Dagur - 09.12.1967, Side 1
Herbergli*
pantanir.
Forða*
skriístoían
Túngötu 1.
Akureyri.
Sími 11475
HOTEL
r * l If 1 r Túngötu 1.
Feroaskrifstofan sími n4?5
Skipuleggium
ódýrustu
ferðirnar
tíl
annarra
landa.
Við vertíðariok á Seyðisfirði
Saltað í 60 þús. tunnur og 69.500 tonn brædd
Tveir piltar létu lífið og tveir aðrir eru mjög þungt haldnir
Seyðisfirði 8. des. íbúar Seyðis
fjarðar voru 905 við manntalið
1. des. 1966 og hefur þeim fjölg
að eitthvað síðan. Mikið hefur
verið byggt síðustu árin, og eru
nú í smíðum milli tíu og tutt-
ugu einbýlishús, raðhús með
fimm íbúðum og fjölbýlishús er
í smíðum á vegum bæjarins.
Saltað hefur verið í rúmlega
60 þús. tunnur og er Hafaldan
hæst með rúmlega 13 þús. tunn
BINGÓ OG VIST
Hrísey 8. des. Hörkuveður og
rafmagnið óstöðugt. Hver situr
sem fastast heima hjá sér. Kven
félagið hefur þó kaffiklúbb öðru
'hverju og verkalýðsfélagið
bingó. Þá hafa áhugasamir
menn Framsóknarvist. Sá sem
hreppir verðlaun hverju sinni,
sér um næsta spilakvöld. S. F.
Hernámsárin
sýnd á Ákureyri
í GÆR var í Borgarbíói sýnd
kvikmyndin Ilernámsárin 1940
—1945, sem fyrir þremur vik-
um var frumsýnd syðra og síð-
an. Hér er um að ræða fyrri
hluta mikillar kvikmyndar, og
kemur síðari hlutinn síðar í
vetur eða vor. Handrit og stjóm
hefur Reynir Oddsson á liendi
og kvikmynduina sá hann einn
ig um, ásamt V. Knúdsen.
Texta gerði Thorolf Smitli o. fl.
Flytjendur eru Helga Bach-
mann og Helgi Skúlason.
Mikið hefur verið rætt um
þessa mynd og mun marga
fýsa að sjá hana. Hún verður
sýnd hér næstu daga. □
ur. Síldarsöltunarstöðvar eru 8
og hafa 7 verið starfræktar í
sumar.
Síldarverksmiðjurnar eru
tvær og hafa þær tekið á móti
69.500 tonnum. Ný vei'ksmiðja,
sú þriðja, er í smíðum á svo-
kallaðri Ölfueyri og er vonast
til, að hún geti hafið vinnslu á
næstu vertíð.
Hér hafa verið mjög miklar
ógæftir. Síðasta síldin barst á
land 2. des. og þá aðeins smá-
slattar.
Rússneski síldveiðiflotinn hef
ur verið hér útifyrir og fjögur
viðgerðarskip hafa annast við-
gerðir í flotanum. Margir tugir
báta hafa verið hér inni til við-
gerðar, einkum til að losna við
net úr skrúfu. Einnig hafa hér
komið vatnstökuskip annan eða
þriðja hvern dag þegar flotinn
hefur verið skammt undan, en
annars leita þau til Færeyja.
Ágúst Sigurjónsson hefur
róið í þorsk á trillu sinni og
aflað sæmilega bæði á linu og
handfæri. En þorskveiðar hafa
setið mjög á hakanum á undan
gengnum síldaruppgripaárum,
líklega um of.
Snjór er sára-lítill og Fjarð-
arheiði var opnuð í dag, en
hætt við að hún lokist fljótt
aftur. B. H.
HÖRMULEGT SLYS varð sl.
þriðjudagskvöld eða snemma
nætur, þegar átta unglingar í
nýjum rússajeppa voru á heim-
leið úr Skriðdal til Egilsstaða.
Innan við Gilsárbrú missti öku
maðurinn vald á bifreiðinni
með þeim afleiðingum, að hún
steyptist fram af 20 metra þver
hníptu bergi og niður í ána.
Bíllinn lenti austan við brúna.
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLDIÐ
brast mikil klakastífla hjá Hall
dórsstöðum í Laxárdal. Fyllti
hún bæði inntakslón Laxár-
virkjunar og síðan túrbínurn-
ar. Tekin var upp rafmagns-
skömmtun á öllu orkuveitu-
svæðinu og stóð hún ennþá í
gær. En raforkuframleiðslan
Bíllinn koin niður á hjólin. ís
var undir og brotnaði hann og
lá jeppinn hálfgert á hliðinni í
vatni. Veður var hvasst, mikið
frost og vegurinn ósléttur eftir
nýlega afstaðna hláku.
