Dagur - 06.06.1968, Síða 2
2
KR-ingur frá Akureyri hefur orðsð:
FYRIR NOKKRU las ég í einu
blaði Akureyiinga, Alþýðu-
manninum, ein þau furðuleg-
ustu skrif um íþróttir, sem ég
■hef lésið til þéssa, og hef ég þó
lesiS rhargt furðulegt bæði hér
í Reykjavíkurblöðunum og oðr
um blöðum.
Grein þessi er á íþróttasíðu
blaðsins, og er furðuieg af því
leyti, að hún er skrifuð af tak-
markaði'i þekkingu til íþrótta,
eða íþróttamála hér á landi, og
ekki siður fyrir það að hún er
bein árás á eitt af íþl'óttafélög-
um landsins, KR í Reykjavík.
Sá sém þessa endaleysu héfur
skrifað hefur ekki aðeins haft
takmarkað vit á íþrðttum held-
ur mætti og ætla að hann hafi
aldrei haft nein afskipti af þeim
málum, né reynt að kynna sér
þau áður en hann lét greinina
fara frá sér, heldur ætt áfram í
blindu getuleysi og öfund.
Ég skal hér nefna aðeins fá-
ein dæmi um kunnáttu hans á
málunum, honum og öðrum
norðanmönnum til skemmtunar
og fróðleiks.
M. a. stendur í greininni að
KR sé nokkurs konar „Mafía“ í
íslenzkum íþróttum, sem öllu
ráði, og að engir aðrir fái að
koma þar nálægt, t. d. með nið-
urröðun á leikjum 1. deildar en
þar hafi KR oft haft það þannig,
að hefja ekki keppni, eða raðað
sér niður á leiki fyrr en önnur
félög hafi leikið 3 leiki, og er
þar vitanlega átt við ÍBA, fyrst
og fremst. Hér skal á það bent
að ekkert knattspyrnulið hefur
áhuga, eða vill detta það mikið
úr keppni, að það leiki ekki
einn einasta leik á meðan að
önnur lið leika 3 leiki. Það
hljóta allir að sjá, að er óhag-
stætt fyrir lið að standa utan
vallar og horfa á hina, og er KR
engin undantekning með það,
ég er svo til viss um að því yrði
harðlega mótmælt af ÍBA, ef
þeir fengju engan leik í byrjun
íslandsmótsins, á meðan að hin
liðin léku 3 leiki í sambandi við
niðurröðun á leiki 1. déildar,
skal á það bent, að það er ein
og sama nefndin sem gerir það
og hefur gert í mörg undanfrain
ár að raða þeim leikjum niður,
ásamt öðrum leikjum í lands-
mótinu.
Þessi nefnd er Mótanefnd
KSÍ, þ. a. s. 3 stjórnarmeðlimir
KSÍ, ásamt framkvæmdastjóra
ÍBR, Sigurgeiri Guðmannssyni,
sem er eini KR-ingurinn í þess
um félagsskap, og hefur hann
aldrei fengið það orð að vera
hlynntur KR frekar en öðrum
félögum, í sínu mikla starfi að
íþróttamálum landsmanna, og
geta íþróttaforustumenn Akur-
eyrar áréiðanlega fullvissað
greinahöfund og lesendur um
það.
Áður en byrjað er að raða
niður, eru félögin spurð um,
hvort að lið frá þeim fari í ein-
hverja keppnisferð, t. d. erlend-
is, eða þá að einhverjir auka-
leikir séu hjá þeim um sumarið.
Sé svo, er fullt tillit tekið til
þess, við niðurröðun, samanber
að Knattspyrnuráð Akureyrar
sá sér ekki fært á að hefja
heimaleiki sína í byrjun leik-
tímabilsins, og var það tekið
fullkomlega til greina hjá nefnd
inni. ÍBA leikur sinn fyrsía
leik á Akureyri 23. júní en þá
hafa verið leiknir 4 leikir af 15
í Reykjavík, 2 af 5 hafa verið
leiknir í Keflavík, og 3 af 5 í
Vestmannaeyjum. Við niðurröð
un, eru leikjum heima og heim
an snúið við á hverju ári, þann-
ig að t. d. leikur Vals og ÍBA,
sem leikinn var í fyrra, í síðari-
hluta leiktímabilsins fyrir norð
an, verður leikinn í fyrrihluta
tímabilsins fyrir noi'ðan í ár, og
leikurinn.í Réykjavík sem fram
fór í fyrrihlufa, verður leikinn
í síðarihluta þar. KR átti að
leika við ÍBA fyrir norðan í
fyrrihluta tímabilsins, þar sem
léikur þeiri'a á síðasta ári, var
leikinn í -síðarihluta fyrir norð-
an, óg endaði 0—0 eins og flést-
ir muha. Én vegna beiðni ÍBA
um frestun útaf vellinum vai'ð
að breyta þessu, og leika KR-
ingar því aftur í ár fyrir norðan
í síðarihluta tímabilsins, þ. a. s.
