Dagur - 08.05.1968, Síða 8
SMÁTT OG STÓRT
Tveir menn á trillu fengu 3 tonn í kasti og eru að ljúka við löndun.
EKH DREGSTIÐHSKÓUSYGG
(Ljósm.: E. D.)
IÐNSKÓLA AKUREYRAR var
slitiS 29. apríl. Nemendur voru
201 og brautskráðust 76.
Kennarar við skólann voru
17, auk skólastjórans, Jóns Sig-
urgeirssonar. Fastir kennarar:
Aðalgeir Pálsson verkfræðing-
ur, Jens Sumarliðason húsa-
smiður og Steinberg Ingólfsson
ketil- og plötusmiður.
Kennslan fór fram í Hús-
mæðraskólanum, Samkomuhús
inu, Búnaðarbankanum, Slipp-
stöðinni og á málmsmíðaverk-
stæði í Glerárgötu 2. Ekki er
líklegt, eins og nú horfir, að
unnt verði að taka einhvern
hluta nýja gagnfræðaskólahúss
ins í notkun næsta haust, eins
og fastlega var búist við.
Kennt var í 20 iðngreinum.
Mæðradagurinn
MÆÐRADAGURINN er á
sunnudaginn kemur. Þá verða
seld mæðrablómin á götum
bæjarins. Vonum við að þeim
verði vel tekið. Ennfremur
verður blómabúðin Laufás opin
frá kl. 9—2, sem gefur liluta af
ágóðanum til nefndarinnar.
Mæðrastyrksnefnd.
Fjölmennastir voru húsasmiðir,
48, þar næst ketil- og plötu-
smiðir 25, bifvélavirkjar 24, raf-
virkjar og rafvélavirkjar 21, vél
virkjar 17 og húsgagnasmiðir
16. Elsti nemandinn var 44 ára
en sá yngsti 16 ára.
Hæstu einkunn á burtfarar-
prófi: Halldór Matthíasson,
húsasm. I. ágætiseinkunn 9.21.
Fékk verðlaun fyrir góðan
árangur í námi. Torfi Sigtryggs
son, húsasm. I. einkunn 8.83.
Ari Friðfinsson, húsgagnasm. I.
einkunn 8.82.
Hæstu einkunn í 3. bekk:
Óskar Árnason, rafv. I. einkunn
8.98. Ólafur Ágústsson, hús-
gagnasm. 8.73.
Minnzt var með þakklæti 65
þús. kr. gjöf Sveinafélags járn-
iðnaðarmanna til verklegrar
kennslu. Jafnframt var minnst
á kennslutækjasjóð skólans og
minningarsjóð um Paul La
Cour prófessor. En báðir þessir
sjóðir veita gjöfum frá velunn-
urum móttöku.
Skólastjóri flutti nemendum
sínum skólaslitaræðu og sungin
voru ættjarðarlög undir stjórn
Áskels Jónssonar. Frá braut-
skráningu fyrstu iðnnemanna
eru nú liðin 63 ár. □
DEILAN í ÓLAFSFIRÐI
I deilu þeirri um mjólkursölu-
mál í Ólafsfirði er rétt að minna
á: Landinu er skipt í mjólkur-
sölusvæði, þar sem starfandi
eru mjólkursamlög. Ólafsfjörð-
ur er eitt þeirra. Mjólkursam-
lagi er skylt að annast sölu og
dreifingu mjólkur á sínu sölu-
svæði, samkvæmt nánari- regl-
um. Öðrum er óheimilt að ann-
ast slíka þjónustu nema í um-
boði viðkomandi samlags.
Óheimilt er að flytja mjólk til
dreifingar og sölu milli sölu-
svæða. Þannig má KEA ekki
flytja mjólk til sölu í Ólafsfirði
og gagnkvæmt, og heldur ekki
aðrir aðilar. Lög um þetta efni
eiga að tryggja framleiðendum
og neytendum hagkvæm og rétt
lát viðskipti, og gera það'.
