Dagur - 01.11.1967, Síða 8
8
HEIMSÆKIR AKUREYRI
JACK GLATZER, kunnur
bandarískur fiðlusnillinugur,
heldur hljómleika í Borgaíbíói
á Akureyri næstkomandi laug-
ardag, 4. nóvember, kl. 3 e. h.
Píanóundirleik annast Ásgeir
Beinteinsson.
Glatzer hélt fyrstu opinber-
legu hljómleika sína þegar hann
var aðeins 13 ára gamall, en ári
seinna kom hann fram sem ein-
leikari með Dallas (Texas)
sinfóniunni undir stjórn Walter
He'ndls, eftir að hafa unnið
márgskonar verðlaun og hlotið
viðurkenningU fyrir frábæran
fiðluleik.
Jack Glatzer hefur hlotið mik
ið lof fyrir snilld sína sem fiðlu
leikari beggja megin Atlants-
'hafsins og hefur komið fram
víðsvegar um Bandaríkin og
Kanada svo og í mörgum lönd-
um Evrópu.
Listamaðurinn hefur sérstak-
lega lagt stund á að leika fiðlu-
tónverk eftir Back og Beet-
hoven og þykir túlka hina
gömlu meistara frábærlega vel.
Tónlistarnám sitt stundaði
Glatzer í Dallas, Texas, hjá
Josef Fuohs, hjá Eli Goren í
London og Sandar Vegh í
Basel.
Auk tónlistarinnar er Glatzer
sagnfræðingur með próf bæði
frá Yale háskólanum og Ox-
ford.
Jack Glatzer starfár' sem
fiðlukennari við háskóla í
Bandaríkjunum en ferðast auk
þess víða um- heim og heldur
sjálfstæða. tónleika. Slær hann
þá stundum tvær flugur í einu
höggi með því að halda fyrir-
lestra í skólum og tónlistarskól
- KÍSILIÐJAN VIÐ MÝVATN
Jack Glatzer.
um þar sem orð hans og fiðlu-
tónar sameinast í eitt. Mun
hann flytja fyrirlestur hér fyrir
nemendur Tónlistarskólans og
aðra tónlistarunnendur í Lóni,
föstudaginn 3. þ. m. kl. 6 e. h.
Hr. Glatzer kemur hingað á
vegum íslenzk-ameríska félags
ins á Akureyri.
Heiiors- og kveðjusamsæti
Blönduósi 31. okt. Hér er snjó-
föl og hálka á vegum. Jörð enn
víðast góð til beitar. Sauðfjár-
slátrun lauk 26. okt. og var tek
ið á móti 45 þús. fjár. Meðal-
þungi var rúmlega 700 gr. meiri
en í fyrra eða 14.42 kg. Naut-
gripaslátrun stendur yfir og
síðan verður hi'ossum lógað.
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna hér í kjördæminu verð-
ur haldið í Miðgarði, Varma-
hlíð 5. nóv. og hefst það kl. 2
eftir hádegi.
Laugardaginn 11. nóv. verð-
ur miki) hátíð í félagsheimilinu
á Blönduósi. Það er kveðjusam
sæti, sem prófastshjónunum í
Steinnesi, séra Þorsteini B.
Gíslasyni og Ólínu Benedikts-
Unglingðmól að Hólavatni og
kristnibcðsvika í Zion
VETRARSTARF KFUM og K
hófst í byrjun október. Félögin
halda fundi fyrir drengi og
stúlkur í þrem deildum hvort
félag. Yngsta deild fyrir 9—12
ára börn, Unglingadeild fyrir
13—17 ára og Aðaldeild fyrir 17
ára og eldri.