11. ágúst. Þessu hefðu KR-ing-
ar, ef þeir væru allsráðandi eins
og sagt er ~i~gi'eininni, getað
breytt því það vita allir, og KR
líka a_ð ÍBA-liðið er erfitt heim
að sækja; og þá sérstaklega í
seinnihluta leiktímabilsins. Ef
KR hefði ráðið, hefðu þeir „tek
ið“ fyrsta leikinn fyrir norðan
23. júní, í staðinn fyrir að taka
fjórða leik þar, þann 11. ágúst.
í sambandi við að KR ráði
öllu í knattspyrnumálum þjóð-
arinnar, skal greinahöfundi og
öðrum á það bent, að KR á
engu fleiri menn í stjórn eða
nefndum Knattspyrnusambands
íslands (KSÍ) en önnur félög á
Suðurlandi.
Stjórn KSÍ er skipuð 7 mönn
um, öllum af Suðurlandi, (af
fjárhagsástæðum að sagt er) og
auðvitað með samþykki full-
trúa á KSÍ þingunum, en þeir
voru 121 á síðasta þingi, og þar
af 39 úr Reykjavík, og sjá þá
allir að utanbæjarfulltrúarnir
hafa því haft yfirhöndina á
þessu þingi eða 82 atkvæði, og
á Akureyri 9 fulltrúa, eða at-
kvæði af því eins og KR. Af
þessum 7 mönnum í stjórn KSÍ,
á KR 2 menn. Bjögvin Schram
formann KSÍ, kosinn einróma á
síðasta þingi, eins og svo mörg-
um áður, einnig af hinum 9 full
trúum Akureyrar. Helgi V.
Jónsson, var kosinn með yfir-
gnæfandi meirihluta atkvæða, á
síðasta þingi, einnig af fulltrú-
um Akureyrar, og skal þess get
ið að þetfa er í fyrsta sinn í 15
ár áð KR-á 2 menn í stjórn KSÍ,
þessii’ 2 menn „þó þeir séu úr
KR“ geta ekki ráðið öllu í 7
manna stjórn, það hljóta allir að
geta reiknað út.
f nefndum KSÍ, á KR álíka
marga menn og önnur félög. í
Mótanefnd KSÍ, engann af 3.
Tækninefnd KSÍ, einn af þrem
um. Dómaranefnd, engann af
þremum. í landsliðsnefnd, einn
af þremum, og í Unglinganefnd,
einn af fimm.
Vona ég að þessi upptalning
nægi, til að afsanna þessa hug-
mynd greinahöfundar, og ef ein
hver er vantrúaður getur sá
hinn sami, leitað sér staðfesting
ar á þessu hjá einum af hinum
9 fulltrúum ÍBA.
Ein þvælan í grein þeirri, sem
ég er hér að reyna að svara, er
skrifin um fjölgun 1. deildar lið
anna, sem samþykkt var á síð-
asta KSÍ þingi. Vegna þess að
KR hafi verið næstum fallið nið
ur í 2. deild, á síðasta ári, (en
vann þó Bikarkeppnina stuttu
síðar) og því hafi þeir látið
stækka 1. deildina, til að bjarga
sér og heiðrinum.
En hér skulum við koma með
það rétta, og er auðvelt að
kynna sér það, ef áhugi er fyrir
því að fara með rétt mál.
Tillagan um fjölgun 1. deildar
liðanna, var borin upp á síðasta
þingi, af fulltrúum utanbæjar-
liðanna, eins og þeir eru kallað-
ir á KSÍ þingum, sem haldin
eru í Réykjavík, OG SÁTU
FULLTRÚAR KR HJÁ VIÐ
ATK V ÆÐ AGREIÐSLUN A,
sem fór fram með handupprétt-
ingu, en tillagan var samþvkkt
með naumum meirihluta, eftir
miklar umræður. Meðal þeirra,
sem voru samþykkir henni
voru fulltrúar Akureyrar, en á
móti voru meðal annara fulltrú
ar Víkings, Þróttar og Akranes,
félaga sem leika í 2. deild í ár,
og sízt af öllum var búist við að
væru á móti. Þessar upplýsing-
ar hef ég, frá mörgum af þeim
fulltrúum, sem sátu þetta sögu-
lega þing.