BÆNDUR OG ÓVINNUFÆRT
FÓLK
Gunnar Guðbjartsson, formað-
ur Stéttarsambands bænda, ger
ir rökstudda grein fyrir því í
Tímanum 4. maí hve bændur
landsins eru hart leiknir. Vitnar
hann þar í Hagtíðindi og önnur
opinber gögn, sem ekki verða
véfengd. Aðeins þeir, sem ekki
geta unnið, eru tekjulægri í
okkar þjóðfélagi en bændur.
EN HVERS VEGNA?
í lögum segir, að bændur skuli
liafa sambærilegar tekjur og sjó
menn, verkamenn og iðnaðar-
menn — við það á verðlags-
grundvöllinn að miðast hverju
sinni —. En viðmiðunarstéttim
ar hafa 235 þús. kr. lægst en
upp í 317 þús. kr. hæst — miðað
við 1966. Bændur vantar nú 50
—60% tekna til að ná rétti sín-
um. Það kemur m. a. til af því,
að verðlagsgrundvöllurinn er
rangur t. d. stórlega vantaldir
þýðingarmiklir liðir í búrekstr-
inum: Tilbúinn áburður og
kjarnfóður vantalið, tilbúinn
áburður um 48.68% og kjam-
fóður um tæp 30%. En þessar
tölur eru miðaðar við raunveru
lega notkun sl. 3 ár og hins veg
ar tölur verðlagsgrundvallarins
á yfirstandandi ári.
HVAÐ MYNDU LAUNÞEGAR
SEGJA?
Hvað myndu launþegar segja,
ef 50—60% vöntuðu í launa-
umslögin, frá umsömdu kaupi?
Nýlega fóru 20 þús. menn í verk
fall út af nokkrum prósentum.
Ekki skal lítið úr tilefnim: gert.
En livað mætti þá segja um
bændur, sem enga leiðréttingu
sinna mála hafa fengið?
DREGUR UR AFLA AKUREYRARTOGARA
Freysteinn Þorbergsson,
skákmeisíari.
KALDBAKUR kom af veiðum
í nótt með ca. 150 tonn eftir 9
daga útivist, fer á veiðar á
morgun.
SVALBAKUR fór á veiðar
sl. þriðjudag 30. apríl eftir hálfs
mánaðar slippferð til Rvíkur.
HARÐBAKUR landaði hér 2.
maí 170 tonnum, fór á veiðar
daginn eftir.
SLÉTTBAKUR landaði hér
29. apríl 86 tonum eftir 5 daga
útivist, fór á veiðar daginn
eftir.
Eitthvað mun hafa dregið úr
afla síðustu daga og hafa skipin
nú leitað á fjarlægari mið þ. e.
a. s. út af Vesturlandi.
ÚRSLITAMÓTIÐ um titilinn
Skákmeistari Norðurlanda 1967
til 1969 verður háð á Akureyri
dagana 12. til 20. maí næstkom-
andi. Þar keppa Norðmennirnir
Ragnar Hoen og Paul Sveden-
Hafísiim hefur fyllt Austfirðina
SAMKVÆMT viðtali við Veð-
urstofuna í gær, eru siglinga-
leiðir tepptar við Norðaustur-
land vegna hafíss, þar sem land-
fastur ís er við Sléttu og Langa
nes. Marga Austfirði hefur fyllt
af ís, svo sem Reyðarfjörð og
Fáskrúðsfjörð. — Norðfjarðar-
flói er fulur af ís, allt að tveim
sjómílum út fyrir Horn. Seyðis
fjörður er einnig lokaður og
Borgarfjörður er fullur af ís.
Frá Bjarnarey að Langanes-
fonti er breið vök með landi og
inn Vopnafjörð að norðanverðu.
ísinn er all mikill við Stokksnes,
en í gær sást hann ekki í Höfn
í Hornafirði.