Félög þessi hafa nú starfað
hér á Akureyri um það bil 15
ár og hefur starf þeirra senni-
lega aldrei.verið eins blómlegt
og nú. Oll starfsemi félaganna
fer fram í húsi Kristniboðsfé-
lags kvenna Akureyri, Kristni-
‘boðshúsinu Zion. Eins og flest-
um mun kunnugt eiga félögin
Kindur lentu í fönn
VEÐUR var hart á Skagaströnd
fyrir helgina, einkum á föstu-
daginn. Nokkrar kindur fenntu,
enda mikil snjókoma. Þegar á
sjó gefur er róið og þótt fiskur
sé tregur, skapar sjósóknin þó-
nokkra vinnu í landi og veitir
ekki af því. Annars er atvinnu-
ástandið ekki verra en oft hefur
verið. Einn maður 'hefur fengið
sér sjónvarpstæki, sá fyrsti þar
um slóðir, að því er fréttamað-
ur blaðsins tjáði. Q
rUF-FELAGAR
FÉLAG ungra Framsóknar-
manna á Akureyri heldur
fund í skrifstofu flokksins,
Hafnarstræti 95, finmitudag
inn 2. nóv. kl. 8 e. h.
Fundarefni: Kosnir full-
trúar á Kjördæmisþing.
Önnur mál.
myndarlegan skála að Hóla-
vatni í Eyjafirði þar sem rekið
hefur verið sumarstarf undan-
farin 3 sumur.
Nú er fyrirhugað Unglinga-r
mót að Hólavatni um næstu
helgi, 4. og 5. nóv. Slík mót hafa
verið haldin tvisvar áður og
jafnan verið mjög ánægjuleg.
Þar eru samverustundir til
gagns, gamans og uppbygging-
ar.
Mót þetta er öllum opið. sem
fæddir eru árið 1953 og fyrr,
hvort sem um er að ræða félaga
í KFUM og K eða ekki en rúm
er þó ekki ótakmarkað í skál-
anum.
Upplýsingar eru gefnar á
fundum í Unglingadeild KFUM
á miðvikudagskvöld kl. 8 og í
Unglingadeild KFUK á fimmtu
dagskvöld kl. 8, eða í síma
2-14-16.
í beinu fi-amhaldi af Unglinga
mótinu verður Samkomuvika á
vegum KFUM og K og Kristni-
boðsfélags kvenna í Zion. Þar
kemur fram margt ungt fólk og
einnig Gunnar Sigurjónsson
guðfraeðingur ásamt Ingunni
Gísladóttur hjúkrunarkonu sem
dvalizt hefur lengst allra Is-
lendinga, 'á íslenzku Kristni-
boðsstöðinni í Konsó í Ethíópíu,
og mun hún segja frá starfinu
þar og sýna litskuggamyndir
þaðan.
Tekið verður á móti gjöfum
til starfsins í Konsó sem nú er
orðið mjög viðam'ikið. Eins og
Akureyringum er kunnugt dvel
ur nú einn Akureyringur úti í
Ethíópíu, það er Skúli Svavars-
son en hann er að ljúka
Amharísku námi áður en hann
tekur til starfa við kristniboðið.
Samkomurnar verða haldnar
hvért kvöld frá 5. til 12. nóv. í
Kristniboðshúsinu Zion, og
hefjast þær kl. 8.30. Q
dóttur, er haldið, en séra Þor-
steinn lætur nú af prestskap
eftir 45 ára þjónustu. Einnig er
þetta samsæti haldið til heiðurs
Jóni Pálmasyni fyrrum bónda
á Þingeyrum og Huldu Stefáns-
dóttur konu hans, sem lengi hef
ur veitt Kvennaskólanum á
Blönduósi forstöðu en lét af því
starfi nú í haust. Ó. S.
f samtali við bóndann á
Skeggstöðum í Svartárdal, Pét-
ur Sigurðsson, kom það fram,
að þar um slóðir og í Langadal
eru nokkur útihús í byggingu
og verið er að byggja 27 m. brú
yfir Svartá sunnan við Stafn,
skammt frá Stafnsrétt. Q
(Framhald af blaðsíðu 1).
og ber að hafa þær viðvaranir
í heiðri á þeim forsendum, að
þótt verksmiðjurekstur við Mý
vatn geti verið hagkvæmur, er
„ósnortin náttúra11 Mývatns-
sveitar með sína dreifðu byggð,
sitt sérstæða og auðuga mann-
líf og mikla dýralíf, einnig dýr-
mætt. En verksmiðjan er stað-
reynd, ört vaxandi byggða-
kjarni einnig. Spurningunni um
það, hve vel hinir nýju innflytj-
endur laga sig umhverfinu og
hvort Mývetningar eru þeim
vanda vaxnir að taka við mik-
illi fólksfjölgun í nýrri atvinnu-
grein innan sveitar sinnar, án
þess að röskun verði tilfinnan-
leg á rótgróinni menningu sveit
arinnar, verður framtíðin að
svara. Ég var að hugleiða þessa
hluti á meðan setið var að snæð
ingi í Reynihlíð, með nokkur
ung og myndarleg hjón úr inn-
flytjendahópnum að. sessunaut-
um. .Þetta unga fólk, sumt eða
e. t. v. flest vel menntað og allt
mannvænlegt, kynni að geta
auðgað líf sveitarinnar veru-
lega.