(Framhald á blaðsíðu 2).
var þó farin að aukast tölu-
vert svo unnt var að rýmka
skömmtunina verulega í gær.
Raforkusvæðið fékk alls. um 10
þús. kw. En Laxárvirkjun fram
leiðir 12.500 kw. og toppstöðin
á Akureyri 4.000 kw. til viðbót-
ar, þegar allt er í fullkomnu
lagi- □
Úr prógrammi kvikmyndarinnar „IIernámsárin“.
KEMUR NORÐURLANDSÁÆTLUN FYRIR JÓL?
í MORGUNBLAÐINU 4. júlí
sl., rétt fyrir kosningar — er
viðtal við Magnús Jónsson
fj ármálaráðherra. í viðtalinu
sagði ráðherrann: „Ég tel
nauðsynlegt, að vinna kerfis-
bundið að alhliða uppbygg-
ingu í kjördæminu. Mikilvæg
asta skrefið að því marki nú,
er sú áætlun um eflingu
byggðar á Norðurlandi, sem
unnið er að og verður lokið á
þessu ári.“
Alllangt er nú liðið síðan
tilkynnt var af hálfu stjórnar-
valda, að Efnahagsstofnuninni
hefði verið falið að vinna að
gerð Norðurlandsáætlunar.
Sumarið 1966 fóru um Norður
land þrír menn á vegum Efna
hagsstofnunarinnar, þeir
Bjami Einarsson núverandi
bæjarstjóri á Akureyri, Valdi
mar Kristinsson og Þór Guð-
mundsson, og héldu fundi
með sveitarstjómum, einkum
í kaupstöðum og kauptúnum.
Hjá þeim kom fram lofsverður
áhugi í starfi og þeir viðuðu
að sér margskonar upplýsing-
um, sem þeir rituðu síðan
skýrslur um og afhentu Efna-
hagsstofnuninni. Eigi er kunn
ugt um, að þessar skýrslur
hafi verið neitt leyndarmál,
sem þingmenn hafi ekki feng-
ið að kynnast. Á þessum
skýrslum m. a. mun hafa átt
að byggja Norðurlandsáætlun
ina. En 'hún er ekki komin
fram ennþá, en á að koma fyr
ir næstu áramót, samkvæmt
yfirlýsingu ráðherrans í við-
talinu við Mbl., enda tími til
kominn. í seinni tíð hefur þó
ekkert heyrzt um, að hennar
sé von næstu daga en vera
má að svo sé og bíða ýmsir
þess með eftirvæntingu, að
áætlunin verði birt, t. d. áður
en afgreiðsla fjárlaga fyrir
árið 1968 lýkur á Aliþingi.
Það eina, sem heyrzt hefur
nú í þessu sarrabandi, er, að
einn af frambjóðendum Sjálf-
steeðisflokksins hér í kjördæm
inu nú í vor, hafi verið ráðinn
starfsmaður Efnahagsstofnun
innar með búsetu á Akureyri,
með sérstöku tilliti til Norður
landsáætlunar. Hitt hefði þó
mörgum þótt heppilegra, að
Fjórðungssambandi Norðlend
inga eða Sambandi norð-
lenzkra sveitarfélaga yrði fal-
ið að vinna að áætlunargerð
hér eftirleiðis með aðstoð sér-
fróðra, hvort sem það yrði
þessi frambjóðandi Sjálfstæðis
manna eða einhver annar,
einn eða fleiri.
Menn hafa það sem af er
heldur slæma reynslu af lands
hlutaáætlunargerð á vegum
ríkisstofnana fyrir sunnan.
Nú eru allmörg ár liðin síðan
fullyrt var á vegum stjórnar-
valda, að búið væri að semja
Vestfjarðaáætlun. En þegar
um hana var spurt nánar fóru
hlutaðeigendur undan í flæm
ingi. Og þegar borin var fram
formleg fyrirspum til ráð-
herra á Alþingi kom í ljós, að
Vestfjarðaáætlunin fyrir-
fannst hvergi og hafði aldrei
verið til. Umræður um þetta
eru í skjölum Alþingis. En nú
vona menn, að ekki fari eins
fyrir Norðurlandsáætluninni
og hún: komi fram fyrir jólin
eða nýárið, eins og ráðherr-
ann sagði.
Snemma í vetur minntist
Dagur lítilsháttar á þetta mál,
og varð það til þess, að rit-
stjóri íslendings stökk upp á
nef sér, en virtist þó hvorki
vita upp né niður í því, sem
um var rætt. Vonandi er hann
ekki hræddur um, að okkur
hér nyrðra sé ætlað að fá er-
indreka fyrir Sjálfstaeðisflokk
inn í staðinn fyrir Norður-
landsáætlun fyrir áramót.