Siglingaleið er ógreið út af
Ströndum, eða frá Horni að
Skaga en þó fær. Húnaflói er
íslaus austan til.
borg við Freystein Þorbergsson
um titilinn og veglegan silfur-
bikar. En þessir þrír skákmeist
arar urðu sem kunnugt er efstir
og jafnir í Norðurlandamótinu
í Finnlandi í fyrra. Tefla þeir
tvífalda umferð í salarkynnum
Hótels KEA og mun þetta vera
eitt hið merkasta skákmót, sem
fram hefir farið á Islandi utan
höfuðborgarinnar, en Frey-
steinn, sem var skákmeistari
Norðurlanda árin 1965 til 1967
er sem kunnugt er búsettur á
Norðurlandi.
í móti þessu verður einn auka
keppandi frá Akureyri og reikn
ast skákir hans ekki með í titil-
keppninni, það er þriggja
manna mótinu, en í fjögra
manna mótinu hafa allir jafnan
rétt til verðlauna, sem Slipp-
stöðin h.f. og fleiri norðlenzk
fyrirtæki gefa.
Paul Svedenborg er upprenn
andi norsk stjarna á skáksvið-
inu, varð m. a. skákmeistari
Noregs árin 1968 og 1967, en
ekki hefir fréttzt um árangra
hans í ár.
(Framhald á blaðsíðu 2)
Laugnm 6. maí. Prófum í yngri
og eldri deild Laugaskóla lauk
4. maí. Sigurður Kristjánsson
skólastjóri afhenti prófskírteini
og flutti skólaslitaræðu í gær.
Inflúensa truflaði próf, en hún
kom í skólann að loknum pásk-
um en hafði gengið yfir er prófi
lauk. Vegna þessa luku ekki all
ir nemendur prófum í öllum
greinum.
Hæstu einkunn í yngri deild
hlaut Þóra Þóroddsdóttir,
Breiðumýri 9.57. Jarðþrúður
Þórhallsdóttir, Bakkcifirði hlaut
8.82 og Þórólfur Arnkelsson,
Hraunkoti 8.79.
í eldri deild varð efstur Yngv
ar Þóroddsson, Breiðumýri,
9.22, næstur varð Knútur Osk-
arsson, Laugaskóla, 8.39, og
þriðji Rúnar Arason, Sólbergi,
Svalbarðsstcönd, 8.36.
Lionsklúbburinn Náttfari gaf
bókai verðlaun fyrir snyrti-
mennsku, góða framkomu og
urhsjótiáí'Störí. .Þau hlutu: í
' yngri déild Ásta Bjarnadóttir,
Hólabraut, Reykjadal og í eldri
deild Gerður Hallsdóttir, Arn-
dísarstöðum, en í gagnfræða-
deild Jakob Björnsson, Vopna-
firði.
(Framhald á blaðsíðu 5).
HREÍNTARFURINN Á EYJÓLFSSTÖÐUM
Á TÚNINU á Eyjóifsstöðum í
Fossárdal gengu í sumar þrjú
hreindýr og voru orðin gæf. í
vetur náðist eitt þeirra í hús,
þriggja til fjögurra vetra tarf-
ur, og hefur hann verið í fjósi
þar á bænum síðan. Átið kunni
'hann frá sumrinu, því hrein-
dýrin átu úr göltum á túninu,
en síðan lærði hann einnig að
meta kjarnfóður, enda þrífst
hann vel, einkum eftir að hon-
um voru gefin ormalyf.
Um þessar mundir befur
hann útivist á daginn, en fer
aldrei langt og er hýstur um
nætur. Band er haft á honum
og hægt að ná honum úti og
teyma hann í hús. Fáein hrein-
dýr halda sig í nágrenni Eyjólfs
staða, en sennilega hefur hann
ekki orðið þeirra var og hefur
því ekki á það reynt, hvort
hann velur sér félagsskap
þeirra eða unir áfram að búa
hjá mönnum. — Bóndinn á
Eyjólfsstöðum heitir Hermann
Guðmundason. □
Fagur silfurbikar frá Sigtryggi
og Pétri, gullsmiðum. KEA gaf
hann til keppninnar og hlýtur
sigurvegarinn bikarinn til eign-
ar. — (Ljósmynd: Filman).