Ekki nenni ég að eltast við
allar vitleysurnar, í grein
„íþróttasérfræðingsins“ en þó
er ein eftir, sem mig langar til
að „leiðrétta11, og er það kaflinn
um Þórólf Beck, sem nýlega
hefur fengið áhugamannarétt-
indi sín aftur, og með „extra“
hraða eins og segir í greininni
íþað minnsta fyrr en Albert
Guðmundsson fékk sín réttindi,
er hann sótti um þau, og auð-
vita er það KR að „þakka“ að
þessi hraði var svona mikill.
Það er fulltrúaráð íþróttasam
bands íslands (ÍSÍ) sem ákveð-
ur um veitingu áhugamanna-
réttinn til manna eins og t. d.
Alberts, og Þórólfs, fundir ráðs
ins, eru haldnir tvisvar til
þrisvar á ári, og á hverjum
fundi, er ákveðið hvenær næsti
fundur skuli fara fram, svo var
og um þennan fund hann var
ákveðinn, á fundinum á undan,
sem haldinn var sl. haust, og þá
var ákveðið að næsti fundur
yrði haldinn 18. maí. Fyrir þenn
an fund sótti Þórólfur Beck um
til KR að fá áhugamannarétt-
indin sín aftur. KR sótti um til
KRR, (Knattspyrnuráðs Reykja
víkur) og KRR, sótti um til
KSÍ, sem að lokum sótti um til
ÍSÍ, sem vísaði málinu til næsta
fulltrúaráðsfundar, þetta er leið
in, sem Albert varð að fara, og
þetta ei' leiðin í framtíðinni. Ef
Þórólfur, 'hefði sótt um, eftir 18.
maí, he'fði leyfið verið veitt á
næsta þingi, sem haldið verður
í haust. Reykjavík á einn full-
trúa á þéssu þingi, og er hann
ckki úr KR. Fulltrúaráðið, er
skipað mönnum úr öllum
(Framhald á blaðsíðu 3)
ÍBA og KR á sunnudaginn
Fyrsti leikur á Akureyri 23. júní við ÍBV
Á SUNNUDAGINN, 9. júní,
leika Akureyringar 2. leik
sinn í I. deild í sumar og
mæta KR á Laugardalsvell-
inum í Reykjavík. — KR og
Fram léku sl. þriðjudag og
varð jafntefli í þeim leik 2:2.
Lokið er þá fyrstu umferð í
deildinni að þessu sinni og
eru ÍBV og ÍBA efst með 2
stig, þá KR og Fram með 1
stig og Valur og ÍBK hafa
ekkert stig hlotið.
Fyrsti leikur ÍBA á heima
velli verður 23. júní og koma
þá Vestmannaeyingar norð-
ur. □
17. júní-mótið á Akureyri
FYRRI HLUTI 17. júní-mótsins
1968 fei' fram laugardaginn 15.
júní n. k. og hefst kl. 2 e. h. —
íþróttafélagið Þór sér um mótið
að þessu sinni.
Keppnisgreinar: Kringlukast,
langstökk, spjótkast, stangar-
stökk, 400 m. hlaup, 1500 m.
hlaup.
Seinni hluti mótsins fer fram
17. júní.
Keppnisgreinar: Hástökk,
kúluvarp, 100 m. hlaup, 200 m.
hlaup, 800 m. hlaup, 4x100 m.
boðhlaup.
Þátttaka tilkynnist Haraldi
Helgasyni, KVA, sími 1-10-20,
fyrir miðvikudaginn 12. júní
n. k. □
Siglfirðingar unnu bridgemótið
NORÐURLANDSMÓT í bridge
fór fram að Hótel KEA 23.—26.
og tóku 6 sveitir þátt í keppn-
inni, 2 frá Akureyri, 2 frá Húsa
vík og 2 frá Siglufirði, og auk
þess ein gestasveit frá Akra-
nesi, sveit Hannesar Jónssonar.
Úrslit í mótinu urðu þau, að
sveit Boga Sigurbjörnssonar frá
Siglufirði sigraði glæsilega,
hlaut 34 stig. Auk Boga skipa
sveitina, Hreinn Steinsson, Val
týr Jónasson og Jóhann Möller.
2. varð sveit Harðar Arnþórs-
sonar, Siglufirði, 26 stig. 3 sveit
Guðjóns Jónssonar, Húsavík, 22
stig. 4. sveit Knúts Otterstedt,
Akureyri, 17 stig. 5. sveit Bald-
vins Ólafssonar, Akureyri, 12
stig. 6. sveit Karls Hannessonar,
Húsavík, 9 stig. Gestasveitin frá
Akranesi hlaut 26 stig.
