessi bygging
því ekki að notum að þessu
sinni. Væntanlega hefst vinna
þarna að nýju eftir áramót svo
bygginguna verði unnt að nota
skólaárið 1968—1969. En að-
staða batnar stórlega þegar
kennsluálman er fullbúin.
Hallormsstaðaskóli verður
settur fyrsta dag vetrar. Náms-
meyjar eldri deildar eru komn-
ar í skólann og byrjaðar á
námi sínu. Skólinn er fullskip-
aður. Skólastjóri er Ingunn
(Framhald á blaðsíðu 5).
Landbúnaðarsýning næsta sumar
Skóiar á Héraði að hefja sfarf
r ■■
SÆTTIR FOLKIÐ SIG VID HINAR NYJU ALOGUR?
í ÁGÚST í sumar voru undir-
ritaðir samningar um lagningu
13.5 km. vatnsleiðslu frá Kross-
sandi til Vestmannaeyja. En
vatnið er fyrst leitt frá Syðstu-
Mörk undir Eyjafjöllum á
Krosssand, og hefur mikið ver-
ið unnið að vatnsveitunni á
þeirri leið í sumar, og er þar
um að ræða 22 km. leið og þar
ýmsar torfærur.
Framkvæmdakostnaður við
þessa nýju og nauðsynlegu
vatnsveitu er áætlaður 100
millj. kr., lögn og dreifikostn-
aður, og verður það þungur
baggi á íbúunum þótt hluttaka
ríkisins í kostnaði dragist frá.
Það eru Danir, sem leggja
ieiðsluna milli lands og eyja —
og eiga að gera það næsta sum-
ar. □
H KOMIÐ er fram, að stjómar-
« flokkamir sögðu þjóðinni ekki
rétt frá í vor, áður en gengið
» var til kosninga.
Þeir sögðu hiklaust — og
z? margendurtóku það — að
« verðstöðvunin yrði varanleg,
« atvinnuvegirnir stæðu á vel
« traustum grunni og að lífs-
S kjörin myndu batna ef stjóm-
« arflokkarnir héldu áfram að
« standa við stýrið.
« Þeir sögðu líka, að gjald-
« eyrisvarasjóðurinn bægði frá
« dyriun þeim áföllum, sem
« verða kynnu, svo sem erfið-
« leikum í sölu íslenzkra afurða
8
erlendis við hagstæðu verði
o. s. frv.
Þeir menn, sem ekki voru
já-bræður stjórnarflokkanna,
og vöruðu við, vom taldir
bölsýnismenn og aumingjar.
Allt er þetta í fersku minni,
enda skammt um liðið.
Svo kemur forsætisráðherra
með boðskap sinn um 750
millj. kr. nýjar álögur á al-
menning. Þær álögur koma
þyngst niður á barnmörgum
lieimilum. Það er bókstaflega
seilst á matborð hinna fátæk-
ari til að ná þessum 750 millj.
kr. skatti.
Jafnframt gerir boðskapur
forsætisráðherra ráð fyrir, að
þetta verði á engan liátt bætt
upp og verki sem bein kjara-
skerðing.
Sem dæmi um skattheimt-
una er hið nýja verð margra
nauðsynjavara, sem á að bæta
hag ríkissjóðs um 410 millj.
króna.
En þrátt fyrir þessar stór-
fclldu hækkanir boðar Bjarni
Ben. að verðstöðvunarstefnan
sé enn í fullu gildi!!
Af hinni nýju skattheimtu
fá atvinnuvegirnir ekki neitt,
en er gefið það heilræði, að
endurskoða megi rekstur fyrir
tækjanna.
Það munu heimilin einnig
þurfa að gera, samkvæmt al-
gerlega óleyfilegum efnahags-
aðgerðum, sem dynja yfir í
formi bótalausrar dýrtiðar-
öldu.
Ein er sú stofnun, sem öðr-
um fremur þyrfti endurskoð-
unar við, en það er ríkis-
stjómin.
Hinar nýju ráðstafanir eru
bein svik við kjósendur. Vald
til að framkvæma þær, var
fengið á röngum forsend-
um. □