Náttúruöflin voru ekki í góðu
skapi þennan dag, hafa kannski
gott veður í huga þegar verk-
smiðjan í Bjarnarflagi verður
vígð, væntanlega á næsta vofi.
Við lögðum upp frá Akureyri
á föstudagsmorguninn, á átt-
unda tímanum, 11 talsinn, sunn
anmenn og fréttamenn frá Ak-
ureyri, með Magnús ráðherra í
broddi fylkingar. Stór, nýr og
fallegur fólksflutningavagn
Jóns Egilssonar beið við dvrn-
ar á Hótel KEA með hægri-
handar dyr og keðjur á hjólum.
Jón sat sjálfur undir stýri og
hafði óbilandi trú á farartæk-
inu. Norðanáttin var hvöss og
bleytuhríðin mikil. Allt gekk
þó vel austur í Dalsmynni. Þar
tók að þyngjast færið. Hjá
Végeirsstöðum mættum við
Kalt og dimmt í Fljótum
Á FÖSTUDAGSMORGUN-
IN brotnuðu margir síma-
staurar í Haganesvík, enn-
fremur 13 raflínustaurar í
V.-Fljótum og nokkrir í A.-
Fljótum. Var því bæði
dimmt og kalt. Rafmagn er
komið á ný en í gær var enn
verið að gera við símann.
Mikinn snjó setti niður og er
jarðlaust með öllu. Bændur
eru ekki enn búnir að ná fé
sínu öllu í hús.
Um leið og staurar raflínu
og síma brotnuðu, slitnuðu
strengir einnig og er öll við-
gerð erfið í hinum mikla
snjó, sem kominn er. Q
HAUKAR LEIKA Á AKUREYRI
EITT BEZTA handknattleiks
lið landsins, Ilaukar fr Hafn-
arfirði, kemur til Akureyrar
um næstu helgi í boði KA og
leikur við liandknattleiks-
menn hér. Ilaukar hafa ekki
áður leikið í íþróltaskemm-
unni, en þeir komu hér fjrir
2 árum og léku í Rafveitu-
skemmunni og var þá hús-
fyllir.
Á laugardag, 4. nóv., leika
Haukar kl. 4 e. h. við lið ÍBA,
en með iiðinu leikur nú í
fyrsta sinn Matthías Ásgeirs-
son. Lið ÍBA verður nú nokk-
uð breytt frá í fyrra, en liðið
liefur æft vel að undanförnu
og bíða handluiattleiksunnend
ur með óþreyju eftir að sjá
liöið leika, og vænta þess að
liðið standi liinum 2. deildar-
liðum á sporði í íslandsmót-
inu.
Á sunnudag kl. 1.30 e. h.
verður svo hraðkeppni í liand
knattleik, og taka 3 lið þátt í
þeirri keppni: Haukar, Þór og
KA. Eflaust getur orðið um
skemmtilega keppni að ræða.
FJÁRLEITUM EKKI
ENN LOKIÐ
Þórsliöfn 31. okt. Lógað var
12763 fjár og var meðalþunginn
tæp 15.67 kg.
Dálítill snjór er kominn en
meiri til heiða og fjalla. Munu
hættur nokkrar fyrir sauðfé.
Enn eru þriðju göngur eftir og
er því fjárleitum alls ekki lok-
ið. Flest af fénu er þó heima við
og farið að gefa síldarmjöl til
að spara hey.
Bátar réru um helgina og
öfluðu sæmilega. Rjúpa sézt
varla. Ó. H.
Ólafi nokkrum Þorbergssýni á
heppilegri bíl til vetrarferða.