Mótsstjóri var Angantýr Jó-
hannsson, en keppnisstjóri Al-
bert Sigurðsson.
Keppt var um veglegan verð-
launabikar gefinn af Samvinnu
tryggingum og er þetta í 3ja
skipti sem Norðurlandsmót í
bridge er háð. Mótið fór mjög
vel fram og var hið ánæjguleg-
asta í alla staði.
(Fréttatilkynning)
áflanfka lceland Review
NÝTT hefti tímaritsins Iceland
Review er nýkomið út og hófst
þar með sjötti árgangur þess.
Er heftið mjög fjölbreytt og
vandað, skreytt miklum fjölda
mynda, bæði í litum og svart-
hvítu.
Allar þjóðir leggja mikla
áherzlu á að kynna land sitt og
útflutningsafurðir, m. a. með út
gáfustarfsemi — og eru keppi-
nautar íslendinga á erlendum
mörkuðum athafnasamir á því
sviði. Iceland Review hefur í 5
ár leitast við að gegna þessu
hlutverki, það hefur kynnt út-
flutningsvörur landsmanna og
kynnt landið ferðamönnum á
margvíslegan hátt.
Vegna vaxandi erfiðleika í út
flutningsmálum íslendinga og
aukinnar þarfar til þess að leita
markaða á breiðari grundvelli
en verið hefur, veitir Iceland
Review þegar töluverða mögu-
Sumarbúðir UMSE
UNGMENNASAMBAND Eyja
fjarðár hefir staðið fyrir sumar
búðanámskeiðum nokkur und-
anfarin ár, og hyggst halda
þeirri starfsemi áfram, þar sem
námskeiðin hafa yfirleitt verið
vel sótt og þótt takast vel.
Nú eru ákveðin tvö námskeið
að þéssti sinni að Laugalandi í
Eyjafirði, en þar er mjög góð
aðstaða til sumarbúðastarfs, góð
sundlaug er á staðnum, íþrótta-
völlur, félagsheimili, og ágæt
aðstaða fyrir mötuneyti og
svefnpláss í Húsmæðraskólan-
um.
Fyrra námskéiðið, sem ætlað
er unglingum 12 ára og eldri,
stendur frá 25. júní til 30 júní,
en hið seinna, sem ætlað er
börnum 9, 10 og 11 ára hefst 30.
júní og lýkur 7. júlí.
Tilkynningar um þátttöku
skulu berast til Þórodds Jó-
hannssonar, Byggðavegi 140 A,
sími 12522, Akureyri, fyrir 10.
þ. m. Hann veitir allar nánari
upplýsingar um námskeiðin. Þá
munu formenn sambandsfélag-
anna einnig taka við umsókn-
um. □
leika á því sviði. Ritið mun
framvegis sem hingað til hafa
áhuga á að kynna allar þær ís-
lenzkar framleiðsluvörur, sem
von er til að hægt verði að
finna markað fyrir erlendis.
Óhætt er að fullyrða að Iceland
Review hafi á undangengnum 5
árum eflt tengsl okkar við önn-
ur lönd á margvíslegan hátt og
stöðugt er stefnt að gera stærri
átök, með aukinni útbreiðslu og
hverskonar eflingu ritsins.
Af efni ritsins má nefna grein
um Fjalla-Eyvind eftir Sigurð
A. Magnússon með fjölmörgum
myndum, viðtal og myndir af
Maríu Guðmundsdóttur, grein
um málarann Sverri Haralds-
son eftir Odd Björnsson — og
fylgja þar meðal annars litprent
anir af málverkum hans. Grein
er um kappakstursmanninn
Sverri Þóroddsson, um paradís
fuglaskoðarana á íslandi eftir
Jeffrey Harrison, þýðing Hall-
bergs Hallmundssonar á Gunn-
arshólma Jónasar Hallgríms-
sonar og grein eftir Magnús
Magnússon, ritstjóra í Glasgow,
um ísland fyrir daga norsku
innfly tj endanna.
Fjölmargt annað efni er í rit-
inu.
Mikill fjöldi mynda er í rit-
inu, bæði í litum og svart-hvítu
og er frágangur allur til fyrir-
myndar. □
MINNINGARSPJÖLD kvenfé-
iagsins Hlifar. Öllum ágóða
varið til fegrunar við barna-
heimilið Pálmholt. Spjöldin
fást í Bókabúðinni Huld og
hjá Laufeyju Sigurðardóttur
Hlíðargötu 3.