Dagur - 08.11.1967, Blaðsíða 1
Herbergls-
pantanir.
Ferða-
skrifstoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
r * I ■ # 1 f Túngötu 1,
Feroaskrifstofan simi im^s
Skipuleggjum
ódýrustu
ferðirnar
til
annarra
landa.
Kj ördæmisþingið
KJÖRDÆMISÞING Framsóknarmanna í Norðurlandskjör-
dœmi eystra verður haldið á Akureyri, laugardaginn og
sunnudaginn 11. og 12. nóvember. Þingið hefst kl. 14.00 og
fundirnir verða að Hótel KEA.
Stjóm kjördæmissambandsins.
Jj11 ... ..i'......................
Sigurður Jóhannesscn formaður
Framsóknarfél. Akureyrar áfram
AÐALFUNDUR Framsóknar- sl. mánudag. Formaður félags-
félags Akureyrar var haldinn ins, Sigurður Jóhannesson,
stjórnaði fundi. Hann flutti
Hafnargerð á Ilofsósi. (Ljósm.: E. D.)
Siguröur Jóhannesson.
skýrslu stjórnarinnar, en Hauk
ur Árnason formaður fulltrúa-
ráðs sagði frá starfi ráðsins og
gjaldkeri félagsins, Jón Samúels
son, las reikninga og skýrði þá
og voru þeir samþykktir.
Kosið var fulltrúaráð, enn-
fremur fulltrúar á kjördæmis-
þingið og stjórnin var endur-
kjörin. Hana skipa: Sigurður
Jóhannesson formaður, Sigurð-
ur Oli Brynjólfsson ritari og
Jón Samúelsson gjaldkeri. Með
stjórnendur Haukur Árnason
og Jón Aspar. Umræður urðu
nokkrar, bæði íum félags^tarfið
og stjórnmálaviðhorfið. □
Stefnt að því að gera góða bátahöfn á Hofsósi
Hofsósi 6. nóv. Hér er orðið nær
'haglaust og svo mun það allvíða
í héraðinu. Snjóa lagði misjafn-
lega eins og raunar oftast. En
einkum er það bleytan í snjón-
um, sem úrslitum réði með beit
ina, því þegar frysti varð hjarn.
Hér var í sumar unnið að því
að byggja grjótgarð mikinn í
höfninni og er hann um 100
metra lángur og er norðan Hofs
ár. Ekki er þessu verki lokið
ennþá og á að lengja ‘hann í
sömu stefnu þar til 60 metra
hlið er milli hans og hins hafn-
argarðsins, sem einnig verður
lengdur en aðeins um 20 metra.
Myndast þarna þá allgóð báta-
höfn, sem er lífsnauðsyn. Verk-
stjóri við hafnarframkvæmdim
ar var í sumar Jón Forberg frá
Akureyri. Vonandi verður fjár-
magn til þess næsta sumar, að
halda þessu verki áfram.
Ógæftir hafa verið undanfar-
ið og tregur fiskur. Aðeins einn
bátur rær héðan með línu eins
og er. N. H.
Fcíurþörlin er mesl í N-ÞingeyjarsýsEu
SJÓNVARP UM LAND ALLt 1969
heiði, Fjarðarheiði og í Stykk-
ishólmi yrðu reistar samtímis
og ekki gert upp á milli lands-
hluta í því efni. Framsóknar-
menn lögðu áherzlu á það at-
riði í þessum umræðum, og að
hraðað verði framkvæmdum. Q
í SKÝRSLU Harðærisnefndar
segir, að 20% fóðurs vanti hjá
500 bændum, miðað við venju-
legan heyforða. Er hér um að
ræða svæði á Norður- og Norð-
austurlandi, þar sem þal hefur
verið mest. En harðast hafa
bændur í Norður-Þingeyjar-
sýslu orðið úti. Á Vestfjörðum
er einnig töluverður fóður-
skortur.
Dr. Halldór Pálsson búnaðar-
málastjóri hefur skýrt tillögur
Harðærisnefndarinnar til ríkis-
Miklar skemmdir urðu á bryggju
Hrísey 6. nóv. Þegar Goðafoss
kom hér síðast og tók frosinn
fisk, stóð hann fastur þegar
hann ætlaði að leggja frá, enda
lágsjávað. Hafnarvörður, Hilm-
ar Símonarson, varaði skipstjór
enn við því að hreyfa skipið
fyrr en á flóði og bannaði það.
Því var ekki sinnt og var skips-
skrúfan látin ganga svo mjög,
að skemmdir urðu á hafnar-
mannvirkjum. Sandur grófst
undan stálþili bryggjunnar og
rann uppfyllingin þá út, en
kryggjudekkið brotnaði og seig
niður. Er hluti bryggjunnar því
algerlega ónothæfur. Skemmdir
þessar eru miklar.
Björgvin frá Siglufirði er
væntanlegur til að dæla og
fylla bryggjuna á ný.