Hafði bíll hans drif á öllum hjól
um. Skiptum við þegar um og
voru þá liðnar tvær stundir frá
upphafi ferðar. Ókum við sem
leið liggur austur að Djúpá en
þaðan Kinnarveg því Fljóts-
heiði var talin erfið yfirferðar.
En bæði Vaðlaheiði og Fljóts-
heiði hafa þá ágætu eiginleika,
að vera ekki endalausar svo
hægt er að krækja fyrir þær.
Ferðin gekk hægt en slysalaust
allt þar til kom undir skógar-
hlíð Ketils á Fjalli og þó aðeins
lengra. Þar bilaði bíllinn. Þrír
kempulegir menn gengu nú að
næsta bæ, Syðra-Fjalli og pönt
uðu þi-já jeppabíla frá Laugum
til að flytja okkur til Mývatns-
sveitar. Komið var þá fast að.
hádegi og var einhver svo ónær
gætinn að minnast á svið og
aði-a ljúffenga rétti, sem tíðum
eru á borðum góðbýla í lok
sláturtíðar. Annar tók skjóðu
sína, fór í aftursæti og svalg
eldvatn af stút. Ráðherra notaði
tímann vel, dró hettu úlpu sinn
ar fram yfir höfuð sér og svaf.
Engum sagði hann drauma sína
og allir unnu honum hvíldar-
innar. Eftir stundarbið komu
þrír Bronkóbílar frá Laugum.
Þeim óku: Arngrímur Konráðs
son, Snæbjörn Kristjánsson og
Sigtryggur Jósepsson og skil-
uðu þeir okkur upp í Reynihlíð.
Vorum við fegnir þangaðkom-
unni eftir sjö tíma ferð. Þar efra
var hríð og skafrenningur. Hóf-
ust þai' miklar veitingar í boði
Kísiliðjunnar, fyrst brennivín á
fastandi maga en síðan mikil og
góð kj ötmáltíð. Menningin hafði
haldið þar innreið sína. Ræðu-
höld þau, sem áður greinir,
fóru fram að máltíð lokinni og
tóku sjónvarps- og hljóðvarps-
menn þá til sinna starjía, Reyk-
dælingarnir höfðu þegar haldið
heim en þrír Mývetningar voru
fengnir til að flytja ferðamenn-
ina til Akureyrar í Bronkóbíl
og tveim Landróverbílum. Bíl-
stjómarnir voru: Jón Illugason,
Sverrir Tryggvason og Hall-
grímur Þórhallsson, þaulvanir
ferðamenn.
Heimferðin tók litlu skemmri
tíma en austurferðin, enda
hafði færi mjög versnað. Fórum
við nú Fljótsheiði og gekk það
sæmilega, en á sumum stöðum
þurftu þó bílstjórarnir að fara
út til að glöggva sig á vegin-
um, vegna þess hve hríðarkófið
var mikið.
Segir lítt af þessari för, þar
til við komum að Veisuseli. Þar
lá fyrir okkur aðvörun. Talin
var snjóflóðahætta á Dalsmynn
isvegi og óráðlegt að fara þá
leið. Var nú farið að spyrjast
fyrir um snjóbíla til að fara á
yfir Vaðlaheiði. En hvort sem
þær fyrirspurnir stóðu lengur
eða skemur ákváðum við í okk
ar 'bíl, Bronkóbíl Jóns Uluga-
sonar, að halda förinni áfram og
taka auk þess Folksvagn, sem
ekki reyndist fær um að komast
af eigin rammleik, á slef. Áfram
var haldið, innan stundar náðu
ferðafélagarnir okkur og höfðu
tekið snjóbilshugmyndina af
dagskrá, snjóflóðin héldu sér í
skefjum, færið var mjög erfitt
en léttist þegar nálgaðist sjóinn
og til Akureyrar var komið
snemma nætur og liafði heim-
ferðin tekið á sjöunda klukku-
stund, naumast saga til næsta
bæjar í norðlenzkum byggðum
á þeim tíma árs þegar mætast
sumar og vetur. En atburður-
inn í Mývatnssveit, er ný verk-
smiðja tekur til starfa, sú fyrsta
sinnar tegundar, er vinnur úr
hráefni, sem dælt er úr vatni,
mun hins vegar talinn merkur.