Dagur - 12.02.1968, Qupperneq 10
einnig á Austurlandi og raunar
víðar um land og meðal Islendinga
í Vesturheimi. Ekkert blað, sem
gefið er út utan höfuðborgarinnar,
hefir notið álits á borð við Dag eða
haft slík áhrif sem hann nú um 50
ára skeið, enda ritstjórar hans allir
hinir merkustu menn.
Þegar Tíminn á síðasta áratug
tók að færast í aukana sem dag-
blað, var enn leitað til Dags, er
mikils þótti við þurfa. Og Dags-
ritstjórinn reyndist þar syðra
vandanum vaxinn, blaðamaður og
stjórnandi í fremstu röð, ávann sér
traust og mannhylli á hinum nýja
vettvangi. Ritstjórnarsaga Hauks
Snorrasonar í Reykjavík, og þar
með saga hans sjálfs, varð styttri
en vonir stóðu til. Marga setti
hljóða, er það spurðist, að hann
væri fallinn frá löngu fyíir aldur
fram.
Árið 1959, þegar gömlu kjör-
dæmin voru lögð niður með
stjórnarskrárbreytingu og Norður-
Iandskjördæmi eystra varð til,
urðu kynni mín af Degi og starf-
semi hans, og af forystumönnum
við Eyjafjörð, meiri og nánari en
þau höfðu áður verið. Dagur varð
þá fyrir allt hið nýja kjördæmi
það, sem hann hafði áður verið
fyrir Akureyri og aðrar Eýjafjarð-
arbyggðir — þótt aðildin að út-
gáfu hans sé raunar hin sama og
fýrr. Dág'ur hefir í þessi 8 ár verið
sá' málávari okkar I Frumsóknar-
manna hér á austarrverðu Norðurr
landi, sem við mættum >sízti ián.
vera. Allan þennan i tíma hefi ég
haft sámstarf, meita'og minná, við*
núverandi ritstjóra blaðsins, Erling
Davíðsson, kynnzt hæfileikum
hans og hugðarmálum, áhuga og
dugnaði í starfi, þar sem ekki eru
taldar vinnustundir, en því meir
hugsað um árangurinn. En við
Dag hefir einnig öll þessi ár verið
annar maður að verki, sem ekki
hefir legið á liði sínu, og er frá
10 DAGUR 50 ÁRA
unnendum blaðsins mikillar þakk-
ar verður, núverandi afgreiðslu-
maður Dags og framkvæmdastjóri
á fjármálasviðinu, Jón Samúels-
son, sem jafnframt hefir átt góðan
þátt í skipulagsmálum okkar
F ramsóknarmanna.
Nú, í höndum Erlings Davíðs-
sonar, er Dagur enn á vaxtar-
skeiði, blað vaxandi útbreiðslu og
vaxandi áhrifa, og það blað, er
gleggstar fréttir flytur af Norður-
landi og jafnvel víðar að úr dreif-
býli, og eigi sízt af þeirri ástæðu
vinsælt af mörgum, einnig utan
þessa landshluta. Ritstjóri Dags er
maður vel ritfær, einn snjallasti
höfundur fróðleiks og frétta í við-
talsformi, sem við slíkt fæst um
þessar mundir, og sjálfur áhuga-
samur fréttaljósmyndari, en af
penna hans og myndum hafa fleiri
blöð en Dagur notið góðs sem
kunnugt er. Gestkvæmt er á skrif-
stofu hans, því að margir eiga er-
indi við Dag, og margt þarf að
ræða. Er því næði stundum slitrótt
til ritstarfanna. Dagur er nú sem
fyrr ódeigur málsvari samvinnu-
stefnunnar, norðlenzkra viðhorfa
í landsmálum, eflingar höfuðstað-
ar Norðurlands og annarra norð-
lenzkra byggða, og réttir bróður-
hönd annarri landsbyggð, sem í
vök verst. Gegn mestu mannlífs-
plágu vorra tíma hér á landi, of-
nautn áfengis, er nú í Degi á ný
fram flutt hin afdráttarlausa hug-
vekja ýmsra þjóðkunnra stjórn-
málamanna, er búðum réðu, fyrr
á þessari öld. En í öðrum íslenzk-
um stjórnmálablöðum er sá boð-
skapuf nú lítt uppi hafður, svó að
athygíi veki.
Nú þegar útbreiddasta og
áhrifamesta blað landsbyggðar-
innar utan höfuðborgarinnar hefir
komið út í hálfa öld, er ástæða til
að staldra við í tómi, líta yfir far-
inn veg og hyggja að framvindu
mála í hinu unga íslenzka lýðveldi
— og í landi því, er vér nútíma
Islendingar höfum í arf tekið.
Jónas Jónsson frá Hriflu, sem
fyrrum á hafísvetri gerðist hvata-
maður að stofnun Dags, sagði í
þessu sama blaði fyrir 25 árum:
„Mér finnst vel við eiga að
benda á, hve mikla þýðingu það
hefir fyrir þjóðina að halda jafn-
vægi milli landshluta og atvinnu-
greina. Nú á dögum er það yfirvof-
andi hætta í mörgum þjóðfélög-
um, að höfuðstaðurinn verður til-
tölulega of stór í samanburði við
aðra bæi eða borgir í landinu.“
Þórarinn Eldjárn á Tjörn í
Svarfaðardal, sá mæti maður,
sagði um Dag á 40 ára afmæli
hans 12 febrúar 1958:
„Blaðið hefir alla tíð verið í for-
ystu um réttmætar kröfur Norð-
lendingafjórðungs og Norðlend-
inga á hendur ríkisvaldinu til úr-
bóta á málefnum fjórðungsins í
atvinnu-, samgöngu- og menning-
armálum, jafnframt því að vera
vettvangur, þar sem framfaramál
innanhéraðs hafa verið borin fram
og rökrædd. I öllum þessum mál-
um hafa áhrif blaðsins verið mikil
og heillarík."
Okkur Islendingum þykir vænt
um höfuðborg okkar og viljum veg
hennar mikinn. En engum, og ekki
henni sjálfri, er það til góðs, að
hún standi yfir höfuðsvörðum
norðlenzkra byggða eða annarra
lífvænlegra byggða hér á landi.
Með þetta fyrir augum hefir Dag-
ur lagt fram sinn skerf til þjóð-
málanna.
Aldrei hefir þess verið brýnni
þörf en nú,- að í höfuðstað Norður-
lands sé merki baráttunnar á
þessu sviði hátt haldið. Og hvernig
sem á stendur í stjórnmálum, ber
sú barátta jafnan nokkurn árang-
ur, ef af heilindum er háð og
manndómi, svo sem dæmi sanna.
í anda félagshyggjunnar ber
okkur, sem nú hyllum Dag eftir
hálfa öld, og þeim, sem á eftir
Framhald á bls. 59.