Enn er unnið við nýja hafnar
garðinn og er verkið langt kom
ið. Dauft er yfir aflabrögðum,
snurvoðaveiði lokið og aðeins
stundað færi og afli mjög lítill,
enda stopular gæftir. S. F.
stjórnarinnar. Nefndin leggur
til, að tvennskonar aðstoð verði
veitt í gegn um Bjargráðasjóð
íslands. í fyrsta lagi úr sjóðn-
um til að greiða verulega óaftur
kræft framlag, einkum til að
mæta kostnaði við heyflutning-
ana, þar sem þeir eru 40—50
km. eða lengri. í öðru lagi legg-
ur nefndin til, að sveitarfélög-
um verði veitt vaxtalaus lán til
fóðurkaupa, sem greiðist á
næstu 5 árum, samkvæmt til-
lögum nefndarinnar. Aðstoðin
(Framhald á blaðsíðu 5).
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
gaf í síðustu viku ýmsar upp-
lýsingar á Alþingi varðandi
sjónvarpsmálið, og svaraði með
því fyrirspurn Ingvars Gísla-
sonar. M. a. sagði hann, að
næsta haust yrði komið upp
bráðabyrgðastöð á Vaðlaheiði,
en fyrir árslok 1969 yrði komið
þar upp varanlegri stöð. Búið
væri að bjóða út tækin fyrir
Skálafellsstöðina. — Gerði ráð-
herra ráð fyrir því, að sjón-
varp yrði komið í alla lands-
hluta 1969. í umræðum þessum
kom fram, að erlendir sérfræð-
ingar draga í efa, að hægt sé
að senda sjónvarpsgeislann frá
Skálafelli til Vaðlaheiðar, en
að íslenzkir verkfræðingar telja
þar ekki tormerki á. Gert hef-
ur verið ráð fyrir, að aðalsendi-
stöðvar á Skálafelli, Vaðla-
Verkfallsheimild
UM SÍÐUSTU HELGI mót-
mælti fjölmennur fundur í Dags
brún ráðstöfunum ríkisstjórnar
innar í efnahagsmálum og
lieimilaði trúnaðarmannaráði að
taka ákvörðun um vinnustöðv-
un í samráði við önnur verka-
lýðsfélög, ef nauðsynlegt teld-
ist. Fleiri slíkar heimildir hafa
verið samþykktar í launþega-
saintökum. Talið er af ýmsum,
að ríkisstjórnin hafi gengis-
breytingu í huga, sem svar við
andstöðiumi. Q
UM ATVINNUMÁL 4 AKUREYRI
SAGT ER, að af þeim verk-
smiðjum íslenzkum, sem til
skamms tíma framleiddu skó-
fatnað og vinnuföt, séu nú
samvinnuverksmiðjurnar á
Akureyri einar eftir við þá
framleiðslu. Hinar hafi þurft
að hætta störfum vegna
óhindraðs innflutnings á er-
lendum vörum af þessu tagi
og annarra rekstrarörðug-
leika.
Hér í bænum er mikið í
húfi, ef iðnaður heldur áfram
að dragast saman og verk-
smiðjur, sem veitt hafa fjölda
fólks atvinnu, neyðast til að
minnka framleiðslu sína og
eða gefast upp við reksturinn
vegna óhagstæðra skilyrða.
Sjálfsagt yrði af opinberum
aðilum reynt að finna upp önn
ur verkefni, a. m. k. til ígripa
eða greiða stýrk úr Atvinnu-
leysissjóði, en allmikil myndu
við'brigðin verða fyrir þá, sem
haft hafa fasta verksmiðju-
vinnu. Hitt virðist þá skyn-
samlegra, bæði fyrir þjóðfé-
lagið og Atvinnuleysistrygg-
ingasjóðinn, að stuðla að því
með fjármunum og á annan
liátt, að iðnfyrirtæki, sem enn
þrauka og munu gera það í
lengstu lög, af því þau eru
byggð upp af almenningi og
með hag hans fyrir augum,
geti haldið áfram starfsemi
sinni a. m. k. í svipuðu formi
og þau enn gera.
Það væri skynsamlegra fyr-
ir Atvinnuleysistryggingasjóð
inn að gefa traustum fyrir-
tækjum eins og samvinnuverk
smiðjunum kost á nýjum
stofnlánum út á eignir þeirra
en að eiga það á hættu að
þurfa að greiða verksmiðju-
fólki atvinnuleysisstyrki. Á
það má líka minna, að þessar
verksmiðjur hafa aflað sér er-
lendra markaða og undanfarið
flutt út vörur, sem um mun-
ar. Nú mun vera hæpið, að sá
útflutningur geti haldið áfram
nema til komi útflutningsbæt-
ur. Óvíst er, hve miklar þær
þyrftu að vera til að hindra
samdrátt verksmiðjanna, sem
útflutningnum nemur. Vera
má, að þar dygðu svipaðar
bætur og nú eru greiddar á
verulegan hluta af útflutningi
(Framhald á blaðsíðu 4).
ÍS5SS44SS45444544545545SS4554545444S44455544444S4444S5444S454455445555S45S4544SS45445SS4455S454SS44454S444544455455545544444445445S44SS544S44444: